Tíminn - 04.05.1965, Side 16
98. tbl. — Þriðjudagur 4. mai 1965 — 49. árg.
VILL BEINA ADILD FÆREY-
INGA AÐ NORÐURLANDARAÐI
Aðils-Khöfn, mánudag.
Færeyski jafnaðarmaðurinn Pet-
er Mohr Dam hefur tekið upp við-
ræður við dönsku ríkisstjómina
um þrjú atriði í sambandi við
stöðu Færeyja. Fer hann fram á,
að fáni Færeyja verði viðurkennd
ur sem sérstakur þjóðfáni í öðr-
um ríkjum, að gefin verði út
færeysk frímerki og að Færeyjar
fái sinn eiginn fulltrúa í Norður-
landaráð.
Alvarleg sundrung ríkir nú inn
an samsteypustjórnar Færeyja, og
er hugsanlegt að til aukakosninga
komi. Erlendur Patursson hefur
lent í andstöðu við hínn stjórnar-
flokkinn m. a. í sambandi við upp
bætur til útgerðarinnar.
Kvöldskemmtun
FUF í Súlnasal
FUF i Reykjavík efnir til kvöld
skemmtunar 'i fiúlnasal Hótel
Sögu næstkomandi fimmtudags.
kvöld. Meðal skemmtiatriða má
nefna spurningakeppni milli yngri
manna og eldri. Taka þátt í henni
þrír fulltrúar frá Félagi ungra
Framsóknarmanna og þrír frá
Framsókinarfélagi Reykjavíkur.
Hlutlausir aðilar sjá um fram-
kvæmd keppninnar. Ingvar Gísla-
son alþingismaður mun semja
spurningarnar og verður dómari,
en keppnisstjóri verður Sigurður
Jóhannessoin formaður Félags
ungra Framsóknarmanna á Akur-
eyri. Þá mun Jón Gunnlaugsson
fara með skemmtiþátt og fram
fer verðlaunaafhending til sigur-
vegara í bridge-mótum FUF
Dans verður stiginn til kl. 1 eftir
miðnætti. Boðsmiðar á skemmtun
ina eru afgreiddir i skrifstofu
Framsóknarflokksins að Tjarnar-
götu 26, sími 16066. Stjóm FUF.
Hádegisklúbburinn
kemur saman annað kvöld, mið-
vikudag, kl. 7 síðdegis í Glaum-
bæ uppi.
Landsstjórnin hefur nýlega lagt
fram lagafrumvarp um víðtækar
breytingar á heimastjómarlögun
Framh. á bls. I
Tmáí
EJ—Reykjavík, mánudag
1. maí-hátíðarhöld voru víða
um land á laugardaginn, og
voru útifundir haldnir m. a.
í Reykjavík og Hafnarfirði.
Gott veður var og fundarsókn
því nokkuð góð.
í Reykjavík hófust hátíðar-
höldin kl. 2 með kröfugöngu
frá Iðnó og var gengið um
nokkrar götur bæjarins, en
staðnæmzt á Lækjartorgi.
Lúðrasveit lék fyrir göngunni
og á útifundinum, en þar héldu
ræður Guðmundur J. Guðmnds
son og Éggert G. Þorsteinsson.
Fundarstj var Óskar Hallgrímss
f Hafnarfirði hófst kröfugang
an kl. rúmlega 1.30 og var
gengið undir fánum að Fisk-
iðjuveri Bæjarútgerðarinnar
en þar var haldinn útifundur.
Ræðurnar á fundinum fluttu
þeir Hannibal Valdimarsson,
forseti ASÍ, og Gðjón B.
Bandvinsson, ritari BSRB.
Myndin hér til hliðai var
tekin, þegar kröfugangan kom
niður Bankastr. - Tímam. KJ.
Sáu
KJ—Reykjavík, mánudag.
Piltamir þrír, Guðbjöm Jóns
son, Bjami Sverrisson og Hörð
ur Vilhjálmsson, sem sáu
þyrluna hrapa á laugardags-
kvöldið, vora nýkomnir sunnan
af Keflavíkurflugvelli úr yfir-
heyrslum þegar fréttamaður
Peter Mohr Dam ræðír við dönsku stjórnina:
þyriuna hrapa
Tímans hitti þá að máli inn I
Efstasundi þar sem þeir eiga
allir heima. Þeir era fjórtán
og fimmtán ára gamlir, og
stunda allir nám í Langholts-
skólanum.
— Þið hafið verið • stöðug
um yfirheyrslum í allan dag?
— Já, segir Bjarni, og mað
ur er næstum kominn með höf
uðverk af öllum spurningunum
þeirra. Við fórum sðureftir i
dag, og það voru tveir hópar
sem yfirheyrðu okkur. Tveir
menn sem spurðu okkur um
tæknileg atriði. en hinir tveir
sem spurðu meira almennra
spurninga.
— Við vorum mest yfirheyrð
ir á staðnum þar sem við vor
um þegar við sáum þyrluna
hrapa. Þar var þyrla af sömu
gerð látin fljúga 5 eða sex sinn
um vfir og við vorum látnir
segja hvernig þyrlan sem fórst
hagaði sér.
— Og hvernig var það?
— Ja, við sáum hana koma
fljúgandi á móti okkur þar sem
við vorum hjólandi, og skyndi
lega stöðvaðist mótorinn. Við
störðum á þyrluna og sáum
hana mjög greinilega, þvi hún
var svo nálægt okkur. Rétt
eftir að mótorinn stöðvaðist
bognuðu sipaðarnir á stóra
hreyflinum upp, þannig að
þeir mynduðu eins og V. Þeg
ar þyrlan átti svo eftir að falla
eins og 1/4 af hæðinni til jarð
ar fór annar spaðinn af, og
stuttu á eftir féll sjálf þyrlan
með miklum dynk í vegkant
inn, og mikill eldur og dökkur
reykur gaus strax upp i flak
inu. Fyrst þegar hún var að
byrja að hrapa, sveif hún svo
lítið, en síðan skrúfaðis! hún
niður og lenti um fimm hundr
uð metra frá okkur á vegkant
inum. Guðbjöra hjólaði strax
í áttina til Hafnarfjarðar, til
þess að ná i hjálp. og mætti
bá bíl sem var á nýja Kefla
víkurveginum þeim hluta sem
ekki er búið að steypa. Við
Bjarni og Höitöur, fóru strax
að flakinu sem var eitt eldhaf,
Frá vinstri á myndinni eru: Guðbjöra Jónsson, Bjarni Sverris-
son og Hörður Vilhjálmsson. (Tímamynd K.J.).
en þó sáum við annan flug*
manninn þar sem hann var
fremst í vélinni látinn. Tveir
einkabílar komu brátt á stað
inn, og síðan eftir litla stund
sjúkrabíll úr Hafnarfirði, lög-
regla og slökkvilið þaðan, og
lögreglan frá Keflavíkurflug-
velli. Eftir skamma stund var
farið með okkur til Hafnarfjarð
ar, þar sem lögreglan tók af
okkur skýrslu.
— Á hvaða ferðalagi voru
þið þarna suðurfrá?
— Við vorum i hjólatúr. Fór
um úr Reykjavík 10 minútur
fyrir tvö á laugardaginn og
hjóluðum til Keflavíkur.
Þaðan fórum við svo klukkan
hálf sex heim á leið. Og fórum
nýja veginn þvi það er miklu
styttri leið, en vegurinn er
dálítið stórgrýttur til að hjóla
á. Ef við hefðum kannsld lagt
af stað fimm mínútum seinna
úr Keflavík. hefðum við mátt
vara okkur á að fá ekki þyrl
una á okkur, þvi luVi steyptist
svo fljótt.
Þar með er lokið samtalinu
við þessa brjá greinargóðu og
Framhald á 7. síðu.