Morgunblaðið - 04.01.1953, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.01.1953, Blaðsíða 10
'* 10 MORGVUBLAÐIÐ Sunnudagur 4. janúar 1953 ■ ■ in sjo æÉisfýðs- og skautahaiða ÉG HEF fylgst með skrifum frú Bjarr reigar Bjarnadóttur um tómstundaheimili og æsku- lýðshöll, og öðrum þeim skrif- um, sem af þessum greinum hef- ur hlotist. Ég er frúnni þakklátur fyrir að rjúfa þögnina. Allt of mikil þögn og tómlæti hefur ríkt um þetta mál hjá almenningi. Það, sem nú urn langan tíma hefur verið ritað um málið, hef- ur komið beint frá oklcur full- trúum félaganna, sem áróður vegna fjáraflana eða öflunar stuðnings opinberra aðila. Ef málið á fram að ganga, þurfa afskipti almennings að koma til. Afskiptin munu leiða af sér beinan eða óbeinan stuðn- ing eða fela í sér gagnrýni og sé gagnrýnin sprottin af áhuga, eins og hjá nefndum greinar- höfundi, þá er hún málinu til framdráttar. - Það, sem kemur mér til þess að rita þessar línur, er fyrst og fremst að skýra afstöðu sjö í- þróttaíélaga til æskulýðshallar- ?málsins. Saga æskulýoshallar er lengri heldur en tilvera BÆR, sem nú fylgir málinu eftir. Þá frásögu rek ég ekki hér, en tel rétt að geta þess, að þeir, sem fyrst reif- uðu málið, hugsuðu það til efl-* 1 ingar tómstundaiðju. Þegar unn-! ið var að stofnun BÆR, af kristi- I legu félaga stúdenta, Bræðralagi,! þá var sett á oddinn bygging skautahallar. Níu íþróttafélög gerðust þegar á fyrsta undirbúningsfundi aðilar að framkvæmd þessa verks, en sáu nokkrum síðar að með því sigldu þeir starfsemi sinni í strand Hér var um stóra byggingu að ræða, sern kostaði milljónir, en hún gat ekki veitt þeirri miklu starfsemi sem fer fram i iþrótta- húsinu að Hálogolandi húsaskjól. En sú starfsemi verður fljótlega á gotunni, þar sem hún fer íram í setuliðsbragga, sem gengur óð- fluga úr sér, er óíullnægjandi, hitafrekur og viðhaldsdýr. Þess- ari starfsemi urðu íþróttaféllögin í heild að sjá fyrir öruggum sama síað og það innan fárra ára. Til gkýringar skal þess getið, að þó þetta íþróttahús sé staðsett langt austan við miðju bæjarins, er það mikið notað eða í 7—8 mán- uði hvern virkan dag fra kl. 2 til kl. 22, svo og sunnudaga. Bskstur og við'nald hefur stjórn íþróttabandalags Reykjavikur séð um og þrátt fyrir aukinn viðhaldskostnað árlega, hefur stjórnin getað rekið húsið svo að það hefur orðið starfseminni litill fjárhagslegur baggi. íþróttafélögin þekktu af reynslu sinni, að eitt stórt íþrótta: hús með aðstöðu fyrir 1000— 3000 áhorfendur yrðu þau, að ráða yfir í sameiningu, en lítil j félagsheimili dreifð um bæinn, j voru þau byrjuð að reisa. í þess- um féiagsheimilum dreymdi þau um að reka fjölþætta tómstunda- iðju. — T. d. knattspyrnufélögin Valur, Fram og KR, hafa þegar hafið þessa starfsemi, en félögin skortir fé og sjálfboðaliða ti! þess að hlúa nægilega margvislega að þessum unga gróðri. Vegna þessa, sem nú hefur ver- ið sagt, — íþróttahús fyrir heild- arstarfið og dreifð litil félags- heimili — risu sjö íþróttafélög upp gegn því einhæfa verkefni að byggja skautahöll, því þó hún væri þörf, töldu þau af langri reynslu sinni annað þarfara, því æskulýðsstarfi, sem þau um nokkra tugi ára höfðu unnið að. Þau setíu sig einnig gegn þeirri óraunhæfu tillögu, að safna æsku bæjarins til tómstundaiðju í eina stóra höll og bentu á rtynslu skátanna hér í Reykja- vík af skátaheimilinu við Snorra braut. Eftir marga fundi, þar sem hin sjö íþróttafélög hafa ávallt bent á stefnu sína og vitnað til reynslu, var farið að hugsa um að samræma hinar mörgu þarfir hinna ýmsu félaga í slíkri heild- arhúsasamstæðu, sem nefna skyldi æskulýðshöll. Þegar kom að því, að ákveða í hvaða á- föngum byggja skyldi samstæð- una, var það bæjarstjórn Reykja- víkur sem sagði fyrir að byrja skyldi á íþróttasalnum og hygg ég að sú niðurstaða byggist á því fyrst og fremst, að iþróttafélögin, sem lengst allra æskulýðsfélag- anna hafa starfað, voru bráðlega á götunni með heildarstarfsemi sína. Það er rétt hjá frú Gjarnveigu að íþróttasalur K. R., sem nú er í smíðum, er stór salur, en hann er byggður sem iðkendasalur, en ekki keppnis- eða sýningasalur (engin áhorfendasvæði). Stærð salarins mótast mjög af viðhorfi til iðkun knattleika, en iðkun þeirra fer mjög í vöxt. Af þessum línum, vona ég, að ljóst megi vera almenningi, að íþróttafélögin hafa fyrir löngu markað sér stefnu 1 bygginga- framkvæmdum og rökstutt hana og þar sem þau aygja tilkomu æskulýðshallar, öruggan sama- stað heildarstarfsemi sinnar, þá ganga þau nú að lausn verksins með öðrum æskulýðsfélögum bæjarins í þeirri trú, að almenn- ingur og opinberir aðilar hjálpi þeim fyrst til að reisa íþrótta- salinn og síðar aðrar byggingar fyrir heildarstarfsemi annarra þátta í starfi æskulýðsfélaga í Reykjavík. Gunoiar Sigurðsson, ,;Sei|afurj Byrðar þyngdar á mjélkurfra sil EKKI þykir mér ósennilegt að flestir landsmenn hafi varpað öndinni léttar að nrorgni hins 20. des. s.l. er kunnugt varð að hmu víðtækasta verkfalli er laun- þegasamtök þessa lands hafa nokkru sinni út i lagt, var aflétt og þj óðlífið tók á sig sitt fyrra snið. Munu og fáir í upphaíi hafa gert ráð fyrir því að verkfallj þetta myndi svo lengi vara, því íeynsla undanfarinna ára er því miður sú að fljótlega hefur að jafnaði verið látið undan aukn- um kaupkröíum launþega og' ýmsum fleiri fríðindum þeim til handa, án nokkurs tillits til þess j hvort þær atvinnugreinar, er kröfurnar voru gerðar til, þýldu þær eða ekki með öruggri starf- rækslu fyrir augum eftir að fall- izt hafði verið á aukin útgjöld. Nú virtist þessu annan veg far- ið, bæði vegna þess að hin lán- lausa forusta launþega valdi heppilegasta tímann fyrir at- vinnurekendur við sjávarsíðuna ti! verki'alls og svo hins, sem margsannað er og áþreifanlegt öllum að atvinnuvegirnir þola ekki að boginn sé spenntur hærra í auknum útgjöldum þeim til handa. Virtist því nærri óger- legt að endarnir yrðu nokkurn tíma teygðir saman, þ. e. a. s. að s; mræmdar yrði kröfur laun- þega við getu atvinnurekenda. Kom enda þar að, að forsjón launþega, — aldrei slíku vant, — beiddist aðstoðar ríkisstjórnar- it.nar til lausnar deilunni, hvað og raunar varð, að ríkisstjórnin lagði fram samningsgrundvöll, stm síðar um samdist í megin- ; atriðum svo sem kunnugt er. Þ'ótt þeim væru æiiuð Eaun sem Eægsiiaunuðu verkísmunuum voru kjör þeirra enu skert Þorst. Einarsson. f ! En þvi er ég bóndinn austur í Ábyggileg og dugleg STtJLKA óskast á kaffistofu. Uppl. eftir kl. 2 í Skeifunni við Tryggvagötu. Stýrimanii! ofj háseta vantar á línubát frá Reykja vík. Einnig lanclmaiin. Upp- lýsingar í síma 81727. Námsmaður óskar eftir HERBEKGI sem næst Barónsstíg. Tilboð sendist afgr. blaðsins, merkt „C10“.- Víðtalstími minn verður eftirleiðis kl. 4—5 e. h., nema laugardaga kl. 10 —10/30. Gunnar Benjamínsson Iæknir. ÚKAarfss- gwináfónn, nýtt model og „Wilton" — góll'teppi 3x4 yards, til sölu. Tækifærisveró. Uppl. i síma 3494. — ♦ BE7.T AÐ Al'GLfSA l MORGUNBL4ÐHW 4 i Flóa að rifja þetta upp? Er deil ar. ekki leyst og hvað hef ég þá eða stéttarbræður mínir um þetta að segja? Jú, deilan er leyst, en í þeirri lausn er stórt pennastrik, sem nokkur hluti bændastéttarinnar verður að veita eftirtekt, og ekki þá hvað sízt bændur í Flóanum. Ég á hér við þá ákvörð.un að mjóikurverð til bænda skyldi lækka, að því er ég fæ bezt séð um tólf aura pr. líter, en það mun þýða sem næst 3 aurar á fitueiningu á innvigtunarsvæði Mjólkurbús Flóamanna. í fyrsta lagi er þetta rangt vegna þess að bændum er í verð- legsgrundvelli landbúnaðaraf- urða ætlað svipað í laun og lægst leunuðu launþegum. Það er eins og kaup Dagsbrúnarverkamanns er. En laun þessara manna eru einmitt. í samkomulaginu ákveðin óbreytt og þó betur þar sem or- lofsfé var hækkað nokkuð. Það er í öðru lagi rangt vegna þess að mjólkurverðið var því aðeins hækkað í haust sem leið, að við vorum búnir að standa undir hækkuðu kaupgjaldi og öðrum j auknum kostnaði við framleiðslu v;,ra okkar, mörgum mánuðum áður en lög mæia að við gætum | fengið laun þau er okkur eru með lögum ákveðin. Til þess að vera ekki settir skör lægra on það fólk, er okkar laun eru snið- in eftir hefði því ekki átt að hrevfa við mjólkurverðinu í lækkunar átt til okkar framleið- enda. í þriðja lagi er þessi kaup- lækkun til okkar bænda röng vegna þess að ekki mun ákveðið svo heyrzt hafi, að sá hluti bænda er aðallega hefur atvinnu sína við sauðfjárbúskap og kjöt- framleiðslu, eigi pð láta einn ein- asta eyri í þá tilraun, sem verið er að gera til stöðvunar dýrtíð- inni, að því er talað er um. Þetta er að minu áliti svo hróp- legt misrétti, að uiidrun sætir og raunar furða að nokkur skuli fá ( sig til þess að vega svo beint að þeim mönnum er vegna búsetu. sinnar í sveit verða að beina starfi sínu fremur að mjólkur- framleiðslu en kjöts, en vitað er og viðurkennt að sauðfjárbúskap- ur er mun arðbærari en mjólk- urframleiðslan. Sumir vilja halda því fram að með þessari lækkun örfist sala á neyzlumjólk og komi það framleiðendum til hagnaðar. .Allar slíkar fullyrðingar er var- lcgt að hafa í frammi, enda ligg- ur ekkert fyrir í málinu, sem gefur til kynna að svo verði. -— Þvert á móti bendir margt til þess að sala mjólkurinnar aukist. ekki, m. a. af þeirri ástæðu að neytendur hafa nú meir en áður ýmsar vörur til þess að kaupa og r.eyta, er geta að mörgu leyti komið a. m. k. sem uppbót á mjólkurnej'zlu. Aðrir segja að 12 aurar á líter sé ekki mikill peningur nú á dögum, en gætandi að því að „hvert hár geri skugga“ sést að þetta er eigi svo iítill peningur yfir allt árið, og í Gaulverjabæj- arhreppi einum, þar sem ég hef lauslega athugað útkomuna mun- ai þetta hvorki meira né minna en kr. 112.049.25 miðað við n.jólkurmagn það er úr þeim lireppi var flutt í M. B. F. árið 1951. Á hvern framleiðanda í hreppnum verður þetta því, mið- að við meðaltal af áðurnefndu nijólkurmagni, kr. 2.667.84, en Gaulverjabæjarhreppur var ar.n- ar hæsti hreppurinn í M. B. F. á árinu 1951 með meðaltal á frámleiðanda. Sjá allir af þess- um einfalda samanburði, hversu núkil launalækkun okkar mjóik- urframleiðenda verður með þess- ari nýju eftirgjöf, án þess að nokkur stafkrókur hafi verið sýndur sem sanni að hve miklu leyti lækkun vöruverðs ó útlend- um vörum kemur okkur að gagni. En hér hefur aðeins verið rædd hin praktiska hlið þessa n áls, eftir er svo að renna hug- anum lítillega yfir siðferðishlið- ina, en þá kemur þetta út: Fyrst er þá að minnast þess, að kaup bænda er ákveðið með lögum einu sinni á ári, en ekki með frjálsu samkomulagi bænda og neytenda. Strax í þessu tiliiti einu er bændum treyst minna en fiestum öðrum stéttum þjóði'é- lagsins. En i samræmi við þessi lög urðu bændur að bera allar útgjaldahækkanir er urðu við framleiðslu vara þeirra frá 1. sept 1951 til jafnlengdar 1952 bótalaust, fengu þá hækkun er einhverjir sprenglærðir skrif- stofumenn sögðu að væri nóg til þess að vera til jafns við kaup í aimennri verkamannavinnu. Neytendur virtust una þessu í flestum tilfelium sæmilega og fæstir skynibornir menn kvört- uðu undan háu verði mjólkurinn- ar, en fremur kjötsins sem von- lcgt er. í skammdeginu dettur svo fá- vísum forustumönnum Alþýðu- flokksins og kommúnista i hug að nú þurfi að gera verkfall til þtss að krefjast fleiri króna fyrir minni vinnu, atvinnurekendur geta ekki bætt á rekstur sinn meiri útgjöldum og neita að verða við kröfu verkfallsmanna. Um það er ekkert hirt í herbúð- um Alþýðuflokks og kommún- ista, þó að misræmi sé svo mikið á launum í hinum ýmsu stéttar- félögum að nærri broslegt er, að þeim er hæstu launin hafa skuli til hugar koma að við þá veröi hækkað eftir því sem undirtektir vinnuveitenda voru undir kröfu hinna lægst launuðu. Verkfall skyldi skella á líka hjá mjólkur- fræðingum, sem hafa við það að handéra vörur i Mjólkurbúi okk- ar bændanna í Flóanum, milli 50 og 60 þ;sund árlega. — Bændur vei ðiy að hætta að senda frá sér mjólkina og taka fram hin gömlu tæki: heiir.ilmr.a, skilvir.duna pg strokkinn, húsfreyjurnar sem höfðu áður eitthvað að starfa, þurítu nú að bæta á sig þessu eifiði, frá morgni til kvölds var unnið á heimilunum til hagnýt- ingar á því mikla mjólkurrnagni er framleitt er daglega á inn- vigtunars\ræði M. B. F. j Nærri má geta að upp úr því starfi bera menn lítið kaup, en hvað um það, öii þjóðin tapar, rílcir og fátækir, háir og lágir. En verkíallsmönnuni þótti þetta ekki nóg, að mennirnir í Mjólk- uibúinu legðu niður vinnu, svo að fyrir þá sök ykist erfiði sveita Ifólksins, hér varð að sýna inn- ræti stéttavaidsins betur, því toku þeir það til bragðs að neita bændum um vörur í sínu eigin kaupféiagi, á því var þó slakað ofurlítið og „finir" menn á £?el- fossi gerðir að skömmtunarstjór- uiii ytir vöruin þeim er til voru í vörugeymslum verzlananna á Selfossi. Sem betur fór beygðu í'áir bændur sig að fótum þessara úlfa er reyndu að hafa innræti sitt birgt í sauSargæru. Bændur hrundu þessum mönnum ekki af hóndum sér vegna þess að þeir treystu meir á mátt friðar og um- burðarlyndis heldur en á yald l.nefans og hefnigirni, við það sat því að verkfallsmenn austan- fjalls torvelduðu á heimskulegan hátt að við gætum fengið þær vörur handa gripum okkar er til voru í verzlunum á Selfossi, sam- timis sem stéttarbræður þeirra vestan Hellisheiðar meinuðu okk- ur á ólögmætan og fruntalegan hátt. að senda vinum og vensla- fólki mjólkurdropa, hvað við vild um gera án þess að ætlast til þcss að fá gjald fyrir, Eftir þessa framkomu gera svo forvígjsinenn okkar . móla sam- þvkkt að okkur forspurðum, um að lækka kaup okkar um tólf aura á hvern mjólkurlítra, til þess að það fólk er sumt tók þátt í því að reyna að smóna okkur bændurna á ailan hátt, geti hald- ið óbreyttu kaupi. Og þess arna er krafizt aðeins af mjólkurframleiðendum, en hinum algjörlega sleppt eins og ég hef áður minnzt á. Væri það nú ekki dæmalaust viturjega i'áðið af stjórn Eim- skipaféiags íslands, að láta að- eins no.kkurn h.luta af hluthöfum féiagsins, taka á sig það tap er leiða kynni af því að það félag hvggst lækka farmgjöld með skipum sínum. Nei, hér hefur illa verið á mál- um bænda baldið án þess að ég væni nokkurn um að gera slíkt aí ráðnum ,huga. Hitt er víst að þeir mcnn er slíka ákvörðun t.ika, skorlir óreiðanlega betri þekkingu á högum og afkomu mjólkurframleiðenda. En hér þurfum við framleiðendur að staldra við og athuga betur gang olkar mála. Þær ráðstafanir er ég hef hér rætt, verða að vekja okkur til umhugsunar um hvern- ig við þeim verði snúizt. Það verður ekki bezt gert með lang- varandi sölustöðvun á mjólk, enda eru slíkar aðferðir andstasð- £i hugsunarhætti bænda yfirieitt. Hitt ber okkur að athuga með hverjum hugsanlegum hætti bú- skaparháttum okkar verði bezt fyrir komið með hinum nýju og breyttu viðhorfum. Bændur hafa nú enn einu sinni reynt það að það er ekki þolin- mqsði, þrek og iðjusemi sem hæst er prísað á Isiandi. Það er þó þetta sem íslenzka bændastéttin , Ci ríkust af. Við sknlum þó ekki ! ætlast til þess að þetta sé eða . verði virt, við þiðjum heldur ekki um samúð eða vorkunn yfir Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.