Morgunblaðið - 12.11.1952, Side 11

Morgunblaðið - 12.11.1952, Side 11
Miðvikudagur 12. nóv. 1952 MORGVTiBLAÐlÐ Bórn sér í HVERT sirin, sem ég skrifa um barna- eða unglingabaekui% dett- ur mér í hug, hve mjög gætir misskilnings hjá þorra marnia um gerð og gildi slíkra bóka. Margir virðast halda, að bók, sem skrif- pð sé einkum handa unga fólk- inu, geti ekki haft neitt giidi sem fagrar bókmenntir, og sumir eru þeirrar trúar, að slíkar bækur hljóti næstum alltaf að vera leið- inlegur lestur fullorðnu: fólki. Mér hefur jafnvel fundízt ein- staka menn svo sem á verði um það, hvort ekki væri virðingu þeirra ósamboðið að láta í Ijós, að þeir hafi nú reyndar Iesíð slíka bók sér til skemmtunar. Þessi misskilningur á sér ýms- ar rætur, meðal annars þær, að margir vilja um fram flest annað firrast allan svokallaðan barna- skap og finnst það eitt hið háðu- legasta sem um þá verði sagt, að þeir séu barnalegir. Margir líta þannig á barna- og unglingabæk- ur, að þær eigi fyrst og fremst að fela í sér siðferðilegan áróður, en áróður er alltaf frekar erfitt að sameina skemmtun og list, og hefur ýmsum tekizt það mjög óhönduglega. Eru margar bækur, sem skrifaðar hafa verið handa unga fólkinu þrautleiðinlegar — ekki aðeins fyrir fullorðna lesend ur, heldur líka fyrir börn og unglinga, klaufalega saman sett- ar og firrtar öllu eðlilegu lifi. Þá hafa og ýmsar æskuíýðsbækur verið mjög grunnfærnislegar •— og sumar haft á sér falsglit og verið þrungnar af andstyggilegri tilfinningavæmni. Hefur þetta til dæmis verið mjög áberandí um erlendar bækur, sem einkum hafa ven'ð ætlaðar ungum stúlkum. En víst er um það, að ýmsar þeirra bóka, sem skrifaðar hafa verið handa börnum og ungling- um, eru ágætar bókmenntir og margar hafa sízt mínna menntalegt gildi en sumt af þeim skáldritum, sem titluð hafa verið fyrir fullorðið fólk og hlotið hafa talsverðan hróður. I>á hefur mér og virzt, að sérhver bama- og unglingabók — að undanskildum frumstæðustu námsbókum — sem væri leiðinlegur lestur fullorðnu fólki, væri að einhveru leyti illa og óhöndulega saminn — eða þar gætti óeðlilegra og jafnvel kjána- legra sjónarmiða. Earna- og unglingabækur eru sem sé mjög vandgerðar — engu síður en aðrar. Þær þurfa að vera fræðandi og hafa að flytja r,ið- ferðilegan boðskap, en þó vera gæddar sönnu og fjölbreytílegu lífi. Þær verða að leiða huga hinna ungu lesenda að dásemd- um þeim, sem tilveran hefur upp á að bjóða öllum sem sjáandi sjá og heyrandi skynja og skílja, og þær eiga að vekja þá til meðvit- undar um ýmis af vandamálum hennar, en einmitt þetta verður ekki gert, nema bækurnar réu skemmtilegar og allri alvörunnni þannig komið fyrir, að hún laði, en fæli ekki frá viðfangsefninu. Höfundar barna- og unglinga- bóka þurfa því að hafa til að bera sköpunargáfu, frásagnar- gleði, kunnáttu um gerð bóka, leíkni í máli og stíl — og þekk- ingu á vandamálum tilverunnar og skilning á sálarlífi hinna ungu lesenda. Ragnheiður Jónsdóttír hefur skrifað margar bækur fyrir börn og unglinga, og henni hefur tek- izt að sameina það, að bækur hennar hefðu að flytja hollan og athyglisverðan boðskap, víkkuðu 1 sjóndeildarhring lesenda sinna og ' væru skemmtilestur. Bækurnar Hörður og Helga og í Glaðheím- 1 um fjalla um mikið og erfitt vandamál, en þær eru þannig gerðar, að hvert sæmilega greint og þroskað barn, hlýtur að lesa þær sér til ánægju, og auk þess ættu sem flestir foreldrar að lesa þær, mundu hafa af því bæði gagn og gleði. En þær bækur Ragnheiðar, sem náð hafa mestri n 1 öfj sigrar og almennastri hylli, eru bæk- urnar um Dóru. Fyrsta Dóru-bókin kom út 1945, og nú eru þær orðnar fimrn. Sú seinasta heitir Dóra sér og sigrar. Hún er sú eina af þessum bókum, sem á er undirtitill, og hann er: , Saga fyrir ungar stúlkur, og fyr- | ir þá, sem lesið hafa eitthvað af ' því, sem Danir kalla „ungpige- j böger“, gæti slíkur titill verkað j sem eins konar hættumerki, bent! til þess, að þarna kæmist höfund , urinn inn á svið, sem freistaði j mjög til falsglits og væmni. Og j víst mundi efnið hafa reynzt1 mörgum höfundinum háskalegt. I í hinum fyrri Dóru-bókum hef- j ur Ragnheiði tekizt furðulega vel' að sameina þau sjónarmið, sem , gæta verður við samningu slíkra sagna. Þær eru haganlega gerðar og skrifaðar af listrænni leikni, ævintýralegar og nkemmtilegar og hafa allar að flytja einhverja fræðslu og einhvern boðskap um mannlegt líf. Og þó að í þessari seinustu bók sé fjallað um efni, sem sérstaklega freistar til fals- gljáa og grunnfærni, þar sem er líf ungs lista- og námsfólks, og aðalpersónan sé barn ríkra for- eldra, og eig'i óvenjulegra kosta völ tekst Ragnheiði að sneiða hjá þeim skerjum, sem oft reynast ærið hættuleg. Þarna er ekki lok- að augunum fyrir áhrifum sem munur á lífskjörum og aðstöðu veldur — eða fyrir þeim erfið- leikum, sem eru á samskiptum karla og kvenna, er staðið hafa og standa misjafnt að vigi. Sagan fer raunar vel, og sum atriðin rætast betur en algengast mundi undir samsvarandi kringumstæð- Um, en höfundurinn hefur til að bera slíka kunnáttu um starfsað- ferðir og leikni í að beita þeim, að rás sögunnar verður þrátt fyrir allt sennileg, og jafnvel í sam- skiptum karla og kvenna og i umhyggju Dóru fyrir þeim, sem báglega eru staddir, gætir ekki neinnar tilfinningavæmni. ,Ragn- heiði tekst og sem í hinum fyrri bókunum að móta persónurnar þannig, að þær hafi sín sérkenni og hjá þeim gæti eðlilegs jafn- vægis milli kosta og galla. Yíir bókinni er blær sannrar menn- ingar og hleypidómsleysis, glögg- skygni á mannleg vandamal og þekkingar á þeim öflum, sem valda miklu um það, hvernig ör- lög ráðast. Frásögnin er öll fjör- leg og skemmtileg og samtöl með náttúrlegum blæ. Höfundinum tekst að forðast óeðlilega mál- hreinsunartyrfni, en er nægilega smekkvís til að sneiða hjá dæg- urmáli, sem stingur mjög í stúf við eðlilegar kröfur þjálfaðs les- enda um íslenzkan málblæ. Útgefandi bókarinnar er barna- blaðið Æskan, og er frágangur allur af vandvirkni og smekkvísi. Guðm. Gíslason Hagalín. íþrótflr Framhald af bls. 10 í Ármanns-liðinu er það Kjart- an með sinn mikla flýti og svo Snorri, sem lék einn sinn bezta leik. Dómarar dæmdu vel sam- kvæmt þeim reglum, sem hér eru látnar gilda. En hvernig væri, að við tækjum upp úr alþjóðaregl- unum jafnóðum og þeim er breytt, t.d. er bannað að hindra mann með örmum og sá sem það gerir, er vísað af leikvelli um tíma og í mörgum og flestum til- fellum er dæmt vítakast. Væri það ekki vegur til að fá léttari leik. Þetta er viðurtekin regla á Norðurlöndum og ef við ætlum okkur í framtíð að skipta við þá, þá verðum við að læra reikregl- urnar. Mótið heldur áfram í kvöld kl. 8. Þá keppa: Fram-—Í.R., Víking- ur—Þróttur og Valur—K.R. S.G.N. BEZT AÐ AVGLÝSA l MORGMSBLAÐim - Vaparnir og jarð- ræklarlögin Framhald af bls. 7 jarðvinnsluvéla milli vinnustaða. Um allt er að því lýtur, hafa þau að mestu orðið að basla upp á eigin spítur, án leiðbein- inga, eða neins faglegs stuðnings. Afleiðingarnar eru tvenns konar: Á sumum stöðum er draslað með dýr herfi aftan í traktorum, bæ frá bæ, yfir stokka og steina, án þess að nota neitt flutningatæki. Bit og vinnuafköst verkfæranna verða svo í samræmi við þessa tröllameðferð. Skaðann, sem bændur verða að þola árlega nf þessum ástæffum, má eflaust telja í liundruffum þúsunda. Önnur ræktunarsambönd hafa komið sér upp flutningatækjum, mjög mismunandi að gerð og gæðum. Er það helzt sameiginlegt um þau, að tækin hafa orðið sam- böndunum dýr, enda hafa bæði þeir, er sögðu fyrir um smíðina og þeir, er hana unnu, ekki haft við neitt að styðjast að heitið geti. Hér er því um afar mikið og merkilegt verkefni að ræða. Að athuga hvað bezt hefur reynst af þeim flutningatækjum, sem ræktunarsamböndin nota, svo og affrar fyrirmyndir er til greina koma, og búa til teikningar af góðum flutningavögnum handa raektunarsamböndunum og semja Ieiðbeiningar um smíði þeirra. í þessu sambandi má t. d. benda á, að sænska félagið Jordbruks- tekniska föreningen hefir gefið út vinnuteikningar af slikum vögnum, þó að þær séu fremur miðaðar við flutning verkfæra að og frá vinnu á stærri búum, heldur en við umferðavinnu við nýræktarstörf. (Sjá bókina Bú- vélar og ræktun, bls. 269—70). Amerískar fyrirmyndir eru einnig til. Hér er verk fyrir Vélanefnd ríkisins og framkvæmdastjóra hennar, verkfæraráðunaut Bún- aðarfél. íslands að vinna. Þess er sannarlega þörf. Það er til mikils að vinna, og öll leiðbein- ing og umbætur yrðu vel þegnar. Á þessu sviði, sem mörgum öðr- um, er éins og nú standa sakir, ganaö áfram eins og peningar sé hið eina, sem við höfum nóg af og annað, svo sem þekkingu og fróðleik, þurfi lítt að hirða. Auðvelt er að afla margra mismunandi gerða af gúmmí- hjólum, sem henta undir verk- færavagna, á því þarf ekki að standa, ef ræktunarsamböndun- um er aðeins leiðbeint, bæði um þörf þess að koma sér upp slík- um vögnum, og hvernig þeir eiga að vera. Ég sá varla raunalegri sjón varðandi ræktun og umbætur í sveitum landsins, heldur en þeg- ar unnið er með bitlausum verk- færum, sem búið er að gera óvinnuhæf við drátt á sjálfum sjálfur sér yfir grjót og mal- arvegi. Reikningarnir yfir hvað þetta kostar bændurna, sem vinnunn- ar njóta og greiða hana, væru Ijótir, ef þeir kæmu fram í sinni réttu mynd, eins og aður var bent á. Það er hægt að lækka þá reikninga. Árni G. Eylands. Óskar Halldórsson, utgm.:. Frysfihúsin og togararn f. ÉG VERÐ að segja eins og er, að það fór í taugarnar á mér hvernig ríkisstjórnin afgreiddi frystihúsmál Siglfirðinga. Rík- isstjórnin gekk inn á kvabb og kröfur Síldarverksmiðjustjórn- arinnar um að byggt yrði nýtt frystihús í mjölskemmunum og afhenti eina og hálfa milljóna króna til að hefja þessar fram- kvæmdir og til annarar fyrir- greiðslu. Ég skrifaði grein í „Morgun- blaðið" hinn 12. febr. s. 1. um „Frystihúsmálið í Sigiufirði" og sýndi þar fram á, að þar væiu fyrir næg frystihús í einkaeign og þar þyrfti engin ný frystihús, og ef ríkisstjórnin vildi á annað borð hjálpa Siglfirðingum til frystihúsbygginga, þá ætti Siglu- fjarðarkaupstaður sjálfur að fá þá hjálp og byggja frystihús eða kaupa frystihús á staðnum, sem kaupstaðurinn gat fengið með mjög sanngjörnu verði og góð- um skilmálum, og gat frystihús þetta verið tilbúið til vinnslu á fiski eftir fjóra mánuði. Jaín- framt sýndi ég fram á, að af- castamöguleikar frystihúsaima, sem fyrir væru í Siglufirði, v'æru álíka miklir og allra Akranes- frystihúsanna. Allt fór þetta á aðra íeið. — Síldarverksmiðjurnar fengu skuldbindingar og samþykkt bæj ! arstjórnar fyrir því, að báðir bæjartcgararnir, „Elliði'* og ,,Haf liði“ skyldu sendir út á veiðar handa þessu væntanlega frysti- húsi Síldarverksmiðjanna, svo . framarlega sem 2—3 íogarar ann- ars staðar af landinu öfiuðu fisks til frystingar' í landi. J Það sem hefir skeð hér er það, að bærinn hefir afhent umráða- réttinn yfir afla togaranna og misst um leið allan úrgangsfisk | og beinin frá sinni eigin verk- smiðju, „Rauðku", sem gat gef- ið honum drjúgan skilding. | Ég get ekki annað séð en að þessi fjárfesting í nýtt frystihús hafi verið óþörf, þar sem næg ifrystihús voru fyrir. Tímarnir ! munu sanna að hér var illa hald- ið á málum frá sjónarmiði Siglu- fj arðarkaupstaðar. Siglfirðingar hafa veríð dug- legir að gera kröfur og ná i fé úr ríkissjóði, en ég held að þetta síðasta áhlaup þeirra, nýbygging , frystihússins og togarafiskurinn Itil frystingar, verði ekki sú at- vinnubót, sem þeir hafa gert sér vonir um og kem ég að því síð- , ar í þessari grein, en læt útrætt |Um frystihúsbygginguna á Siglu- firði um sinn. Rafmótorar opnir og lokaðir. fyrirliggjandi. HEÐINN = Nú gengur sú alda yíir, að það sé léttast og fljótast að hafa naeg- an togarafisk handa frystihúsun- lum og frysta sem mest af fiski. I Það er ekkert undarlegt þótt I þeir, sem hafa litla reynslu og i þekkingu á þessum málum, haldi þessu fram, því á nokkrum und- ^ anförnum árum hefir frysting i fisks og fiskflaka j'firleitt geng- ið vel og sala fisksins gengið bet- ur en bjartsýnir menn bjuggust * við og því vill 'fjöldi manna, sem þennan atvinnuveg stunda, halda áfram að frysta ótakmarkað og má segja að undanfarin ár hafi verið „slegizt og barizt" um hvern fisk handa frystihúsunum og fá færri en vilja. Það hefir alltaf verið skoðun mín, að það sé hægara að afla fisksins og frysta hann, heldur en að selja hann. Það væri lítill vandi að lifa í þessu landi, ef hægt væri að frysta allt sem við gætum og svo mætti selja freð- fsikinn fyrir svo hátt verð, að það borgaði framleiðslukostnað- inn — en það er allt annað uppi á teningnum núna. Ég vil ekki láta ómótmælt annari eins grein éins og þeirri, er t. d. bií'tist í „Víði“ hinn 20. sept. og heitir „Atvinna handa öllum" og er eftir ritstjóra blaðsins, en þar stendur: „Sú bezta og hagnýtasta at- vinnubótavinna, sem ríkisstjórn- in gæti; beitt sér fyrir i haust, helzt hver fleyta færi af stað og j vinna fisk af togurunum í frysti- Jværi að ýta undir útgerð, svo jhúsunum eins og frekast væri |kostur.“ I Ritstjóri „Víðis" er eins og kunnugt er, Einar Sigurðsson frá Vestmannaeyjum, stórbrotinn athafna- og hugsjónamaður, og eflaust stærsti frystihúseigandi hér á landi og mun hafa næstk. vetur álíka fiskmagn og útflutn- ing úr sínum þremur frystihús- 'utn og öll SÍS frystihúsin, sem eru í þeirra eign víðsvegar á landinu. j í haust var grein í „Morgun- blaðinu" eftir Elías Þorsteinssoni ‘og iFnnboga í Gerðum um -söl« jhraðfrysts fisks. Stóð þar að ei’ fengizt hefði lejrfi stjórnarvald- lanna til að selja frosinn fisk aust ,ur fyrir járntjald í vöruskiptum, þá mætti frysta nær ótakmarkað af fiski og þá væri „atvinna handa öllum". Er nokkur furða, þegar þeir Einar og Elías, sem báðir eru greindir og reyndir á þessa hluti og hafa stjórnað sölu megin hluta frosna fisksins í mörg ár, skrifa þannig og að þetta eigi að vera „atvinna handa öllum" S sambandi við frosna fiskinn, að mönnum finnist að ábyrgðarlitlir stjórnmálamenn og pólitískir .vindhanar hefðu látið þetta írá sér fara fremur en þessir menn. i Það þarf engum að blandast hugur um, að þeir sein hafa minni reynslu í fisksölumálun- um en þessir menn, áltíi eftir þessi skrif að óhætt sé að frysta ótakmarkað af fiski. ) í grein í „Morgunblaðinu'* frá ' 1. nóv., er heitir „Erfiðleikar sjávarútvegsins ræddir á fundi ríkisstjórnarinnar í gær“, er eft- irtektarverð klausa frá togara- eigendum, þar sem farið er frana á hærra fiskverð til frystihús- ’anna, og skal það óátalið, en þar er farið fram á að frystihús- in kaupi 28—30 þúsund smálest- ir af fiski til frystingar - naesta þrjá mánuði og svo á að krydda þetta með ríkisábyrgð. ) Ég vil leyfa mér að spyrja: — Hvar á að selja fljótlega 8—• • 10 þúsund smálestir af fiskflök- um, sem framleidd yrðu úr þess- um 25—30 þúsund smálestum af togarafiskí? Það kann að vera rétt, að það vanti eitthvað af karfa, en það eru ekki nema smá munir. Allur sá karfamarkaður, senv til er með taisverðri markaðs- aukningu frá því, sem nú er, munu þrír til fjórir togarar geta aflað og fullnægt yfir árið, og þarf ekki nema nokkurn hlutar af því þorskmagni, sem vélbátarn- ir afla, til frystingar til að full- 'nægja markaðnum, og það jafn- vel þótt seldur yrði hraðfrystur fiskur austur fyrir járntjald. Til hvers er þá verið að ýta mikiu af togarafiski að frystihúsunum, sem ómögulegt er að sjá eir.s og stendur að markaður sé fyrir, nema með því að stöðva fryst- ingu á mótorbátafiski? Eg get ekki séð betur en að það sé mik.il offramleiðsla af frosnum fiski fram undan, og á því verði ■ að hafa fullkomnar gætur — . og. ég efast um að rétt sé að sala frysta fisks íari fram nema á einni hendi. Það þarf einnig fyllilega a3 gæta þess, að offramleiðsla af söltuðum fiski og hertum fiski komi ekki fyrir, ef mögulegt er að sjá við því í tíma, og ég vil halda því fram, að það þurfi oft fullrar aðgæzlu yið að jafnað sé í tíma á vertíðinni, hvað eigi að ’gera við fiskinn, hvort bann eigi að saltast, frystast eða herðast, því allir sjá, að það er meining- arlaust að frysta of mikið- .aS fiski, sem markaður er ekki til fyrir, enda þótt nægur markað- ur sé fyrir saltfisk — og öfugt. < Hvað sem þvi líður, hvernig' eigi að haga sölu fisks, hvaða tegundar, sem er, þá vil ég ger^ Framh, á bls 12- j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.