Morgunblaðið - 23.10.1953, Page 9
Föstudagur 23. okt. 1953
MORGUNBLAÐIÐ
9
Kruschev viðurfeennir að bændakúgunin
hafi nær því leiff fi! algers hruns
Stjóm Malenkovs revnir
að vinna hylli Jiændanna
EDWARD CRANKSHAW
I
FRAMTÍÐ RÚSSLANDS sem
Stórveldis, mun ekki verða ákveð-
in á stjórnarskrifstofunum —
hún mun verða ákveðin á ökrunj
samyrkjubúanna.
í mörg ár hefur valdhöfum
Rússlands tekizt að leyna veik-
leikum í stjórnarfarinu fyrir um-
heiminum. Þeir, sem engan áhuga
hafa á búskap, halda, að starf
bóndans sé leiðinlegt og ónauð-
synlegt. En staðreyndin er, að í
Ráðstjórnarríkjunum er fjöldi
mjólkurbúa, varphæna og af-
rakstur hvers hektara miklu mik
ilvægari en víðast hvar annars
staðar. Jafnvel þótt iðnaður Ráð-
Stjórnarríkjanna sé mjög vel
skipulagður, eru þau samt jarð-
yrkjuland. Þau flytja inn mjög
lítið af fæðutegundum og þau
eru sjálfum sér nóg, hvað korn-
Og kjötmeti snertir auk þess, sem
framleiðsla bómullar, ullar, hörs
Og annarra hráefna til iðnaðar,
fullnægir þörfum landsmanna.
BÓNDI ER BÚSTÓLPI . . .
Það er þvi á herðum bóndans,
sem ábyrgðin hvílir. Það er rúss-
neski bóndinn, sem er aðalmátt-
arstoðin undir velmegun í Ráð-
stjórnarríkjunum, en ekki stjórn-
mólamaðurinn Og jafnvel ekki
iðnaðarmaðurinn.. Bændurnir,
sem vinna á samyrkjubúunum
búa í þorpum, sem dreifð eru
yfir hið víðáttumikla og svip-
lausa land. — Afar og langafar
þeirra voru ánauðugir, og enn
eimir eftir af ótta þrælsins gagn-
vart húsbóndanum.
MISTÖK BÓNDANS í KREML
Kruschev, málpípa Malenkovs,
flutti ræðu mikla fyrir nokkrum
vikum, og viðurkenndi þar, að
landbúnaði í Ráð=tjórnarríkjun-
um hefði hrakað og um leið
játaði hann mistök í samyrkju-
búskapnum. Hann talaði til
bænda, og öll var ræðan samin
með það fyrir augum, að öðlast
samúð þeirra og samvinnu. Hann
sagði, að afstaða og aðferðir
Krcml-valdhafanna hefðu ekki
náð tilgangi sínum og nefndi
nokkrar staðreyndir og tölur máli
sínu til stuðnings. Ræða hans
var skýlaus játning Malenkovs
stjórnarinnar um að tilraunir
Stalins til að kúga bændur, til
aukinnar framleiðslu, hefðu nær
endað með ósköpum, og nú skyldi
breyting verða á til batnaðar.
í stað valdbeitingar kæmi sann-
færing og hvatning; í stað þess
að reyna að gera bændurna að
áhugalausum ríkisþrælum, sem
engan jarðskika ættu sjálfir, ætl-
aði stjórnin að leitast við að
ávinna sér traust bændanna með
|því að hvetja þá til að bæta og
auka séreignir sínar.
SÍÐASTA HÁLMSTRÁIÐ
Tilgangurinn með þessari
skyndilegu breytingu á aðferð-
■um Kreml-valdhafanna, er til-
raun til þess að auka framleiðsl-
una og halda iðnaðarsvæðunum
rólegum. En í sögulegu tilliti,
verður að skoða þetta sem síð-
asta hólmstrá valdhafanna í
Kreml, til þess að bjarga sam-
yrkjubúskapnum.
Þegar ræða Kruschevs er at-
huguð betur, kemur hinn raun-
verulegi boðskapur í ljós. Svo
virðist á yfirborðmu, sem hann
fari fram á við bænduma, að
þeir auki framleiðsluna fram yfir
það, sem tilskilið er samkvæmt
5-ára-áætluninni. Stjómin mun
greiða allar viðbótarafurðír háu
verði, og sé þetta gert til þess að
bæta afkomu þegnanna. En þegar
tölur þær, sem hann gefur upp,
eru athugaðar vandlega, sést, að
Asakanir um ólöglegan inn-
flutning flestar ósannar
To!!s!]órinn hefur iéiið gera víðtælca rannsókn
SAMKVÆMT rannsókn Tollstjórans í Reykjavík eru ásakanir um
ólöglegan innflutning vara hingað til lands að mestu leyti úr
lausu lofti gripnar. Svaraði fjármálaráðherra fyrirspurn frá Bergi
Sigurbjörnssyni um þetta efni á fundi Sameinaðs þings í gær.
SÆLGÆTI
Ráðherrann drap á innflutning
ýmissa vöruflokka, sem sérstak-
lega hefðu verið nefndir í sam-
bandi við ólöglegan innflutning.
Fyrst og fremst er í þeim efnum
um sælgæti rætt. Sagði ráðherr-
ann að sjómenn hefðu fengið
tollafgreitt munngúmmí, sem
keypt hefði verið fyrir frjálsan
gjaldeyri, en tollstjóri segir í
skýrslu sinni, að tollgæzlumenn
telji að meira sé á markaðnum
af þessari vöru en eðlilegt væri
samkvæmt lögboðinni tollaf-
greiðslu, og hefði sakadómara
verið tilkynnt um það.
Kruschev ritari rússneska kommúnistaflokksins skýrði frá því að
framleiðsla landbúnaðarafurða í Rússlandi væri nú minni en á
dögum keisarans. Kommúnistum hefur ekki tekizt að kúga bænd-
urna, þrátt fyrir meir en þrjátíu ára ógnarstjórn. Nú reynir stjórn
Malenkovs að fara að bændum með góðu. Myndin er frá korn-
uppskerunni í Ukrainu.
ur aðeins að 5-ára-áætlunin fái kleyft að. eignast eigin jörð og
staðizt. Sannleikurinn er nefni- | ráða sjálfir til sín vinnufólk. En
um leið mundi stjórnin afneita
þvi, sem í byltingunni var bar-
izt um, — socialismanurh. Rússar
geta aldrei tekið aftur upp lifn-
aðarháttu smábænda, án þess að
missa stórveldisaðstöðu sína.
lega sá, að núverandi áætlun
(sem hófst fyrir tæpum þrem ár-
um) hefur mistekizt gjörsam-
lega. Þetta er því örvæntingar-
full tilrauni til þess að bjarga
áætluninni frá hruni.
VAR BÝLTINGIN UNNIN
FYRIR GÝG?
Virði bændurnir tillögu stjórn-
arinnar að vettugi, kemst hún í
mjög erfiða aðstöðu, og það er
erfitt að geta sér til um, til hvaða
| ráðstafana hún kynni að grípa.
Ef til vill mundi hún reyna að
leggja niður allan samyrkjubú-
skap, en það er erfitt að sjá,
hvernig það væri mögulegt, —
Fyrr á tímum, er borgirnar voru
smáar og iðnaðurinn á byrjun-
arstigi, var hægt að byggja þjóð-
arbúskapinn á hinni frumstæðu
hagfræði bóndans. En jafnvægið
hefur breytzt. Stjórnin á enga
útgönguleið aðra en að leyfa
einkarekstur, og gera bændunum ! (Observer—Öll réttindi áskilin).
ER SOCIALISMINN AÐ
RENNA SITT ENDASKEIÐ?
Tilraunin til að bjarga fimm-
ára-áætluninni og grundvallarat-
riðum samyrkjubúskaparins, er
því mikilvægari en í fljótu bragði
virðist. Hún er í rauninni mjög
alvarleg tilraun til þess að bjarga
öllu Ráðstjórnarfyrirkomulaginu
frá hruni. Enginn getur sagt
fyrir endinn. Þess vegna eru það
engar ýkjur, að segja, að fram-
tíð Ráðstjórnarríkjanna sem stór-
veldis, hangi á bláþræði, en í
endana haida hinir mörgu og
nafnlausu verkamenn — fólkið,
sem yrkir jörðina.
AÐRAR VORUR
Aðrar vörur, sem kærðar hafa
verið eru sportskyrtur, kuldaúlp
ur, regnkápur, manshettskyrtur,
brjóstahöld kvenna og lífstykki,
náttföt o. fl. Rannsókn tollstjóra
hefur leitt í ljós að þessar vörur
finnast ekki á markaðinum án
þess að þær hafi verið löglega
tollafgreiddar.
Alexandra ðrvilnuð
★
PARÍS, 22. okt. — Alexandra,
fyrrum drottning af Júgóslav-
íu, fannst meðvitundarlaus í
dag, særð á vinstra úlnlið,
nokkrum klukkustundum áð-
ur en hún skyldi mæta fyrir
rétti vegna hjónaskilnaðar-
máls.
★
Pétur, fvrrum konungur Júgó
slava, maður hennar, hefur
krafizt skilnaðar við Alex-
öndru, þar sem hún hafi
hlaupizt á brott frá honum.
★
Lögfræðingur Alexöndru har
ekki á móti því í dag, að hún
hefði ætlað að skera sig á slag
æðina, enda sagði lögfræðing-
urinn að hún væri alveg ör-
vílnuð yfir hinni óhaggan-
legu ákvörðun Péturs um að
krefjast skilnaðar.
Viscount flugvélin
Frá áíþingi:
Friðun landhelginnar er hvatn-
ing um ú hefja smábátaútgerð
í GÆR var fyrirspurnatími í Sameinuðu Alþingi. Á dagskrá voru
8 fyrirspurnir frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar og beindust
til allra ráðuneyta nema dómsmála-, viðskipta- og iðnaðarmála-
ráðuneytisins.
Ólafur Thors forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Karls Krist-
jánssonar o. fl. um lánveitingar út á smábáta.
o.
HVATNING
I svari sínu sagði Ólafur Thors,
að friðun landhelginnar ætti
meðal margs annars að vera
hvatning til manna um það, að
hefja smábátaútgerð.
ÁKVEÐNAR REGLUR
I Forsætisráðherrann sagði, að
samkvæmt reglum Fiskveiði-
sjóðs Islands ættu smábátaeig-
endur rétt á lánum frá sjóðnum,
samkvæmt ákveðnum reglum
sjóðsins. Bátarnir ættu einnig að
gang að vátryggingu. I upphafi
^ hefði það verið skyldutrygging.
I Þá hefðu þeir menn, sem teldu
sig mæla fyrir munn smábáta-
eigenda farið fram á að skyldu-
hann fer ekki fram á neina aukn-1 tryggingunni yrði aflétt og við
ingu landbúnaðarafurða, — held-þeirri beiðni hefði Alþingi orðið.
Var tryggingarfélögunum véitt
heimild til að taka bátana í trygg
ingu með leyfi samtryggingar-
innar. Það leyfi fékkst, sagði ráð
herrann með því að samtrygging-
in gaf tryggingar smámáta frá
sér.
Síðuslu bæimlrkom-
ast í símasamband
VALDASTÖÐUM í Kjós, 21. okt.
— Síðustu bæirnir í Kjósinni
komast innan skamms í símasam-
band, en verið er að Ijúka við
símaleiðslurnar til þeirra. Þetta
eru bæirnir Fossá, Skorhagi,
Þrándarstaðir og Ingunnarstaðir í
Framh. af bls. 1.
count á leiðum til Norðurlanda.
Hefur þetta valdið gerbyltingu
og miklu tjóni fyrir Skand-
ináviska flugfélagið SAS. Haust-
ið 1952 flutti SAS 72 af hundraði
j allra farþega á leiðum yfir Norð-
ursjóinn. Nú við tilkomu Vis-
count flugvélanna hefur þetta
snúizt svo við að nærri 60% far-
þeganna ferðast með BEA flug-
félaginu. Hefði félagið haft nógu
mörgum flugvélum á að skipa, má
búast við að hlutfallstala þess
t hefði orðið enn stærri.
I
SKYMASTER VERÐUR URELT
Framtíðin virðist ekki björt
fyrir Skandinaviska flugfélag-
ið. Flugutegundin, sem það
notar á leiðum þessum er Sky
master og Globemaster, báðar
fjögurra hreyfla amerískar
Douglas flugvélar. En þær
standast svo illa .samanburð
við Viscount flugvélarnar, að
menn eru farnar að velta því
fyrir sér hvort þessar Douglas
flugvélar eru ekki orðnar með
öllu úreltar.
Hér þýðir orðið „úreltur" að
vísu ekki það að flugvélarteg-
undin sé ónothæf. Það táknar
beinlínis að hún standist ekki
samanburð við nýrri tegundir
og notkun hennar leiði til þess
að ferðafólkið hætti viðskipt-
um við flugfélagið sem þær
notar. Og einmitt það virðist
vera að gerast hér.
SAS GEFST UPP Á
TÚRISTAFERÐUM
Skandinaviska flugfélagið efndi
til ódýrra túristaferða í sumar,
en tápaði á þeim, vegna þess að
ekki komu nógu margir farþeg-
ar. Félagið hefur því hætt ódýru
ferðunum og flýghr nú aðeins svo
nefndu 1. farrými.
Á meðan þetta gerðist tekur
BEA að halda uppi túristaferðum
með Viscount flugvélum sínum
og hafði það stórmikinn hreinan
hagnað af því, eða nálægt 10
milljón ísl. krónum á fyrstu 2000
klukkustundum.
NÚ HARÐNAR BARÁTTAN
Yfir sumarmánuðina hefur
samkeppninnar þó ekki gætt
verulega mikið, vegna þess að
ferðir eru það miklar að erfitt er
að fullnægja eftirspurninni. En
þegar BEA tilkynnti nýlega að
það myndi halda túristaferðun-
um áfram vetrarmánuðina, og
þegar túristaflugvélar þeirra eru
hálftíma fljótari en lúxusflugur
SAS og verðið er þriðjungi lægra,
ferðin að ýmsu leyti þægilegri,
titringur og hávaði sem enginn,
þá er ekki furða, þótt forráða-
mönnum SAS þyki útlitið ljótt.
BARÁTTAN UM
ATLANTSHAFIÐ
Amerísk flugfélög og önn-
ur flugfélög, sem halda uppi
ferðum yfir Atlantshafið
munu hafa fregnir af þessari
baráttu yfir Norðursjónum,
sem þrýstiloftsflugvélarnar
virðast ætla að sigra svo auð-
veldlega. Og þau munu bíða
þess með eftirvæntingu og
kvíða að Bretar hefji fastar
ferðir yfir Atlantshafið með
hinum stóru Comet-þrýstilofts
flugum. Ekki er vitað til þess
að nein bandarísk flugvéla-
verksmiðja framleiði neina
tegund, sem getur staðizt
Comet-flugvélinni snúning.
Eina leiðin fyrir hin voldugu
amerísku flugfélög verður því
að reyna að fá Comet-flug-
vélar keyptar af brezku fram
leiðendunum.
______________Þ. Th.
Hlýleg orð í garð
Islaiids
í RÆÐU, sem Pella, forsætisráð-
herra Ítalíu, hált í ítalska þing-
inu hinn 7. okótber síðastliðinn,
minntist hann á hið pólitíska
samband Islands og Italíu og
sagði m.a.: Þátttaka Islands í
Atlhntshafsbandalaginu gerir það
að verkum, að okkur finnst þetta
land miklu nær okkur en áður
var.
Sömu orð lét ráðherrann falla
um Noreg og Danmörku. Hélt
ráðherrann síðan áfram, að þessi
3 lönd legðu á sig sömu skyldur
og fórnir til varnar almennum
lýðræðislegum hugsjónum eins
og við.