Morgunblaðið - 15.09.1953, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.09.1953, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. sept. 1953 iinar Benedikfsson - mínnsng Fæddur 21. júlí 1900. Dáinn 3. september 1953. GÓÐUR vinur er horfinn bak við hið mikla tjald eilífðarinnar, — horfinn okkur öllum, en þó að- eins um stundarsakir. Hann varð ferðbúinn á undan okkur, og fékk því eigi að bíða lengur, heldur var kallaður í skyndi, yf- ir á land eilífðarinnar — á land- ið þar sem sólin aldrei gengur til viðar og þar sem varir eilíft sum- ar, en þar biðu hans æðri störf. Við mannanabörn, erum aldrei viðbúin því, sem við vitum þó vel að koma muni, og verðum þess daglega vör að þannig er lífsins saga. Því setur mann hljóðann þá er maður verður þess var, að góðir vinir og sam- ferðamenn eru í skyndi kvaddir burtu til æðri staría, á landið þar sem ríkir eilífur friður. Svo fór fyrir mér nú, er ég fyrir nokkrum dögum heyrði andláts- fregn vinar míns, Einars Bene- diktssonar, loftskeytamanns, en hann lézt á sjúkrahúsi í Kaup- mannahöfn hinn 3. þ. m. Einar var sonur hjónanna Ásu Halldórsdóttur og Benedikts Ár- mannssonar. Hann var yngstur af 11. systkinum sínum, fæddur hér í Reykjavík 21. júlí 1900 og varð því 53 ára. Strax um ferm- ingu varð hann starfsmaður hjá h.f. Kveldúlfi, en árið 1921 nam hann loftskeytafræði á fyrsta loftskeytaskólanum sem hér var. Hann var því í hópi þeirra fyrstu loftskeytamanna, sem hér luku námi í þessari námsgrein. Strax að námi loknu réðist hann til h.f. Kveldúlfs sem loftskeyta- maður og starfaði hjá því ágæta félagi til 1930, en þá réðist hann til Eimskipafélags íslands, sem hann starfaði síðan hjá til dauða- dags. Lengst af var hann á e.s. Lagarfossi, en síðan á nýja Lag- arfossi og Tröllafossi. Hann var einn af þessum trú- verðugu og dyggu starfsmönnum, sem vann verk sitt með mikilli prýði í kyrþey, og einskis óskaði frekar en að leysa starf sitt af hendi með sem mestri prýði til gagns fyrir húsbændur sína og sóma fyrir stétt sína. Einar var sérstakt prúðmenni, svo af bar og fremur hlédrægur, þó starfaði íiann all-mikið að félagsmálum fyrir stétt sína, enda var hann einn af stofnendum Félags ís- lenzkra loftskeytamanna. Mann- kostir hans og prúðmennska sat þar í öndvegi, sem í öllu starfi hans. Hann var hagur vel og gerði ýmsa smekklega smíðamuni í tómstundum sínum. Einnig var hann söngelskur mjög og hafði mikla ánægju af allri hljómlist, þótt ekki gæti hann verið beinn þátttakandi þar í, vegna starfs síns. Einar kvæntist Þórunni Þor- steinsdóttur frá Upsum í Svarf- aðardal, hinn 20. október 1933 og lifir hún mann sinn. Heimili þeirra var fyrstu sex árin í Kaup- mannahöfn. og var þá oft gest- kvæmt af „löndum“ á þeirra ynd islega heimili, sem þau voru svo samhent í að fegra og prýða. Fluttust þau síðan hingað til Reykiavíkur og bjuggu hér æ sið an. Barna varð þeim eigi auðið, en kjördóttur eigr.uðust þau sem nú er um íermingaraldur. Er sár harmur kveðinn, af hans ágætu konu og dóttur, sem trega sinn elskulega maka og föður, sem var þeim alit, — já allt það bezta sem þessi vex-öld hefur upp á að bjóða. Sjómannsheimilin hljóta að fara ' Þérður Hjörleihson verkstjóri 59 ára á mis við margt, þar sem heimilis föðurinn er oft langdvölum fjarri sínum kærkomnustu ástvinum, og oft er__kvatt með klökkum huga, en sem betur fer, er þó oft svo, að: „Þá líður nóttin Ijúfum draum- um í svo Ijúft, að kuldagust þú finnur eigi, og fvrr en veiztu, röðull rís á ný, og roðinn lýsir yfir nýjum degi“. Eg víit, að hjartkær kona hans, dóttir og aðrir ástvinir, trúa því, að fyrr en varir eigi þau eftir að hittast á sólgiltri strönd, í landi ódauðleikans þar sem ekkert fær þau aftur skilið, en hann nú dvel- ur í elskulegum móðurfaðmi í hópi þeirra ástvina sinna sem á undan honum voru farnir. Með þakklátum huga og hjart- kæru þakklæti, kveð ég þig vin- ur, um leið og ég minnist ávallt drengskapar þíns og vináttu, sem hjá mér er skráð með gullnu letri, sem áldrei verður afmáð. 1 Jafnframt drýp ég höfði í þög- ulli bæn, og bið Hann sem öllu ræður, að styðja og styrkja þína ; elskulegu konu og dóttur, en ég ! veit, að þær vitdu segja: | „Ég vildi ég gæti fléttað þér fagran minniskrans, en fyrir augun skyggja heitu tárin“. Minningin Iifir. M. H. SOLUM ADtiR Ungur áhugasamur maður með nokkra reynslu, óskar eftir starfi, sem sölumaður, nú þegar eða sem fyrst, merkt: ,-,Áhugasamur — 516“. Vil kaupa nýja luick Mirgii eða aðra álíka góða ameriska bifreið. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir n. k. miðvikudagskvöld, merkt: „Einka- bifreið — 97“. — Morgunblaðið með morgunkaífinu - MÁNUDAGINN 14. sept. átti einn heiðursmaður í sjómanna- stétt vorri fimmtugs afmæli. — Maður þessi er Þórður Georg Hjörleifsson, skipstjóri. Það þarf ekki að kynna mann þennaji frekar fyrir Reykvíkingum eða sjómönnum yfirleitt, því hann er nafnkunnur maður hér, enda borinn og barnfæddur hér í bæ, og sjómennsku hefur hann stund- að frá barnæsku. Þórður er kominn af traustu og dugmiklu fólki í báðar ættir, sem ég ekki rek nánar hér, enda skiptir það minnstu máli, heldur hitt, hvernig lifir maðurinn lif- inu í samfélagi við meðbræður sína, en það er aðalatriðið hvern- ig það tekst. Ég held að enginn sem kynnzt hefur Þórði, geti bor- ið annað en að honum hafi tek- izt það með ágætum. Snemma beindist hugur hans að sjónum, og hafði hann varla slitið barnsskónum er hann réð- ist á sjóinn, enda var þá æðsta takmark karlmennskunnar að þreyta fangbrögð við Ægi. Flug- tæknin var ekki komin hingað til landsins þá, en hún virðist grípa hugi ungu mannanna nú til dags. Má vera að Þórður hefði orðið flugkapteinn, ef hann hefði verið ungur og upprennandi nú. Eins og eg gat um hér að fram- an hóf Þórður sjómennsku á unga aldri, og tvítugur eða nán- ar til tekið 1923 lauk hann far- mannaprófi frá Stýrimannaskói- anum í Reykjavík með ágætis einkunn. Það má segja um Þórð eins og Suðurnesjamennina, að fast hann sótti sjóinn og sækir hann enn, og þeir sem til þekkja vita hversu lánlega honum hefur farizt skipstjórnin. Menn, sem gera sjómennsku að ævistarfi sinu, ganga ekki að því gruíl- andi að það sé ekkert sældar- brauð að glíma við höfuðskepn- urnar, og ránardætur klappa manni ekki venjulega með silki- hönzkum, en sjómennirnir eru fljótir að gleyma erfiðleikum, þegar í land er komið eftir erfiða útivist. Þórður er hlédrægur maður, og lítið gefinn fyrir að láta bera á sér, eða halda sjálfum sér á lofti, og sjálfsagt er honum ekk- ert gefið um að aðrir geri það; þess vegna þori ég ekki að setja nafn mitt undir þessar fálæklegu línur, sem eiga aðeins að vera þakklætis- og virðingarvottur fyrir samleið á sjó og landi. Vinfastur og traustur er Þórð- ur, og áreiðanlega mun hann aldrei gera neitt nema það sem hann veit að er sannast og rétt- ast, og slíkum mönnum er hollt að kynnast og vera með, enda hefur honum haldizt vel á mönn- um í sinni skipstjórnartíð. Þórður er kvæntur frú Lovísu Halldórsdóttur; hún er sömuleið- is borin og barnfædd í Reykja- vík og hefur búið manni sínum yndislegt heimili á Bergstaða- stíg 71 hér í bæ. Þau hafa getið saman 5 mannvænleg börn og hafa búið saman í nær 25 ár. — Sjómannskonan á líka sína sögu, sem ekki verður skráð hér, en oft hvílir mikil ábyrgð á henni, og oft verður hún að vera skjót í ákvörðunum sínum, því oft steðja vandamálin að og þá verð- ur hún að gerat ein sínar ráðstaf- anir á eigin spýtur, en þeir sem til þekkja vita, hversu frú Lovisu Framh. á bls 12. iggert Magnússosi guHsmiður í «DAG verður jarðsettur að Kirkjuhvoli í Saurbæ Eggert Magnússon, gullsmiður í Tjalda- .hann erfði að nokkrum hluta eLii' Ben.edjkt. hr.eppstjóra, bróð- ur sinn. Bjó þar um áratug með bústýru. Hafði hún fyrir nokkr- um árum brugðið búskap en dvaldist þar í húsmennsku til dauðadags. Ein dóttir hans, Hild- nesi, en hann andaðist á heimili ur ag nafni, er á lífi, en hann sínu miðvikudaginn 2. þ. m. — átti iiana með Sigurlínu Guð- Eggert heitinn var fæddur að | jónsdóttur, bústýru sinni. — Hún Fagradal 18. ágúst 1866 og var því kominn á áttunda ár hins ní- unda tugar, er hann lézt. Eggert var sonur Magnúsar, hreppstjóra í Tjaldanesi, Jóns- sonar í Króksfjarðarnesi, Orms- sonar. Var sá ættbogi breið- firzkur og er mjög fjölmennur. ólst upp með föður sínum og á nú heima í Tjaldanesi. Eggert v'ar þegar í æsku dýra- vinur mikill og vildi líkna skepnum eftir mætti. Hann var nærfærinn við húsdýr og oft sóttur eða leitað ráða til hans, þegar þeim varð meint, og heppn Þeir voru bræðrasynir Snæbjörn, aðist veii en ekki þóttist hann hreppstjóri í Hergilsey og Eggert. Móðir Eggerts, kona Magnúsar, var Ólöf Guðlaugsdóttir frá Syðri Rauðamel Sigurðssonar prests þar Þorbjarnarsonar hins ríka á Lundum Ólafssonar. — Magnús í Tjaldanesi var vel að sér um margt, og þeir bræður hans. Einkum er hann kunnur sem mikilvirkur og ágætur hand- ritaskrifari. Hefur afskrifað fjölda bóka, og allt með snilld- arbragði. Mikið af handritum hans fórst í húsbrúna í Tjalda- nesi, en meginhlutinn er í Lands- bókasafninu og nokkur handrit hjá einstaklingum. nægilega vel að sér í þeirri grein og fór því til Reykjavíkur og var þar vetrartíma til að kynna sér dýralækningar hjá Magnúsi Einarssyni, dýralækni. Þegar heim kom, tók hann fyrir alvöru að stunda dýralækningar í nágrenni sínu. Hann gerði einnig oft að meinum manna, batt um beinbrot, kippti í lið o. fl. og þótti í flestu vel fara, enda framúrskarandi samvizkusam- ur. Á síðustu árum fékk hann styrk nokkurn til dýralækninga. Aldrei mun Eggert hafa tekið borgun fyrir læknishjálp. Eggert var greindur vel, og í- Eggert heitinn ólst upp með ,hugaði hvert mál vendiiega' en foreldrum sínum og hlaut.þotti ekki ávallt fljótur til úr- fræðslu góða miðað við það, sem | skurðar. Hann hélt fast við skoð- þá var venja. Gullsmíði nam un þa, er hann hafði skapað sér hann hjá snilldarsmiðnum Ein- a hverju máli og þótti enginn ari Skúlasyni á Tannastaðabakka veifiskati. Hann var maður vin- í Hrútafirði, enda prýðis hand bragð á öllu smíði hans og vand aður allur frágangur. Hlaut hann heiðursskjal fyrir gullsmíði frá landssýningunni 1911. Smíða- störf gín stundaði Eggert þó í hjáverktim yfirleitt. Nú fram eftir sumri vann hann að smíði sem ungur væri, og báru smíðis- gripirnir engin merki um hrörn- un. Hann hélt heilsu góðri til sæll, þótt hann léti ekki hlut sinn. Trygglyndur var hann og vinfastur svo af bar, reglumaður um hvern hlut og vildi í engu vamm sitt vita. Góðtemplari gjörðist hann um skeið og stóð að stúkustofnun en hvarf siðar frá því ráði. Hann gengdi ýmsum opinberum störfum, var t.d. lengi hreppsnefndarmaður og einn af helztu stofnendum Kaup- síðustu daga, en hafði lengi verið félags Saurbæinga. Annars var þungheyrður og sjón nokkuð , hann frekar óhlutdeilinn um farin að förlast. Nær þrítugur kvæntist Eggert frændkonu sinni, Hildi Eggerts- dóttur frá Kleifum. Þau voru bræðrabörn. Hófu þau búskap á Gilsfjarðarbrekku vorið 1895. — Hildur andaðist 1907. Þau hjón hreppsmál og sneiddi hjá deilum manna en kom jafnan fram sem mannasættir, enda sáttanefndar- maður til dauðadags. Eggert var vel meðalmaður á hæð, karlmannlegur á velli og vel á sig kominn, stilltur og fum- eignuðust tvær dætur er upp , iaus j fasi. Þótti hann á yngri komust, sem báðar eru dánar. I árum framarlega í flokki bænda Eftir lát Hildar fluttist Eggert að að háttprýði og yfirbragði og Gautsdal og kvæntist í annað Hélt þeim þokka sínum til ævi- sinn 1910. Var síðari kona hans ]oka. Ólöf, dóttir Jóns Sveinbjarnar- sonar bónda þar. Ólöfu missti Er með Eggerti heitnum horf- inn merkur og grandvar maður, hann eftir átta ára sambúð. Voru en eftir jjfrr minning mæt, þótt þau barnlaus. Var Eggeit þá um; maðurinn deyi. skeið húsmaður á Saurhóli og i fluttist síðan að Tjaldanesi, er Þorst. Þorsteinsson. Framtíðaratvinna Vanur skrifstofumaður með tungumálaþekkingu óskast nú þegar. — Umsókn ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmælum, ef fyrir hendi eru, óskast send afgr. Mbl. fyrir 20. þ. m. merkt: „Framtíð — 93“. Nýlegur amerískur stof uf lygil? til sölu. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m., merkt: „Flygill — 92“. Glæsileg 4—6 herbercfja íirúð með húsgögnum til leigu. — Tilboð merkt: „Sólrík — 91“, sendist afgr. fyrir 18. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.