Morgunblaðið - 10.10.1952, Page 14
10
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 10. okt. 1952
i m
Skáldsaga eftir MARGERY SHARP
Framhaldssagan 31 1
heyrði að hún hreytti út úr sér '
ókvæðisorðunum þegar hún rudd
ist í gegn um þvöguna, beygði sig \
yfir eiginmann sínn og dró hann |
á fætur. Hinn maðurinn sló til
hennar, en hún hélt dauðahaldi
um handlegginn á Henry. Enginn
kom henr.i til hjálpar, en Henry j
var að fá jafnvægið og af vörum
hans streymdu blótsyrði. Hann!
var mikið drukkinn, enda heyrð- j
ist það á mæli hans. Þegar and- i
stæðingur hans bjóst til að slá ■'
aftur, gekk einhver kvenmaður j
á milli þeirra svo að þeim vannst
tími til að komast undan. Ade- |
laide ýtti Henry á undan sér að j
tröppunum og stóð niðri á meðan *
hann staulaðist upp. Svo gekk
hún upp á eftir honum án þess
að líta við, fyrr en hún lokaði
dyrunum. Hópurinn stóð þarna,
ennþá og í miðjum hópnum sá
hún Logann. Og Adelaide sýnd-
ist hún gefa sér eitthvert merki.
Henry hallaði sér upp við borð-
ið, rifinn og tættur en að því er
virtist ekki mikið meiddur. Ade-
laide reyndi að komast framhjá
honum inn í svefnherbergið, en
hann greip u.m úlnlið hennar.
„Það blæðir úr þér“, sagði
Henry þvöglulegri röddu.
„Slepptu mér“.
„Þú ert eins og . . æ, hvað heit-
ir það nú. ... “
„Ifenry“, sagði Adelaide, „ef
þú ski’ur það sem sagt er við þig
u
„Valkyrja, var það .. blóðug
valkyrja ....“.
.....þá segi ég þér það núna,
að við flytjum héðan“.
„Eg vissi ekki að þú ættir það
til í þér. Blóðug Valkyrja . . það
er ágætt....
„Ef þú vilt ekki flytja héðan,
þá fer ég ein“.
Þá sleppti hann takinu um úln-
lið hennar og reyndi að hlæja.
„Held ég aftur af þér? Þú getur
gert nákvæmlega það sem þér,
þóknast. Farðu heim ti! mömmu
þinnar. Farðu heim með glóðar
augað....“
Adelaide leit á sig í speglinum.
Hún hafði fengið högg á augað,
enda þótt hún myndi ekki eftir
því. Hægra áugað var þegar orðið
blátt og bólgið. Hún starði á
mynd sína í speglinum lengi vel.
Og þá skildi hún til fullnustu
hvers konar kona hún var orðin.
Hún var ekkí lengur hæf íil
þess að lifa því lífi sem hún hafði
lifað áður en hún giftist Henry.
„Jæja“, sagði Adelaide við
mynd sína í speglinum, ,,en beg-
ar ég er reiðubúin til þess sjálf,
þá fer ég“. , |
5. kafli |
Þegar Adelaide var búin að
sætta sig við það að maður henn-
ar væri drykkjumaður, var eins
og henni væri um leið auðveld-
ara að sæt.ta sig við hvernig kom-
ið var. Það þurfti að minnsta
kosti ekki að leyna sannleikanum
í Britannia Mev/s. Fiestir karl- j
mennirnir sem þar bjuggu
drukku meira eða minna allir,
með tölu og margar kvennanna.
Adelaide undraðist það stöðugt,
þegar hún heyrði drukkið "ó’kið
vera cð staulast upp tröppurnar,
að enginn skyldi hálsbrjóta sig.
Hún hafði þó tekið eftir því að
Henry gætti sín alltaf í tröppun-
um. Hann var heldur ekki hávaða
samur eins og flestir hinna. Hann
kallaði ekki til hennar ókvæðis-
orðum þegar hann kom heim, og
hann veltí ekki um húsgögnun-
um. Adelaide haíði eiginlega litla
ástæðu til að skamrhást sín fyrir
Henry, sE:frrarfborið ■ við að^s á
þessurn stað. Hún þurfti heldur
íki að työa. tímaumri i það .aö
sem hann var hættur við að mála.
Hún gat því helgað sig alveg heim
ilisstörfunum. Tuttugu og fimm
shillingar á viku nægðu henni
fyllilega til að kaupa helztu nauð-
synjar. Einn þátturinn af ætlunar
verki hennar hafði þó tekizt, og
það var að halda uppi regluleg-
um máltíðum. Ef Henry var ekki
heima, þá snæddi hún ein síns
Iiðs. Hún hélt íbúðinni tandur-
hreinni og klæddi sig upp og
snyrti á hverjum degi. Hún íór
aldrei út, án þess að netja upp
hatt og hanzka. Og með hverjum
degi varð skapgerð hennar fast-
ari fyrir.
Henry tók eítir breytingunr.i
sem á henni varð. Eitt kvöld þeg
ar hann kom að kránni, sat hún
við borðið og var að ljúka úr kaffi
bollanum. Hún hélt á Times fyr-
ir framan sig. Hún var :iýlega
farin að ltaupa það. Hann leit á
borðið og sá að maturinn hafði
verið tekinn af því.
„Þú beiðst ekki eftir mér“.
„Nei“, sagði Adelaide. „Langar
þig í eitthvað?“
„Vissulega. Ég vil fá miðdags-
matinn minn“.
Hún gekk þegjandi að eldavél-
inn, lét mat á'disk handa honum
og lagði á borðið.
„Eiginkonan biður venjulega
eftir manni sínum“, sagði Henrý.
„Ef ég biði alltaf eftir þér,
mundi ég missa úr helminginn af
máltíðunum".
Hann settist niður og tók til
matar síns. Adelaide sá strax að
hann hafði enga lyst á matnum.
„Þú hefur breytzt Addie“, sagði
hann. „Þú ert að verða svo hörð
og köld í viðmóti. Það klæðir
ekki kvenfólk....“
„Vildir þú heldur koma að mér
grátandi“.
Hann svaraði ekki. Adelaide
hellti aftur í bollann sinn. Hún
gat nú umgengist hann án þess
að það hefði hin minnstu áhrif
á skap hennar og um leið og hún
fann það, öðlaðist hún meiri hug-
arró. Hún fann að hún var þeim
vanda vaxin, sem mundi hafa yfir
bugað hana nokkrum mánuðum
áður. Hún gat talað við eigin-
mann sinn þegar hann var í
ástandi til að tala. Hún talaði
kurteislega við hann og eins og
ekkert hefði í skorist, en það
gerði. aðstöðu hans erfiðari. 'j
„Verður þú heima í dag,
Henry?“ spurði hún. „Ég fer nefni
lega út Ég ætla að drekka te með
Alice“.
2. I
Frú Culver hafði lengi hugsað
sér að fá Alice sér til hjálpar.
Um leið og Alice kom úr heim-
sókninni til Sommers, var hún
kölluð á ráðstefnu innan íjöl-
skyldunnar og eftir miklar bolla-
leggingar var það ákveðið að hún
skyldi bjóða Adelaide að drekka
með sér te á „Swan“-veitinga-
húsinu. Adelaide las bréfmiðann
frá henni án þess að henni yrði
eins mikið um og Alice var við
að skrifa hann. Hún þáði boðið
aðeins vegna þess að henni fannst
það bleyðuháttur að neita. Og
þegár þær mættust, var Adelaide
sú rólegri. Alice var auðsjáan-
lega mikið niðri fyrir.
„Ég skil ekki hvernig þú borð-
ir þetta“, sagði Alice þegar þær
höfðu heilsast. |
Adelaide brosti. Henni fannst
Alice vera hálfgert barn ennþá.
Hún vissi ekkert og hafði ckki
reynt neitt. Henni fannst hún
standa Alice svo miklu framar
að það var blátt áfram dæmalaust
ef hún var hingað komin til að
lesa yfir henni ávítur.
„Alice, mér þykir mjög gam-
an að hitta þig“, sagði Adelaide.
„Mér þykir alltaf gaman að hitta •
þig. En ef þú ert komin hingað
eftir boði frá mömmu til að reyna
að fá mig til að yfirgefa Henry,
þá get ég sagt þér það strax að
það er til einskis.“
Það fór um Alice.
„Ég býst ekki við að mamma
skilji mig“, sagði Adelaide. „En
hvernig heldur þú að þér fynd-
ist, ef fólkið þitt heimtaði að þú
llrói höttur
snýr aftur
eítir John O. Ericsson
23.
Nokkrir af mönnum okkar höfSu brotizt inn í vígturninn,
en hinir börðust í hallargarðinum og brutust þar áfram
þumlung fyrir þumlung.
Skyndilega heyrðum við þróttmikla rödd í gegnum orr-
usfugnýinn. Það var herra hallarinnar, sem sjálfur bað Rík-
harð konung að sýna vægð.
— Herra konungur, sagði hann. Við vitum allir, að, kast-
alinn er iallinn og við erum búnir við dauða okkar. Gef
okkur aðeins frest þangað til snemma í fyrramálið, svo að
við, sem enn erum á lífi, getum búið okkur undir síðustu
förina á viðeigandi hátt. Sendu okkur prest, sem getur falið
sálir okkar Drottni, því að gamli aðstoðarpresturinn okkar
er tif einskis nýtur íramar.
Þegar hann hverfur frá höllinni í kvöld, verður þú að
leyía honum að taka börn og konur með sér.
Konungur skipaði að hætta orrustunni.
— Bæn þín skal verða uppíyllt, Vídómar, sagði hann.
Ég heyi ekki ófrið gegn varnarlausum. Láttu menn þína
rýma ytri hallargarðinn og þorpspresturinn skal vera hjá
ykkur innan klukkutíma.
Um kvöldið ióru konurnar og börnin frá Chalus, þar sem
fáninn með hvítum fálka á rauðum feldi blakti enn yfir
turninum. Prestur einn gekk á undan hinni fátæklegu hers-
ingu með krossinn hátt á lofti.
BANASÁÍtlB
Þá nótt sváfum við hver, þar sem hánn var kominn, í
turninum eða uppi á varnarmúrnum. Allir höfðu vopn sín
hjá sér. Menn mínir hvíldust í horni í garðinum. Þeir
kveiktu mikinn timbureld og létu hann loga alla nóttina til
ess að enginn í höllinni skyldi geta laumast burt um
HWllftliiiillili .........................<.......
> >i4ail1 KS ■ MNIHUtMMMIIMMMk • i ■ .1
« í i
orfiindir<H
XÖQ0I20XÍH :
vegna prestskosninga í Reykjavíkurprófastsdæmi verða :
haldnir sunnúdaginn 12. okt. 1952 á þessum stöðum: ■
m
Fyrir Bústaðasókn — í Fossvogskirkju I
Fyrir Kópavogssókn — barnaskólahúsinu jj
Fyrir Háteigssókn — Sjómannaskólanum ;
■
Fyrir Langholtssókn — leikskólanum við Brákarsund :
Allir kjörfundir hefjast klukkan 10 árdegís. :
Kjörstjórnir mæti klukkan 9. :
■
■
Safnaðarnefndirnar. :
FÉLAG ÍSL. HLJÓÐFÆRALEIKARA
Ákveðið hefur verið, að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kosningu fulltrúa félagsins á 23. þing A.S.I.,
og fer hún fram sunnudaginn 12. okL kl. 2—9 e. h. og
mánudaginn 13. okt. frá kl. 1—-10 e. h. að Hverfisgötu 21.
Félagsgjöldum veitt móttaka á sama stað til kl. 2
e. h. á sunnudag.
Framboðslistum skal skila til kjörstjórnar fyrir kl. 8
e. h. laugardaginn 11. þ. m. að Hverfisgötu 21. Hverjum
framboðslista skulu fylgja skrifleg meðmæli minnst 7
fullgildra félagsmarma.
Reykjavík, 9. okt. 1952.
Kjörstjárn Fél. ísL hljóðfæraleikara.
FéKagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 15. okL kl. 1,15 e. h. í
Breiðfirðingabúð.
FUNDAREFNI:
Symfóníuhljómsveitin — Leikhúsið — Önnur roál.
Stjórn F. í. II.
H MÚSMÆBUSS! i
■
•w m
m
EftIrlætis°Í9óið j
■
allra húsmæðra er og verður :
■
■
M&hiímmM \
(cream) :
■
■
Fæst í næstu búð ■
H.Benediktsson & Co. II.F
HAFNAR HVOLL. R tYK.t AV í K
frá Spáni, ný
f yrirligg jandi
Magn ús Kjaran
Umboðs- og heildverzlun.
MJGLÝSING ER GULLS ÍGILDI -