Morgunblaðið - 15.09.1953, Page 16

Morgunblaðið - 15.09.1953, Page 16
Veðurúflif í dag: Austan gola dálítil rigning. SfarfsíþréfSamót Sjá bls. 9. 208. tbl. — Þriðjudagur 15. september 1953 Undirbúningur aS byggingu fiugvallar í Flafey á Skjálfanda Mikill áhugi meðal eyjaskeggja. Sennilegt, að framkvæmdir hefjist þegar í haust AKUREYRI, 14. sept. — Tveir Akureyringar fóru fyrir skömmu út í Flatey á Skjálfanda til að athuga um möguleika á byggingu flug- •wallar í eynni. Fundu þeir stað, sem sérstaklega væri heppilegur i þessum tilgangi og hafa Flateyingar brugðið við skjótt til fram- kvæmda. Er feikna mikill áhugi meðal þeirra á þessari hugmynd, enda mundi ílugvöllur í eynni ómetanleg bót í samgöngum eyja- skeggja, sem hafa löngum verið hið erfiðasta vandamál þeirra. UNDIRBUNINGUR HAFINN S.l. miðvikudag fóru þeir Árni Bjarnason og Gísli Ólafsson lög- fegluþjónn héðan frá Akureyri til Flateyjar á Skjálfanda. Var •ferðin farin í þeim tilgangi að athuga, hver skilyrði væru þar til lendingar flugvéla og hvort -Jbenta. mundi að byggja þar flug- völl. Þeir félagar eru miklir áhuga- menn um flugmál og vinna þeir að þessum málum í frístundum sínum og þessa ferð til Flateyjar íóru þeir algerlega á eigin spýtur. .Fóru þeir um alla eyna og grand- skoðuðu hana. EINN STAÐUR SÉRSTAKLEGA HEPPILEGUR Þeim félögum kom saman um, að einn staður á eynni bæri sér- • staklega af öðrum sem heppileg- ur fyrir flugvöll. Er hann á svo- nefndum Kirkjubökkum vestast á eynni, frá bænum Grund að Þórðarsteinshorni og mundi flug- brautin þá liggja því sem næst frá norðri til suðurs og gæti hún verið 950 m. löng og svo breið sem þörf krefur. Víðar á eynni cru möguleikar til flugvallar- gcrðar og geta brautir snúið í ýmsar áttir. •AHKILL ÁHUGI EYJASKEGGJA Á Kirkjubökkum eru harðir og möl. Gera þeir félagar ráð fyrir, hallalausir móar og grunnt á að fremur auðvelt muni að koma þarna upp fyrsta flokks grasvelli og muni kostnaður verða álíka mikill og ræktun túns af sömu stærð og flugbrautin. Feikna xnikill áhugi er ríkjandi |neðal eyjaskeggja á þessu máli og þeg- ar á fimmtudagskvöldið héldu þeir almennan borgarafund til að' ræða það nánar. JKOSIÐ í FRAMKVÆMDA- íNEFND Kjörin var þriggja manna fram Jtvæmdanefnd og eiga sæti í Jhenni þeir Emil Guðmundsson, odcfviti, Gunnar Guðmundsson ■og Ragnar Hermannsson. Á fundinum buðust menn til að lána fé til framkvæmda og söfnuðust loforð, sem svarar 50 þús. krónum. Einnig söfnuðust ■loforð fyrir 100 gjafadagsverk- um. — Þeir félagar, Árni og Gísli munu láta flugráði í té allar at- huganir sínar, og Búnaðarsam- band Þingeyinga mun vera fáan- legt .til þess að lána jarðýtu til að slétta með flugbrautina. Er ekki ósennilegt, að framkvæmdir hefjist þegar á þessu hausti, ef vel viðrar, annars á næsta vori. ERFIÐASTA VANDAMÁL FLATYINGA Flateyingar hafa lagt í margar fjárfrekar framkvæmdir þar úti í eyjunni og er þar nú blómleg byggð. Samgöngur hafa alltaf verið þeirra erfiðasta vandamál og er því ekki að undra, þótt þeir tækju vel hugmyndinni um flug- yöll þar úti. , Bæjakeppni í knaflspyrnu 104 TALSINS íbúar eyjarinnar eru 104 tals- ins. Lifa þeir á kvikfjárrækt og flytja fé sitt upp á Flateyjardal til beitar á sumrin, en dalurinn og eyjan eru einn og sami hrepp- urinn. Auk þess er allmikil út- gerð stunduð í eynni. Höfn er þar sæmileg og það stór, að minni strandferðaskip geta lagzt þar að bryggju. Að lokum má geta þess, að þeir Árni Bjarnason og Gísli Ólafs- son voru þeir fyrstu, sem athug- uðu möguleikana á flugvallar- gerð í Grímsey, en þar er nú, sem kunnugt er, verið að ljúka við byggingu flugvallar. — Vignir. Tveir báfar misslii nefin Raufarhöfn 14. sept. S.L. laugardagsnótt missti M.s. Áslaug frá Reykjavík og Val- þór frá Seyðisfirði öll net sín, þar sem þau voru að veiðum austur í hafi. Hvítá missti einnig nokkuð af netum sín- um. Slitnðu trossurnar í norð- an hvassviðri og haugasjó. Áslaug kom hingað til Rauf- arhafnar á vesturleið. Kváðu skipverjar veiði á djúpmiðum heldur trega. Var aflinn um hálf tunna í net. —Einar. Landlega Akranes- báta um helgina AKRANESI 14. sept.: — Rek- netjabátarnir hér og komu síðast af sjó á föstudag. Síðan hefir ver ið landlega, en í dag hafa flestir bátar héðan farið út á veiðar. Hvassafell kom hingað í gær með sement til Kaupfélagsins og Brúarfoss verður hér á morgun og lestar 225 tonn af hvalkjöti. — Oddur. Á sunnudaginn fór fram bæjarkeppni í knattspyrnu milli Reykjavíkur og Akraness. Jafntefli varð 2 mörk gegn 2. Leikurinn var sérlega skemmtilegur, hraður og tvísýnt um úrslit til síðuslu mínútu. Ríkharður Jónsson skoraði fyrir Akraness í fyrri hálfleilt með stórglæsilegu skoti. í byrjun síðari hálfleik skoraði Pétur Georgsson annað mark Akraness. Þá tóku Reykvíkingar við — Bjarnl Guðnason skoraði með skalla og skömmu síðar jafnaði Gunnar Gunnarsson fyrir Reykjavík. — Á| myndinni sjást Reykvíkingarnir í aftari röð en Akurnesingarnir í fremri röð. Á myndina vantat Halldór Sigurbjörnsson, Akranesi, sem yfirgaf völl i.-.n í síðari hálfleik vegna meiðsla. ■ ■ Olvaður maður með byssu handíekinn Á SUNNUDAGINN var ungur maður handtekinn á þjóðveg- inum skammt fyrir sunnan Straum sunnan Hafnarfjarðar. Var maðurinn þar með byssu og fór gáleysislega með hana, enda var hann undir áhrifum áfengis. Sú saga gekk hér i bænum í gær, að maðurinn hefði skotið á eftir bifreið sem um þjóð- veginn fór. Ekkert bað hef- ur komið fram við rannsókn málsins, sem benti til að svo sé. Maðurinn var-þarna í bifreið með tveimur félögum sínum. Kvaðst hann hafa verið á leið til fuglaveiða, en hafa stanz- að þarna til þess að prófa haglabyssu sína. w?-------------------------------:------ Lax- og silumgsveiði með lakara móti í ár Titaosr gerðar með álaveiði •, j í DAG er síðasti dagurinn sem lax- pg göngusilungsveiði í ám og vötnum er heimil lögum samkvæmt. Laxveiðitímabilið er frá 20. maí til 15. sept., en göngusilungsveiði er heimil frá 1. apríl til 15. sept. Silungsveiði í vötnum er hins vegar heimil til 27. sept. Sást síðast aðfara- nótt þriðjudags UM helgina auglýsti rannsókn- arlögreglan eftir leígubílstjóra 1 héðan úr bænum, Flórentínusi Jensen, Háteigsvegi 17. Maðurinn var enn ófundinn í gærkvöldi. Við rannsókn málsins hefur það komið fram, að hinn horfni mað- ur var við annan mann gestkom- andi í Múlabúðum við Suður- landsbraut, aðfaranótt þriðju- dags. Munu þeir hafa farið það- an um kl. 4 um nóttina, eftir að hafa setið þar að drykkju. Það er ekki vitað, hver sá mað- ur var, sem var þessa nótt í fylgd með Flórentínusi og er það ein- dregin tilmæli rannsóknarlög- reglunnar til manns þessa, að hann komi til viðtals hið bráð- asta. Leitin að þýzka stúd- entinum hefst í dag SNEMMA dags í dag hugðist leitarflokkur leggja upp frá Seljalandi og Ieita þýzka stúd- entsins sem saknað er á Síðu- jökli í Vatnajökli. Leitarflokkur undir stjórn Jóns Oddgeirs fór áleiðis aust ur á sunnudag, en bifreið þeirra bilaði svo að þann dag komust þeir ekki nema að Hellu. Héldu þeir áfram í gær og komu við á Kirkjubæjar- klaustri og héldu þegar til Seljalands. Veður þar eystra er afleitt, svartaþoka og rign- ing. Samt er ákveðið að hefja leitina í dag með aðstoð kunn- ugra manna úr byggðinni. Björgunarflugvél frá Kefla- víkurflugvelli er reiðubúin til þátttöku í leitinni, en með öllu er ófært flugveður. Mun vélin fara austur til leitar ef birtir og þá munu fara með henni menn úr flugbjörgunar- sveitinni. IIELDUR LELEG VEIÐI Morgunblaðið átti í gær tal við Þór Guðjónsson veiðimálastjóra. Kvað hann laxveiðina á þessu sumri víðast hvar vera með lak- ara móti, en ennþá liggja þó ekki fyrir fullnaðarskýrslur um veið- ina. p Stangaveiðin var nokkuð fyrir neðan meðallag víðast, en náði meðaltali í einstökum ám, t. d. Laxá í Þingeyjarsýslu. Veiðin var heldur betri norðan lands en sunnan. í samanburði við veiðina í fyrra var veiðin núna mjög lítil, enda var laxveiðin á s.l. ári langt yfir meðallag. Laxveiði í net var í ár nálægt meðallagi, en netjaveiðar eru nær eingöngu stundaðar á Suð- vesturlandi mest í Borgarfirði. HÁTT LAXVERÐ Fjögur tonn af laxi voru flutt út í ár, — til Frakklands og Englands. Er útflutningur- DENVER — Tilkynnt hefur ver- inn í ár helmingi minni en í ið, að Eisenhower forseti sé nú fyrra. kom.inn úr sumarleyfi. Varð Laxverðið innanlands var (leyfið mun skemmra en forset- með hæsta móti í sumar. Var, inn hafði gert ráð fyrir. kg. selt á 28—30 kr. í heilum löxum en 34—36 kr. í sneið- um. 1 SILUNGUR Göngusilungsveiði var víða lítil í ár. Verðið sem fyrir hann fékkst var gott. • Eins og áður segir er siglungs- veiði í vötnum heimil til 27. sept. en frá þeim tíma eru vötnin frið- uð til 31. janúar. Silungsveiðin virðist hafa orðið lakari nú en £ fyrra, nema í Mývatni, þar sem mikið veiddist. ÁLL VEIDDUR HÉR Á LANDI Lítið eitt af ál kom á mark- aðinn á þessu sumri og er það ný fisktegund á ísl. markaði. Eru hafnar skipulagðar til- raunir með álaveiði. Er állinn veiddur í gildrur í nærsveit- um Reykjavíkur. r Anægjulegl héraðsmól Ijálf- slæðismanna í Skagalirði Mófið sólli alis m 400 manns S. L. SUNNUDAG héldu Sjálfstæðismenn héraðsmót í samkomu- húsinu Bifröst á Sauðárkróki. — Aðsóknin að mótinu var ágæt5 en þar komu alls um 400 manns. Mótið hófst kl. 5 síðdegis með því að form. ungra Sjálfstæðis- manna í Skagafirði, Haraldur Árnason, Sjávarborg, flutti ávarp og stjórnaði siðan mótinu. Þá flutti Gísli Jónsson alþing- ismaður ræðu. Talaði hann aðal- lega um stjórnmálaviðhorfið í dag og myndun hinnar nýju rík- isstjórnar. Kom alþingismaður-' inn viða við og var ræðu hans mjög vel tekið. - Þeir Ketill Jensson óperu- söngvari og Karl Guðmundssois skemmtu með söng, upplestruna og gamanþáttum. Undirleik ann- aðist Dr. Urbaneic. ★ Um kvöldið var stiginn dans. Mótið sótti fólk úr öllum hreppum Skagafjarðarsýslu og fór það í alla staði mjög vel fram. -J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.