Tíminn - 04.05.1965, Qupperneq 7
ÞINGFRETTIR
ÞINGFRETTIR
ÞEIÐjrUDAGUR 4. maí 1965
TÍMINN
7
LANDSVIRKJUN VIÐ BURFELL
Hér fer á eftir greinargerð sú,
sem fylgir frumvarpi því til laga
um Landsvirkjun og virkjun Þjórs
ár við Búrfell, sem lagt var fram
af ríkisstjóminni á Alþingi í gær.
Meginefni frumvarpsins er rakið
á bls. 1:
Sogið er nú fullvirkjað og fyrir
dyrum stendur að virkja á nýjum
stððum til að fullnægja aukningu
í raforkuþörf þjóðarinnar. Raf-
orkunotkunin vex svo ðrt, að hún
tvöfaldast á hverjum 10 árum. Áð-
ur en 10 ár eru liðin verður því
að vera lokið að virkja afl til við-
bótar, er nemur öllu því rafafli,
sem nú er fyrir hendi í orkuverum
landsins. Og þannig mun raforku-
notkun halda áfram að vaxa hér
á landi næstu áratugi. Til að full-
nægja þessum þörfum verður að
gera stærri og stærri virkjanir og
er nú, að Soginu fullvirkjuðu, að
þvi komið að hefja virkjun í stór-
ám landsins.
Að hefja virkjun í stórám lands-
ins er að vísu mikið átak, en þó
tæðlega meira nú en fyrsta virkj-
un í Sogi var á sínum tíma. Með
virkjun Ljósafoss í Sogi var stig-
ið stórt skref fram á við í raf-
veitumálum íslands. Með því
skrefi vannst þrennt: skyndilega
var leyst úr raforkuskorti, sem þá
var orðinn mjög tilfinnanlegur,
við það að virkja mjög miklu
stærra en áður hafði verið gert,
lækkaði vinnslukostaður rafork-
unnar á einingu verulega og í
þriðja lagi var með þessari fyrstu
virkjun í Sogi mörkuð stefna í
virkjunarmálum, sem entist þjóð-
inni til eðlilegrar þróunar rafveitu
mála um langt árabil. Með Sogs-
virkjunarlögunum var því slegið
föstu, að orkuverin í Sogi skyldu
vinna raforku ekki einungis fyrir
höfuðborgina eina, heldur fyrir
öll héruð Suður- og Suðvest-
urlands jafnótt og fjárhagur þjóð
arinnar leyfði, að veitur yrðu
lagðar um þau héruð. Þar með
var lagt inn á braut samvirkjunar
fyrir mörg héruð í senn. Hið
sama hefur átt sér stað ann-
ars staðar á landinu, svo sem með
virkjun Laxár í Suður-Þingeyjar-
sýslu fyrir Akureyri og héruð
EKYJAFJARðAR OG Suður-Þing
eyjarsýslna, enn fremur með virkj
un Andakílsár fyrir Mýra- og
Borgarfjarðarsýslur og Akranes-
kaupstaðar, með virkjun Mjólk
ánna fyrir Vestfirði og virkjun
Grímsár fyrir miðbik Austurlands.
Fossá í Engidal var og á sínum
tíma virkjuð fyrir tvö sveitarfé-
lög, ísafjarðarkaupstað og Hnífs
dal. Nú eru 8 slík samveitukerfi
hér á landi: 1) Suðvesturlandið,
2) Snæfellsnes, 3) Vestfirðir, 4)
Steingrímsfjörður og Reykhóla-
kerfið, 5) Skagafjarðar- og Húna-
vatnssýslur saman, 6) Siglufjörð-
ur, Ólafsfjörður og Fljótin frá
Steingrímsfjörður og Reykhóla-
Eyjafjarðar- og S-Þingeyjarsýsla
frá Laxárvirkjun og 8) miðbik
Austurlands frá Grímsárvirkjun,
12 kauptún víðs vegar um landið
hafa enn hvert um sig sína eigin
stöð, án tengsla við aðra.
Með flestum eða öllum þessum
samveitum var tilgangurinn fyrst
og fremst sá, að sameinast um
stærra orkuver en ella og^ á þann
hátt tryggja hagkvæmari orku-
vinnslu, aukið öryggi í rekstri og
aukna möguleika til fjáröflunar.
Með því að tengja saman umdæmi
fleiri en eins sveitarfélags og
sýslufélaga fékkst stærri orku-
markaður og skapaðist um leið
möguleiki til stærri virkjunar með
þar af leiðandi hagkvæmarí orku-
vinnslu.
Af þeim samveitusvæðum, sem
að framan eru nefnd, eru Suð-
vesturlandið og orkuveitusvæði
Laxárvirkjunarinnar langstærst.
Samanlagt afl orkuvera á þessum
tveimur orkuveitusvæðum eru nú
125.000 kw og orkuvinnsla þeirra
um 600 millj. kWst. á ári. Þetta
er meira en 90% af allri raforku-
vinnslu landsins í heild. Áður en
tíu ár eru liðin mun afl- og orku-
þörf þessara svæða hafa vaxið um
100% ,og verður því þá að vera
búið að virkja yfir 100 þús. kW
til viðbótar og orkuvinnslan að
hafa aukizt um aðrar 600 millj.
kWst., enda þótt engin stóriðja
kæmi. upp á þeim tíma. Þannig
er jafnmikil aukning framundan
á næstu 10 árum og verið hefur
á þeim 30 árum, sem liðin eru,
síðan undirbúningur hófst að
fyrstu virkjunum Sogsins.
Jafnframt er vert að gera sér
grein fyrir, að á næstu 30 árum
mun orkuþörfin meir en 5 fald-
ast. Á þeim tíma mun óhjákvæmi-
lega þurfa að virkja meir en %
millj. kW til að fullnægja þörf-
um íbúanna á þessum orkuveitu-
svæðum.
Hér er um nýtt þróunarstig að
ræða og verður nú mögulegt og
jafnframt nauðsynlegt að fram-
kvæma enn aflmeiri virkjanir en
áður, með þeim kostum, sem það
hefur í för með sér.
Til þeirra virkjunarfram-
kvæmda, sem framundan eru, þarf
mikið fjármagn og verður að sjálf
sögðu að sækja megnið af því
fjármagni til erlendra lánastofn-
ana. Miklu máli mun því skipta,
að það fyrirtæki, sem kemur virkj
ununum upp á þær og rekur, sé
fjárhagslega traust og þannig rek-
ið, að það njóti þess lánstrausts,
sem því er nauðsyn að hafa.
Megintilgangur þess að stofna
til landsvirkjunar er sá, að skapa
skilyrði til aflmikilla virkjana í
stórám landsins, tryggja með því
í senn næga raforku í landinu og
lágan vinnslukostanð orkunnar.
Því aflmeiri, sem virkjunin er,
því lægra er að jafnaði vinnslu-
verðið. Aflmiklar virkjanir þurfa
tilsvarandi meiri markað fyrir
orkuna.
Á orkuveitusvæðum Sogsvirkj-
unar og Laxárvirkjunar fer nú
fram eins og áður er getið, meir
en 90% af allri raforkunotkun
þjóðarinnar. Raforkunotkun ann-
arra landshluta er lítil og það
verður að fara eftir því, hvað rétt-
lætanlegt reynist af kostnaðar-
ástæðum á hverjum tíma, hve ört
þeir landshlutar verða tengdir við
Landsvirkjun. En sú tenging er
þeim meira í hag en Landsvirkj-
un sjálfri,
Rikisstjórnin hefur rætt við með
eigendur sína að Sogsvirkjun og
Laxárvirkjun, Reykjavíkurborg og
Akpreyrarkaupstað, um sameign-
arfélag allra þriggja aðilanna um
Landsvirkjun. Meðeigandi Laxár-
virkjunar, Akureyrarkaupstaður,
hefur svarað því til, að hann sé
ekki tilbúinn að ganga að sinni í
félag við ríkið og Reykjavíkurborg
um Landsvirkjun, en óskar þó
jafnframt eftir því, að eiga þess
kost, að gerast meðeigandi að
Landsvirkjun síðar.
Samkomulag hefur hins vegar
náðst milli ríkisstjórnarinnar og
stjórnar Reykjavíkurborgar um að
mynda sem fyrst, að fengnu sam-
þykki Alþingis, félag um Lands-
virkjun, þótt Laxárvirkjun verði
ekiki aðíli að henni að sinni.' Jafn
framt mæla þessir aðilar með því
að Laxárvirkjunin geti síðar sam-
einazt Landsvirk.iuninni.
Frumvarp þetta til laga um
Landsvirkjun er samið með hlið-
sjón af niðurstöðum af þessum
viðræðum við meðeigendur ríkis-
ins að Sogsvirkjun og Laxárvirkj-
un.
Þegar er Landsvirkjun hefur
verið stofnuð mun hún verða að
hefjast handa við hið fyrsta virkj-
unarverkefni til að fullnægja aukn
ingu orkuþarfa á Suður- og Suð-
vesturlandi, svo og orkuþörf í öðr-
um landshlutum eftir því sem
áætlanir sýna að hagkvæmt verð-
ur að veita raforku milli lands-
hluta.
Undanfarin 15—20 ár hafa far-
ið fram ítarlegar rannsóknir á
vatnsafli landsins og verið gerðar
áætlanir um virkjanir á ýmsum
stöðum. Með frumvarpi þessu er
prentuð greinargerð um rannsókn
ir til undirbúnings virkjana á Suð-
vesturlandi og Norðurlandi, sem
raforkumálastjóri tók saman í
október 1964. Vísast til þeirrar
greinargerðar. Þá hafa verið gerð-
ar áætlanir um, hver muni verða
vöxtur í raforkuþörf í ýmsum
landshlutum, miðað við áætlaða
fólksfjölgun í landinu og við eðli-
lega aukningu í atvinnuvegum
þjóðarinnar, sem nú eru þekktir.
Loks hafa verið í athugun nú um
nokkurt skeið möguleikar á því,
að hér yrði komið upp stóriðju,
sem svo er nefnd, þ.e.a.s. iðnaði,
sem krefst mjög mikillar raforku
til framleiðslu sinnar. Er hér um
að ræða aluminíumvinnslu, enda
er það eini iðnaðurinn, af þessu
tagi, sem vitað er um, að til mála
getur komið að koma hér upp
sem stendur. Umræður hafa farið
fram við svissneska fyrirtækið
Swiss Aluminium og hefur það
áhuga á því að fá leyfi til þess
að reisa og reka aluminíumverk-
smiðju og semja við íslenzkan
raforkuframleiðanda um kaup á
miklu magni af raforku til alum
iniumvinnslunnar. Er rætt um
verksmiðju, er framleiði 60 000
tonn á ári- og myndi hún til þess
þurfa árlega tæplega 1000 millj.
kWst.
Til þess að mæta í senn vax-
andi þörfum raforku til almennra
nota í landinu og þörfum slíkrar
aluminiumverksmiðju, þykir bezt
henta að velja til virkjunar fallið
í Þjórsá við Búrfell og gera þar
í nokikrum áföngum orkuver er
verði 210 000 kW að afli og geti
framleitt kringum 1700 milljónir
kWst á ári til þeirra nota. Sam-
tals munu þá Sogsvirkjun og Búr-
fellsvirkjun geta framleitt rúm-
lega 2200 milljónir kWst á ári.
Miðað við þá áætlun, sem gerð
hefur verið um aukningu á raf-
orkuþörf til almennra nota á
Suður- og Suðvesturlandi ásamt
raforkunotkun umræddrar alumín
iumverksmiðju, mun þessi virkj
un vera fullnýtt einhvem tíma
á árunum 1975—76. Komi hins
vegar ekki til þess, að aluminium
verksmiðja eða annar orkufrekur
iðnaður rísi hér upp á þeím tíma,
getur afl virkjunarinnar enzt tölu
vert lengur. Fyrir þessu er nánar
gert grein í „Samanburði á
nokkrum virkjunarkostum fyrir
Súðvesturland“, dags. apríl 1965,
sem tekin hefur verið saman á
vegum raforkumálastjóra og prent
aður er með frumvarpi þessu. Þar
er sett fram áætlun um raforku
þörf á Suður- og Suðvesturlandi
næstu 10—20 árin bæð5 án og með
umræddri aluminlumverksmiðju.
f þeirri greinargerð er gerður
samanburður nokkurra virkjunar-
kosta og athugað í hverju tilviki,
hve ört muni þurfa að virkja,
hver fjárfestíngin er og hverjar
eru líkur um fjárhagslega afkomu
ýmist með eða án aluminiumverk
smiðju.
Áætlanir voru gerðar um virkj
un Dettifoss með það fyrir aug-
um að orka úr þeim fossi kynni
að verða notuð til aluminiumvinnsl
unar. Á vegum Stóriðjunefndar
var gerður samanburður á virkj
un Þjórsár við Búrfell og Jökuls
ár við Dettifoss með raforku-
vinnslu fyrir aluminiumbræðslu
fyrir augum. Stóriðjunefnd gerði
einnig samanburð á þeim tveim
möguleikum annars vegar að sala
raforku til aluminiumverksmiðju
yrði takmörkuð við 30 000 tonna
•'erksmiðju og hins vegar að sam
ið yrði um sölu orku í helmingi
stærri eða 60 000 tonna verk-
smiðju.
f bréfi verkfræðingafirmans
Harza Engineering Company Int
ernational til raforkumálastjóra,
dags. 24. apríl 1965, er í stuttu
máli gerð grein fyrir áætlun
þeirra um virkju Þjórsár við
Búrfell. Bréfið er prentað með
frumvarpinu í íslenzkri þýðingu.
Tóbkasauglýs-
ingar bannaðar
TK-Reykjavík, mánudag.
Neðri deild Alþingis samþykkti
I dag frumvarp um bann gegn
hvers konar tóbaksauglýsingum
með 17 atkvæðum gegn 12, að af-
lokinni 2. umræðu málsins. Frum-
varp þetta hefur hlotic samþykki
í efri deild og má búast við að
það verði að lögum á þessu þingi.
SÁU ÞYRLUNA
Framh. af bls. 16.
hraustu pilta, sem ekki víla fyr
ir sér að hjóla til Keflavíkur og
til baka á einum degi, og hafa
gefið þá beztu lýsingu á þyrlu-
hrapi sem bandarísku rannsókn
armennirnir hafa nokkru sinni
fengið.
TÓMAS KARLSSON RITAR
Á ÞINGPALLI
Mishermi var hér á siðunni í frásögn af ræðu Einairs Agústsson-
ar um skuldabréfaútboð ríkisstjórnarinnar og frumvarpið um verð-
tryggingu fjárskuldbindinga í þvi sambandi. Sagði Einar, að hann
skyldi frumvanpið svo, að Viðskiptabönkum og sparisjóðum yrði
heimilt að taka við öllu sparifé til verðtryggingar með vísitöluákvæð-
um án þess að það yrði bundið tilákveðins tíma.
★★ Felldar voru í neðri deild í gær breytingartillögur frá Halldóri
E. Sigurðssyni um að hækka laun ljósmæðra um 50% frá því, sem
gert er ráð fyrir í frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Voru breytingartil-
lögur Ilalldórs felldar með 16 atkvæðum gegn 15 og samþykkt ó-
beytt til efri deildar.
Niðurstaða allra þessara at-
hugana hefur orðið sú, að rétt þyk
ir að leggja til að heimilað verði
að ráðast í allt að 210000 kW virkj
un í Þjórsá við Búrfell og eru
af þeirri ástæðu heimildarákvæði
til þeirrar virkjunar felld inn í
frumvarpið.“
FLJUGUM
ÞRIÐJUDAGA
FIMMTUDAGA
LAUGARDAGA
FRÁ RVÍK KL. 9.30
FRÁ NORÐFIRÐI KL. 12
F L U G S Ý N
SÍMAR: 18410 18823
BÍLA OG
BÚVÉLA
SALAN
PILTAR
EFÞID EIGID UNUUSTUNA
VÁ Á tO HRIN0ANA /
/tds/suxrf 6 V
hringar
afgr°»dd'!r
samdæau
Sendum jrr
land.