Morgunblaðið - 26.10.1952, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 26. okt. 1952
Hallgs‘int2iiTBS$a s
NámskeiS íyrir
KvenféSag Haílqrímskirkiu 'ssngkeiwara
* h T\/rr»-pnTTM V.ofc.T V.Ó
hefur merkjasölu á mðrpn
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
hefir merkjasölu, á mánudag-1
inn hinn 27. okt.
Hægt hefur miðað byggingu j
Hallgrímskirkju í Reykjavík. En
nú mun óhætt að gera ráð fyrir
því, að hafizt verði handa :neð
vorinu, og grunnurinn steyptur
undir kirkjuskipinu. Segja :ná, I
að starfsskilyrði safnaðarins séu
enn ekki orðin eins og bezt verði á
kosið. Kirkjan hefur á undan-
förnum árum verið svo mikið
notuð, að fá samkomuhús, sam-
bærileg, komast til jafns við
hana. Hún er engan veginn nægi-
leg fyrir það starf, sem innt er
af hendi á vegum safnaðarins.
Skýrsla meðhjálparans sýnir
gleggst, hve margskonar starf
það er. Ég birti hér til fróðleiks
skrá yfir þær athafnir, sem fram
fóru í Hallgrímskirkju árið 1951.1
Messur, 91 .ið tölu.
Barnaguðspjónustur 23,
Altarisgöngur, utan alm. guðs-
bjónustu, 10.
Föstumessur C,
Bænasamkomur með Passíusálma
söng 32,
Biblíulestrar 24,
Kristilegar samkomur, alm., 22,
Barnasamkomur 11,
Kennslustundir við fermingar-
undirbnúning 37,
Skírnir, utan alm. guðsþj., 21,
Hjónavígslur, utan alm.guðþj. 35,
Jarðarfarir og kveðjuathafnir 14,
Söngsamkomur fyrir almenn-
ing 3,
Söngæfingar 23,
Safnarafundur 1.
Alls er hér því um að ræða
413 athafnir á árinu. (Hér eru
þó ekki taldar skírnir, eða altar-
isgöngur, sem fram fara í messu
á sunnudögum, af því að þær
tel ég ekki sem sérstakar athafn-
ir). Kirkjan er lítil, og við sum-
ar guðsþjónustur svo lítil, að til
hreinna vandræða horfir.
Eitt sinn var því haldið fram,
að ekki væri sérstök þörf fyrir
fleiri kirkjur í Reykjavík.
Reynzlan hefur sýnt allt annað,
eins og vænta mátti. Og þó verð-
um við hér að fara að mestu leyti
á mis við það, sem í öðrum lönd-
um er talið með sjálfsagðri menn-
ingarstarfsemi, og ekki er hægt
að framkvæma nema í stórum
kirkjum, og á ég þar við flutning
stórra kirkjulegra músíkverka.
Þjóðleikhúsið bætir úr þörfinni
fyrir stóran sal fyrir veraldlega
músík, en ekki kirkjulega.
Tilefni þess, að ég rita þessar
línur n.ú, er Hallgrimsmessan
hinn 27. okt. næstkomandi mánu
dag. Allt árið um kring sendir
fólk gjafir og áheit cil Hallgríms-
kirkju, og sendingar þær bera
vott um að fólk víðsvegar um
landið hugsar hlýlega til hennar,
engu síður en Reykvíkingar, enda
er svo til ætlast, að hér rísi eins
konar landskirkja, sem þakklætis
vottur þjóðarinnar allrar til hins
mikla skálds. En á bessum minn-
ingardegi, ártiðardegi séra Hall-
gríms, hefur kvenfélag safnaðar-
ins jafnan haft sérstaka merkja-
sölu til ágóða fyrir kirkjuna.
Dagur þessi hefir jafnan verið
haldinn háltíðlegur með sér-
stakri messu, þar sem sungin
hafa verið hin gömlu tónlög, og
fylgt gömlum formum frá tíð sr.
Hallgríms. Verður svo gert nú
sem endranær. Hafa prestar
kirkjunnar skifzt á um að pré-
dika, cn fyrrverandi sóknar-
prestur, séra Sigurbjörn Einars-
son prófessor aðstoðað við messu
sönginn. Verður svo einnig í
þetta sinn, nema vegna fjarveru
undirritaðs mun hann nú einng
halda predikunina. Altarisganga
fer fram og verða sungnir þeir
söngvar, er óður fyrr tilheyrðu
þeirri athöfn.
Með tvennu móti getur safn-
aðarfólk og aðrir lagt sinn skerf
til uppbyggingar dagsins — með
þátttöku í ninningarguðsþjón-
ustunni, og með því að leggja
sinn skerf fram við fjársöfnun
kvenfélagsins. Megi guð blessa
hvorttveggja tillagið, hið and-
lega og efnislega.
Jakob .Tónsson.
II!L dómsmáiaráitiireyJisiiis
Framhald af bls. 1
hátterni konu nokkurrar, er var
viðstödd knattspyrnukappleik í
Vestmannaeyjum síðari hluta
ágústmánaðar. Við rannsókn
sennaðist, að kona þessi, sem er
erlend og var þarna í fylgd með
nokkrum löndum sínum og er
komin nokkuð á fimmtugsaldur,
varð gripin ákafri lofthræðslu er
hún hafði klifrað upp í brekku.
Urðu tilburðir hennar af þeim
sökum og það, að hun fór úr
rifnum sokkum, er síðar voru
hirtir og afhentir lögreglunni, til-
eíni þeirra frásagna, er sum blöð
birtu um atburðmn, og er ekk-
ert fram komið er gefur minnstu
ástæðu til að telja þetta atvik til
stuðnings söguburðinum um hið
umrædda lyf, eins og gert var í
Þjóðviljanum, þar sem einnig
var ranglega frá því skýrt, að’
stúlkan hciði verið íslenzk.
FÓSTURFUNDURINN
í umræðum sínurti um þessi
mál blandaði Þjóðviíjinn einnig
umtali um fósturfund á Kefla-
víkurflugvelli á s. 1. ári, og itrek-
aði fyrri ásakanir sínar á dóms-
málastjórnina af því tileíni. Mál
þctta var mjög ítarlega ránnsak-
að á sínum tíma, enda fyrirskip-
aði dómsmálaráðuneytið tvivegis
framhaldsrannsókn í því.
Við rannsókn sannaðist, að
kona, bandarísk að fæðingu en
^gift íslenzkum starfsmanni á
flugvellinum, hafði misst fóstur
og eru allar líkur til og ekkert
sem bendir til hins gagnstæða, að
það sé hið sama fóstur er nokkru
síðar fannst og blaðaskrif spunn-
ust um. Af hálfu hennar og
manns hennar var ckkert sak-
næmt í þessum efnum, en telja
verður að læknir sá, sem hlut
átti að máli, hefði átt að sjá um
brennslu fóstursins á eftir, þó að
fyrir því væri sú afsökun, að um
þessar mundir var verið að
leggja niður gamlan spítala og
flytja í nýjan, og spruttu mis-
tökin af því.
Þar sem dómsmálastjórnin
taldi að opinberar umræður um
þessi efni væru til þess lagaðar
að ýfa harma aðstandenda, taldi
hún á sínum tíma rangt að skýra
frekar frá málinu en þá var gert.
Þar sem umræður hafa nú ver-
ið vaktar upp um þetta aftur,
er óhjákvæmilegt að skýra frá
þessum staðreyndum þeim til
fróðleiks, er hið sannara vilja
hafa.
HEITIÐ 4 MENN TIL
STUDNINGS
Það er skylda dómsmálastjórn-
arinnar að halda uppi lögum og
rétti í landinu og hestir hún á
alía góða menn til síuðnings í
þeim efnum. Sjálfsagt er að rann
saka tii hlítar aliar sakargiftir
er ábyrgir aðilar bera fram.
Kviksögur og lausan söguburð,
ssm enginn vi!I leggj.a nafn sitt
við, er erfiít að eliast við. í þeim
tilfellum, er að framan hafa ver-
ið rakin, hefir það samt verið
gert með þeim árangri, að eng-
inn flugufótur hefir reynst fyr-
ÁX söguburðinum.
Á MORGUN hefst hér í bæ nám-
skeið fyrir söngkennara. Verður
það haldið í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar á mánudagskvöld-
um kl. 8V2—10. Námskeið þetta,
sem fræðslumálaskrifstofan
gengst fyrir að tilhlutan Söng-
kennarafé!ags Is!ands, mun
standa tii vors og er þess vænzt
að kennarar úr Reykjavík og ná-
grenni geti sótt það. Aðallcenn-
ari verður dr. Heinz Ede’stein,
en hann er að góðu kunnur á
þessu sviði eigi aðeins af starfi
sínu í Tónlistarskólanum um ára
bil heldur vegna kenns!u sinn-
ar á söngkennaranámskeiði, sefn
Landssamband framhaldsskóla-
kennara stóð fyrir vorið 1951.
Kennsluaðferðir dr. Edelsteins
eru frábærar og ryður hann þar
nýjar brautir hérlendis, en síð-
asta ár hefir hann dvalið er-
lendis og kynnt sér helztu fram-
farir á þessu sviði kenns'u-
mála.
Söngkennarafélag íslands var
stofnað um síðustu áramót, en
höfuðmark þess er að efla söng
í skólum landsins. Aukin mennt-
un söngkennara er því helzta
baráttumál félagsins. Fyrsta
sporið í þá átt var stigið með
því, að dr. Edelstein var í baust
ráðinn stundakennari við Kenn-
araskólann, og námskeið þetta er
annað skrefið. Ætlunin er svo að
halda námskeið næsta sumar
með líku sniði og í fyrra, svo
að kennarar utan af landi geti
átt þess kost að kynnast nýjung-
um í söngkennslu. Aðsóknin í
fyrra sýnir glöggan skilning
kennara á nauðsyn slíkra nám-
skeiða, en söngmálin hafa því
miður skipað sorglega lágan sess
í flestum skólum landsins til
þessa. Það er von Söngkennara-
félags íslands að nú verði þar
breyting á til batnaðar, enda
hefir fræðslumálastjórnin full-
an hug á að svo verði.
Fræðslumálaskrifstofan tekur
á móti umsóknum um námskeið
þetta, en formaður söngkennara-
félagsins, frú Guðrún Pálsdóttir,
veitir einnig allar upplýsingar
um það.__________
Söfnin nofuö fil kennslu
SAFNVERÐIR frá 25 löndum,
þar á meðal frá Danmörku og
Svíþjóð, eru nú á UNESCO-nám-
skeiði, sem haldið er í Brooklyn-
safninu í New York. Þar er fjall-
að um nýtir.gu safnanna í þágu
upplýsinga og kennslumála, þar
eð ætlunin er að nytja nú söfn
heimsins á þá lund, að þau verði
j virkur þáttur í nútíma fræðslu-
kerfi. Meðal "orstöðumanna :iám-
skeiðsins er dr. Torsten Althin,
sem er forstjóri tæknisafnsins í
Stokkhólmi.
j Ástæðan til þess, að Brooklyn-
safnið varð fyrir valinu sem að-
setur þessa námskeiðs var m.a.
sú, að safnið hefur unnið skóla-
. æsku New York-borgar stórmik-
' ið og einstætt gagn á undanförn-
um árum. Sex til sjö hundruð
nemendur heimsækja safnið dag-
lega og njóta þar kennslu og sjá
fræðslukvikmyndir,______
Þýðtngergnesla ré§-
Eftir ÁRNA SNÆVARR og BALDUR MÖLLER
‘1
SKAK nr. 13.
TefUl 27. ág. 1952 í Helsinki.
Ilvítí: Guðjón M. Sigurðsson.
Svart: Morel, Svisslandi.
Spánskur leikur.
1. e2—el e7—e5
2. Rgl—13 Rb8—c6
3. Bfl—b5 a7—a6
4. Bb5—a4 Rg8—Í6
5. 0—9 Bf8—e7
6. Hfl—el b7—b5
7. Ba4—b3 0—0
Hér er vanalegri leikur 7..
d7—d6. En svartur ætiar sér
sýnilega að leika Marshall-af-
brigðið hvað sem það kostar.
8. c2—c3
Hér er einnig all góður leikur.
8. d7—d5
Með 8.....d7—d6 gat svart-
ur aftur ^veigt inn á vanalegar
brautir.
C. e4xd5 Rf6xd5
10. Rf3xe5 Rc6xe5
11. IIelxe5 Rd5—f6
12. d2—d4 Be7—d6
13. He5—el
Línurnar hafa nú skýrst. Hvit-
ur hefir peði meira en svartur
nokkra sóknarmöguleika, sem þó
nægja varla til að jafna taflið,
ef vel er varizt.
13.... Rf6—g4
14. h2—h3 Dd8—h4
15. Ddl—f3 Bc8—e6
Með þessum leik virðist svart-
ur of seinn til sóknar. Til greina
kom 15. h7—h5 með hótuninni
Bb7.
16. Hel—e4! Ha8—e8
17. Bb3xe6 He8xe6
18. Bcl—e3
Hvítur má ekki drepa riddar-
ann á g4, vegna mátstöðunnar í
borðinu. Hinsvegar er svartur nú
neyddur til uppskipta vegna
leppstöðu riddarans.
18 .. Bd6—h2t
19. Kgl—fl
Ekki 19. Khl, vegna 20...
HxH og síðan Rxf2t.
19 .. Rg4xe3ý
20. He4xe3 He6—f6
21. Df3—e2 Bh2—g3
22. He3—f3 Hf6xf3
23. De2xf3 Bg3—f4
Sókn svarts hefir nú fjarað út
að mestu, og er hætt við að hvíta
peðið róði úrslitum í endatafl-
inu. Endalokin koma þó fyrr en
varir.
24. Df3—e4 DIi4—116
25. Rbl—a3 f7—f5
26. De4—d5ý Iíg8—h8
27. Hal—el Bí4—d6
28. Ra3—bl BI16—f4
29. Bd5—cð g7—g57?
Skemmtilegur afieikur. Svört-
um yfirsést drottningartapið.
30. g2—g3 Gefið.
Lokastaðan:
U W
WM
lif w
H1 ■ ■i i
* " --/ ’ ’r/' ymt.
Lausn á skákþraut 19. okt..
1. g3—g4. 2. D eða R máta.
TAFLLOK.
H. M. Lommer.
(Schweiz. Schachs. 1932)
Hvítur leikur og heldur jöfnu.
Húshjálp — íbúð
Þeim, sem getur leigt fá-
mennri fjölskyldu 2—3 her-
bergja íbúð, get ég útvegað
reglusama stúlku í licihlags-
eða hólfdagsvist. — Tilboð
merkt: „Sveitafólk — 998“,
sendist blaðinu fyrir n-.k.
mánudagskvöl d.
Lítið
HERBERGI
til leigu í Hlíðunum. Uppl.
í síma 6384.
F. I. L.
F. I. L.
ília!Iundur
Félags íslenzkra loftskeytamanna verður haldinn
að Tjarnarcafé mánudaginn þann 27. þessa mánaðar
klukkan 14.
Cgoldln árgjöld verða innheimt á fundinum.
Lagabreytingar.
Félagar "iclmennið.
! STJÓRNIN
LUNDÚNUM, 24. okt. — Hinn
27. nóv. n. k. koma forsætisráð-
herrar brezku samvcidisland-
anna saman til róðstefnu um
efnahagsmál. Verður hún hald-
in í Lundúnum og :.nun Churc-
hill stjórna henni. Er ráðstefna
þessi sögð hin mikilvægasta og
umfangsmosta allt frá Ottawa-
ráðstefnunni 1932.
Á ráðstefnunni verður stefn-
an í viðskipta-, tolla- og gjald-
eyrismálum mörkuð. Grundvöll-
ur þeirra viðræðna verður að
reyna að styrkja sterlungspund-
ið í sessi og að auka gull og
dollaraeign Samveldislandanna.
Vetrarstarfsemin hefst á morgun, mánu-
dag klukkan 9 e. h. í Miobæjarskólanum
og verða æfingar þar framvegis á mánu-
dögum kl. 9—10 og miðvikudögum kl. ~7—9.
Nýir meðlimir innritaðir á æfingum.
Skylmingaíþróttin er jafnt fyrir konur sem karla.
íjálfari cr Egil! líalldórsson.
S. F. R.
Morgunblaðið með morgunka.ífinu —