Morgunblaðið - 11.10.1952, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.10.1952, Blaðsíða 14
&k£MI1íMí 14 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 11. okt. 1852 9 • C ■ * » * • l> k » • ■ • » • **■»«» »*&•*» w>Jötm£-,8í;Si;!:')1 go rnu nnxo r, girn uðin5| -isSiiÍB sö .tvfi . I odQtrfo | Skáldsaga eítir MARGERY SHARP iiiiiimiuiiiiiii iinmiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMim p nnwiiiiiiniHMiiiiiciiiiin tii Framhaldssagan 32 færir frá herra Baker rétt eftir að þið væruð gift“? „Freddy er öðruvísi“l sagði Alice. „Ég veit hvað þú átt við, en þú verður að viðurkenna að Freddy er öðru vísi“. „Hann er ekki nærri eins greindur og Henry“. Adelaide þagnaði. Hún undraðist það sjálf, hver hlýja var í rödd.hennar þeg ar hún sagði þetta. Það var eins og hvötin til að vernda heiður eiginmannsins væri sterkari en vitundin um alla galla hans. „Hann er ekkert sérstakt. Hann er einmitt sú tegund ungra manna sem foreldrarnir vilja að dætur þeirra giftist“, sagði Adelaide. ,,Ég átti bara við að þar sem þú ætlar sjálf að fara að gifta þig, þá hlýtur þú að vita að eiginkon- an á að vera hjá manni sínum“. „Ef hann getur séð fyrir henni“ sagði Alice. Adexaide leit á Alice og það var eins og eldur brynni úr augum hennar. Eða það sagði Alice að minnsta kosti þegar heim kom. „Það var eins og hún hataði mig“ sagði hún. „Það er alveg satt, Freddy“. „Vitleysa", sagði herra Baker, en honum þótti það ekk- ert miður. Eftir öllu því að dæma sem hann hafði heyrt um þessa frænku Alice, þá kærði hann sig ekki um að hún umgengist hana. „Ef einhver hefur sagt að Henry geti ekki séð fyrir mér“, sagði Adelaide, „þá er það iygi“ Segðu mér eitthvað frá Somer- set“. Alice gerði það. Hún var dá- lítið skjalírödauð fyrst í stað, en það hvarf brátt. Allt Bakers- fóikið var svo gott og það var svo margt. Hún og Freday höfðu þegar fengið fleiri heimboð en þau gætu sinnt og ef þau mundu fresta giftingunni þangað til í ágúst, mundi tvennt Dætast í hóp- inn. „Auðvitað frestið þið henní þá“, sagði Adelaide. „Jæja, ætli það ekki“, sagði Alice, og hélt áfram að tala. Henni fannst Ade- laide sérlega þægilegur áheyr- andi, en í raun réttri var það með ráðum gert hjá Adelaide að fá hana tii að tala. Það gerði hún líka með ráðum við frú Culver. Henni hafði reynzt það vel að láta andstæðingana sökkva sér niður í frásagnir af einhverju aukaatriði. Alice tók að lýsa fyrir henni öllum fötunum sem hún hafði fengið og gleymdi brátt alveg hver tilgangurinn hafði ver ið með þessum fundi þeirra. Ade- laide þótti gaman að hlusta á hana, en henni fannst hún standa henni ofar. Fyrstu orð Alice höfðu gefið henni hugmynd um hvernig afstaða fjölskyldunnar væri til hjónabands hennar og þegar hún hafði fengið nasasjón af því, fannst henni líf sitt með Henry verða bærilegra. Og með því að gefa Alice rangar hug- myndir um hjónaband þeirra, gerði hún sér sjálfri það líka auð- veldara að trúa að ailt væri eins og það ætti að vera. Ef hún færi heim til Farnham fyrir fullt og allt, mundi hún þurfa að taka aftur allt sem hún hafði sagt nú og það gerði hana fastari í sessi. Hún var að loka dyrum, sem ein- hver partur af henni þráði að halda opnum. En áður en fundum þeirra lauk, hafði hún lokað henni að fullu. „Hvenær ætlarðu að koma og heimsækja okkur?“ spurði Alice. Og Adelaide svaraði: „Þegar þú hefur Icomið og heimsótt okkur“. Áhættan með þessum ofðum var gífurleg. Hún Vildi ekkí me'ð Ínokkru móti að Alioe kæmi til Britannia Mews. Þar var ekki Það var aldrei hægt að treysta því að Henry væri ódrukkinn. Alice roðnaði. Snögvast var eins og hún mundi fara að gráta. „Addie, vertu sanngjörn. Þú veizt hvernig mamma er. Hún er alltaf svo hrædd um að ég fái einhverja umgangsveiki..... Adelaide sá strax að henni var óhætt. Hún sagði kuldalega. „Áttu við að þér sé bannað að heimsækja mig á heimili mitt?“ „Það er af því .... Britannia Mews .... þú veizt .. “. „Já, það er heimili mitt“, sagði Adelaide. „Segðu frænku minni að ég skilji mjög vel hennar sjón armið og hún skilur vafalaust mitt. Ég vona að þú hafir ekki smitast af neinu í dag“. Alioe leit upp. Henni var nóg boðið. Hún hafði verið fengin til að hitta Adelaide, hún hafði gert sitt bezta fyrir fjölskylduna og hún sætti sig ekki við að hún væri misvirt fyrir það. „Addie, ef þú ætlar að temja þér slíka framkomu við mig, þá sjáumst við ekki framar. Pabbi og nSmma og Freddie eru öll sammála. Þú verður að haga þér eins og vitiborin manneskja. Þú veizt að okkur langar öll til að hitta þig....“. „Asamt eiginmanni mínum?“ Þögn Alice var nægilegt svar. Þegar hún virti hana fyrir sér datt henni í hug tvíburarnir. Þeir voru á ferðum um borgina alla daga. Þeir höfðu séð Henry einu sinni drukkinn fyrir utan Royal- veitingahúsið. Þeir höfðu ef til vill séð hann oftar og sagt frá því. Adelaidé langaði mikið til að hætta þessum samræðum. Hún stóð upp. „Þá kveðjumst við núna í bili“, sagði hún með hörkutón. „Mér þykir þetta leitt, Addie.“ „Mér líka. En bað verður rð hafa það. Þegar þú hittir mömmu, skaltu skila kveðju minni, og seoðu að við Henry óskum ekki eftir sambandi við fjölskylduna að minnsta kosti næsta árið. Og þú þarft ekki að vera hrædd við að bjóða mér í brúðkaup þitt. Ég mun hvort eð er ekki þiggja það“. •'íi. (Siini ilærrilB ö'ib Oö i.; Jicrl 6. kafli. 1. Næstu átján mánuði, sem liðu áður en Henry Lambert féll frá,! urðu miklar breytingar á kunn- ingjahóp Adelaide. Culver-fólkið var þegar flutt út fyrir borgina.1 Alice og Freddy Baker settust að í útborginni Surbiton og skömmu eftir brúðkaupið flutti Hambros- fólkið þangað líka. Frú Hambro' var umhugað að vera nálægt aottur sinm og Alice þótti engu síður vænt um að hafa hana á næstu grösum. | Adelaide var þakklát fyrir að fá að vera í friði. Henni var það léttir að vita að fjölskyldan hafði ekki „eftirlitsstöð", ef svo mætti segja, hinum megin við skemmti- garðinn. Þegar Alice skrifaði henni til að segja henni hið nýja heimilisfang sitt, því henni fannst það sjálfsagt að allt ættfólkið, I hve langt sem það var sokkið,' vissi hvar allir hinir væru niður komnir, þá svaraði Adelaide ekki bréfi hennar. Hún hafði ekki svarað boðinu í brúðkaupið og hún hafði heldur ekki sent neina, gjöf. Hún svaraði ekki þeim fáu bréfum, sem hún fékk frá :nóður sinni. í síðasta b'éfinu var frú Culver orðin grö.a. Hún sagði að Adelaide vildi slíta öllu sambandi við þau, þá væri henni það vel- ; komið. Ef til vill mundi hún vita betur eftir eitt ár eða svo. Ade- laide reif bréfið í tætlur og fleygði því. Hún heyrði aldrei frá Treff og hún hafði heldur gerólík systkinin og höfðu aldrei átt neitt sameiginlegt. Þéim stóð nákvæmlega á sama hvoru um annað og það fannst Adelaide á- gætt. Adelaide varð því einangruð, bæði fyrir sína eigin tilstilli og vegna þess að hending réði því. Hún gerði sér mikið far um að vera þægileg við Henry. Og ef henni fannst Henry gefa sér lítinn gaum, þá var það henni líka létt- ir. Hann drakk stöðugt, en ekki vissi Adelaide hvaðan hann fékk peningana. Ekki fékk hann þá ST^iutamðta eiðmbís Bilimierh.efsvh ** I _4TT * r '»». Stuðningsmenn séra Magnúsar GuðmuncLssonar hafa opnað skrifstofu í Kópavogssókn að Borgarholts- braut 32. Opin kl. 17—22. Sími 6559. Skrifstofan í Bústaðasókn er að Hólmgarði 41. Sími 1539. Allir þeir, sem vilja vinna að kosningu sr. Magnúsar eða aðstoða á kjördegi hafi samband við skrifstofurnar sem fyrst. ■ ■ Skipstjóra- og stýrimannafélagið m Aldan ■ heldur aðalfund sinn í dag, laugardaginn kl. 15, í ■ I skrifstofu félagsins (Hafnarhúsinu). ■ Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. • Félagar fjölmennið! ■ STJÓRNIN Hrói höttur snýr aftur eítir John O. Ericsson I ~ 24. Það var ekki meir en hálfbjart þegar kóngur reið inn um hallarhliðið. Hann hafði legið í tjaldi sínu niðri á völlunum um nóttina. Jafnskjótt og fyrstu sólargeislarnir fóru að dreifa þokubólstrunum yfir ánni, kallaði varðmaður uppi í aðalturninum varnarliðið saman með lúðraþyt. — Já, einmitt, þeir eru uppi á morgnana eins og við, sagði kóngur, og bað lúðurþeytai’ann að kalla menn okkar til vopna. Það verður síðasta vopnamessa þeirra hér á jörðu, — en þeir hafa sjálíir tekið þann kostinn. Með þessum orðum reið hann lengra inn í garðinn. Uppi á varnarmúrnum, sem aðgreindi hina tvo hallargarða, heyrð- um við lásboga vera dreginn upp, en manninn sáum við ekki, hann hlaut að hafa falið sig á bak við brjóstvígið. Allt í einu gall í bogastreng og glampi þaut út um eina skotraufina. Ríkharður hljóðaði af kvölum. Við hlupum til hans, því að hann reikaði og ætlaði að detta af baki. Ör af lásboga sat djúpt í öxl hans. — Þeir hafa beittar klær þessir villikettir, sagði hann, þegar við hjálpuðum honum niður á veiiina. Farið með mig I í tjaldið mitt aítur og sendið eftir honum Geoffrey lækni. Þið finnið hann sjálfsagt í veitingahúsinu niðri í þorpinu. Hellið fullri fötu af köldu vatni yfir grísinn, svo að hann verði algáður og geti hjálpað konungi sínum. I Og eitt enn, munið það, áð við verðum að vera búnir að vinna þetta úlfabseli fyrir kvöldið. Við breiddum kápurnaí okkar á döggvott grasfð og lögð- um kónginn gætilega niðúr. Lækniíinn, heiðgúliír og grind- horaður náungi trá Poitcju, kom bölvai«li og ragnandi upp F. R. S. F. R. S. DANSLEIKVR í Tjarnarcafé í kvöíd kl. 9. Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar leikur. Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins eftir kl. 6. Nú er fjörið að byrja. ■ i • ZEISS- Ný sending er komin. Það er ekki öruggt að næsta sending nái hingað fyrir jól. Þeir, sem ætla að fá sér ný- móðins lýsing í skrifstofu, sölubúð eða samkomusal, — ættu að koma sem fyrst. Sportvöruhús Reykjavíkur. Elsta húsgiBgaavimHi- stofa landsins sýnir íramleiðslu sína Hefi opnað húsgagnaverzlun í sambandi við vinnustofu mína á Grettisgötu 13. Margt eigulegra muna fyrirliggjandi. Gjörið svo vel og lítið inn. Virðingarf yllst, Þorsteinn Sigurðsson, Verzlunin Grótta er flutt á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 13A Gjörið svo vel að líta ion. 'Uerzfunín Cjrótta - AUGLÝSING ER GULLS ÍGILÐI r-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.