Morgunblaðið - 01.03.1953, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.03.1953, Blaðsíða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 1. marz 1953 Smásaga dagsins: Ef hjónaband okkar fer út um þúfur Eftir MÖRTHU SOLMAR HEIM var hann kominn og konan hans kom á móti honum í dyr- unum. „En hvað ég er fegin yfir að fá þig heim aftur,“ sagði hún um leið og hún leit upp í aUgu hans. Harin kyssti hana á kinnina og spurði: „Hvernig hefurðu það? Hefur þér ekki íeiðst?“ . s „Nei,“ svaraði hún brosandi, „það er alltaf nóg að gera.“ Þau höfðu verið gift í mörg ár og búið saman í hjónabandi svipuðu þeim sem venjulega eru kölluð „hamingjusöm“ í til- breytingarleysi sínu; Þau bjuggu í litlu húsi í útjaðri borgarinnar og elskuðu bæði kyrrt og rólegt líf. < Hann var rithöfundur. v-Verk hang höfðú vafalaust töluvert bókmenntalegt , gildi, ,en ha'nn kærði sig köllóttari um álla frægð og viðurkenningu, reyndi jafn- vel að forðast hvers konar kynn- ingu út á við. /y > Harin birtr smásögur sínar í dagblöðunum. Kona hans vélrit- aði þær og sendi þær til við komandi blaðs. • Þau höfðu verið gift í næstum því 20 ár, þegár hann kynntist hinni. Hún var blómstrandi eiris og rós full af traugti á sjálfri sét | og leikandi af lífsgleði — ung og ■ fögur. Hann varð ástfanginn með j það sama og það hvarflaði' að! honum hvílíkir rrröguleikar kynnu að bíða hans í sambandi við þessa nýju vinkonu hans. — Hann tók að dreyma um glæsi- legan frægðarferil. Hann lét að lokum sannfærast um, að það gæti varla verið, að kona hans elskáði hann lengur, hjónaband þeirra væri orðið að vana og upplausn þess mundi éngan sársauka hafa í för með sér. Hann ætti þess vegna tafar^- laust að fá skilnað. i En nú var eftir að gera kon- unni hans kunnugt um þessa ákvörðun — það var óhjákvæmi- legt. «. Aldrei, á öllum þeirra hjóna- bandsárum, höfðu þau nokkru sinni minnzt á tilfinningar sínar hvort við annað, aldrei rætt um hin persónulegustu málefni sín. Hann orkaði það heldur ekki nú. Loksins hélt hann samt, að harin hefði fundið upp snilldar úrræði. Hann skrifaði smásögu, sem var svo að segja hans eigin hjóriabaridssaga. Hann óf inn í hana svo mörgum atriðum úr sámlífi þeirra, að ekki varð um villzt — kona hans hlaut að sjá, að það var hún sjálf og engin önnur, sem við var átt. V „Ef hjónaband okkar fer út um þúfur", setti hánn sem fyrirsögn á söguna, sem endaði með skiln- aði hjónanna. Þau skildu sárs- aukalaust, þar sem ást þeirra hvors til annars var kulnuð út. • Hanri fékk konu sinni hand- ritið til að láta riana vélrita það. Síðan fór hann á fund ástmeyjarj sinnar til að láta hana vita, að, nú væri allt í lagi. | * Þegar hann kom aftur heim hitti hann fyrir konu sina ná- kvæmlega eins og alltaf áður. Hún kom á móti honum í dyrun- um og sagði: „En hvað ég er fegin yfir, að fá þig heim aftur.“i Og svo kom að stikkorðinu hjá honum. Hann kyssti hana dáhtið riikandi á kinnina um leið og hann spurði: * „Hvernig hefurðu það? Hefur þér ekki leiðst?“ Og hún brosti: „Nei, það er alltaf nóg að gera.“ Hann vissi ekki sitt rjúkandi r.áð. Hvers vegna í ósköpunum sagði konan hans ekki neitt? i— Hafði hún ekki skilið hann? Hvers vegna reyndi hún ekki að komast til botns í málinu? Hvers vegna féllst hún ekki á, áð hariri hefði á réttu að standa, að þetta "i»undi brátt-gróa*úrir heilt eins og staðið hafði í sögunni? i Hálfum mánuði síðar birtist sagan í sunnudagsblaði einu. Nú skildi hann, hvernig í öllu lá. Þarna kom þá svarið frá henni! „Ef hiónaband okkar færi út um þúfur“, var titillinn, sem hún hafði sett á söguna. Hún hafðí skrifað „færi“ í staðinn fyrir „fer“. Fyrir hana var hjónaband þeirra ekkert nálægt því að enda. Hún elskaði mann sinn, mundi alltaf elska hann jafnvel þó að hún ætti bágt með að láta ást sína í ljós. Hún hafði einnig breytt endi sögunnar. „Ef hjónaband okkar færi út um þúíur,“ sagði konan, þegar maður hennar fór fram á skilnað, „ef hjónaband okkar færi út um þúfur, myndi hjarta mitt bresta.“ Þau nefndu aldrei söguna á nafn. Hún sagði aldrei frá breyt- ingunni, sem hún hafði gert á henni; hann minntist aldrei á, að hann hefði lesið hana. Hann batt t nda á kunnings- skap sinn við hina, þá cmgu og laglegu. Hann kom heim á hverju kvöldi eins og áður. Konan hans kom á móti honum í dyrunum. Hún leit upp til hans og hann kyssti hana á kinnina. Hún brosti um leið og húri sagði: „En hvað ég er fegin yfir að fá þig heim aftur.“ Hfiele þvotta- vélar eru k&mnaa Fengum nú bæði litlar og stórar þvottavélar, sem taka 2 Yz og 4 kg. af þurrum þvolti, með og án suðutækja. Þeir, sem hafa átt pöntun hjá okkur, geri svo vel að tala við okkur hið fyrsta. Véla- og raftækjaverzlunin Bankastræti 10. Sími 2852. Tryggavötu 23. Sími 81279. THRIGE Fólkslyftur Sjúkralyftur Eldhúslyftur Vörulyftur Ludvig Slorr &C0. Sími 2812 og 82640 mm} Í)|LPLÖTUR Til innréttinga á nýjum húsum og breytinga á eldri húsakynnum. Gera þau hlý og vistleg. líijóðcinangra — Eldtraustar — Pappaklæddar undir málningu eða veggfóður. Mjög handhægar til uppsetningar. Síærð: 270 x 120 cm. — Þykkt: 10 mm. Verð kr. 85,00 platan. PÁLL ÞORGEIRSSON Laugaveg 22. Sími: 6412. Dökkblátt gaberdine hentugt í fermingarföt. — Dömubindi kr. 6.50 pakkinri. Nælonsokkar kr. 20,00 parið. Silkisokkar kr. 10,00 parið. Herrasokkar kr. 10,00 parið. Vef naðarvöru verzlunin Týsgötu 1. TIL LEIGU 3 herbergi og eldhús i Vog- unum. Aðeins barnlaust og reglusamt fólk kemur til greina. Tilboð merlct: — „Reglusemi — 220“, sendist afgr. Mbl. fyrir miðviku- dagskvöld. —- VismumfóJusi Stéttarfélagið Fóstra hefur ákveðið að taka upp vinnu- miðlun meðlima sinna. Upp- lýsingar gefur Elínborg Stefánsdóttir, sími 9721, alla virka daga kl. 1—6. Átvinna Reglusamur piltur, 14—16 ára, óskast í ársvist á gott sveitaheimili. Tilboð ásamt nafni og heimílisfangi, sena- ist afgr. Mbl. fyrir 7. marz, merkt: „219“. Móleitur, gaberdine- FRAKKK merktur H. P. innan á bi'jóstvasa, var tekinn í mis gripum þ. 24. jan. í sam- komuhúsinu í Sandgerði. — Uppl. í síma 472, Keflavík. Lykbkippa tapaðist fyrir framan húsið Blómvallagötu 12. Finnandi vinsamlega beðinn að skila þeim þangað á 3. hæð gegn funöarlaunum. C'hevrolet BÍLfti með 6 manna húsi til sölu, Grundargerði 8, næstu daga. Skifti á heimilisvél koma til greina. Oesmo Vitos sokkaviðgerðavél, ónotuð, til sölu. Uppl. í síma 5612. BOLINDER- dies-elvél 8—10 ha. til sýnis og sölu hjá Árna Gislasyni, pakk- húsi Ríkisskip. Viftujeim&r fyrir flestar gerðir bifreiða, veið aðeins kr. 15,00, kr. 20,00 og kr. 25,00. — Gluggaþéttigúmmí Gólfgúmmí, rifflað Garðar Gíslason h.f bifreiðaverzlun. BÓKALISTI • 5 félagsbækur 1952 iyrir 55 krónur: Þjóðvinaíélagsalmanakið 1953; Andvari: úrvalsljóð Stefáns frá Hvítadal, skáldsag- an Elín Sigurðardóttir eftir norska skáld- ið Johan Falkberget (höfund sögunnar ,,Bör Börson"); Indíalond, myndskreytt landafræöibók efíir Bjorgúlf ólaísson lækni. • 50 bækur tyrir 300 kr ' ^nn gefa nýir félagsmenn fengið allmikið af eldri félags- bókum við sérstakiega lágu verði. Meðal þessara bóka eru Þjóðvinaféiagsalmanak- ið, úrvalsljóð Bólu-Hjálmars, Hannesar Hafstein, Matthíasar Jochumssonar, Gi. Thomsen, Guðm. Friðjónssonar, St. Ólafs- sonar, Kristjáns Fjallaslcálds, Jons Thor- oddsen og Aiþingisrímurnar; Njálssaga, Egilssaga og Heimskringla, I. —III. h., erlend skáldrit; Andvari; hinar mynd- skreyttu landaíræðibækur, — LÖnd og Lýðir (Noregur. Svíþjóð og Damnörk); o<5 m. 11. eigulegar bækur. • Fjölbreyit bókcúrval. — Höfum m. a. þessar bækur til sölu, auk félagsbókanna: Guðir og menn, úrval Hómersþýðingcr. kr. 42.00 ib. (fyrir félagsmenn); Nýyrði, kr. 25.00; Bókasafnsrit (handbók fyrir bókavini og söfn), kr. 40.00; Árbók íþrótta- manna 1952. kr. 38.00 (áskriftargjald) og eldri íþróttaárbækur; Frjálsar íþróttir. íþióttahandbók kr. 45.00; ýmsar íþrótta- leikreglur ÍSÍ; Miðskóla-prófverkefni ‘46— '51. kr. 15.00; Nýtt söngvasafn, kr. 40.00? Foiskriftabækur Guðm. í. Guðjónssonar 1.—4. h., kr. 6.00 hvert hefti; Saga V.- ísl.; Sturlunga I.—II. (viðhafnarútgáfa); Saga íslendinga; Fögur er foldin (crinda- safn dr. Rögnvaldar), kr.54.00 ib.; Passíu- sálmarnir (með orðalykli), kr. 52.00 ib.r Leikritasafn Menningarsjóðs, öll heftin (1.—6.) aðeins kr. 98.00 fyrir áskrifendur. Nýjustu leikritin eru „Piltur og stúlka" ocy „Skugga-Sveinn". • Athugið! — Bækur eru nú almennt dýrar. Jafnframt er fjárhagur margra þrengri en áður. A slíkum tímum er sér- stök ástæða fyrir alla lesfúsa Islendinga að notfæra sér þau hlunnindi um bóka- kaup, sem þessi útgáfa býður íélagsmönn- um sínum. Sendum gegn póstkröf i — burðargjalds- frítt, ei keypt er fyrir 200 kr. eða meira. Bókaúlgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. 1. DAGUR Útsölu erlendra bóka í BókabúS NorSra. Á boðstólum meðal fjölda annara bóka; Zacaroff: We made a mi- stake — Hitler, áður 24,00 nú 8.00. Morris: Traveller fram To- kio, áður 31.50 nú 10,00. Churehill: Onwards to Vic- tory, áður 37,50, nú 12,00. Hamsun: Growth of the soil. áður 40,00, nú 15,00. Leslie: Harlequin Set, áður 68,75, riú 20,00. Culbertson: Contract Bridge áður 50,00, nú 15,00. Morley: Thorofare, áður 14,90, nú 5,00. Ida Duncan: Progressive Knitting, áður 18,00, nú 6,00. — Morgan; Assize of arms, áður 45,00, nú 15,00. West: A message from Marz (leikrit), áður 9,00, nú 1,00. — Bókabúð NorSra Hafnarstr. 4, sími 4281. Trúlofunarhringar Við hvers manns smekk. — Póstsendi. — Kjartan Ásmundsson gullsmiður Aðalstr. 8. Reykjavík. ▲ BEZT AÐ AVGLtSA A T. 1 MORGUNBLAtílNU %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.