Morgunblaðið - 22.03.1953, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.03.1953, Qupperneq 2
2 M O HGl A' HLAÐIÐ Sunnudagur 22. marz 1953 Yfirlýslng frá Oómsuíálaráou- neytinu m iandiieígisyæziuna V E G N A greinar með nafninu „Landhelgisgæzlan og óheilindi Sjálfstæðisflokksins“ er birtist i Tímnum 18. þ. m., tekur dóms- málaráðuneytið eftirfarandi fram: Með reglugerð nr. 64 1. marz 1950, útgefinni af atvinnumála- ráðuneytinu, var bönnuð drag- mótaveiði innan landhelgi frá línu er hugsaðist dregin frá Keili úm Sandgerðisvita á haf út og fyrir framan strandlengju Gerða- hrépps, Keflavíkurkaupstaðar, Njarðvíkurhrepps og Vatnsleysu- átrandarhrepps að Hraunnesi, á tímabilinu frá 1. júní til 30. nóv. ár hvert. ’ Reglugerð þessa töldu margir ■fktgerðarmenn á þessum slóðum ■ólöglega setta og hirtu ekki um bannið. Af þessum sökum voru eftir- taldir skipstjórar teknir og dæmdir af bæjarfógetanum í Keflavík fyrir brot á reglugerð- inni: 1. Skipstjórinn á Guliþór, Jón Óskar Jónsson, dæmdur 10. ágúst og 14. okt. 1950 í tveggja mánaða varðhald og samtals kr. 43.400.00 sekt. 2. Skipstjórinn á Fylki, Gunnar Sigurðsson, dæmdur 10. ágúst 1950 í kr. 18,500.00 sekt. 3. Skipstjórinn á Glað, Jón E. Bjarnason, dæmdur 10. ágúst og 14. okt. 1950 í tveggja mánaða fangelsi og samtals kr. 43.400.00 sekt. .4. Skipstjórinn á Hilmi, Ágúst Guðmundsson, dæmdur 12. ágúst og 14. okt. 1950 í tveggja mánaða fangelsi og samtals kr. 43,400.00 sekt. 5. Skipstjórinn á Kveldúlfi, Sigmundi Óskar Einarsson, dæmd ■ur 10. ágúst og 8. sept. 1950 í tveggja mánaða fangelsi og sam- tals kr. 43.400.00 sekt. 6. Skipstjórinn á Tjaldi, Sig- urvin B. Pálsson, dæmdur 14. okt. 1950 í kr. 18,500.00 sekt. 7. Skipstjórinn á Skíðblaðni, Sigurður Þórarirm Helgason Bach imann, dæmdur 14. okt. 1950 í kr. 18.500,00 sekt. 8. Skipstjórinn á Kveldúlfi, pelgi G. Eyjólfsson, dæmdur 14. þkt. 1950 í kr. 18.500.00 sekt. i 9. Skipstjórinn á Snæfelli, Benedikt Sigurður Guðmundsson, dæmdur 14 . okt. 1950 í kr. 18.500.00 sekt. Eru hér taldir allir þeir skip- stjórar, er um ræðir í I—III í framangreindri blaðagrein, en í gpeininni eru nokkrir dómanna taldir kveðnir upp 14/11. 1950, sem mun vera prentvilla og eiga að vera 14. okt. 1950. Dómum þessum óskuðu hinir dómfelldu áfrýjað til Hæstarétt- ar, og var eitt málanna, mál Gunnars Sigurðssonar, sent til Hæstaréttar sem prófmál, með bréfi ráðuneytisins, dags. 10. okt. 1950. ÍHinn 20. okt. 1950 ákvað at- vinnumálaráðuneytið að fella niður framangreinda reglugerð ttf'. 64 1950, sem allir þessir dóm- ar voru byggðir á, og var það gert með auglýsingu nr. 219 20. okt. 1950. Þá ákvað dómsmála- ráðuneytið, með hliðsjón af al- mennum regium refsiréttarins um lækkun og niðurfelling refs- iinga, þegar lagabreytingar lækka eða fella niður viðurlög við verknaði að náða alla framan- Igreinda skipstjóra af hinum í- dæmdu refsingum og 15. nóv. var gengið formlega frá náð- unum þeirra allra, en með bréfi ráðuneytisins til bæjarfógetans í Keflavík, dags. 27. okt. 1950, hafði verið lagt fyrir hann að afhenda aftur veiðarfæri þau og andvirði afla, sem gert hafði verið upptækt. Einnig var tekin aftur áfrýjun á máli Gunnars Sigurðssonar. Að því er varðar mál Magnús- íar í Höskuldarkoti var mál hans ■rannsakað af fulltrúa sýslumanns ins í Gullbringu- og Kjósarsýslu," enda er Magnús búsettur í um-i dæmi sýslumanns og skýrsla varðbátsforingjans stíluð til sýslu mannsins í Gulbringu og Kjósar- sýslu. Magnús var tekinn á skipi sínu Gylfa aðfaranótt 6, ágúst 1950 og var mál hans rannsakað í rétti 6. og 11. ágúst sama ár, en í seinna réttarhaldinu bókar fulltrúinn, Björn Ingvarsson, að hann muni leita fyrirsagnar dóms málaráðuneytisins um mál þetta. Málið var síðan sent ráðuneytinu til fyrirsagnar með bréfi, dags. 13. sept. 1950, sbr. nefnda bók- un dómarans, og var það gert án þess að ráðuneytið léti í ljós nokkra ósk sína þar um, enda al- gengt að slíkar rannsóknir eru sendar ráðuneytinu til fyrirsagn- ar áður en mál er höfðað. Mál þetta var einnig vegna brots á framangreindri reglugerð nr. 64 1950, og með því að þá stóð fyrir dyrum áfrýjun til Hæsta- réttar á einu hliðstæðu máli, sem prófmáli, var ákveðið að láta afgreiðslu á máli Magnúsar bíða þar til hæstaréttardómur í próf- málinu lægi fyrir. Eins og fram er tekið hér að framan var nefnd reglugerð nr. 64 1950 numin úr gildi 20. okt. 1950 og þar sem allir þeír, er dæmdir höfðu ver- ið fyrir brot á henni, voru náð- aðir af þeim brotum, var ekki lengur nein ástæða til að iáta ganga dóm í máli Magnúsar og var sú ákvörðun tilkynnt sýslu- manninum í Gullbringu- og Kjós- arsýslu með bréfi, dags. 7. nóv. 1950. í máli b.v. Rheinland gerðist þetta: Togarinn var dæmdur 27. júní 1949 í 29,500 kr. sekt., afli og veiðarfæri gerð upptæk, fyr- ir brot á 1. gr. laga nr. 5 1920, um bann gegn botnvörpuveiðum. Dómkvaddir menn mátu afla og veiðarfæri. Umboðsmaður tog- arans setti svo tryggingu fyrir greiðslu sektar, málskostnaðar og andvirði afla og veiðarfæra, eins og tíðkað er, t. d. um brezka togara, þar til bankatrygging er fengin. Dómnum var með náð- un breytt í 5000 kr. sekt 16. ágúst 1949, með því að hér var um mjög lítið fiskiskip að ræða, og er heimild til slíkrar náðunar að finna í 29. gr. stjórnarskrár- innar. Sekt og andvirði afla og veiðarfæra var svo greidd til bæjarfógetans í Vestmannaeyjum hinn 22. sept. 1949, send ráðu- neytinu 31. marz 1950, en það sendi sektina ríkisféhirði 4. apríl sama ár. Er það því ekki rétt að sektin hafi ekki verið greidd fyr en eftir gengisfellingu. í sambandi við þetta mál er rétt að geta þess, að þegar lög nr. 5 1920, um bann gegn botn- vörpuveiðum, voru sett, stund- uðu slíkar veiðar yfirleitt ein- göngu stórir togarar og voru hin- ar háu sektir miðaðar við það. Á seinni árum hafa einnig smærri fiskiskip tekið að stunda botnvörpuveiðar, og var mönn- um þá ljóst, að hinar háu sektir laganna frá 1920, voru allt of háar, þegar um minni skip var að ræða. Hafði því" myndazt venja um það, þegar í dómsmála- ráðherratíð Hermanns Jónasson- ar, að lækka sektir minni skip- anna til muna með náðunum, og var það gert í máli b.v. Rhein- land, enda er það skip einungis 111 brúttó smálestir að stærð. Með hliðsjón af þessum sjónar- miðum var sektarákvæðum lag- anna nr. 5 1920 breytt með lögum nr. 6 1951 þannig, að lágmarks- sektir hjá skipum allt að 200 rúm- lestum brúttó voru lækkaðar úr 10,000 gullkrónum í 1,000 gull- krónur, en hjá skipum þar yfir voru lágmarkssektirnar, 10,000 gullkrónur, látnar halda sér. Voru lög þessi samþykkt mót- atkvæðalaust á Alþingi, að und- anteknu einu atkvæði við 3. urh- ræðu í neðri deild. Dómsmálaráðúneytið', 21. marz 1953. Meislaramóf í frjáls- íjiróifijm innan- húss í dag í DAG kl. 2 fer fram íslands- meistaramót (innanhúss) í frjáls- um íþróttum í íþróttahúsi KR við Kaplaskjólsveg. Er það í fyrsta skipti, sem keppni fer fram í hinu nýja íþróttahúsi, en það var víg't í febrúar s.l. Einnig er þetta fyrsta íþróttakeppni, sem fer fram á vegum Reykjavíkurfélag- anna, en auk þeirra taka tvö ut- anbæjarfélög þátt í mótinu. Keppt verður í fjórum íþrótta- greinum: langstökk án atrennu, hástökki án atrennu, þrístökki án atrennu og kúluvarpi. í lang- stökkinu eru 10 keppendur skrá- settir. Á meðal þeirra er íslands- methafinn Svavar Helgason, KR, Torfi Bryngeirsson, KR, Guð- mundur Lárusábn, Á, Hörður Haraldsson, Á, og Daníel Helga- son, ÍR. — Svavar er liklegastur til sigurs í þessari grein, en Torfi hefur æft sæmilega frá áramót- um og mun hann veita Svavari harða keppni. I þrístökkinu eigast þeir Svav- ar og Torfi við, en alls eru 4 þátt- takendur í þrístökkinu. I hástökkinu eru 8 keppendur. Á meðal þeirra eru Hörður Har- aldsson, Jafet Sigurðsson, KR, Guðmundur Lárusson, Á. Torfi Bryngeirsson, KR og Daníel Hall- dórsson, IR. Líklegastur til sig- urs eru Torfi, Hörður og Guð- mundur. I kúluvarpi eru 10 kcppendur. Á meðal þeirra eru Örn Clausen, Bragi Friðriksson, KR, Hailgrím- ur Jónsson, Á, Guðm. Hormanns- soh, KR, Jóel Sigúrðsson, ÍR og Svavar Helgason, KR. Hér verður ómögulegt að spá um, hver verð- ur hlutskarpastur. Þó eru iíkur til að nýtt íslandsmet verði sett, í innanhúss kúluvarpi. *ó(?ann Þ. jéssfsson; Ohréðri Tíinians hrundið „Það munaði bara einum". Sýningar á Mennta- í KVÖLD hefja Menntskælingar að nýju, eftir nokkurt hlé vegna veikindaforfalla, sýningar á gam- anleiknum „Þrír í boði“ eftir L. du Garde Peach. Þær brcytingar hafa orðið á hlutverkaskipun, að Valur Gústafsson fer með hlut- verk Erlings Gíslasonar. Valur er leikhúsgestum að góðu kunnur, t. d. lék hann einn af sonunum í Pabba. Auk þess lék hann í kvikmyndinni „Síðasti bærinn í dalnum“. Bernharð Guðmunds- son tekur við því hlutverki, sem Valur hafði áður. Aðrir leikend- ur eru: Erla Ólafsson, Björgvin Guðmundsson, Guðrún Helga- dóttir og Steinunn Marteinsdótt- ir. Leikstjóri er Baldvin Halldórs son og þýðandi Helgi Hálfdánar- son. Eins og menn mun reka minni til, ákvað leiknefndin að nefna árleg leikkvöld sín herranætur. En til gamals siðar með því nafni má rekja upphaf skólaleikjanna og ieiklistar á íslandi. Fólk ætti ekki að láta hjá líða að sjá hina ungu og fjörugu æsku glensast á fjölum gömlu Iðnó. TÍMINN, blað fjármálaráðherra, hefur undanfarið algerlega að til- efnislausu eins og vant er, haldið uppi árásarskrifum á mig og í þetta sinn á ég að hafa misnotað trúnaðarstöðu mína sem fjár- málaráðherra, í skattamáli hluta- félags, þar sem ég hafi verið einn hluthafa. Reiðir blaðið hátt að vanda í grein með fyrirsögninni „Skattaeftirgjöf JÓhanns Þ. Jós- efssonar dæmd ógild“ og í annari eftirhreytu svona til áréttingar. í forspjalli fyrri Tímagreinar- innar er frá því skýrt að dómur hafi fallið í athyglisverðu máli, sem vert sé að almenningur fái að kynnast, þar sem það sé dæmi um misnotkun á trúnaðarstöðu í þjóðfélaginu í eiginhagsmuna skyni. Ógilti dómurinn, segir blaðið eftirgjöf á sköttum, sem Jóhann Þ. Jósefsson hafði veitt fyrirtæki ■sínu í Eyjum, sem hann var eig- ! andi að ásamt öðrum. Svo mörg eru þau orð í mál- gagni núverandi fjármálaráð- herra um einn af fyrirrennurum fjármálaráðherrans í sama emb- ætti og fyrrverandi starfsbróður hans í ríkisstjórn. Tímafregnin er auðvitað feitletruð eins og vant er um æsifregnir á því heimili. En, „það raunar bara einum“. Blaðið fer ráðherravilt, vilj- andi eða óviljandi. Hið sanna í málinu er það að eftirgjöf fjármálaráðuneytisins á stríðsgróðaskattseftirstöðvum h.f. Sæfeiis fór fram átta vikum eftir það að ég lét af embætti f jármála ráðherra. Ég lét af embætti fjár- málaráðherra þegar ráðuneyti Stefáns Jóh. Stefánssonar var veitt lausn hinn 6. desember 1949. Eftirgjöfin á Sæfells skattaeftir- stöðvunum er úrskurðuð í fjár- málaráðuneytinu 6. febrúar 1950. Tímaritstjóranum var vorkunn arlaust að vita rétt í þessu efni og hefur ef til vill líka vitað hið rétta, þótt hentara hafi þótt að halda fram hinu ranga til að sverta mig. En furðuleg ósvífni er það að eigna mér vísvitandi embættis- verk annars fjármálaráðherra til þess eins að geta klínt á mig þeim óhróðri, sem felst í Tímagrein- inni 13. marz og eftirhreytum hennar í sama blaði nú fyrir nokkrum dögum, þar sem haldið er áfram í sama dúr og þess jafn- vel krafist að ég sé ger útlægur frá opinberum störfum. Þeir eru siðavandir Tímamenn- irnir. Og brjóstheilir. Þetta eru sömu mennirnir, sem haft hafa Helga kaupm. Bene- diktsson í framboði til Alþingis. Öll frásögn blaðsins um mál þetta og málsmeðferð í undirrétti og Hæstarétti er með endemum eins og bent var á í Morgunblað- inu í gær, í ritstjórnargrein, og í svo miklu ósamræmi við dóm- íkjölin í málinu, að um Tíma- ritstjórann sannast það er í Njáltt segir um Gunnar Lambason og frásögn hans af Njálsbrennu, við hirð Sigurðar Jarls: „Ok um allaf sagnir hallaði hann mjök til, eu ló víða frá“. Tíminn ætti að velja sér þessl orð Njáluhöfundarins að kjör- orði og láta prenta þau á blað- hausinn. Það myndi hæfa mál- flutningi ritstjórans Þetta skattinnheimtumál eins hlutafélags í Vestmannaeyjum hefur vakið mikla athygli Tíma- ritstjórans og liggur það að vís'J, nærri verkahring þess blaðs, sem er málgagn fjármálaráðherra að fylgjast með slíkum málum, og væri þakkarvert ef úm heiðar- legt blað væri að ræða. En það eru fleiri en h.f. Sæfell í Vestmannaeyjum sem skatt- heimtuyfirvöldin eiga í útistöð- um við. Eitt þeirra mála er sagt að sé búið að vera fyrir Hæsta- rétti í um það bil 3 ár eða jafn- langan tíma og hr. Eysteinn Jóns- son hefur í þetta sinn setið í embætti sem fjármálaráðherra. Málið kve snúast um 240 þúsunð króna skattkröfu á hendur trún- aðarvini fjármálaráðherrans Helga kaupm. Benediktssyni S Vestmannaeyjum. Þessu máli mun nú vera búið að fresta lS sinnum í Hæstarétti eftir beinu fyririagi fjármálaráðherra. Auðvitað er öllum skylt að trúa því, a. m. k. í flokknum, að ráð- herrann láti veita vini sínum Helga Ben. frest á frest ofan af einskærri umhyggju fyrir hag ríkissjóðs. Hitt getur verið að sumum veitist erfitt að skilja forsjón Eysteins og er hér tilvalið verkefni fyrir Tímann, sem hefur hvortveggja í senn sérstakan á- huga fyrir skattamálum, ef þau snerta mitt kjördæmi, og hina meðfæddu hvöt til að gera at- hyglisverð mál að umræðuefní, „sem vert er að almenningur fáf að kynnast“, svo notuð séu Tím- ans eigin orð í áður áminnstri rit- stjórnargrein hans. Jóhann Þ. Jósefsson. Detlei Kraus heldur hljómleika I á þriðjudaginn ! NÆSTKOMANDI þriðjudagg- kvöld mun hinn þýzki píanóieik- ari, Detlef Kraus, sem staddur et| hér, halda hljómleika í Austur- bæjarbíói kl. 7 síðdegis. Á efnisskránni verða verk eft- ir Mozart, Couperin, Beethoven, Albeniz og Chopin. Eins og skýrt hefur verið frá 8 fréttum hélt Kraus tónleika s.l. föstudagslcvöld með ungfrú Ruth' Hermanns fiðluleikara, en hann er hingað kominn fyrir tilstillf ungfrúarinnar. Agætir fræðslufundir FUS Stefnis í Hafnarfirði UNGIR Sjálfstæðismenn i Hafn- arfirði gangast um þessar mundir fyrir fræðslufundum á vegum félags síns, Stefnis. Fyrsti fund- urinn var haldinn fimtud. 12. marz og voru ræðumenn þeir, Sigurður Bjarnason alþm., qg Stefán Jónssón bæjárfulltr. För þessi fundur fram með ágætum bg góðar rómur 'gerður að er- indum ræðumanna. Fundúrinn var fjölsóttur bæði af yngri ög eldri Sjálfstæðismönnum í Hafn- arfirði. Næsti fundur verður haldinn n. k. þriðjudag 24. marz og verða frummælendur á þeim fundi Ing- ólfur Flygenring, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og Gunnar G. Schram, stud, jur. AI!t sjátfstæðisfólk er velkomið á fundinn. Fundur Jöklarann- | sóknarfélagsins 1 FUNDUR verður í Jöklaranií- sóknarfélaginu n. k. þriðjudag kL 8,30. Á þessum fundi verða m, a. sýndar kvikmyndir frá Gríms- ey og Þórsmörk og skýrir Pálmi Hannesson myndirnar. Er vert afS benda á það, að þetta mun verai fyrsta kvikmyndin frá Grimsev, sem sýnd er opinberlega hér % Reykjavík. ( Þá mun Sigurður ÞórarinssOM sýna kvikmynd af eldgosum á Hawai, í eldfjöllpnum Mauna Loa og Kiiaua. Er þetta stutl fræðslumynd. ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.