Morgunblaðið - 04.06.1952, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.06.1952, Blaðsíða 1
16 síður / 39. árgangnr. 122. tbl. — Miðvikudagur 4. júní 1932. Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mynd þessi var tekin síðari daginn á formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu. Auk formanna og fulltrúa félaganna eru nokkrir gestir úr stjórnum Sjálfstæðiskvennafélaganna í Hafi arfirði og Heykjavík. Ráðsteínan var sótt af formönnum Sjálfstæðisfélaganna viðsvegar aí landinu. Skipulagsnefnd Sjálfstæðisfloltks- ins íiafði forgöi'gu um að haldin var þessi fyrsta formannaráðstefna í samræmi við ákvarðanir síðasta Landsfund.n Sjálfstæðisílokksins. Feimep.s oij ioffslnSii Sjálfstæðisfélagonnii á Ookr aiikna sób oy sainii bráttu Sjáifstæðisfíokksins FOEMANNARÁSSTEFNU Sjálf- stæðisflokksins, sem haldin var hér í Reykjavík fyrir helgina, lauk síðdegis á laugardag. Fyrri dag ráðstefnunnar, á föstudag, var rætt um félagsmál- in og skipulag flokksins. Stóðu fundir þá frá kl. 2 e. h. til mið- nættij. Síðari daginn var rætt um for- setakjörið og stuðning Sjálf- stæðisfélaganna við kosningu séra Bjarna Jónssonar, vígslu- biskups. Formaður Sjálfsfæðisflokksins, Ólafur Thors, ráðherra, hélt fram söguræðu um málið. Síðan urðu allmiklar umræður um málið, sem allar hnigu að einu marki — að eíla baráttuna fyrir kjöri séra Bjarna Jónssonar. 1 í Iok umræðnanna var sam- þvkkt einróma eftirfarandi á- lyktun: þwsimd Bretar svara yfirgangi i verkfalli) 1 WÁSHINGTON 3. júní. — Verk- Rússa með athöfnum Bíleitið á Splbfæðisnsenn eð fySkJa fliði tifl stuðnings séra Bjarna Jónssyni við forsetakjör^ Formannaráðstefna Sjálfstæðisfélaganna í landinu, haldin í Reykjavík dagana 30. og 31. maí 1952, sendir kveðju sína öllum meðlimum félaga, fulltrúaráða og félagasambanda Sjálfstæðisflokksins og heitir á hvern og einn að efla samhug og styrkja félagssamtök Sjálf- stæðismanna í hvívetna. Um leið og formannaráðstefnan lýsir eindregnum stuðningi sínum við séra Bjarna Jónsson, vígslu- biskup, við kjör forseta íslands, heitir hún á allar félagsheildir Sjálfstæðismanna um gjörvallt land, trúnaðarmenn, baráttulið og alla kjósendur flokksins að halda með heiðri á lofíi merki Sjálfstæðisflokksins við forsetakjörið með ótrauðum stuðningi við séra Bjarna Jónsson, svo að þjóðareining megi reynast sem voldugust um næsta þjóðhöfðingja íslendinga. fall stáliðnaðarmanna í Banda- ríkjunum breiðist stöðugt út og höfðu alls um 600 þúsund menn lagt niður vinnu í kvöld. Verk- falhð er bein afleiðing af niður- stöðu hæstaréttar Bandaríkj- anna, gem úrskurðað hefur at- hafnir Trumans forseta í stáliðju- deilunni óeildar skv. stjórnarskrá landsins. Talið er að framleiðslu- tjónið af völdum verkfallsins nemi um 2 milljónum tonna af stáli í viku, en samkvæmt opin- berum skýrslum eiga stálbirgðir, sem fyrir hendi eru, að endast í 3 vikur. Leiðtogar verkamanna hafa skorað á iðjuhölda að hefja viðræður um lausn kjaradeilunn- ar þegar í stað og hafa þeir tjáð sig reiðubúna. — Reuter. E$Ð2’'lfliia;3akóc£7 fláfa sér veð flília Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTR BERLIN 3. júní. — Það hefur vakið almennan fögnuð meðal íbúa í Vestur-Berlín, að Bretar hafa látið hart mæta hörðu í skiptum við rússnesku hernámsyfirvöldin í austurhluta borgarinnar, sem vísað hafa á brott íbúum svæða í Austur-Berlín, sem lúta yfirstjórn Breta. . Everes! ósigrað KHATMANDU, 3. júní ■- Sviss- nesku leiðangursmennirnir, sem þessa dagana ætluðu að klífa hæsta fjallstind veraldar, Mt. Everest, gáfust upp í dag og sneru til bvcrgða sökum illviðra. Brezki leiðangurinn, sem reyndi að klífa tindinn á öðrum stað hefur einnig hætt tilraunum sínum og ei á niðurleið. Óhagstætt veður hefir oftast áður stöðvað fjallgöngu- menn, sem ráðizt hafa til upp- göngu á Mt. Everest. BRETAR BIÐA I dögun í morgun um- kringdu brezkar hersveitir útvarpsstöð kommúnista á brezka hernámssvæðinu, settu upp mannhæðar háar girðingar og bönnuðu alla umfcrð í byggmguna. For- ingi Brctanna skipaði Rúss- utn sem þarna voru fyrir og leppum þeirra að hafa sig á brott en þeir kváðust hvergi fara og btvðu Bretum byrg- inn. Verður þeim lialdið í eins konar herkví unz mat- væli þrýtur en þau eru talin geta enzt í rúma viku. Út- sendingum er haldið áfram og hefur útvarpið enn ekki tninnzt einu orði á aíhafnir Brcta. BERLÍNARBÚUM LÍKAR VEL I Þúsundir Berlínarbúa söfnuðust í umræðunum tóku til máls: Jón Bjarnason, Akranesi, frú Dagmar Sigurjónsdóttir, Akur- eyri, frk. María Maack, Rvík, frú Guðrún Jónasson, Rvík, Ing- ólfur Jónsson, alþm., Jónas G. Rafnar, alþm., Benedikt Þórar- insson, Keflavík, Helga Marteins- dóttir, Rvík., Bjarni Benedikts- son, ráðherra, Páll Kolka, héraðs- læknir, Blönduósi og Jóhann Hafstein, alþm. — Ólafur Thors, ráðherra, sleit ráðsfefnunr.i með síuttri ræðu og hvafm.ngarorðum til Sjálfstæðis- manna, — en Aage Sehiöth, Siglufirði, þakkaði fyrir hönd að- komumanna undirbúning ráð- stefnunnar og góðar mcttökur. Þetta er fyrsta ráðstefna Sjálf- stæðisflokksins af þessu tagi. — Voru fulltrúarnir á einu máli um gildi hennar fyrir samltug og aukna kynningu forustumanna flokksins og má því víst telja að slíkar formannaráðstefnur verði í framtiðinni mikilvægur liður í íélagsmálastarfi Sjálfstæðis- manna. DÖNSIOJ LEIKARARNIR STÖRHRIFNIR LEIKFLOKKUR Konunglega leíkhússins er nú kominn til Kaupmannahafnar að íslands- för lokinni. í viðtali við Poli- tiken lýsa leikararnir óspart hrifningu sinni með móttökur allar á íslandi og einstaka gestrisni. Reumert kveðst fagna inni- lega endurfundum við þetta frábæra fólk í hvert sinn sem hann fái tækifæri til að heim- sækja ísland. Else Ilojgaard lýkur miklu lofsorði á Þjóðleikltúsið, sem hún segir vera fegursta og fullkomnasta lcikhús, sem hægt sé að gera sér í hugar- lund, hljómburður framúr- skarandi góður og hún hefði helzt kosið að geta haft það heim með sér til Danmerkur. Rasmtts Christensen kveður íslenzka gestrisni taka öllu fram, sem hann hafi nokkru sinni kynnzt, hvílíkt fólk, segir hann, hvtlík alúð. — Páll. saman á götum í nágrenni út- varpsstöðvarinnar er kunnugt varð um atburði þessa og létu þeir í ljós fögnuð yfir einbeitni Breta að svara yfirgangi og tuddaskap Rússa með athöfnum en láta ekki sitja við orðin tóm. Er rússnésk- ir liðsforingjar óku í bifreið um nærliggjandi götur fór kurr unt mannfjöldann og sáust margir hnefar á lofti. UMFERÐARBANNIÐ Mikil óvissa og glundroði hefur ríkt í umferðarmólum Berlínar- búa síðan Rússar settu umferðar- tálmanir sínar á mörkum hernáms svæðanna. Leituðu margir borg- arbúar til Austur-Berlínar í dag til að afla sér vegabréfa, en fepgu loðin svör eða alls engin hjá Rúss- um. Á einni gkrifstofu var því til svarað, að vegabréf væru engin fáanleg enn sökum þess að um- ferðarbannið hefði verið fyrirskip- að fyrirvaralaust og án undirbún- ings vegná áforma amerískra njósnara að sprengja í loft upp allar verksmiðjur Austui’-Berlín- ar. Síðustu fregnir herma að Aust ur-þýzka stjómin hafi nú gefið út reglugerð um vegabréf íbúa V,- Berlínar, sem erindi eiga til Aust- ur-Þýzkalands. Tarsan vinsæll í Moskvu MOSKVU — Langir biðhalar hafa myndast fyrir utan kvik- myndahús í Moskvu á degi hverj- um að undanförnu. Ástæðan er sú að sýndar hafa verið amerisk- ar Tarsar.-myndir, sem njóta meiri hylli þar eystra en nokkr- ar aðrar útlendar kvikmyndir. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.