Tíminn - 04.05.1965, Side 1
HANDBOK
VERZLUNARMANMA
A’SKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
HANDBOK
VERZLUNAR MANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
98. tbl. — Þriðjudagur 4. maí 1965 — 49. árg.
Stjórnarfrumvarpið um
Búrfellsvirkjun komið
í
TK—Reykjavík, mánudag
Ríkisstjórnin laigði í dag fram
á Alþingi frumvarp það sem hún
hefur boðað um heimild til virkj
nnar Þjórsár Við Búrfell. Nefinist
frumvanpið: Frumvarp til laga
um Landsvirkjun. Kveður frum-
varpið á um stofnun fyrirtækis, er
nefnist Landsvirkjun og á að taka
við af Sogsvirkjunarstjórn og taka
við öllum eignum hennar og túr-
Vildu
mink
TK—Reykjavík, mánudag.
Atkvæðagreiðsla um minka-
frumvarpið fór fram eftir 2. um-
ræðu í neðri deild Alþingis í
dag. Fór frarn nafnakall um til-
lögu Benedikts Gröndals um að
vísa málinu til ríkisstjómarinnar,
þ.e. svæfa .það. Var tillagan felld
með 22 atkv. gegn 13. Frumvarps
greinin var samþykkt með 21:9 og
frumvarpið samþykkt til 3. umr.
með 22:11. Þrátt fyrir þessi úrslit
má telja ólíklegt að frumvarpið
verði að lögum á þessu þingi.
Fáir dagar eru til þingsslita og
frumvarpið á eftir að fara í gegn
um eina umræðu í neðri deild og
þrjár í efri deild og vinnst vart
tími til að ljúka afgreiðslu þess.
Þeir sem greiddu frávísunartil-
lögu Benedikts Gröndals atkvæði
voru þessir: Ágúst Þorvaldsson,
Eðvarð Sigurðsson, Benedikt
Gröndal, Björn Fr. Björnsson, Ey-
steinn Jónsson, Vilhjálmur Hjálm
arsson, Sigurður Jóhannesson, •
Gylfi Þ. Gíslason, Rannibal Valdij
marsson, Lúðvík Jósefsson, Ragn
ar Arnalds, Sigurvin Einarsson ogj
Skúli Guðmundsson. Aðrir deildar!
menn voru tillögunni andvigir —
(þ. e. hlynntir frumvarpinu) að|
undanskildum tveim sem ekki'
greiddu atkvæði. Þrír voru fjar-!
verandi. j
bínustöð Reykjavíkurborgar við
EHiðaár jafnframt því sem hún
tekur við öllum vatnsréttindum
og réttindum ríkisins og Reykja
víkurborgar til virkjana í Sogi og
í Þjórsá við Búrfell. Skal Lands
virkjun heimilt að reisa allt að
210 þús. kílóvatta orkuver við
Búrfell, sem reist yrði í áföngum.
Stjórn Landsvirkjunar skal
skipuð sjö mönnum. Alþingi kýs
þrjá stjórnarmenn og borgarstjórn
Reykjavíkur þrjá en þessir aðilar
skipa hinn sjöunda í sameiningu
og skal hann formaður. Stjórn
þessi skal ákveða heildsöluverð á
raforku og skal verðið við það
miðað, „að eðlilegur afrakstur fá-
ist af því fjármagni, sem á hverj
um tíma er bundið í rekstri fyrir
tækisins. Einnig skal að því stefnt
að fyrirtækið skili nægilegum
greiðsluafgangi til þess að það
geti jafnan með eitVn fjármagni
og hæfilegum lántökum tryggt
notendum sínum næga raforku."
Um orkusölusamninga til langs
tíma segir svo: „Til orkusölusamn
inga til langs tíma við iðjufyijir-
tæki, sem nota meira en 100 millj
ónir kílóvattstunda á ári þarf
Landsvirkjun leyfi ráðherra þess
er fer með raforkumál. Slíkir
samningar mega ekki að dómi
ráðherra valda hærra raforkuverði
til almenningsrafveitna en ella
hefði orðið.“
Fella skal niður aðflutnings-
gjöld, söluskatt af efni, tækjum
og vélum til virkjunarinnar og til
dísilstöðva hennar og undanskilin
skal hún sköttum og útsvörum.
Ríkissjóði er heimilt að lána Lands
virkjun 100 milljónir króna þeg
ar virkjun við Búrfell hefst og
heimilt er ríkisstjórninni að
ábyrgjast lán eða taka lán allt að
1204 milljónum króna.
Þá segir, að eigendum Laxár-
virkjunar sé heimilt að ákveða,
að Laxárvirkjun sameinist Lands-
virkjun. Frumvarpinu fylgir ítar-
leg greinargerð og fimm fylgis-
skjöl um virkjunarmál og virkj-
unarrannsóknir Raforkumála-
stjórnar og bandaríska verkfræði-
firmanns Harza.
VERKFALLS-
BANNIÐ
AÐ LÖGUM
TK, Alf.-Reykjavík, mánud.
Frumvarp ríkisstjórnar-
innar um bann við verkfalli
flugmanna og gerðardóm til
úrskurðar um kaúp þeirra
og kjör var afgreitt sem lög
frá Alþingi síðdegis í dag.
Var frumvarpið samþykkt
með atkvæðum þingmanna
stjórnarflokkanna gegn at-
kvæðum stjórnarandstöðu-
þingmanna. Björn Pálsson
greiddi ekki atkvæði.
2. umræðu um gerðar-
dómsfrumvarpið lauk um
miðnætti 30. apríl og frum-
Framh á bls. 2-
Þannig var umhorfs á slysstaðnum á sunnudaginn. Bandarískir hermenn stóðu tryggan vörð við flakið, og voru komnir með skúr og Ijósavél á
staðinn, enda auðveit að komast þangað eftir nýja Keflavíkurveginum. Stélið, heillegasti hluti þyrlunnar er á mlðri myndinni, en til vinstri
er flaklð brunnlð, og þar hjá liggur annað skrúfublaðið. (Tímamynd K.J.).
5 BANDARÍKJAMENN FARAST í
Þ YRLUSL YSIÁ STRANDARHEIÐI
.1 HM-Reykja'VÍ'k, mánudag.
| menn fórust er þyrilvængja sem
Það sviplega slys varð s. 1. laug þeir voru í, hrapaði til jarðar
ardagskvöld að fimm Bandaríkja- við nýja Keflavíkurveginn. Fimm
menningarnir voru á heimleið úr
könnunarferð frá bækistöð hers-
ins í Hvalfirði. í vélinni var næst
' ..
^ ...
Rðbert R. Sparks
Arthur E. House
Clinton L. Tuttle
John Brink
æðsti maður vallarins Capt. Ro-
bert R. Sparks, og yfirmaður
landgönguliðs flotans á íslandi,
Lt. Col. Arthur E. House.
Flugslysið bar mjög skyndilega
að höndum, og mun flugmönnun-
um ekki hafa gefizt tími til að
kalla í Keflavíkurvöll og tilkynna
neyðarástand. Það var um klukk
an sjö á laugardagskvöldið sem
Hafnarfjarðarlögreglunni barst
fyrsta tilkynningin um slysið, sem
skeði í Strandarheiðinni fyrir ofan
bæinn Landakot, sem er á Vatns
leysuströndinni. Sá sem fyrstur
tilkynnti slysið vissi ekki hvers
eðlis það var, en Hafnarfjarðar-
lögreglan fór þegar á staðinn,
auk þess sem sjúkrabíll var einn
ig sendur. Þrír ungir piltar voru
sjónarvottar að slysinu, og er við
tal við þá á öðrum stað í blaðinu.
Framh. á bls. 2.