Morgunblaðið - 02.08.1953, Qupperneq 4
4
MOKGTJTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. ágúst 1953 j
214. dagur ársins.
Árdegisfluiöi kl. 11.20.
SiSdegisflæði kl. 0.17.
Næturvörður er í LaugavegS
'Apóteki, sími 1616.
HelgidugsIæUnir er Ragnar Sig
urðsson, Sigtúni 51, sími 4394.
Rafmagnsskömmtunin:
1 dag er skömmtun í 5. hverfi
frá kl. 10,45 til 12,15 og í 1. hverfi
frá kl. 11,00 til 12,30. — 4 niánu-
daginn er skömmtun í 5. hverfi
frá kl. 9,30 til 11,00, í 1. hverfi
frá kl. 10,45 til 12,15, í 2. hverfi
frá kl. 11,00 til 12,30, í 3. hverfi
frá kl. 12,30 til 14,30 og í 4. hverfi
frá kl. 14,30 til 16,30. — Á þriðju
daginn er skömmtun í 1. hverfi
frá kl. 9,30 til 11,00, í 2. hverfi
frá kl. 10,45 til 12,15, i 3. hverfi
frá kl. 11,00 til 12,30, í 4. hverfi
frá kl. 12,30 til 14,30 og í 5. hverfi
frá kl. 14,30 til 16,30.
• Afmæli •
• *'* >- V.
Sextug var í gær Guðrún Ágústa
Jóhannsdóttir, Hallveigarstíg 8A.
60 ára er í dag Guðmundur
Gíslason frá Stykkishólm'., nú til
heimilis að Háteigsvegi 18.
Ólafur Blöndal, skrifstofustióri,
Hringbraut 45, átti 65 ára afmæli
í gær, 1. ágúst.
80 ára er í dag Ingunn Eyjólfs-
dóttir, kona Böðvars Magnússon-
ar hreppstjóra á Laugarvatni.
• Brúðkaup •
1 dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Garðari Svavarssyni
ungfrú Kristín Kristinsdóttir
(Ingvarssonar, orgelleikara) og
Kolbeinn Guðjónsson (Guðjóns-
sonar, Eyrarbakka). Heimili
þeirra verður á Bústaðaveg 73.
Sunnudaginn 25 f.m. v"ru gef-
in saman í hjónaband að Völlum í
■Svarfaðardal af séra Stefáni Snæ-
varr: Jórunn Sigurðardóttir skrif
sofumær, Dalvik og Jóhannes Ár-
skóg, bifvélavirki, Dalvik. Brúð-’
hjónin fóru flugleiðis til Danmerk
ur s.l. miðvikudag. Ileimili þeirra
verður á Dalvík.
Bólusetning gegn
barnaveiki
Pöntunum veitt móttaka þriðju
daginn, 4. ágúst n. k. kl. 10—12
f.h. í sima 2781.
Með síðustu ferð Gulifoss
kom hingað til lands Mr. R. W.
Munro, blaðamaður við Jagblaðið
Scotsman, sem gefið er út í Edin-
borg. —
Að gefnu tilefni
skal það tekið fram, að rækt-
unarráðunautur Reykjavíkurbæj-
ar hefir ekki með leikvallagerð
bæjarins að gera. Aftur á móti er
það garðyrkjuráðunautur bæjar-
ins, en yfirstjórn leikvallanna er
í höndum fræðslufulltrúa.
• Útvarp •
Sunnudagur, 2. ágúst:
8.30—9,00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 11.00 Messa í Að-
ventkirkjunni, séra Emil Björns-
son. 12,10 Hádegisútvarp. 13,15
Létt lög (plötur). 15,15 Miðdegis-
tónleikar (plötur). 16,15 Útvarp
til íslendinga erlendis. 16,30 Veð-
urfregnir. 16.35 Létt lög (plötur).
18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen). 19,25 'Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Josep Szigeti
leikur á fiðlu (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Tón
leikar. 20.35 Frá setningu norræna
bindindisþingsins í Reykjavík —
22,00 Fréttir og veðurfregnir
22.05 Danslög (plötur). -— 23.30
Dagskrárlok.
Mánudagur, .3. ágúst:
8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 12.10 Hádegisút-
varp. 13.15 Létt lög (plötur). 15.30
Miðdegisútvarp. 16.30 Veðurfregn-
ir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón
leikar: Lög úr kvikmyndum (plöt-
ur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20,20 Minnzt frídags
verzlunarmanna. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.05 Danslög (plöt
ur). 23.00 Útvarp frá dansleik
verzlunarmanna í Sjálfstæðishús-
inu: Hljómsveit Aage Lorange
leikur. 24.00 Dagskrárlok.
ÞriSjudagur, 4. ágúst:
8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádeg
isútvarp. 16.30 Veðurfregnir. —
19,25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleik
ar: Þjóðlög frá ýmsum löndum —
(plötur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Erindi: Landnám
Islendinga í Norður-Dakota, fyrra
erindi (Richard Beek prófessor).
20.55 Tónleikar: Jeanita Melin
syngur létt lög (Carl Billich að-
stoðar). 21.15 Á víðavangi (Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal).
21.30 Tónleikar: Hljómsveitarlög
úr „Carmen“ eftir Bizet (plötur).
21.45 íþróttaþáttur (Sigurður
Sigurðsson). 22.00 Fi'éttir og veð-
urfregnir. 22.10 Kammertónleikar
Duo í A-dúr fyrir fiðlu og píanó
eftir Schubert (Fritz Kreisler og
Serge Rachmaninoff leika plötur).
22.35 Dagskrárlok.
Fríkirkjan
Áheit á Fríkirkjuna í Reykjavík
E P og L G kr. 50,00. S E 100,00.
Kærar þakkir. — Gjaldkerinn.
Erlendar stöðvar:
Danmörk: Stuttbylgjuútvarpið
er á 49.50 metrum á tímanum
17.40—21.15. — Fastir liðir: 17,45
Fréttir; 18.00 Akuelt Kvarter;
21.00 Fréttir. Á sunnudögum kl.
17.45 fylgja Iþróttafréttir á eftir
almennum fréttum.
í dag: 19,15 Uppskeran er haf-
in, Asger Olsen segir frá; 19,45
Edith Oldrup syngur norræn söng
lög; 20,05 Framhaldssagan, Pa’"bi
og mamma og við eftir Johan
Borgen; 20,30 Sven Henningsen
talar um Kóreu.
Á morgun: 19,30 McCarthy —
maður og hugtak, erindi Eigil
Steinmetz; 20,30 Fyrir framan ar-
ininn, rabb tveggja.
Á þriðjudag: 18,20 Vinsælustu
revyulögin í sumar; 19,30 The
United States Air Force Band,
hljómsveitin sem heimsótti Is-
land í vetur, sem nú er í heim-
sókn í Danmörku leikur; 20,20
Leikritið Spádómurinn eftir Einer
Plesner. —
Noregur: Stuttbylgjuútvarp er
á 19 — 25 — 31 — 41 og 48 m.
Dagskrá á virkum dögum að mestu
óslitið frá 5.45 til 22.00. Stillið að
morgni á 19 og 25 metra, um miðj-
an dag á 25 og 31 metra og á 41
og 48 m. þegar kemur fram á
kvöld. — Fastir liðir: 12.00 Frétt-
ir með fiskifréttum; 18.00 Fréttir
með fréttaaukum. 21.10 Fréttir.
i 1 dag: 9,55 Hámessa í Nes-
kirkju í Hallingdal; 12,20 Þekktir
marsar; 15,45 Johan Öian og Kjell
Bækkelund leika fjórhent á pía-
[ nó verk eftir Rachmaninoff; —
j 19,40 'Symfóníuhljómsveit leikur
í forleik að Titus eftir Mozart og
Ah. Perfido eftir Beethoven; 20.05
Undir norsku flaggi. Rætt við sjó-
menn í Rotterdam.
Á morgun: 10,35 Frásögn áf
norskri húsmóður í Godthaab í
Grænlandi; 16,45 Fjármálayfirlit,
prófessor Erling Petersen; 17,00
Frá ferðalagi á Rogalandi; 18,40
Erindi um landkönnuðinn, Louis
de Rougemont.
Á þriðjudag: 17,00 Else Jena
syngur lög eftir Grieg; 17,45
Serenaða fyrir strengjasveit eftir
Dag Wirén; 18,40 Olav Rögeberg
ritstjóri: Dagblöð á Norðurlönd-
um; 19,00 Frá heimsmeistara-
keppni í harmonikuleik í Kaup-
mannahöfn; 21,30 Tom Kristen-
sen ræðir um skáldið og gagnrýn-
andann. —
SvíþjóS: Útvarpar á helztu stutt
bylgjuböndunum. Stillið t.d. á 25
m. fyrri hluta dags en á 49 m. að
kvöldi. — Fastir liðir: 11.00
klukknahringing I ráðhústumi og
kvæði dagsins síðan koma sænskii
söngkraftar fram með létt lög;
11.30 fréttir; 16.10 barna- og ungí
ingatími; 18.00 fréttir og frétta-
auki; 21.15 Fréttir.
I dag: 10,00 Hámessa; 11,15
Max Skalka leikur á fiðlu; 13,05
Upplestur úr Skáldskapur og sann
leikur eftir Göthe; 14,50 Symfónía
nr. 5 í e-moll eftir Tschaikovsky;
18.30 Gamlir og nýir söngvar frá
Englandi; 19,16 Jarl ekkjumaður,
gamanleikur eftir Vilhelm Móberg.
Á morgun: 17,40 Erindi um
vandamál vestrænnar tækni; 18,30
Paul Knowles, bandarískur söngv-
ari með sænskri hljómsveit; 19,00
Framhaldssagan Martin gaar i
gráset; 21,00 Thomas Funck syng
ur og leikur á gitar sjóaralög.
Á þriðjudag: En affár í konst,
smásaga eftir Ragnar Holmström;
16.30 Herbert Lyrdal leikur á pía-
nó eftir Brahms og Beethoven;
19.30 Framhaldssakamálaleikritið
„Fallet Gregory; 20,00 Norræn
lög sungin og leikin.
England: General Overseas Ser-
vice útvarpar á öllum helztu stutt
bylgjuböndum. Heyrast útsending-
ar með mismunandi styrkleika hér
á landi, allt eftir því hvert útvarps
stöðin „beinir" sendingum sínum.
Að jafnaði mun bezt að hlusta á
25 og 31 m. bylgjulengd. Fyrri
hluta dags eru 19 m. góðir en þeg
ar fer að kvölda er ágætt að
skipta yfir á 41 eða 49 m. Rúss-
neskar útvarpstruflanir eru oft til
leiðinda í nánd við brezkar útvarps
stöðvar. — Fastir liðir: 9.30 úi
forustugreinum blaðanna; 11.00
fréttir og fréttaumsagnir; 11.15
íþrottaþáttur; 13.00 fréttii; 14.00
klukknahringing Big Ben og
fréttaaukar; 16.00 fréttir og
fréttaumsagnir; 17.15 fréttaauk-
ar; 18.00 fréttir; 18.15 íþrótta-
fréttir; 20.00 fréttir; 23 fréttir.
í dag: 12,00 Gamanþátturjnn
„The forces Show“; 14,15 Píanó-
konsert í A-dúr eftir Grieg; 16,45
Guðsþjónusta í St. Pálskirkju í
London; 17,30 Gamanþátturinn
Much-binding-in-the-marsh; 18,30
Dagskrá Rauða krossins; 20,15
For Common Good um S.Þ.; 21,15
Óperuþáttur; 21,45 Spurninga-
þáttur skólanna; 22,15 Kvöld-
vaka frá Wales.
Á morgun: 10,15 Erindi um
vatnsvirkjanir Pakistan; 15,30
Tónverk eftir Palestrina; 16,15
Erindi um Bandaríkin, 5. Business
and Politics; 16,30 Frjálsíþrótta-
keppni Bretlands gegn Frakklandi
19,00 Frásögn af lifnaðarháttum
hvítra maura; 20,15 Leisure time;
21,15 Óskalagaþáttur.
Milljón kíiómetro
keyrsla er algeng á þeim W H I T E bifreiðum,
sem hér eru. — Og þessir milljón kílómetrar
hafa vcrið keyrðir með sömu vélinni.
W H I T E bifreiðar eru hiklaust með sterk-
ustu vörubifreiðu.m, sem hingað flytjast.
O 11% 14 ms
LAUGAVEG 166
MUNIÐ
HÁTÍÐAHÖLD VERZLUNARMANNA
É TlVOLl