Morgunblaðið - 13.05.1953, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. maí 1953
\ eiðif erSinni
lokið á tæpum
11 sólarhringuin
í S. L. MÁNUÐI fór belgíski
togarinn, Graf van Vlaaderin,
til veiða á íslandsmið og: kom aft-
ur til Aberdeen aðeins 12 dög-
um eftir að hann lagði af stað
frá Ostende. — Belgíski togarinn
Sailor var nýlega álíka lengi í
veiðiferð til íslands. Hann er
einnig frá Ostende. — Er þetta
mjög stuttur tími á svo fjarlæg
mið og mát geta þess, að venju-
legt er, að togararnir séu 3 vik-
ur og allt upp í mánuð í veiði-
ferðum sínum á íslandsmið.
J\. Hins vegar mun brezki tog-
’ arinn Loch Ossian eiga metið:
Frá því er hann lagði upp í veiði-
ferð sína frá Point Law á fs-
landsmið og þangað til liann var
kominn með fiskinn til löndunar
liðu aðeins 10 dagar og 10
klukkustundir.
^ Fleetwoodtogarinn, Ella
Hewett, kom í síðasta mán-
uði úr fyrstu veiðiför sinni til
íslands og seldi afla sinn fyrir
7.561 sterlingspund. —■ Togari
þessi er 575 tonn að stærð.
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 9.
Heklugosi. Sýndar eru hinar
miklu andstæður elds og ísa í
öræfum landsins, fagrar heiða-
myndir svo og fuglalífsmyndir og
aðrar náttúrulýsingar.
Sem landkynningamyndir eru
þær báðar góðar. Enginn kafli
langdreginn, alltaf eitthvað nýtt
ber fyrir augun. Með þessum
myndum hefur verið farið vel af
stað.
— Noregsbréf
Framhald aí bls. 7
riti sem það gerir sér miklar
vonir um, „Maria Stuart“ Schill-
ers. Þar leikur Aase Bye Elísa-
betu drottningu en Gerd Grieg
leikur Maríu Stuart.
August Oddvar leikari hefui'
nýlega fengið föst listamannslaun
hjá Stórþinginu og mun í þann
veginn vera að láta af leikstörf-
lun. Og skáldinu Tarjei Vesaas
hefur hlotnast sá heiður að fá
fyrstu verðlaun bókmenntaþings-
ins í Feneyjum fyrir skáldsöguna
„Vindane“.
í Bergen er nú í óða önn verið
að undirbúa „Musikhátíð" þá,
sem aðallega verður helguð minn
ingu Edvards Grieg. Þar verður
ekki aðeins tónlist í boði heldur
og þjóðdansar og leikrit og ýmiss
konar þjóðleg list. Ýmsir heims-
frægir tónlistarmenn sækja mót-
ið og stjórna hljómleikum þar,
meðal þeirra Leopold Stokowsky.
Gera Bergensbúar sér von um
mikla ferðamannakomu í sam-
bandi við mótið.
Skuli Skúlason.
Þú sem ætlar að bvrja að baka
Blessuð láttu fyrir þcr vaka
Bezt er kaka
Bezt er kaka
með LILLU LYFTIDUFTI
í Trípólíbíói.
Um þessar mundir sýnir Tripolibíó mjög spennandi mynd, „Þjóf-
urinn.“ — Fjallar hún um starf njósnara, sem starfar í atómrann-
sóknarstöð einni í Bandaríkjunum. — Ray MiIIand leikur njósnar-
ann og gerir það af mikilli snilld.
r
Agreiningur í
rLii!u-Evrópu'
★ PARÍS, 12. maí. — Allmikill
og málefnalegur ágreiningur
kom upp, er utanríkisráð-
herra Evrópuríkjanna sex,
sem að „Litlu Evrópu" standa
komu saman til fundar í dag.
★ Adenauer, fulltrúi Þjóðverja,
bar fram þá tillögu, að ríkin
stofnuðu stjórnmálaráð. —
Þegar kom í Ijós, að Frakk-
land, Holland, Belgía og
Luzemborg, vilja ekki ganga
að þessu fyrr en að vandlega
yfirveguðu máli.
★ Bidault, fulltrúi Frakka, lét í
ljósi þá skoðun sína, að ræða
yrði málefnin mjög vel og
undirbúa þau vel áður en
þingum landanna yrði send-
ar áætlanirnar. Flas yrði ekki
til fagnaðar. —NTB-Reuter.
- Afmæli
Framhald af bls 11
kirkju, m. a. skrifað athyglisverð-
ar bækur um kirkjusöguleg efni,
eins og rit um Bartolomé de las
Casas ,eða dultrúarleg, eins og
bók um heil. Jóhannes af Kross-
inum (San Juan de la Cruz).
Þess má loks geta, að Reinhold
Schneider er einn af hinum mest
umtöluðu og umdeildu rithöfund-
um hins nýja Þýzkalands, eða
þeirra sem á þýzku rita, og hann
mun hafa samið eitthvað um 150
rit til þessa (skv. ritskrá, sem ég
hef séð), þ. á. m. allmörg skáld-
rit.
Þórh. Þorgilsson.
Nú reynir á friSar-
vilja Ungverja
BELGRAD, 9. maí. — Júgóslafn-
eska stjórnin beindi í dag þeim
tilmælum til ungversku ríkis-
stjórnarinnar að löndin tvö stofn
uðu til sérstakrar nefndar sem
rannsakaði landamæraskærur.
I tilkynningu sem ungverska
sendiráðinu í Belgrad var send
segir að ef Ungveriar hunzi
þessa málaleitan, beri þeir
fulla ábyrgð á því ófremdar-
ástandi sem ríkjandi væri á
landamærum Júgóslafíu og
Ungverjalands. •—Reuter.
Allskonar
TÖSKUR
ddeídur
Austurstræti 10.
Bæjarfegararnir
lönthiðu 1038 smál.
af fiski
FJÓRIR togarar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur komu af veiðum í
s. 1. viku og lönduðu samtals 1038
smálestum af fiski, en höfðu enn-
! fremur 30,7 tonn af lýsi, 20,3 tonn
af grút og 11,4 tonn af mjöli. Um
200 manns höfðu vinnu í fisk-
verkunarstöð útgerðarinnar í
vikunni.
B.v. Hallveig Fróðadóttir land-
aði 8. þ. m. ísuðum fiski sem hér
| segir: þorskur 279 tonn, ýsa 3 (/2
\ tonn, ufsi 2Vz tonn. Ennfremur
i hafði skipið 6 tonn af lýsi og 6,9
1 tonn af grút. Það fór aftur á veið-
ar 9. þ. m.
B.v. ión Þorláksson landaði b.
þ. m. ísfiski sem hér segir: þorsk-
i ur 214 tonn, ufsi 29 tonn, karfi 18
! tonn, ýsa 4 tonn og annar fiskur
hafði skipið 7,6 tonn af lýsi og
í fiskimjöl 8 tonn. Ennfremur
8,4 tonn af grút. Það fór aftur á
veiðar 6. þ. m.
B.v. Þorsteinn IngólfssOn land-
aði 7. þ. m. ísuðum fiski sem hér
segir: þorskur 225 tonn, ufsi 39
tonn, karfi 25 tonn, ýsa 4Va tonn,
annar fiskur í fiskimjöl 7 tonn.
Ennfremur hafði skipið 7,5 tonn
af lýsi og 5 tonn af grút. Skipið
fór aftur á veiðar 9. þ. m.
B.v. Jón Baldvinsson landaði
6. þ. m., sem hér segir: Saltaður
þorskur 136 tonn, saltaður ufsi
24 tonn, ísvarinn þorskur 20 tonn,
Ennfremur hafði skipið 11,4 tonn
af mjöli og 9,6 tonn af lýsi. Skip-
| ið fór aftur á veiðar 7. þ. m.
B.v. Ingólfur Arnarson fór á
veiðar 25. apríl.
B.v. Skúli Magnússon fór á
veiðar 27. apríl.
! B.v. Pétur Halldórsson fór á
veiðar 28. apríl.
B.v. Þorkell máni fór á veiðar
30. apríl.
Sú fyrsfa frá
stríðslokum
LUNDÚNUM 12. maí: — Ráð-
herrar í brezku og þýzku stjórn-
inni komu í dag saman til fund-
ar í Lundúnum. Er þetta fyrsta
ráðstefna Breta og Þjóðverja um
efnahagsmál sem efnt er til frá
stríðslokum. — NTB-Reuter.
Byssumenn sigursælari
OXFORD — Skotklúbbur Ox-
fordháskóla sigraði bogaskyttu-
klúbb sama skóla í keppni sem
fram fór nýlega. Byssumenn
fengu 398 stig og bogmenn 391.
Aðalfundur Félags
mafvörukaupmanna
og Sambands smá-
söluverzlana
AÐALFUNDUR Félags matvöru-
kaupmanna í Reykjavík var hald-
inn 20. apríl s. 1.
Stjórn félagsins skipa: Guð-
mundur Guðjónsson, sem nú var
kosinn formaður í 19. sinn, Sigur-
liði Kristjánsson, Axel Sigurgeirs
son, Björgvin Jónsson og Lúðvik
Þorgeirsson. í varastjórn: Gústaf
Kristjánsson, Kristján Jónsson Og
Pétur Kristjánsson.
Hinn 28. apríl varð félagið 25
ára og var þess minnzt með hófi
í Tjarnarkaffi.
í tilefni afmælisins og fyrir vel
unnin störf voru gerðir að heið-
ursfélögum kaupmennirnir Ólaf-
ur Jóhannesson og Sigurður Þ.
Jónsson.
Aðalfundur Sambands smásölu
verzlana var haldinn 29. apríl s.l.
Á árinu hafa 3 sérgreinafélög
gerzt aðilar að S. S.: Félag ísl.
bókaverzlana, Skókaupmanna-
félagið og Kaupmannafélag Siglu
fjarðar, auk einstaklinga. Eru nú
10 sérgreinafélög með tæplega
400 verzlanir innan samtakanna.
Formaður S. S. var endurkjör-
inn Jón Helgason, einnig vara-
formaður Kristján Jónsson og
gjaldkeri Páll Sæmundsson.
McCarthyömium
kafinn
KAUPMANNAHÖFN, 11. maí: —
McCarthy, öldungadeildarþing-
maður hefur lýst því yfir, að upp
lýsingaþjónusta S.Þ. hafi sent út
til flestra Evrópulandanna nýja
kvikmynd, sem sýnir lífið í Banda
ríkjunum á hinn grófasta og sóða
legasta hátt. Heldur hann því
einnig fram, að bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hafi sent frá sér
kvikmyndir, sem ekkert séu betri
og gefi alranga hugmynd um líf-
ið í Bandaríkjunum.
Öldungadeildarþingmaðurinn
sagði, að sóðalegustu göturnar
væru ætið notaðar til kvikmynda
tökunnar, spilling næturlifsins
væri einkum dregin fram í dags-
Ijósið o. s. frv. — Reuter-NTB.
Á BE/.T AÐ AUGLÝSA A
T / MORGUNBLAÐIN U T
••••••••■••■•••■••••••■••••.....................
: |
Dodge báll
j með 4ra hjóla drifi og rúmgóðri yfirbyggingu, til sölu. •
• Bíllinn er í góðu lagí og vel útlítandi. Tilvalinn í óbyggða- i
; ferðir, fyrir bændur, iðnaðarmenn eða sendibílastöð. — I
: :
; Uppl. í Bílasmiðjunni h. f., Skúlatúni 4. •
<^0 M A R K Ú S Eftir Ed Dodd —»
3Y THE V/AY' DOCTCQ, I DON'T ) AFTEC ALL, X CFL ; Al
WANT TO SEEM INQUISITIVE, JWONDEPED ABOUT \ I'LI. r
BUT r'D LIKE TO SEE THAT ^ THAT BUCK5KIN < IT TO
. .__ CONFESSIONy POUCH F0(2 A X CO.V.L
„ 1 LONC-i TIME/J^ ALONG
■,yý> Ji'1 " VítfSÚUD'líke TO see itJ;
fer C 1 X-Z') TOO, BIC. HEAET/y^
1) — Ég hefi verið að leita að
ykkur. Nú er ég búinn að ákveða
að fara með játninguna til lög-
reglunnar.
2) — Ég vil, að það verði bund
inn endi á þetta leiðindamál. —
— Það finnst mér ósköp skilj-
anlegt, læknir. Því fyrr, þeim
mun betra.
3) — Ég vona, að ég gerist
ekki of nærgöngull, þótt ég fari
þess á leit við þig, að fá að sjá
játninguna.
4) — í sannleika sagt, var ég
lengi að velta því fyrir mér,
hvað var í leðurhylkinu. — Mig
langar einnig til að sjá hana. —
Það er sjálfsagt að sýna ykkur
játninguna. Komið með mér.