Morgunblaðið - 21.06.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.06.1953, Blaðsíða 12
12 MORGUISBLAÐIÐ Sunnudagur 21. júní 1953 — Reykjavíkurbréf Framh. af bls. 7 við söluverð sömu vara erlendis. Þá, og þá fyrst verða íslenzkir bændur í raun og sannleika sjálf- stæðir. Þá verða þeir færir um að nota sér gæði lands vors til fulls og hafa opnar leiðir til ó- takmarkaðrar afurðasölu. Næsta sporið TIL þess að íslenzkur landbúnað- ur geti víkkað svigrúm sitt með þessu móti þarf bændastéttin að gera stórt átak, einbeita hug sín- um og kröftum að miklum tækni- legum framförum, meiri verk- tækni og verklagni en verið hef- ur á ýmsum sviðum fram til þessa. I ferð sinni til nágrannaland- anna komust bændurnir um dag- inn að þeirri niðurstöðu, að bún- aðarlönd nágrannaþjóða vorra hefðu ekki verið ræktuð til slíkr- ar fullkomnunar sem raun er á, nema bændur og búalið þar hefði unnið hörðum höndum. Við búið er að erfiðara verði hér um slíka fullkomnun í ræktunar- menningu, en í hinum suðlægari löndum. Til þess að okkur farnist vel í þessu efni, þurfum við að kosta kapps um að samstilla kraftana og varast að annarleg sjónarmið trufli það starf sem leysa þarf á næstu árum. Bændur og búhöldar geta gert þjóð sinni, sveit og bændastétt- inni jafn mikið gagn í hvaða stjórnmálaflokki sem þeir standa. Aðalatriðið er, hvernig þeir haga búskap sínum, hvort hann er til fyrirmyndar eður eigi. Annarleg sjónarmið EN meðan bændapólitík Fram- sóknarflokksins er rekin álíka og hún hefir verið rekin' í sveitum landsins undanfara áratugi, reynt að draga hvern bónda í sinn pólitíska dilk, og það látið ráða úrslitum um afstöðuna til hans, í hvaða flokki hann er, og hver er líklegastur að notfæra sér at- kvæði hans á kjördegi, er verið að vinna leynt og Ijóst að því að sundra bændastéttinni og tor- velda það, að hún fái notið sín, fái fullt gagn af vinnu sinni og erf- iði. Sé þeim mönnum alvara, er hæst gala um nytsemi búskapar- ins fyrir þjóðina og velferð henn- ar, ættu þeir að sýna vilja sinn í verki, með því að leggja Eflúð við, að reyna að sameina bænd- ur til þeirra átaka sem nauðsyn- leg eru fyrir framfarir þær í búnaðarháttum sem standa nú fyrir dyrum. En sá félagsskapur bændanna sem tekið hefur að sér að leysa úr viðskiptamálum þeirra svo þau geti orðið sem hagfeldust, verð- ur að vera rekinn með þeim hætti að hann geti notið hins al- menna trausts, sem honum er nauðsynlegt til þess að hann geti leyst hlutverk sitt sómasamlega úr hendi. En eins og komið hefur fram á síðustu tímum og öllum lands- lýð er ljóst orðið, fer því fjarri að samvinnufélög bændanna séu rekin með þeim hætti að viðun- andi sé fyrir félagsmenn, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Fundur ,Stefnis‘ í ftufnurfirði í dug ííu ungir Sjálfsfæðismenn og konur flyfja ávörp Guðlaugur. Matthías. Hörður. Ingibjörg. Einar. Elinborg. f dag kl. 2,00 efnir Stefnir, félag ungra Sjálfstæðismanna í Ilafnarfirði til útbreiðslufundar í Sjálf- stæðishúsinu fyrir hafnfirzka æsku. Á fundinum munu 10 ungir Sjálfstæðismenn ræða um störf og stefnu Sjálfstæðisflokksins og munu Hafnfirðingar fjölmenna á fundinn og hlusta á hið unga fólk ræða viðhorfið til landsmálanna. — Ræðumenn á fundinum verða: Kristján Guð- I mundsson, bifreiðastj., Ingibjörg Jónsdóttir, húsfrú, Ólafur Pálsson, húsasm., Hörður Kristinsson, símvirki, Guðlaugur Þórðarson, verzlunarm., Katrín Káradóttir, nemi, Sveinn Sveinsson, verka- maður, Þorgrímur Halldórsson, loftskeytamaður, Mattbías Mathísen, stud. jur. og Einar Sigurjóns- son, sjómaður. — Fundarstjóri á fundinum verður frú Elínborg Stefánsdóttir. — Ekki er að efa að Hafnfirðingar muni fjölmenna á fundinn og hlusta á hinn skörulega málflutning ungra Sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði. — Berlínarujpp|>otin Frh. af bls. 9. istastjórnanna og verkamanna. Hafi það bæði komið í Ijós í Austur-Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu undanfarið. AKRÓPÓLIS í Aþenu er þeirrar skoðunar, að at- burðirnir í Austur-Berlín eigi eftir að hafa í för með sér hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir kommúnista- forsprakkana og séu aðeins forleikur þess, sem síðar verður. Eru önnur grísk blöð sömu skoðunar, m. a. VIMA og EMBROS, sem segja, að uppþotin í Austur- Berlín séu alvarlegasfa áfallið, sem Kremlstjórnin hefur orðið fyrir og raunverulega einnig hið fyrsta. Gríska blaðið ETSNIKOS KYRIX bendir einnig á það, að Evrópa hafi að mestu komizt klakklaust út úr einræði miðaldaskipulagsins og svo muni einnig fara nú. Sýni uppreisnin í Austur-Berlín það á áþreifanlegan hátt. Þjóðhálíðin í Kjósinni VALDASTÖÐUM, 17. júní — Þjóðhátíðardagsins var minnst með samkomu að Félagsgarði og fjölmenntu sveitungar þangað. Eggert Ellertsson, form. Ung- mennafélagsins setti samkomuna og bauð gesti velkomna. Því næst flutti séra Kristján Bjarnason á Reynivöllum ræðu, og á eftir söng karlakórinn nokkur lög, undir stjórn Odds Andréssonar á Neðra-Hálsi. Því næst voru sýnd- ir þjóðdansar og að lokum var stiginn dans. Byggingafél. verka- manna fær nýjar lóðir Á FUNDI bæjarráðs á föstudag- inn, voru samþykktar lóðaút- hlutanir nokkrar með bygging- arfresti til 1. september n. k. Meðal þeirra aðila sem úthlutað var lóðum er Byggingafélag verkamanna, sem ætlar að byggja níu hús á lóðunum Stang- arholt 2 til 36, og einnig var félaginu úthlutað lóðin 17 við Stórholt. amenn VIÐ New York Times, eitt helzta og stærsta blað Bandaríkjanna, vinna hvorki meira né minna en 20 ritstjórar og 600 blaðamenn auk allra annarra, sem vinna við það að staðaldri. Arnaðaróskir á þjóðhálíðardaginn MEÐAL árnaðaróska, sem For- seta fslands bárust á þjóðhátíð- ardaginn 17. júní, voru heilla- skeyti frá Friðriki II. Danakon- ungi, Gústaf VI. Adolf Svíakon- ungi, Pasikivi Finnlandsforseta, Eisenhower Bandaríkjaforseta, Theodor Heuss, forseta sam- bandslýðveldisins þýzka og Preza Pahlavi íranskeisara. Á þjóðhátíðardaginn bárust utanríkisráðherra heiliaóskir er- lendis frá, þar á meðal frá sendi- herrum Belgíu, Finnlands og Spánar í Osló, frá sendiherra ís- raels í Stokkhólmi, frá aðalræð- ismanni íslands í Tel-Aviv, ísra- el, og frá ræðismanni íslands í Þjóðhátfðardagurinn í Kaupmannahófn Einkaskeyti til Mbl. KAUPMANNAHÖFN, 18. júní — Þjóðhátíðardaginn höfðu íslenzku sendiherrahjónin í Höfn þoð inni, og sátu það um 130 íslendingar og danskir íslandsvinir. Voru salarkynni skreytt fögrum sum- -arblómum í litum íslenzka íán- ans. í gærkvöldi var fundur í ís- lendingafélaginu. Þar hélt Sig- urður Nordal, sendiherra, ræðu, Elsa Sigfúss söng, Axel Arnfjörð lék á slaghörpu og loks var sýnd íslenzk litkvikmynd. —Páll. Trúlofunarhringar Við hvers manns smekk. Póstsendi. — Kjartan Ásmundsson gullsmiður Aðalstr. 8. Reykjavlk. Horðfiskpressur til sölu og sýnis á fiskverkunarstöð Jóns Gíslasonar, Hafnarfirði. Vélsfjórafélag íslands Framhaldsaðalfundur félagsins verður haldinn miðviku- daginn 24. júní klukkan 20 í fundarsal Slysavarnafélags íslands, Grófin 1. — Félagsmenn fjölmennið. STJÓRNIN Kosningaskrifsfofa í Xópavogl KO SNIN G ASKRIFTOFA Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogshreppi er I Neðstutröð 4, sími 7679. — Skrifstofan er opin kl. 2—10 dag- lega. LILLU- k jarnadrykk jair- duft Bezti og ódýrastl gosdrykkurina. H.f. Efnagerð ReykjaTfktar æL Meanwhíle Cf CONSTABLE M-8AIN, WHO IS HUNTINS FOR DOCTOR HOLMAN, CUESTIONS !' 1 I IUNJ 1 / Y.i- JNDIANS ; f, Vvb: Yó Ðlo MEAfir M A R K Ú S Eftir Ed Dodd JI’AA LOOKINS FOR A /V\AN NAMED 1 HOLMAN, CROW TALKS... A DOCTOR ... HAVE YOU HEARD ANVTHINS OF Wh’tTE MEOtC/NE MAN's —5 ÍWELL, HAVE YOU SEEN ANV- i BODY WHO LOOKS LIKE S, ' THIS PICTURE? 1) Bragi lögregluforingi er um þessar mundir á meðal Indíánanna, sem Franklín hefir stundað með svo mikilli natni. Hann er að spyrjast fyrir um Hólm lækni. 2) Heyrðu, Krákutunga. Ég er að leita að lækni, sem heit- ir Hólm. Hefurðu haft nokkrar spurnir af hvítum lækni hér um slóðir? 3) Nei, Rauðstakkur, það erj 4) Jæja, en hefurðu þá séð enginn hvítur læknir hér hjá nokkurn, sem líkist þessari Klettavatni. mynd? Æí t: ]

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.