Morgunblaðið - 16.04.1953, Side 1

Morgunblaðið - 16.04.1953, Side 1
Zimsen, fyrrv. borgar- stjóri lézt ú heimili sínu í gær SAMKVÆMT ósk hans imm jarðarför hans fara fram í kyrrþy. Um þrjá áratngi var Knud Zimsen í þjónustu Reykjavíkurbæjar sem bæj aíverkfræðingur og bygg- ingarfulltrúi, en síðast borg arstjóri í 18 ár, frá 1914— 1932. En þá lét hann af borgarstjórastörfum sakir vanheilsu, enda þótt hann vaeri þá ekki nema 57 ára að aldri. Þá var hann orð- inn slitinn að kröftum í þágu þessa bæjarfélags. Starfa þessa manns í þágu bæjarins verður lengi minnzt, enda má með sanni segja, að þar munu verkin tála um ókomin ár. En hans verður ekki að- eins minnzt sem ötuls fram- kvæmdamanns og stjórnanda, heldur einnig og ekki síður; fyrir frábæra mannkosti hans og fórnarlund, er mest og bezt kom í Ijós í ötulu og árvöku verki hans fyrir velgengni félags K. F. U. M. og K. hér í bænum. Síðustu misseri hafði Knud Zimsen heitinn haft við mikla vanheilsu að stríða, og varð að leggja sig undir hvern upp- skurðinn af öðrum. Síðast var hann skorinn upp liér heima, og reyndist sú læknisað'gerð árangurslaus, þar sem hann hafði tekið ólæknandi sjúk- dóm. Banaleguna síðustu vik- urnar lá hann heima, við ást- ríka hjúkrun konu sinnar. Fyrir nokkrum vikum kjöri Verkfræðingafélag fslands Knud Zimsen sem heiðurs- félaga sinn. En félagsstjórnin gat ekki fengið útbúið heið- ursskjalið eins og hún óskaði eftir. Svo dráttur varð á því að formaður félagsins, Stein- grímur Jónsson, gæti afhent Zimsen skjalið. Hann kom með það að sjúkrabeði Zimsen í fyrradag. Þá var hann sárþjáð ur en með fullri rænu. Þakkaði hann heiðurinn, sem honum var með þessu sýndur og bað Steingrím að skila kveðju til félagsins. Sagði síðan: „Mér þykir vænt um að þú komst í dag. Því að á morgun dey ég“. Orð þessi sagði hann með sínu alkunna ljúfmannlega brosi, eins og hann hlakkaði til dagsins. Þannig kveðja kærleiksríkir atorkumenn þenna heim, sátt- ir við alla tilveruna. Skotið á vélflugur S.Þ. frá bílalestum IMorðanmanna Frakkar s f]ár- hagskröggum 1 PARÍS, 15. aprít. — Franska ríkisstjórnin hefur ákveðið að endurskoða frumvarp til fjár- laga 1953, sem franska þingiö hefur þegar afgreitt. Þessi ákvörðun er ein margra, sem stjórnin hefur í hyggju að grípa til til lausn- ar alvarlegum fjárhagsörðug- leikum. Fyrir ekki löngu síðan var gripið til þess ráðs að taka kreppulán hjá franska þjóð- hankanum og nú hefur verið upplýst að ekki verði hægt að greiða lánið á gjalddaga og muni það verða framlengt. Reuter-NTB Svisslendingar á móti ungfrúnni NEW YORK 15. apríl: — New York Times skýrði frá því í morg un að ungfrú Elisabet- Willis, sem starfað hefur við sendiráð Banda- ríkjanna í Helsingfors myndi inn an skamms verða skipuð sendi- herra í Sviss. Búizt er við að tilnefning henn- ar muni hafa óheillavænleg áhrif í Sviss, því þar í landi eru menn á móti því að kvenfólk taki þátt í stjórnmálastörfum. — NTB-Reuter. Ákærður um 4 kvennamorð LUNDÚNUM, 15. apríl: — Skrif- stofumaðurinn, John Christy, var í dag dreginn fyrir rétt og ákærð- ur um morð fjögurra kvenna, konu sinnar og þriggja annarra stúlkna 24 og 25 ára að aldri. Búizt er við að réttarhöldin verði nokkuð löng því lögreglan tiefur enn ekki lokið söfnun allra þeirra gagna sem hún hyggst að leggja fram í réttinum. — NTB-Reuter. Brefar burt ai Súez-svæðinu LUNDÚNUM 15. apríl: — Brezka stjórnin tilkvnnti í kvöld að samningar um heim- flutning brezka liðsins frá Suez-svæðinu myndu hefjast í Kaíró innan skamms. í tilkynningu um þetta sem gefin var út frá Downingstreet 10, segir ekkert meira, en fréttaritarar bæta við að samn ingarnir hef jist í byrjun næstu viku. — NTB-Reuter Fleiri sjónvarpstæki. LUNDÚNUM — í lok febrúar- mánaðar s. 1. höfðu verið gefin út 2.092,980 leyfi fyrir sjónvöíp- um í Englandi. í febrúarmánuði voru gefin út 69,581 leyf j. Áukinn máttur vestrænna þjóða styrkir friHarvonina Ummæli landvarnaráðh. Vesiurveldanna. Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. LUNDÚNUM, 15. apríl. — Landvarnaráðherrar Vesturveldanna þriggja, Breta, Frakka og Bandaríkjanna, létu í ljósi í dag skoðun sína um að halda yrði áfram að byggja upp landvarnir hins frjálsa heims, en nema ekki staðar þó Sovétríkin linuðu að einhverju leyti á yfirgangsstefnu sinni. Alexander, landvarnaráðherra Breta, sagði um leið að það væri vegna stöðugt styrkari landvarna Vest- urveldanna, sem nú væri minni hætta á heimsstyrjöld en áður hefði verið. Morðanherinn byrgir sig mjög upp að vistum Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. TOKÍÓ, 15. april. — Orustuflugur S. Þ. í Kóreu fylgdust í dag með bílalestunum tveimur, sem nú eru á leið frá fangabúðum Norðanhersins við Yalu-fljót til fangaskiptabækistöðvanna við Fanmunj om. Flugvélar S. Þ. fylgdu fyrstu bílalestinni eftir og höfðu fylgt þessum tveimur lengi dags er skyndilega var hafin skothríð á þær frá bílalestunum. Er þetta tiltæki Norðanhersins þeim mun einkennilegra þegar allir vita að flugvélamar eru á sveimi yfir bílalestunum til þess að komið verði i veg fyrir að á þær verði ráðizt óviljandi eða af ráðnum hug. Chaplin ókveðinn WASHINGTON 15. apríl. — Charlie Chaplin hefur endursent dómsmálaráðuneyti Bandaríkj- anna leyfi það til landgöngu í Bandaríkjunum er ráðuneytið sendi honum til Evrópu. Þetta þýðir að hann mun ekki hyggja á að setjast að aftur í Bandaríkj- unum. í fyrrahaust er Chaplin hélt frá Bandaríkjunum var land- gönguleyfi hans þar tekið af hon- um. Olli þetta nokkrum deilum milli hans og ráðuneytisins. Síð- ar endurskoðaði ráðuneytið á- [ kvörðun sína og sendi Chaplin landgönguleyfi. Það hefur hann nú endursent. — NTB-Reuter. Dregið í A-ffokki happdrættls [ DREGIÐ var í A-flokki ríkis- happdrættisins í gær. Hæsti vinn- ingurinn, kr. 75000,00, kom upp á nr. 81966. — Næst hæsti vinn- ingurinn, kr. 40000,00, kom upp á nr. 49193 og þriðji hæsti vinn- ingurinn, kr. 15000,00 upp á nr. 88472. 10 þús. kr. vinningarnir þrír komu upp á nr. 54976, 87975 og 117073. Vinningaskráin verður birt í heild í blaðinu á morgun. (Án ábyrgðar). MEIRl í ORÐI EN Á BORÐI & Pleven, landvarnaráðherra Frakka, sagði að eining Evrópu- ríkja kynni að vera orsökin til breyttrar stefnu Rússa. Wilson, landvarnaráðherra Bandaríkjanna, kvaðst ekki trúa því að fundur Atlantshafsríkj- anna í París í næstu viku rnyndi að neinu leyti vilja draga úr land varnaundirbúningnum, þó að Rússar hefðu að nokkru breytt um stefnu á yfirborðinu. Stefnu- breyting þeirra væri meiri í orði en á borði. ÁHRIF SAMSTÖÐUNNAR Það hefur víða komið fram í áliti fréttamanna að brevt- ingin í st.iórnmálastefnu Rússa hafi komið Vesturveldaþjóð- unum í öruggari skilning um það hvað samtök Evrópuríkj- anna geta áorkað. Vaxandi máttur þeirra hafi sýnt Rúss- um fram á að lengra varð ekki haldið á þeirri braut, sem þeir voru komnir út á. Bradley í París PARÍS 15. apríl: — Formaður bandaríska herráðsins, Omar Bradley, er kominn til Parísar. Þar mun hann sitja fund Atlants hafsráðsins er hefst í næstu viku. — NTB-Reuter. Þá hefur það ekki vaki® minni athygli, að njósnaflug- menn, sem hafa verið á fiugi yfir Norður-Kóreu hafa til- kynnt, að vegir til vígstöðv- anna séu þaktir bifreiðum, sem flytji vistir og vopn til Norðanhersins. Er tailð að kommúnistar noti sér loft- árásarhléið, sem orðið hefur vegna fangaskiptanna, til þess að birgja upp her sinn af vopnum og vistum. í dag hófu S. Þ. fangaflutninga til fangaskiptabækistöðvanna en erfiðleikarnir komu fljótt í ljós. 770 fanga átti að flytja frá Cheju- eyju til lands en er landgöngu- prammarnir er fluttu fangana, komu til Pusan, gerðu þeir fang- ar, sem ekki lágu á börum „verk- fall“. Neituðu þeir að ganga í land og báru því við að illa væri farið með sig. Stóð „verkfall“ þetta í þrjár klukkustundir en leystist svo farsællega. Metkjörsókn JÓHANNESBORG, 15. apríl: — Talið er víst að metkjörsókn hafi verið við alþingiskosningarnar f S-Afríku í dag. Kjósendur urðu oft að bíða allt að klukkustund til að komast í kjördeildirnar. Kosningar þessar eru taldar hinar mikilvægustu fyrir þróun mála í landinu um langt skeið. Það er kosið um meira en hverjir eiga að komast á þing, segja frétta ritarar. Það er fyrst og fremst kosið um það hverjum tökum á að taka kynþáttamálin. NTB-Reuter. orðm., Danir og Fær- eyingar hyggfa á iram* kvæmdir í Grænlandi Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter. KAUPMANNAHÖFN, 15. apríl. — Fjárlaganefnd danska þingsins hefur lagt til að varið verði tveimur milljónum króna til kaupa og viðbygginga á hafnarmannvirkjum í Færeyingahöfn í Grænlandi, en þessi mannvirki hafa verið í eigu ASGRICO félagsins. Er í ráði að stofna nýtt norskt-danskt-færeyskt félag. 5 MILLJ. KR. HLUTAFE ' Mannvirkin, sem hið nýja fé- lag kaupir, er saltafgreiðslutæki, verkstæði, verzlun og íbúðarhús verkamanna. Ráðgert er að reisa frystiþús, saltstöð, olíugeyma o. fl. Hlutafé hins nýja félags verð- ur 5 milljónir króna og verður því öllu varið til ofangreindra mannvirkjakaupa og bygginga. SKIPTING HLUTAFJÁRINS í hinu nýja félagi munu Norð- menn eiga 40% höfuðstóls, Fær- eyingar 40% og Danir 20%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.