Morgunblaðið - 13.01.1953, Qupperneq 16
Veðurúllif í dag:
Vaxandi SA. Slydda og rign-
ing með kvöldinu.
9. tb!. — Þriðjudagur 13. janúar 1953.
HeimaSHólum
Sjá UaSsiðu 9.
Sljórnarfrumvörp
IMiðurfelling aðflutnings-
gjalda af kaffi og sykri
Verðiagsuppbæfisr í samræmi viS samkomulagið
um iausn vinnudeiiunnar
TVÖ stjórnarfrumvörp voru lögð fram á Alþingi í gær um ráð-
Etafanir í samræmi við samkomulagið í desember um lausn vinnu-
deilunnar. Fyrra frumvarpið fjallar um niðurfetlingu aðflutnings-
gjalda af kaffi og sykri. HÍtt er um það að verðlagsuppbætur á
kaup opinberra starfsmanna breytist til samræmis við samningana
um lausn vxnnudeilunnar.
Fyrsta hríðin á vetrinum í bænum
i komið
FELI.D Mflt'R
AÐFLUTNINGSGJÖLD
AF KAFFI OG SYKRI
Meðal þeirra ráðstafana, er
ríkistjórnin beitti sér fyrir við
lausn vinnudeilunnar í des. s.l.
var lækkun verðs á sykri og
kaffi. Var sú verðlækkun gerð á
þeirri forsendu að felld yrði nið-
ur aðflutningsgjöld, þ. e. vöru-
magns- og verðtollur af vöru-
tegundum þessum. Nauðsynlegt
var að vei'ðlækkunin kæmi þeg- j
ar í stað til framkvæmda, er!
samningar höfðu tekizt, og varð
til þess að svo gæti orðið, að
leita heimildar til þess að endur-
greiða aðflutningsgjöld af birgð-l
um verzlana af áðurgreindum
vörum, enda væti birgðatalning
etaðfest af hreppstjóra eða trún-
aðarmanni verðgæzlunnar.
Til þess að rxkisstjórnin geti
staðið við gefin heit er henni
nauðsynlegt að fá heimildir þær,
er felast í þessu frv.
VERÐLAGSL PPBÆTUR
Á LAUN OPINBERRA
STARFSMANNA
í stjórnarfrumvarpinu segir að
á tímabilinu frá 20. des. 1952 til
28. febr. 1953' skuli greiða verð-
lagsuppbót sem hér segir:
Á grunnlaun lægri en 1830 kr.
á mánuði skal greiða verðlags-
uppbót skv. vísitölu 158.
Á grunnlaun hærri en 1830 kr.
á mánúði skal greiða verðlags-
uppbót skv. vísitölu 153. Þó skal
kaup reikrxað eftir þessu aldrei
vera lægra en fyrstnefnda kaup.
Á þann hluta launa, sem eru
fram yfir 220.0 kr. á mánuði skal
greiða verðlagsuppbót skv. vísi-
tölu 123 stig.
Hinn 1.. marz 1. júní, 1. sept.
og 1. des. 1953 skal verðlagsupp-
bót breytast þannig að á grunn-
laun, sem eigi eru hærri en 1830
kr. á mánuði skal greiða uppbót
samkvæmt kaupgjaldsvísitölu,
reiknaðri eftir framfærsluvísitölu
næsta mánaðar á undan, að við-
bættum 10 stigum, en á laun sem
hærri eru en 1830 kr. skal bæta
við 5 stigum.
í SAMRÆMI VIÐ
SAMKOMULAGIÐ
í greinargerð segir m. a.: —
Vegna verðlagsráðstafan þeirra,
sem gerðar voru i sambandi við
samningana um lausn vinnudeil-
unnar er talið að kaupgjaldsvísi-
talan .... lækki um 5 stig. Hinni
opinberu vísitölu hefur hins veg-
ar ekki verið breytt og þykir því
rétt að ákveða beintínis í lögum
vísitöluupphæð þá, sem kaup
skuli reiknað eftír, þar til kaup-
gjaidsvísitala verður reiknuð út
að nýju. _______________
Drengur iellur í
djúpan skurð
NOKKRU fyrir hádegi á sunnu-
daginn sást frá húsinu Lyngholt
við Holtaveg, í Langholti, hvar
lítill drengur féll ofan í djúpan
skurð, sem er rétt hjá veginum
heim að hinum nýja barnaskóla.
Brugðið var skjótt við drengnum
til hjálpar og hann dreginn upp,
borinn inn í hús og færður úr
hverri spjör. Læknir kom, en
drengurinn litli hafði sopið dá-
lítið af vatni.
Ráðstafanir voru gerðar til
þess, að girða skurðinn á þessu
svæði.
saman a ný
ALÞINGI kom saman til fundar
í gær eftir jólafrí sitt. Var hald-
inn fundur í sameinuðu þingi,
sem stóð örskamma stund. Að-
eins voru tvær þingsályktanir á
dagskrá. Engar umræður urðu.
Þingsályktunartillögu um sölu
þjóðjarða og kirkjujarða var vte-
að til 2. umræðu og fjárveitinga-
nefndar og þingsályktunartillögu-
um bátasmiði innanlands var vis-
að til 2. •umræðu.
FYRSTA vetrarhríðin á vetrinum
gekk yfir Reykjavík í gærkvöldi.
— Var hríðin alldimm. — Fólkið
á Lækjartorgi, sem var rð bíða
eftir strætisvögnum, hafði ekkert
á móti því að standa úti í hríð-
inni. — Það er bara kominn vet-
ur, sagði það. — Strætisvagna-
stjórar urðu að setja keðjur á
vagna sína í skyndi, því þeir
létu ekki nógu vel að stjórn.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
-IRAÐSKÁKMÓTI íslands lauk
í gærkvöldi með sigri Benónýs
3enediktssomar, er hlaut 7 vinn-
;nga af 9 mögulegum. Benóný
varð því „Hraðskákmeistari ís-
lands 1953“. Hann tapaði aðeins
einni skák. Tíu menn kepptu tíl
úrslita. í öðru sæti var Guðm.
Ágústsson, með 6V2 vinning. 3.
Þórir Ólafsson, 6 vinninga. —
Friðrik Ólafsson hlaut 5V2 vinn-
ing. Þeir Jón Pálsson og Jón
Einarsson 4Vz vinning hvor. —
Eggert Gilfer 4 vinninga. Ingi R.
Jóhannsson og Ingvar Ásmunds-
son með 3% vinning og Margeir
Sigurjónsson með 0 vinning.
4 reykvískir skiðamenti fara
í Austisrriki
Líkbgt að þelr keppi i Sviss,
Austurríki og i ftioregi
Fljúgsndi diskur yfir
Hefst saniði atattúru-
gripasafnsins að vori
Safnið í bráSabirgðahúsaæii í rúm 40 ér
NáitúrufræSideild verSur sfofnuð
PÉTUR Sigurðsson háskólaritari og framkvæmdastjóri Happdrættis
Háskóla íslands, skýrði blaðamönnum svo irá í gær, er hann gerði
grein fyrir starfsenii happdrættisins á líðnum 19 starfsárum, að
næsta viðfangsefni Háskólans sé að reisa náttúrugripasafnsbygg-
ingu. Er nú unnið að því að fullgera teikningar að byggingunni,
sem standa mun sunnan Háskólans, milli hans og íþróttahússins.
í vor verður byrjað á byggingunni, fáist nauðsynleg fjárfestingar-
leyfi.
FJÓRIR kunnir reykvískir skíðamenn hafa ákveðið að fara til
Austurríkis og dveljast þar við skíðaæfingar í 4—5 vikur. Ferð þessa
fara skiðamennirnir algerlega á sinn kostnað, verja til hennar
sumarfríi,sínu,-en hafa við undirbúning ferðarinnar notið stuðnings
Skíðasambands ísiands, sem skrifað hefur skíðasambandi Austur-
ríkis, og mun það veita íslendingunum fyrirgreiðslu.
GÓÐ ÆFINGASKILYRÐI j þeirra í Austurríki, er líklegt,
Þeir, sem utan fara, eru Magn-J að þeir félagar taki þátt í keppni
ús Guðmundsson. núverandi ís- í Austurríki og Sviss, og gera
landsmeistari í tvíkeppni (bruni þeir jafnvel ráð fyrir að koma á
og svigi), Óskar Guðmundsson, j heimleiðinni við í Noregi og taka
Þórarinn Gunnarsson og Þórir | þátt í Holmenkollenmótinu, en
Jónsson. . j það fer fram í síðustu viku febr.
Tilgangurinn með förinni er sá, Um þátttöku þeirra er þó ekkert
að"fá notið æfinga við beztu skil-! ákveðið enn. Fer hún eftir ár-
yrði. í Austurríki er að finna
c-inhver beztu skíðaíönd, sem völ
er á. Við æfingarnar hafa skíða-
mer.nirnir afnot af dráttarbraut-
um, og tími þeirra nýtist því
margfalt betur en ella.
TAKA ÞATT I
SKÍÐAMÓTUM
Er líða tekur
á dvalartíma
angri á æfingunum.
Veldur eignatjóni
SAN JOSE — Nýlega varð hér
allsnarpur jarðskjálftakippur,
sem eyðilagði fjölmörg hús í bæn
urn Limon. Ekki er kunnugt um
manntjón. — Er þetta annar jarð-
skjálftinn, sem vart verður við
í Costa Rica undanfarna 9 daga.
NORDAN aí' Ingólfsfirði ber-
ast fregnir um að nokkrir
menn hafi horít drykklanga
stund, á furðuljós svífa um
himingciminn. Virðíst ijósið
eftir lýsingu þeirra eínna helzt
bera saman við fregnir af hin-
um svonefntíu Fljúgandi disk-
um. — Þessi diskur var ekki
alveg eins síór um sig og tungl
í fyllingu. Hann lækk.ði stcð-
ugt flugið meðan þeir Ingólfs-
firðingarnir horfðu á hann,
frá Eyri. Stóð þessi sýn yfir
í átta mínútur og hvarf disk-
urinn á bak við í'jall.
Einmenningskeppni
í Bridgs
EINMENNINGSKEPPNI Bridge-
félags Reykjavíkur hófst síðast-
, liðinn sunnudag, og eru þátttak-
! endur á annað hundrað. Eftir
fyrstu umferðina eru þessir efst-
ir:
Gunnar Guðmundsosn 60 stig,
Árni Jónsson 57]/2, Gunnl. Krist-
jánsson 57 14, Exnar Ágústsson
56, Jakob Bjarnason 55, Ósk
Kristjánsdóttir 54, Þorst. Þor-
steinsson 54, Óli Hermannsson
5314, Zoph. Benediktsson 5214,
j Guðl. Guðmundsson 52, Ólafur
j Þorsteinsson 52, Einar Þorfinns-
son 5114, Ingólfur Ólafsson 5114,
Karl Jéhannesson 5114, Einar
Guðjohnsen 51 og Kristinn Berg-
þórsson 51.
! Önnur umferð var spiluð í
gærkvöldi, en þriðja og síðasta
umferðin fer fram n.k. sunnudag.
HASKOLANAM
í NÁTTÚRUFRÆDUM
I stuttu samtali er Morgun-
blaðið átti í gær við dr. Finn
Guðmundsson, kvað hann miklar
framtíðarvonir við hið væntan-
lega náttúrugripasafn vera
bundnar. Þegar safnið væri kom-
ið í fullkomið horf í hinum nýju
húsakynnum, yrði þess ekki
langt að bíða þar til ný fræði-
grein yrði tekin upp í Háskól-
anum, þ.e.a.s. kennsla í náttúru-
fræði, svo sem gert er ráð fyrir.
Finnur kvað Gunnlaug Hall-
dórsson, arkitekt, nú hafa lokið
útlitsteikningum að stafninu og
hann væri nú að fullgera vinnu-
teikningar.
ÞRENGSLIN TIL TJÓNS
Nátttirugripasafnið hefur orðið
fyrir miklu tjóni vegna hins
mjög svo ófullkomna aðbúnaðar.
Nokkur bót varð það er lokið var
Þjóðminjasafnsbyggingunni, en
þá fékk safnið húsnæði þar,
vinnustofur fyrir þá dr. Finn o%
dr. Sigurð Þórarinsson, svo og
nokkurt pláss fyrir geymslur.
í SAFNBYGGINGUNNI
í væntanlegri náttúrugripa-
safnsbygginí'u verða m.a. miklar
geymslur, stórir sýningarsali'- og
þar verða vmnustofur. — Hvtg-
myndin er að skapa þar mögu-
leika fyrir erlenda náttúrufr,æð-
inga að dveljast við rannsóknir
og athuganir.
FISKABÚR OG GRÓÐURHÚS
Þá verða þar stór fiskabúr, fyr
ir sjávarfiska og vatna, og sjávar
dýr og gróðurhús, þar sem hvers
konar gróður verður sýndur.
Þá verða að sjálfsögðu kennslu
stofur og vinnustofur náttúru-
fræðideildar Háskólans.
Hæsfi viiiningur 491
kr. fp’ir 10 réíla
MEÐ leikjum 3. umferðar ensku
bikarkeppninnar, sem fram fór á
laugardag, hófu getraunirnar
starfsemi sína á ný eftir jólahlé-
ið. I nokkrum leikjanna fóru
leikar nokkuð á annan veg, en
almennt hafði verið gert ráð fyr-
ir og tókst engum að ná réttari
ágizkun en 10 réttum. Voru 2
með 10 réttar, og er annar ungur
drengur á Akranesi, sem tókst
það í einfaldri röð.
Hæsti vinningur var 491 kr.
fyrir 10 rétta í kerfi. Vinningar
skiptust annars þannig:
1. vinningur kr. 344 fyrir 10
rétta (2).
2. vinningur kr. 49 fyrir 9
rétta -30).
' 1
I
Kanadadollar
lækkar
GENGI Kanadadollars hefur
lækkað um 11 aura eða úr 16,90
kr. í 16,79 kr. sölugengið. Frjáls
skránirxg er á kanadiskum dollara
og eru því alltíðar sveiflur á
gengi hans. Enn er hann þó í
hærra gengi en bandarískur doll-
ar, scm er 16,32,____
Urðu einslrfs varir
HANOI — Franskar hersveitir
hafa verið í könnunarferðum
undanfarið í grennd við bæinn
Cono, án þess að rekast á einn
einasta Viet-Mín hermann.