Morgunblaðið - 12.11.1952, Page 6

Morgunblaðið - 12.11.1952, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. ;ióv. 1952 og réttur eftir próf. * Olaf Jóhannresson Bók sem kemur aEmenningi að raunhæfum nofum í SUMAR kom út hjá- bókaút- gáfu Menningarsjóðs bókin Lög og réttur eftir Ólaf Jóhannesson, prófessor. Efni hennar er sam- an dregið yfirlit yfir nútíma réttarskipun íslendinga. Lög og réttur er út gefin í bókaflokknum „Handbækur Menningarsjóðs“. En handbók er hún ekki að mínum dómi, ef frá er skilið formálasafn aftast í henni. Til þess að rit geti kallazt lögfræðileg handbók, verður það að greina frá sem flestum sér- stökum ágreiningsmálum, sern upp geta komið og sýna m. a. með Próf. Ólafur Jóhannesson. tilvitnunum í dóma hvernig leyst er úr dæminu í hverju ein- stöku tilíelli. Form slíkra bóka, sem Lög og réttur eru raunar rökrétt and- stæða við form handbóka. Hér er lögð aðaláherzlan á að útskýra í heild meginreglurnar, útsýnið er víðara. Það væri sanni nær að kalla bókina „leiðarvísi“ urn krókótta vegi réttvísinnar. Fyrir rúmum 50 árum þótti mikill fengur úti í Danmörku að útkomu bókar Hans Munch-Pet- ersens „Den borgerlige Ret“, en hún hefur orðið fyrirmynd ann- arra slíkra yfirlitsbóka um rétt- arskipun Norðurlandaþjóðanna, svo tvær séu nefndar, t. d. Láro- bok i civilrátt eftir Björling og Oversikt over Noregs rett, eftir Knopf, en sú síðari er tileinkuð Munch-Petersen. Höfundur „Den borgerlige ret“ ætlaðist á sínum tíma til, að hún yrði fyrst og fremst kennslubók fyrir byrjendur við laganám. Því hlutverki hefur hún gegnt alla tíð síðan af mestu prýði. En auk þess varð brátt vart við að fleiri töldu sér nauðsyn á henni. Hún var keypt og lesin af öllum almenningi. Vinsældir hennar sjást bezt af því, að ekki alls fyr- ir löngu kom hún út í 13. útg., breyttri og aukinni. | Engin þesskonar bók hefur verið til á íslenzku, en með út- komu Laga og réttar, er úr þeim skorti bætt. ! Lög og réttur er í fyrsta lagi kennslubók fyrir byrjendur í lög- fræði. Þar hefur lengi verið þörf fyrir hana. Notazt hefur verið við útlendar kennslubækur við laga- nám og farið langur tími i út- strikanir og breytingar, eða blátt áfram að tímarnir hafa eyðst í yfirborðskenndar uppskriftir á einföldustu meginatriðum, svo lít ið tóm hefur gefizt til að stanza við atriði, sem myndu þó hafa þarfnazt meiri íhugunar. Þó að Lög og réttur sé ekki algerlega fullnægjandi, hlýtur hún að verða sú undirstaða, sem laga- neminn í upphafi byggir nám sitt á. Námið hlýtur þá um leið að vera auðveldara og bera meiri árangur en áður. Ég held því að það verði óhjákvæmilegt fyrjr hvern lagastúdent að eiga og lesa bókina. Og jafnvel þótt hærra sé komið, er það trygging og þægindi að eiga bók sem Lög og réttur í hillu hjá sér. Hand- hæga til að rifja upp fyrir sér reglurnar greinilega og í skyndi. Lögfræðin og þá sér í lagi einkamálarétturinn, sem er meg- inefni í umræddri bók, fjallar um sambúð manna. Því er það svo, hver sem aðstaða manna annars er í hinum frábrugðnustu atvikum lífsins, að hver sá sem ekki reynir að afla sér nokkurr- ar þekkingar á réttarstöðu sinni, er sem blindur og bjargarlaus maður. Ég held, að það sé cf algengt, að menn afli sér þekk- ingar fyrst á skotspónum og síð- an í biturri reynslu. Það sem Lög og réttur ná, ætla ég að betra sé að leita ráða hjá henni. Mér virðist, að yfirleitt sé óhætt að treysta því sem á síðum hennar stendur. Hér er að sjálfsögðu ekki um neitt æðsta stig fullkomleikans að ræða, en ég veit ekki um neina aðra ís- lenzka bók, sem er eins vel til fallin að veita ölium almenningi greinargóða heildarsýn yfir þá þætti réttarskipunarinnar, sem mestu máli skiptir í daglegri um- gengni. Þeim mun fremur á þetta við, þar sem bókin er yfirleitt öll rituð á góðu, lipru máli og sums staðar hefur höfundi reglu- lega tekizt upp, bæði að frá- sagnarmáta og að hann ristir dýpra í efnið en ætla mætti í yfiriitsbólc. Má t. d. benda á kafla eins og lögræði, lögræðissvipt- ingu og lögráðamenn, fjármál hjóna, hjónaskilnaður. Þá inni- heldur bókin það ýtarlegasta, sem birzt hefur á íslenzku um erfðir. Aftan til í bókinni eru formál- ar 60 skjala. Eru þeir að mestu teknir saman af Gísla ísleifssyni, cand. jur. Það ber að þakka bæði höf- undi bókarinnar, fyrir þá elju, er hann hefur sýnt með því að rita þessa efnismiklu bók í hjá- verkum og bókaútgáfu Menning- arsjóðs fyrir framtak og stórhug þann, sem Lög og réttur vitnar sjálf bezt um. Þorsteinn Ó. Thorarensen. England - Wales LUNDÚNUM: — Enska landsliðs nefndin valdi í dag landsliðið, sem á að leika gegn Wales á Wembley-vellinum 12. nóv. •— Það verður þannig: Merrick (Birmingh.); Ramsey (Tottenh.) og Lionel Smith (Arsenal); Wright (Wolves); J. Froggatt og Dickinson (Portsmouth); Finney (Preston), Redfern Froggatt (Sheff. W.); Lofthouse (Bolton); Bentley (Chelsea) og Elliott (Burniey). Eins og gert var ráð fyrir eftir jafnteflisleikinn gegn Irum í okt. voru gerðar nokkrar breytingar á liðinu, skipt er um báða innherj- ana og Smith kemur á ný inn í liðið. Landslið Wales var einnig val- ið og var aðeins gerð ein breyting frá liðinu, sem tapaði fyrir Skot- um. Liðið verður: Short (Ply- mouth); Lambert (Liverpool) og Sherwood (Cardiff); Paul (Manch. C.); Daniel (Arsenal) og Burgess (Tottenham); Foulkes, Davies (Newcastle), Ford (Sund- erland); Allchurch (Swansea) og Clarke (Manch. C.). — Reuter. Enska knatlspyrnan Wolves aítur efst' ÚRSLIT í I. deild á laugardag: Arsenal 2 — Middlesbro 1 Aston Villa 1 — Preston 0 Blackpoöl 0 — Newcastle 2 Bolton í — Burnley 2 Charlton 3 — Liverpool 2 Chelsea 0 — Cardiff 2 Derby 1 — West Bromwich 1 Manch. Utd. 1 — Sheff. W. Portsmouth 2 — Tottenham 1 Sunderland 1 — Stoke 1 Wolves 7 — Monch. City 3 Úlfarnir tóku forustuna aftur með gersigri sínum yfir Manch. City, sem verður að taka sig mjög á ef það á ekki að falla aftur nið- ur í II. deild. Liðið hefur annars leikmenn, sem gætu orðið kjarni góðs liðs, svo sem innherjana Broadis og Revie, velsku lands- liðsmennina Clarke (v.úth.) og Paul sem leikur miðframvörð, og er sú ráðstöfun talin eiga mikla sök á niðurlægingu liðsins, en hann er einn af beztu hliðarfram- vörðum í Englandi, og síðast en ekki sízt hinn þýzka markvörð, Trautmann. Úlfarnir léku liðið sundur og saman eftir öllum kúnstarinnar reglum, Miðfrh. Swinbourne skoraði á 3. og 4. mín. og stóðu leikar 5—2 í hléi, og skoraði Williamson 3. mark sitt fyrir Manch. C. á fyrstu mín., eft- ir það, en h.úth. Úlfanna tókst að bæta 2 við. Blaekpool lék nú einn sinn lélegasta leik í haust, en liðið hef ur nú undanfarið verið án tveggja beztu framherjanna, en hefði þó átt að gera betur gegn Newcastle, sem lék með aðeins 10 mönnum frá miðjum fyrri hálfleik, og hafði 2—0 í hléi, bæði mörk skor- uð af miðfrh. Robledo. Ports- mouth keypti á laugardag írska landsliðsmarkvörðinn, Uprichard af III. deildar-liðinu Swindon, og hjálpaði hann til að sigra Totten- ham. Leikur Stoke kom á óvart, því að ógerlegt var að ráða af leikn- um, hvort liðanna var efst og hvort næstneðst. Það lék prýðis- vel í skemmtilegum leik og tók forustuna með vitaspyrnumarki, en Ford jafnaði með 20 m. skoti í síðari hálfleik. Leikurinn í Manchester var ekki síðri en þar kom vel fram í hverju gengis- leysi Manch. Utd. liggur. Liðið lék mjög vel úti á vellinum og inn að vítateig andstæðinganna, en þá vantar tilfinnanlega smiðs- höggið á upphlaupin. Enda þótt. S. W. ætti allan ieikinn i vök að verjast, tókst Dooley að skora með skalki í f. hálfleik, og tókst Manch. Utd. ekki að jafna fyrr en á síðustu imÍH. Staðan er nú: HAAG, 8. nóv. — Ein mesta um- ferðarhöfn Evrópu, Rotterdam, var að mestu leyti lokuð í dag, vegna þess að flakið af panamíska hafskipinu Fástus, er var á reki á innsiglingarleiðinni til hafnar- innar, hamlaði öllum skipaferð- um. Að minnsta kosti 25 skip tepptust í dag og komust ekki inn á höfnina. Wolves Sunderl Burnley W. B. A. Liverpool Blackpool Arsenal Charlton Sheff. W. A. Villa Portsm. Newcastle Préston Bolton Chelsea Manch. U. Cardiff Middlesbr. Tottenham Derby Stoke Manch. C. L U 16 9 15 9 16 8 15 8 16 8 15 8 J T 4 3 15 15 15 15 16 15 15 15 16 15 5 15 15 16 15 16 16 2 10 4 11 Mrk. St. 38-26 22 24-19 21 26-21 20 22- 16 19 29-26 19 36-27 18 27- 21 18 32-28 17 18-18 17 20-20 16 28- 27 16 23- 24 15 24- 26 14 18- 26 14 27-24 14 22- 25 13 20-20 13 23- 25 13 24- 25 13 16-23 10 19- 23 10 20- 37 6 IÞOKAIM RAUÐA Síðari hlufi skéldsögu Krisfmanns Guðmundssonar II. deild: Barnsley 3 — Bury 2 Biackburn 1 — Leeds 1 Brentford 2 — Fulham 2 , Doncaster 1 — West Ham. 1 Everton 0 — Rotherham 1 Huddersfield 1 — Notts Co. 0 Hull 0 — Luton 2 Lincoln 1 — Birmingham 1 Nottm. Fores 3 — Plymouth 1 Framhald á bls. 10 ÉG ÆTLA ekki að kveða upp rit- dóm. Það munu þeir gera, sem til þess hafa lesningarnar. Hins vegar langar mig til þess að vekja athygli. á bók, og til þess hef ég lesinguna, allt frá því er ég hóf í gær að sigla inn Borgarfjörð með Isarri Dagssyni, og unz óg fylgdi honum í dag upp í berg- hvilftina undir Hamrinum á fund Hennar. Það er nú raunar bráðu.m tvö ár síðan er fundum okkar ísarrs bar fyrst saman. Hann var þá smá- sveinn, þar sem í suðvestri blasti við. „bláfjöllótt strandlengja, en hvítur jökull yzt við haf“, og þóttist ég af því og öðrum kenni- leitum þekkja, að það væri í Döl- um vestur. Attum við svo sam- fylgd unz hann, ungur að árum en vaxinn mjög að vizku, hvarf mér sjónum, þar sem hann var á heimleið úr fyrstu utanför sinni. ORAÐIN GATA Enda þótt þessi gömlu kynni spenntu yfir alllangt árabil af æfi hans, þá var enn margt í fari ísarrs, sem kom mér kynduglega fyrir og örlög hans voru, er við skiidum, svo óráðin, að ég var ekki viss um að honum myndi nokkurn tíma auðnast að láta þær vonir rætast, er ég hafði við hann bundið. Ég óttaðist að hann myndi t. d. annað hvort hverfa | heiminum með öllu og sökkva í algleymi austrænna dulfræða, eða1 týna í myrkviðum munaðar þeirri mynd, er mótuð var framan aspa í berghvilft við háan hamar, þar sem ungur sveinn byrgði andlit í höndum sér „og laut höfði, bug- aður af ofurmagni þeirrar tignu fegurðar, er hafði vitrast hon- um“. Auðsætt var að hann hafði j þegið dýrar vöggugjafir, en myndi hann maður til að rísa af eigin mætti undir þeim? Hver áttu að verða örlög hans og allra þeirra mörgu, er einnig komu við sögu? Um það var spurt, og eftir svörunum var beðið með óþreyju í tvö ár. LEITIN AÐ LEYNDARDÓMUM Nú er gátan ráðin. ísarr er, að vísu, enn ofan moldar, og ekki nema á miðjum aldri, en saga hans er öll, sú, er sögð verður. Um hitt, sem á eftir fer, yrkjum við í eyðurnar, ef við viljum, hver með þeim hætti, sem hann hefir skáldgáfur til, — það er öllum frjálst, því að þegar þroskasaga manns er öll, þá skiptir allt hitt, sem á eftir fer, svo sáralitlu máli. Það er freistandi, þegar kvödd er söguhetjan og samferðafólk hennar, er mun stórt hundrað, sem ljósi er skærast brugðið á,' að rifja upp nokkur þau atriði} sögunnar, sem helzt eru hugstæð að loknum lestri: Um tíma og staðsetningu at- burðanna er það að segja, að þeir gerast á 11. öld, og er leiksviðið ýmist á íslandi, Irlandi, í Noregi, Grikklar.di, austur í Miklagarði cða á þióðbrautum milli þessarra staða. Öll er hin sögulega baksýn trúlega gerð, en um sannfræði hennar þori ég þó ekki að segja, \ i enda hér ekki um ritdóm að ræða, svo sem fyrr er .greint. j ísarr Dagsson, söguhetjan, er sonur völvunnar Kaðlínar að Vallanesi. Lengi vel er allt á huldu um faðernið, en ljóst verð- ur það þó að lokum. Móðir hans er fræðasjór og- forvitri, horfir í heima tvenna, og erfir sonurinn dularhneigð hennar, en ávinnur sér þekkingarþorsta, sem virðist næstum óslökvandi. Hann reynir, þegar í æsku, að svala honum við vizkubrunn írans, Clemet O’ Crúhu, er kemur fyrst í ljós sög- unnar í gervi prests við kirkju- vígslu að Hofgörðum á íslandi, en hverfur okkur síðar í mynd mikils ollevs, langt suður í lönd- um. Að tilvísan þessa fyrsta læri- föður fer völvusonurinn ungi út í heiminn í leit að þekkingu á leyndardómum lífsins, og þar finnur hann að lokum leiðina til friðar, aemur sáttarorð jnilli manns og guðs. GÖMUL OG NÝ VANDAMÁI, En það líf, sem Isarr Dagsson þiggur úr hendi skapara síns blaktir ekki á veiku skari bæna- kvaks, né leitar örmagna alglevm is. Nei, því er lifað í efnisþokunni rauðu, þar sem skáldið lætur and- ann verða skíran í laug hinnar bitru eða ljúfsáru reynzlu holds- ins, þar sem mótsetningar anda og efnis vinna saman, unz sú lexía er numin, sem okkur var sett fyrir. Þess vegna er bókin glitrandi af ástum kvenna, log- andi af hatri og valdastreitu, — þokan rauða. Þar eru, auk þess hinar fegurstu náttúrulýsingar, ótal æfintýri, sum spaugileg, önn ur alvöruþrungin, en öll vel eða listilega gerð. Þar eru spaklega brotin til mergjar gömul og ný vandamál, og mörg setnir.g er þar svo fagurlega gerð, að lifa mun langar bækur. Þar eru víga- ferli, — órjúfandi íóstbræöralag, -— hörmuleg vinslit, er oddur Blárefils nemur staðar í hjarta fóstbróðursins. Þa;r er kvæðið mikla Völuspá og skáldið. Hefði höfundur þess getað verið svona? Er spurningunni um hann rétti- lega svarað í bókinni? Það eitt er ærið til íhugunar. DJÚPT LIGGJA RÆTUR Hið sameiginlega öllum þáttum bókarinnar, hversu ólíkir sem þeir annars kunna að vera um efni, er eftirvæntingin, sem freist ar íesandans til þess að leggja ekki bókina á hilluna fyrr en hann hefir séð allan örlagavefinn rakinn. Margir munu þess vegna hraðlesa þetta síðara bindi sög- unnar, til þess að leita sem fyrst lausnar þess, sem forvitnilegast er, en taka svo aftur til bókar- innar og njóta hennar að nýju, fara alloft yfir suma kaflana, íhuga þá, lesa upphátt fyrir kunn ingjana og spjalla við þá um þokuna rauðu, en ljóst mun þá verða ýmislegt það, sem hulið er oftast við fyrsta yfirlestur, enda iiggja rætur atburðanna oftast alllangt neðan þess yfirborðs, sem þeir birtast á. GAMAN OG ALVARA Til dæmis um þetta má nefna hlutverk föðursins, Dagfers mac Roth, en úr myrkri leyndarinnar, sem hvílir yfir nafni hans rís það reginafl, sem knýr ísarr áfram í þekkingarleitinni. Loks finnur hann Dagfer mac Roth fanginn, en það er þó ekki fyrr en er „ísarr Dagsson stóð yfir kumbli föður síns“, er honum þótti „sem hann hefði ausið út- þrá æsku sinnar moldu. Honum varð Ijóst, að hugsunin um þenn- an ógæfusama faranasvein, er hafði getið hann, var tengd sann- leiksþrá hans og fróðleiksfýsn allt frá bernsku. Nú var einskis framar að leita í fjarlægð. Lausn hinnar miklu gátu tilverunnar var innra með.honurh, og jarð- neskar leifar Dagfers mac Roth hvíldu í sverði dalsins. innan skamms yrði móðir hans lögð þar við hlið elskhuga síns — en síðar Gríma og hann sjálfur. Allir, sem jörðina tróðu, féllu að lokum í fang hennar. En grasið vex á gröf unum, og hlæjandi börn leika sér í sólskini nýrra daga.“ Þannig er bókin, listilega sam- an slungin hinum undarlegustu örlagaþráðum, girnileg til fróð- leiks, og þó er þar engin blaðsíða svo til enda lesin að yfir til þeirr- ar næstu sé ekki vikið með mik- illi eftirvænting, en þannig verð- ur bókin í senn þægileg dægrá- dvöl þeim, sem gamans eins leita, pg íhugunarefni hinum, sem einn- Framhald á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.