Morgunblaðið - 10.09.1952, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.09.1952, Blaðsíða 8
8 UORGVNBLAÐiÐ Miðvikudagur 10. sept. 1952 Útg.: H.f. .Árvakur, Reykjavík. Frarnkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. luglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanl&ndj. í lausasölu 1 krónu eintakið. í RÆÐU þeirri, sem Bjarni Benc- diktsson utanríkisráðherra fíutti við opnun iðnsýningarinnar var á mjög greinargóðan hátt gerð grein fyrir afstöðu þjóðarinnar til iðnaðarins. Ráðnerrann lagði áherzlu á, að innlendur iðnaður gerði atvinnu- vegina í senn fjölbreyttari og skapaði möguleika fyrir betri hag nýtingu vinnuafls landsmanna en ella. En vinnuafiið Væri dýrmæt- asta eign þjóðarinnar. Atvinnu- leysi hefði í för með sér sóun verðmæta og óhamingju fyrir það fólk, sem yrði fyrir barði þess. Þegar ráðherrann minntist á samkeppni erlendrar iðnaðar- framleiðslu komst hann m. a. að orði á þessa leið: „En þó að íslenzka fram- Ieiðslan standist ekki í öllu skefjalausa erlenda samkeppni má ekki fara eftir því einu, heldur er oft rétt að vernda hana, einmitt til þess að auka fjölbreytni atvinnulífsins, tryggja jafnvægi efnahagsins og koma í veg fyrir atvinnu- ieysi. Sú vernd má þó aldrei leiða til þess, að verðlag innanlands verði svo hátt og tilkostnaður svo mikill, að af þeim sökum verði sá hluti framleiðslu okk- ar ósamkeppnishæfur, hvort sem það eru sjávarafurðir eða annað, sem við verðum að selja til annarra fanda, cf við eigum að geta lifað.“ í þessum ummælum kemur áreiðanlega fram afstaða, sem miðast við þarfir alþjóðar. Við eigum að styðja innlendan iðnað, gera framleiðslu hans sem fjöl- breyttasta og lifa eftir hinu gamla sp^kmæli, að hollt er heima hvað. Þessvegna ber okkur að vernda íslenzkaij iðnað og iðju En sú vernd má þó ekki genga það langt að hin innlenda fram- leiðsla hafi ekki nokkurt aðhald um verðlagningu vöru sinnar vegna erlendrar samkeppni. Ef allri slíkri samkeppni væri bægt frá hVfði skapast einokunarað- staða, sem hlyti að hafa í för með sér hækkað verðlag. Slík't ástand væri íslenzku þjóðinni hins veg- ar ekki hagkvæmt. Baráttan fyrir eflingu innlends iðnaðar verður því fyrst og frems'! að beinast að því, að bæta aðstöðu hans til þess að verða samkeppníshæfur. Þetta á raunar ekki aðeins við um iðnaðinn. Aðrar gtvinnugreir.- ar, sjávarútvegur og landbúnaður hijóta einnig að hafa það tak- mark. Sérstaklega þýðingarmikið er það fyrir sjávarútveginn sem leggur til meginhluta útflutnings verðmæta okkar. I sambandi við þessi mál verð- ur ekki komist hjá því að gera nokkuð að umtalsefni þá ein- stæðu smekkleysu AB-blaðsins að nota Iðnsýninguna, sem nýlega hefur verið opnuð, sem tilefni til árása á núverandi ríkisstjórn. Nú er það að sjálfsögðu þannig að fólk úr öllum stjórnmálaflokk um hefur lagt sig fram við undir búning þessarar fjölþættustu iðr,- sýningar, sem haldin hefur verið hér á landi. Þar hefur eins og að líkum lætur enginn stjórnmála- ágreiningur komið til greina. j Hitt er líka vitað að yfirleitt hafa dómar þeirra, sem sýning- ur.a hafa skoðað verið gjjrsam- lega óháðir stjórnmálaskoðunum þeirra. En málgagn Alþýðuflokksins lætur sig þessar staðreyndir engu skipta. í forystugrein blaðsins í gær er hinn mesti nöldurtónn yfir því, að stuðningsblöð núverandi ríkisstjórnar skuli leyfa sér að fara lofsamlegum orðum um sýn- inguna og íslenzkan iðnað og iðju. Er auðsætt að blaðið þykist eitt hafa leyfi til þess að ræða mál iðnaðarins. Til þess bresti a. m. k. stuðningsblöð núverandi ríkis- stjórnar alla heimild, þar sem hún hafi lagt ofurkapp á að leggja allan iðnað í rústir í þeim tilgangi að þóknast „hörmöngur- um nútímans" en það er sá tiltill, sem þetta blað velur verzlunar- stéttinni!! I • AB-menn hafa oft birt vitiaus- ar greinar í blaðinu sínu og sýnt einstakan skilningsskort á þörf- um athafnalífs þjóðarinnar. En sennilega sýna þessi skrif þeirra betur en flest annað, hversu flokk ur þeirra er losnaður úr tengsl- um við raunveruleikann. | Alþjóð veit, að margir af ágæt- ustu forystumönnum íslenzks iðnaðar hafa staðið framarlega í röðum Sjálfstæðisflokksins. — Sjálístæðisflokkurinn hefur stutt þá öfluglega í baráttu þeirra fyr- ir eflingu þessarar atvinnugrein- ar og sköpun bættrar aðstöðu henni til handa, nú síðast með stofnun sjáífstæðs iðnaðarbanka, sem á að bæta úr lánsfjárskorti iðnaðarins og auðvelda rekstur hans. Sjálfstæðismenn vita, að menn úr öðrum stjórnmálaflokkum hafa einnig sýnt skilning á þörf- um iðnaðarins og hafa lagt fram lið sitt til þess að vinna málum hans gagn. Þeim kemur ekki til hugar að halda þvi fram, að þeir einir vilji þessari atvinnugrein vel. Sem betur fer hafa menn úr öllum stéttum og stjórnmála- flokkum ríka trú á framtíð og möguleikum iðnaðarins í þessu landi. En AB-blaðið vill hafa þetta allt öðru vísi. Það segir lesend- um sínum að eiginlega megi t. d. Mbl. alls ekki fara viðurkenn- ingarorðum um Iðnsýningu árs- ins 1952. Ríkisstjórnin hafi ver- ið fjandsamleg í garð iðnaðar- ins og þess vegna geti aðeins málgögn Alþýðuflokksins og kennske kommúnista rætt mál hans af skilningi og þekkingu. Ef afstaða núverandi ríkisstjórn ar til verzlunar- og iðnaðarmála er athuguð kemur þetta í ljós: Ríkisstjórnin hefur lagt á- herzlu á tvennt: í fyrsta lagi að bæta úr vöru- skortinum, sem leitt hafði stór- felldan' svartan markað og rnargskonar óhagræði yfir þjóð- ina. í öðru lagi að auka raforku- framleiðsluna og skapa innlend- um iðnaði þar með bætta að- stöðu. Þetta hefur verið gert með auknu verzlunarfrelsi og bygg- ingu glæsilegra raforkuvera á Suður- og Norðurlandi. Um það getur engum bjand- ast hugur að forystugrein AB- biaðsins í gær er hvorki skrif - uð af velviltl í garð iðnaðav- ins né þekkingu á þörfum lrans. Þess vegna er fjarri lagi, að hún geti orðið þessari at- vinngrein og því fólki, sem við hana starfar að gagni. AB- blaðinu og flokki þess er hún íil minnkunar. MUM FÉLL Á Veldistíagar Farúks, fyrr- verandi Egyptalandskonungs, hófust ekki ósvipað sum- um æfintýrum H. C. Ander- sens Aðeins 17 ára tók hann við konungdómi eftir íöður sinn, Faud I., er lézt á mjög sviplegan hátt. Þá var hann ungur og dáður fyrir glæsi- mennsku slna og æskufeg- urð. Hann kvæntist hinni yndisfögru Farida, sem nú dvelst í Egyptalandi og á þar við mikla hylli að búa. — Er þetta unga og fallega æsku- fólk ók um götur Kairóborg- ar, var því óspart fagnað af íbúunum. FAGN.*I>ARLÆTIN MINNKUÐU En fagnaðarlætin minnkuðu, er árin liðu. Farúk lifði í miklu sællífi, og ekkert var of gott né of dýrt handa þessum aust- ' urlenzka sælkera. Faðir hans hafði arfleittt hann að um 1000 millj. kr. í reiðu fé, auk margra dýrindis halla og annarra hluta, sem voru til þess 'fallnir að kitla hégómagirnd hins unga manns. En Farúk var þetta ekki nóg. Hann lét reisa enn fleiri hallir, og þegar hann var á ferð um Evrópu, tók hann á leigu heilu hverfin fyrir sig og fylgd- arlið sitt. LANGAÐI TIL AÐ EIGNAST SON Það var um þennan íburð all- an og hina skefjalausu sóun hins unga konungs, sem fólkið talaði — og hneykslaðist á. En þó kast- aði fyrst tólfunum 1948, er hann skildi við drottningu sína og raunar snerust vinsældir hans í fyrirlitningu úr því. Hann átti I þrjár dætur með drottningunni, | ert því var lýst yfir, að hann langaði til að eignast son og væri það ástæða skilnaðarins. En orðrómur var þó á kreiki um það, að hin raunverulega ástæða væri sú, að drottning gæti ekki sætt sig við sukk og svall manns síns. VIÐ GLAUM OG GLYS Farúk þekkti sjálfur allar sög- urnar, sem um hann voru sagð- ar. Stundum gerði hann aðeins grín að þeim, með því að brosa góðlátlega í kampinn, en einnig kom það fýfir, að þær gerðu hann ævareiðan. Þrátt fyrir slúðrið hélt Farúk áfram áð koma á næturklúbbana í Kairó. Með honum var þá allt af ítalinn Antóníó Puglí, einka- ritari hans og trúnaðarmaður. Púglí var sonur rafmagnsmarns við hirðina og eini leikbróðir Farúks af borgaraættum. Hefur hann alltaf haldið kunningsskap við hann síðan. Púglí þessi var mjög óvinsæll í Kaíró, vegna þess að fólk áleit, að hann hefði ill áhrif á konunginn, og það kom engum á óvart, að ítalinn skyldi verða með þeim fyrstu, er tekn- ir voru höndum eftir stjórnlaga- rofið. AÐEINS 32 ÁRA Þegar maður sér Farúk í dag, fer varla hjá því, að aldur hans geri mann undrandi. Hann er aðeins 32 ára gamall, ellilegur, og vegur yfir 100 pundum meira en hinn 17 ára gamli ævintýra- prins gerði, er hann hafði tekið við völdum 1937. Plann var þá bæði vel gefinn og vel mennt- aður og vissi ágætlega, hvað gerð- ist í ríki sínu. Persónuleiki hans varð mikill, er stundir liðu, og þótt svo gæti stundum virzt, sem hann væri aðeins ungur æringi, þá sýndi það sig oftar, að hann leit á stöðu sína alvaj’legum aug- um og skyldu sína sem háleita Frh. á bls. 12. Velvakandi skrifor: ÚB DAGLEGA LÍFIND Böggull fylgir skammrifi. ÞAÐ er mesti misskilningur, að vont sé að fá húsnæði í Reykjavík. Þú getur auglýst og færð tilboð um hæl, jafnvel þótt þú bjóðir enga fyrirframgreiðslu. Þú þarft ekki einu sinni að aug- lý§a, sendu bara tilboð við aug- lýsingu húsráðenda, og þú ert vís með að hreppa fyrsta flokks íbúð án óhófsleigu. Þó er eitt ófrávíkjanlegt skil- yrði — þú mátt ekki eiga börn. Það er sú lágmarkskrafa, sem til þín er gerð. í*ví meiri íburöur, því færri börn. ÞAÐ hefir komið á daginn, að eftir því sem húsakynnin1 urðu glæstari og rýmri, því meir var þrengdur kostur barnanna. í. fallegustu og stærstu húsunum er1 þeim ekkert afdrep ætlað. Hús- gögnin, veggirnir og gólfin eru of dýr og fín fyrir hvikulan fót og þreifula barnshönd og bví fer sem fer, að barnafólkið fær þar ekki inni. Brcttrekstrarsak Þessu fæst ekki breytt að sinni, því að ekki verða húsráðendur neyddir til að hýsa börnin, meðan svigrúm þeirra eigin barna er jafnvel af skornum skammti. Stutt að sjálfsbjargar- viðleiíni. EN við státum af miklum félags- legum þroska og óneitanlega njótum við fullkominnar löggjaf- ar i félagsmálum ýmsum. Eðlilegasta lausn vandans er sú, að mönnum sé gert kleift að koma upp þaki yfir höfuðið. Smá íbúðarhúsin virðast alveg rétt leið, þó að vankantar séú ef til vill einhverjir eins og fylgir hverri byrjun. En margir óttast, að tekið verði fyrir smáíbúðirnar fyrr eða seinna, sem ekki má. Ufti ókomin ár á það að Vera föðurleg tillitssemi ríkisvaldsins við þá, sem stofna vilja heimili, að þeir fái leyfi til að reisa sér hús ásamt nokkrum fjárhagsleg- ‘um stuðningi. I íslenzk danslög. HERMANN 16 ára vill koma hér einu hugðarefni sínu á frámfæri. Hann segir: „Ég hlusta oft á danslög í útvarpinu á laug- a*-dags- og sunnudagskvöldum. Oft eru þá leikin ýmis nýjustu dans- og dægurlögin, því að við- koman er mikil. En eitt bvkir mér vanta bæði í fylkingar gömlu og nýju laganna — íslenzk dans- lög eftir ís’enzka höfunda. Mörg þeirra gefa útlendú lög- unum ekkert eftir. Væri ekki bægt að útvarpa beim, cnda svngju þau íslenzkir dægurlaga- söngvarar? Þau mundu áreiðan- le»a ekki draga úr ánægjunni. í annan stað væri ekki úr vegi, pS kynnt væri a. m. k. nýjustu lögin. Það er allt af viðkunnan- legra að vita einhver deili á því, sem hlustað er á.“ Veíðibráffur. Íj>LUGMAÐUR skrifar: Mikil frétt bótti það að von- um, þegar vélflugan sprakk á fluGsýningunni í Bretlandi nú um heleina. Hafði hún náð hraða hljóðsins þegar í henni varð allt' í einu sprenging svo að hún ■mndraðist tætlu fyrir tætlu. , Brotin lentu í áhorfendum og dránu fjölda manns. M.ér þótti útvarpið vera lielzti fljótt á sér, þegar það sagði frá þessU slysi. Þó að gott sé allt af að fá fréttirnar nýjar af nálinni, bá getur líka hefnt sín að vera of veiðibráður. Á sýningunni, þar sem slysfð varð, voru margir íslendingar, menn úr flugráðinu og flugþjón- ustunni íslenzku auk áhuga- manna. Það hefði mátt taka eitt- hvert tillit til þess. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.