Morgunblaðið - 07.10.1953, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.10.1953, Qupperneq 16
VeðurúJIif í dag: AHhvass vestan. Skúrir, en bjart á milli. Lyndúnahréf á hlaðsíðu 9. 227. tbl. — Miðvikudagur 7. október 1953. Dráttarbraut verði bvggð á ísafirði Hauðsynjamái úígerðarinnar á Vestfjörðum KJARTAN J. Jóhannsson og Sigurður Bjarnason lögðu í gær fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um heimild fyrir ríkisstjórn- ina til þess að ábyrgjast lán til byggingar dráttarbrautar á ísafirði. Br hún svohljóðandi: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að ábyrgjast allt að 5 millj. kr. lán til byggingar dráttarbrautar á ísafirði, sem fullnægi þörfum útgerðarinnar á Vestfjörðum.“ ADKALLANDI NAUÐSYN f greinargerð sem fylgir tillög- unni, segir svo: Það háir mjög útgerð, skipa- byggingum og viðgerðum á Vest- fjörðum, að. þar hefur engin dráttarbraut verið til nægilega stór til þess að geta tekið upp þau skip, sem eru nú gerð það- an út. Enn fremur er mikill fjöldi innlendra og erlendra skipa á veiðum þar úti fyrir mikinn hluta ársins, sem oft þurfa á viðgerð- um að halda. Hefur oft þurft að framkvæma á þeim bráðabirgða- viðgerðir vestra með frumstæð- um hætti. Úr þessu er óhjákvæmi legt að bæta. Á ísafirði er ný vélsmiðja með góðum tækjum og fullkomin skipasmíðastöð. Þessi iðnfyrirtæki njóta sín ekki fyrr en aðstaða er fyrir hendi til þess að taka þar á land skip á stærð við togara. Þess vegna er þessi tillaga flutt. Með henni er lagt til, að ríkið veiti Vestfjörðum hliðstæða aðstoð og öðrum lands- hlutum hefur þegar verið veitt, Er hér um að ræða þýðingar- mikið atvinnu- og efnahagsmál jEyrir ísafjörð og önnur útgerð- arbyggðarlög á Vestfjörðum. ÁKJÓSANLEG SKILYRÐI Þess má að lokum geta, að sam kvæmt ýtarlegri athugun,' sem fram hefur farið, eru ákjósanleg skilyrði fyrir slíkt mannvirki á Isafirði. Ríkir mikill áhugi meðal almennings í bænum, einkum þó iðnaðarmanna, fyrir þessari fram kvæmd. Eiiíi leitað árangorslaust að trillubátnum ENN var leitað í gærdag að litla trillubátnum, sem týndist um helgina liér í Faxaflóa með tveim bræðrum á. Leitin bar ekki árangur. Hinni skipulegu leit verður nú hætt, en Slysa- varnafélagið hefur látið halda uppi mjög gaumgæfilegri leit allt frá því á sunnudagsmorgun. í gær gengu samstarfsmenn Eyjólfs hjá Strætisvögnunum á fjörur vestur á Mýrum. I frásögn blaðsins í gær af þeim bræðrum, Ólafi og Eyjólfi, brenglaðist í frásögninni er sagt var að Ólafur hefði verið fjöl- skyldumaður. Það var Eyjólfur, sem lætur eftir sig konu og þrjú börn. Hann var bifvélavirki hjá Strætisvögnunum, en Ólafur, bróðir hans, bílstjóri hjá Olíufé- laginu Esso. Tv o miim Si’ys í GÆRDAG meídííikd *saður í lest Lagarfoss er TteriðS var að setja tunnur í lest .dkjr>»»s. Varð maðurinn, sem hoifir ííuðgeir Pétursson, á mílli fenmzsa með fótinn. Marðist hann scs&kuð og var fluttur í sjúkrahrís-:. — Þá meiddist drengur á Snorra- braut. Stakkst hann á .höfuðið í götuna, er hann hafði hangið aftan í palli vörubíls. Drengur- inn var fluttur í sjúkrahús og gert þar að sárum hans. 01: kJ >1 sson ráðiun vfirlæknir Nýtt blað liefur göngu sína á Keflavíkur- ílugvelli SUÐUR á Keflavíkurflugvelli Tcom á mánud. út nýtt blað, Flug- vallarblaðið, en hér er um viku- légt fréttablað að ræða, sem fyrst og fremst hyggst „flytja sannar fregnir af atburðum þeim, sem gerast á flugvellin- um“. Einnig ræða þau mál, sem efst eru á baugi hverju sinni. — Blugvallarblaðið er 4 síður. — í ritnefnd blaðsins eru Bogi Þor- sieinsson, Þorgrímur Halldórs- son, Haukur Helgason og Ólafur Olafsson. Blaðið á að koma út á luverjum mánudegi. Opnar Iðnaðar- bankinn útibú á Keflavíkur- flugvelli? f HINU nýja blaði starfsmanna á Keflavíkurflugvelli, Flugvallar- blaðinu, er hóf göngu sína í gær, cr frá því skýrt, að Iðnaðarbank- inn muni setja upp bankaútibú þar á vellinum og mun sérstakt hús verða fyrir bankann þar. Tel- ■ur blaðið bankastarfsemi þessa rnjög tímabært fyrirtæki fyrir starfsmennina, sem fái laun sín greidd í bankaávísunum og þurfi þeir að gera sér f^rð til Reykja- víkur til að hefja ávísunina. Sæmdir Félkaorðunni FORSETI íslands hefur nýlega, að tillögu orðunefndar, sæmt þessa menn fálkaorðunni sem hér segir: Hinn 29. maí sept. s. 1.: Sigurjón Á. Ólafsson, fyrrv. alþingismann, Reykjavík, stjörnu stórriddara, Þórarinn Olgeirsson, vararæð- ismann íslands í Grimsby stór- riddarakrossi, Kjartan Ásmundsson, gullsmið, Reykjavík, riddarakrossi. Hinn 2. okt. s. 1.: Egil Sandholt, skrifstofustjóra, Reykjavík, Magnús Jochumsson, póst- meistara, Reykjavík, og Ólaf T. Sveinsson, skipaskoð- unarstjóra, alla riddarakrossi. I sumar er leið fór fram allítarleg viðgerð á einum Akureyrartog- aranna. Var þá jafnframt gerð sú breyting á skipinu, að aftur- mastrið var tekið burt, aðeins lítill stubbur eftir til að halda loft- netinu. Hafa komið fram skoðanir um að slíkt myndi hafa í föi? með sér að sjóhæfni skipsins myndi aukast, siður velta eins mikið. — Fréttaritari Mbl. á Akureyri, Vignir Guðmundsson, tók þessa mynd af togaranum skömmu eftir að hann kom úr „klössuninni“. Verða erlendir vélbátaflotanum i vetnr sjómenn á AKUREYRI, 6. sept. — Á fundi sjúkrahússnefndar hins veglega spítala Norðlendinga, sem vænt- anlega tekur til starfa um ára- mótin, og haldinn var í gær, var samþykkt að ráða Ólaf Sigurðs- son yfirlækni við lyfjadeild sjúkrahússins. Guðmundur Karl Pétursson verður yfirlæknir handlækningadeildarinnar. Sér- stök fæðingadeild verður einnig í sjúkrahúsinu. Ólafur Sigurðsson hefur verið læknir hér á Akureyri um nokkurra ára skeið og hefur hann getið sér hins bezta orðs. Lyflækningar eru sérgrein hans, en þá grein nam Ólafur læknir í Lundúnum. Ólafur ér sonur Sigurðar Guð- mundssonar, skólameistara og frú Halldóru Ólafsdóttur. — Vignir. Ófgerðarmemi í Reykjavík ræða ýmis má! Á FUNDI í Útvegsmannafélagi Reykjavíkur síðastl. föstudagskvöld voru rædd ýmis hagsmunamál og rætt um vertíðarhorfur. — Kom fram í umræðum, að brýna nauðsyn bæri til að hefja þegar í staði undirbúning að ráðningu erlendra manna á bátaflotann, þar eði fyrirsjáanlegt væri, að ekki myndi takast að fá menn á öll skipin. Til þess þarf að fá leyfi yfirvaldanna. Meðal mála, sem rædd voru, var bílainnflutningur, en útvegsmenn telja sig vera órétti beittir. —• Á vertíð í fyrra var ekki hægt að gera allmarga báta út vegría bátana. Vinna í landi, einkum á bátana. Vinna í landi, einkum Keflavíkurflugvelli, telja útvegs- menn að dregið hafi vinnuaflið um of til sín. Varðandi þetta mál, var svohljóðandi ályktun gerð: UTLENDINGAR Á FISKISKIPIN „Vegna þeirra erfiðleika, sem nú eru að fá menn til starfa á fiskiflotann, samþykkir fundur í Útvegsmannafélagi Reykjavíkur að skora á stjóm Landssambands ísl. útvegsmanna að fara nú þeg- ar að vinna ákveðið að því, að leyfi fáist til þess að flytja inn útlendinga til þess að vinna á fiskiflotanum á komandi vetrar- vertíð". Varðandi órétt þann, sem út- gerðarmenn telja sig vera beittir í sambandi við bílainnflutning- Knrtöfluppskera er í hættu vegnu Þykkvbæingu kurtöflumyglu AUSTUR í Þykkvabæ, sem er mesta kartöfluræktarhérað lands ins, hefur kartöflumygla gert all- mikið vart við sig í uppskerunni. Eru bændur þar mjög áhyggju- fullir út af þessu, enda er upp- skera þeirra í veði. í gærkvöldi voru kartöfluframleiðendur á fundi til að ræða möguleika á því að bindast samtökum um að koma upp kartöflugeymslu nú þegar fyrir 5000—10000 tunnur. Það er ekki vitað hve útbreidd myglan er, en sú hætta vofir yf- ir, að útbreiðslan verði ör, þar eð kartöflugeymslur þar eystra geta ekki tekið nema lítið magn af hinni gífurlegu uppskeru, sem þar er, eða aðeins um 80000 tunn- ur. — GEYMSLA FYRIR 5—10 ÞÚS. TUNNUR Á fundinum í gærkvöldi var um það rætt að byggja í snatri góða kartöflugeymslu, sem búin væri kæliútbúnaði og tekið gæti 5000-—10000 tunnur. Því í góð- um, köldum geymslum má tefja mjög fyrir útbreiðslu myglunn- ar. Nokkrir fulltrúar Þykkvbæ- inga hafa verið hér í Reykjavík og leitað styrks og stuðnings ým- issa aðila. I EITT JARÐIIÚSANNA I Þá hefur eitt hinna ágætu Jarðhúsa við Elliðaár verið tekið til geymslu fyrir kartöflur Þykkv bæinga, en í þessu húsi geta rúm ’ast um 2000 tunnur. Næstu daga verður byrjað að flytja kartöfl- urnar að austan. 20 ÞÚS. TUNNUR Með því geymslurúmi, sem hér hefur verið nefnt, mun verða hægt að taka til geymslu 15— 17000 tunnur, en Þykkvabæjar- bændur telja, að uppskeran muni vera um 20,000 tunnur. í þessu mesta kartöfluhéraði landsins byggja mörg heimili af- komu sína algerlega á kartöflu- rækt. Kartöflumygla er landlæg á Suðurlandsundirlendi. — Telja menn orsökina til myglunnar í Þykkvabænum vera hina óvenju miklu hita í sumar. inn, var svohljóðandi ályktuni gerð: f 1 BÍLAINNFLUTNINGUR „Fundur í Útvegsmannafélag! Reykjavíkur vítir það skilnings- leysi fjárhagsráðs, sem fram kom ‘í sambandi við Veitingu innflutn- ingsleyfa á vörubílum s.l. vetur og sumar. Eftir harðvítuga bar- áttu og vegna brýnnar þarfaf margra útvegsmanna fekkst loks á s.l. vetri samkomulag við rík- isstjórnina um að útvegsmenrj fengju aS flytja inn 55 vörubíla á bátagjaldeyrislistann. En nú fyrir skömmu veitti fjárhagsráð ýmsum öðrum þjóðfélagsþegnum leyfi til þess að flytja inn 118 eða 120 vörubíla á leyfi án báta- gjaldeyrisálags. Þetta er eitt af mörgum dæmum sem sýnir glöggt hversu hagur aðalatvinnu- vegar þjóðarinnar, sjávarútveg- urinn, er hömulega fyrir borð borinn af stjórnarvöldunum, sem stafar fyrst og fremst af því, hve harla fáa málsvara hann á á Alþingi". AUKIN ÚTGERÐ HÉÐAN Þá var rætt um leiðir til aS auka bátaútgerð héðan frá Reykjavík, en það töldu útgerðar menn mikið hagsmunamál fyrir bæjarfélagið í hei’d. Var kjörin fimm manna nefnd til að ræða þessi mál við bæjarstjórn Reykja víkur og önnur vandamál vél- bátaútgerðarinnar hér í bænum. Vélst?óri brennist í GÆRKVÖLDI vildi það slys til í vélarúrni vélbátsins Sísí ÁR —• 187, að vélstjórinn, Gunnar Guð- mundsson, brenndist á höndum og í andliti, er kviknaði í olíu, sem vélin hafði ausið yfir raf- kveikjuna. —- Var Gunnar að snúa véíinni í gang er þetta vildi til. Ekki komst eldur í föt hans. Hann var fluttur í Landspítalann og mun verða í sjúkrahúsinu þar til á hnorgun, — Brunasár voru grunn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.