Morgunblaðið - 08.11.1953, Blaðsíða 15
Sunnudagur 8. nóv. 1953
MORGUNBLAÐIÐ
15
Vinna
Hreingerningastöðin
Sími 2173. — Ávallt vanir menn
Hreingeminga-
miðstöðin
Sími 6813. Ávallt vanir menn.
Fyrsta flokks vinna.
......................
Samkosnur
Z I O N, Óðinsgölu 6A ^
Sunnudagaskóli kl. 2 e.h. Almenn
samkoma kl. 8,30 e.h. — Hafnar-
fjörður: Sunnudagaskóli kl. 10 f.h.
Almenn samkoma kl. 4 e.h. Allii'
velkomnir. —
Heimatrúboð leikmanna.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1. Samkoma
í kvöld kl. 8,30. Allir velkomnir.
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 1,30. — ÖU
börn velkomin. Brotning brauðs-
ins kl. 4. Almenn samkoma kl. 8,30
Allir velkomnir.
K F U M
Æskulýðsvikan er byrjuð. Séra
Bjarni Jónsson vígslubiskup talar
í kvöld. Allir velkomnir.
Almennar samkomur
Boðun Fagnaðarerindisins er á
Ktnnudögum kl. 2 og 8 e.h., Aust-
nrgötu 6, Hafnarfirði.
I. O. G. T.
St. Freyja nr. 218
Fundur mánudagskvöld kl. 8,30
á Fríkirkjuvegi 11. Inntaka. Er-
indi, Einar Björnsson. Kaffi á eft
ir fundi. Féíagar, fjölmennið. Æ.t.
Barnastúkan Jólagjöf nr. 107
Fundur í dag — á venjuleg-
um stað og tíma. Kvikmyndasýn-
ing. Upplestur ýmsra féxaga af
segulbandi. — Komið með nýja
félaga. — Gæzlumenn.
St. VÍKINGUB nr. 104
Kvöldskemmtun
á vegum Minningarsjóðs Sigríð-
ar Halldórsdóttur verður í Góð-
templarahúsinu annað kvöld, mánu
daginn 9. nóvember kl. 9 e.h. —
Skemmtiskrá: Ávarp: Sverril'
Jónsson. Upplestur: Lárus Páls-
son leikari. Gamanvísur: Iljálmar
Gíslason, undirleik annast Har.
Adolfsson. Leikur: Pippermann í
klípu. Gestur Þorgrímsson skemmt
ir. Þjóðdansar, fiokkur úr St. Sól-
ey. — Aðgöngumiðasala frá kl.
5—7 e.h. í G.T.-húsinu. — Sími
3S55 og við innganginn. Nefndin.
..—— --------------------
Barnastúkan Æskan nr. 1
Fundur í dag kl. 2 í G.T.-núsinu.
Inntaka nýliða. Ingigerður Guðna
dó'ttir sér um skemmtiatriði. Mæt-
ið vel. — Gæzlumenn.
Félagslíi
Víkingar — Knattspyrnumenn
Meistara, 1. og 2. fl. Nú eru
vetraræfingarnar að hefjast í KR-
skálanum. Fyrsta æfingin verður
mánudaginn kl. 9,20. Framvegis
verða æfingar á mánudögum kl.
9,20 og miðvikudögum kl. 9,40. —
Verið með frá byrjun — Samtaka
nú. — Nefndin.
Handknattleiksstúlkur
Armanns
Æfing í dag kl. 4,20. — Mætið
allar vel og stundvíslega.
— Nefndin.
Þróttur
Handknattleiksæfingar að Há-
logalandi í dag. 2. fl. og 3. fl. kl.
5,10. Kvennaflokkur kl. 6.
íþróttafélag kvenna
Munið leikfimina kl. 8 annað
kvöld í Miðbæjarbarnaskólanum.
Morgunblaðið
er hclmingi úthreiddara en
nokkurl annað íslenzkt blaS.
Kntnar og fittings
jPorláhóóon YjoÁmanin: L.j.
BANKASTRÆTI 11
SIMI 1280.
SOLIiSKATTIiR
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 3. ársfjórðung
1953, sem féll í gjalddaga 15. okt. s. 1. svo og viðbótar-
söluskátt 1952, hafi skatturinn ekki verið greiddur í síð-
asta lagi 15. ~þ. m.
Að þeim degi liðnum verður stöðvaður án frekari að-
vörunar, atvinnurekstur þeirra, er eigi hafa þá skilað
skattinum.
Reykjavík, 6. nóv. 1953
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN
Arnarhvoli.
ORÐSEIMDIIMG
frá Verzlunarráði íslands varðandi viðskipti
við Austurríki.
Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 14, verður haldinn
fundur í húsakynnum ráðsins, Pósthússtræti 7, 5. hæð,
fyrir þá meðlimi ráðsins, sem hafa áhuga á viðskiptum
við Austurríki.
Dr. Ernst Strutz, verzlunarfulltrúi Austuiríkis, mætir
á fundinum og ræðir um viðskiptahorfur við Austurríki
og svarar fyrirspurnum. Dr. Strutz talai norsku.
Öllum þeim, sem sýndu mér vináttu með gjöfum, heim-
sóknum og kveðjum á fimmtugsafmæli mínu 1. þ. m. og
gerðu mér daginn ógleymanlegan, flyt ég m.ínar alúðar-
fyllstu þakkir. Sérstaklega vil ég þakka hjónunum Guð-
finnu Björnsdóttur og Magnúsi Jónssyni, Mávahlíð, fyrir
hina virðulegu móttöku gesta þeirra, sem heimsóttu mig,
sem þau önnuðust fyrir mína hönd, með hinni mestu
prýði. — Þökk sé ykkur öllum.
Óskar Þorvarðarson.
Hjartans þakkir færi ég öllum vinum og vandamönnum,
sem glöddu mig á 60 ára afmæli mínu 31. okt. s. 1. með
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Þorvarður Þorvarðsson,
Hafnarfirði.
fyrirliggjandi. — Efnið er litað og miög ódýrt.
Jónsson & Júlíusson
Garðastræti 2 — Sími 5430.
■o»
M
Saumastúlkar
Tvær saumastúlkur, vanar I. flokks herra-
jakkasaum, geta fengið atvinnu nú þegar.
Ragnar Magnússon. S
S T Y L E H.F. I
Sími 82214. Austurstræti 17 (uppi)
' • o'ntör
?t^m
limboðsmaður
óskast á íslandi fyrir okkar þekktu senditæki, við-
tökutæki í skip, miðunarstöðvar og sjálfvirku stefnuvita.
ROBERTSON RADIO—ELEKTRO,
Egersund, Norway.
Kaup-Sala
HÚSGÖGN-DÝNUR
Dönsk verksmiðja býður fjölda
tegundir af 1. fl. húsgögnum við
mjög vægu verði.
Tiinas Möblcr Industri A/S
Nörrebrogade 195, Köbcnhavn.
Danmavk.
KENMSLA
Kennsla — Tilsögn
Kenni þýzka málfræði og flestar
aðrar skólanámsgreinir. — Dr.
Ottó A. Magnússon (áður Weg),*
Grettisgötu 44A. — Simi 5082.
A BEZT AÐ AUGLfSA ▲
T t MORGVNBLAÐINU. T
Dóttir okkar
LILJA
andaðist að heimili okkar 6. þ m.
Jóhanna Guðjónsdóttir, Victor Halldórsson.
Jarðarför mannsins míns
AXELS SAMÚELSSONAR
Gunnarsfelli, fer fram þriðjudaginn 10. þ. m. kl. 1,30 frá
Dómkirkjunni. — Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Kristín Stefánsdóttir.
Litli drengurinn okkar
ÁSGRÍMUR
verður jarðsunginn frá Njarðvíkurkirkju n k. þriðjudag.
Athöfnin hefst með bæn að heimili okkar Heiðarveg 21,
Keflavík kl. 13,30.
Guðný Jónsdóttir, Ólafur Thordarsen.
Faðir minn
STEFÁN JÚLÍUS JÓNSSON
frá Grindavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 9. nóvember kl. 3. Blóm afþökkuð. Þeim,
er vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Krabba-
meinsfélagið.
Þóranna Stefánsdóttir.
Faðir minn
PÁLL JÓNSSON
Grettisgötu 61, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 10. nóv. kl. 1,30 e. h. — Athöíninni verður
útvarpað. — Blóm og kransar afbeðið. — Þeir, sem vildu
heiðra minningu hans, er bent á Slysavarnaíélag íslands.
Fyrir hönd vandamanna
Halldór G. Pálsson.