Morgunblaðið - 03.12.1953, Page 1
16 síður
40. árgangur
276. tbl. — Fimmtudagur 3. desember 1953.
PrentsmiSja MorgunblaSsin*
Þing S.U.S. vill
að ríkið hætti starfi ækslu þeirra
atvinnufyrirtækja sem eifistaklmgar
geta rekið með betri árangri
Þingið viSI íögákveða skattfrelsi á lágtekjum,
gera spaifé skattfrjálst og sérsköttun hjóna
12. ÞING S.U.S. leggur höfuðáherzlu á jafnvægisbúskap í fjár-
málum og viðskiptamálum, svo að æskumenn og konur, er stofna
vilja til heimilis, búskapar eða annars atvinnureksturs og vilja vera
sinnar eigin gæfu smiðir, séu ekki bundin á klafa hafta, ráða og
ncfndavalds, sem eðli sínu samkvæmt hlýtur ávallt sérstaklega að
bitna á hinum yngri í samkeppni við hina eldri.
★
Ungir Sjálfstæðismenn benda einkum á nauðsyn þess,
AÐ lögákveðið verði skattfrelsi á lágtekjum og liækkun persónu-
frádráttar;
AÐ sparifé sé gert skattfrjáist;
AÐ hjón verði skattlögð hvort í sínu lagi og að jöfnu;
AÐ skattalöggjöfin heimili frádrátt vegna heimilisstofnunar, eigin
íbúðarbyggingar, bústofnunar eða stofnunar annarra fyrir-
tækja;
AÐ skattalöggjöfin viðurkenni þá staðreynd, að velmegun sem
flestra einstaklinga er traustasti grundvöllur atvinnuaukningar,
öryggis og framfara;
AÐ allur atvinnurekstur, hvort sem er í eigu eða undir stjórn i
ríkis, bæja, sveitarfélaga, samvinnufélaga, hlutafélaga, sam- i
eignarfélaga eða einstaklinga, sé skattlagður eftir sömu rcglum;'
AÐ ákveðið sé með lögum, að samanlagðir skattar og útsvar megi
ekki fara fram úr ákveðinni hlutfallstölu af nettó-tekjum; I
AÐ skattar og útsvör verði innheimt jafnóðum og tekjur myndast; |
AÐ ríkið hætti starfrækslu þeirra atvinnufyrirtækja, sem ein-
staklingar geta rekið með betri árangri;
AÐ ungu fólki og nýjum atvinnufyrirtækjum verði tryggður að-
gangur að lánastofnunum;
AÐ útibú bankanna fái aukna sjálfsstjórn frá því sem nú er, og
telur að útlánum í hinum einstöku byggðarlögum sé betur
fyrir komið í höndum útibússtjórnanna sjálfra, sem bera gleggri
skil á þarfir atvinnu- og framfaramála úti á landi en aðal-
bankastjórnirnar;
AÐ þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að Fjárhagsráð verði lagt
niður, sé framfylgt, og allt fjárfestingareftirlit afnumið.
Síldaraflinn við England
varð álíka 02 s. L vetur
O
En verðmæli er 40 þús. pundum lægra
LOWESTOFT 28. nóv. — Nú er að mestu lokið síldveiðunum við
austurströnd Bretlands að því er Fishing News skýrir frá. Síldar-
aflinn reyndist í meðallagi, mjög álíka og s.l. vetur. Hins vegar er
verðmæti aflans um 40 þúsund sterlingspundum lægra.
Sólarsonur á ferð
í Evrépu
Eiscnhovier vill fjórveldafund en
bíður eftir frekari skilyrðum
Gerir lítið úr orðum McCarthys
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
WASHINGTON 2. des. — Eisenhower forseti lýsti því yfir í dag á
fundi með blaðamönnum, að hann væri samþykkur fjórvelda-
fundi með Rússum. Þó taldi hann nauðsynlegt að athuga betur,
hvaða frekari skilyrði Rússar settu fyrir slíkum fjórveldafundi og
■ rétt væri að komast að samkomulagi fyrirfram um þýðingarmestu,
umræðuefni ráðstefnunnar.
Akihito heitir krónprins Japana.
Samkvæmt japönskum sögnum
er hann beinn afkomandi sólar-
innar. Þessi sólarsonur var nýlega
á ferðalagi um Evrópu og Ame-
ríku. 1
-^RÆÐA EKKI ÞÁTTTÖKU
i KÍNVERJA
Er Eisenhower var spurður
hvort Bandaríkin myndu fallast
á að ræða þátttöku kommúnista-
MOSKVA 2. des.: — Æðstaráð Kína í samtökum Sameinuðu
Sovétríkjanna hefur skipað þjóðanna, svaraði hann, að eins
Pavel Judin sendiherra í Kína í og málum væri nú háttað myndu
Nýr sendiherra $ Kína
stað Vasily Kusnetsovs varautan-
ríkisráðherra, sem gegnt hefur
þeirri stöðu undanfarið.
Bermur.ida-ráðstefnan
á að hef jast á fösftudag
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
HAMILTON á Bermuda 2. des. Forustumenn Vesturveldanna
eru nú að koma til Bermuda, þar sem ráðstefna þeirra mun hefjast
þann 4. þessa mánaðar. Komu Winston Churchill og Anthony Eden
hingað í dag með Stratocruiser-flugvélinni Canopus. Þeir tóku
þegar að undirbúa ráðstefnuna.
HINIR Á LEIDINNI |
Þeir Laniel og Bidault fóru
seint í kvöld af stað frá Orly |
flugvellinum í París og eru vænt
anlegir hingað á morgun. Eisen-
hower forseti og Dulles eru hins-
vegar ekki væntanlegir fyrr en
á föstudag eða sama dag og ráð
stefnan byrjar.
LOWESTOFT OG YARMOUTH
Stærstu síldveiðihafnirnar eru
Lowestoft og Yarmouth. I Lowe-
stoft hefur verið landað á þess-
ari vertíð 97 þúsund málum og í
Yarmouth 137 þús. málum.
VERÐMÆTI 819 ÞÚS. PUND
Samkvæmt þessu er heildar-
aflinn núna 234 þúsund mál sam-
anborið við 235 þúsund mál í
fyrra. Verðmæti aflans núna er
819 þúsund sterlingspund saman-
borið við 861 þúsund sterlings-
pund í fyrra. Verðmæti hans er
því rúmlega 40 þúsund sterlings-
pundum minna en s.l. ár. Verð-
mæti aflans í Yarmouth er nú
20 þúsund sterlingspundum
meira en í fyrra, en í Lowestoft
er það 65 þúsund sterlingspund-
um lægra.
SÍLDVEIÐIN Á ERMASUNDI
Fiskimenn væntu sér níikils af
stórstraumnum nú í mánaðalok,
en þær vonir brugðist að mestu. ,
Eru skipin nú flest að hætta veið- !
um við austurströnd Englands og
eru komin suður á Ermasund, þar
sem síldveiðin hefur glæðst —1
Þangað er einnig kominn all-
mikill franskur síldveiðifloti.
Norðmenn hafa
r
selt Islandssíldina
HAUGASUND 2. des.: — Norð-
menn eru búnir að selja alla I.
flokks Islands síld sína. Heildar-
afli Norðmanna á íslandsmiðum
var í sumar 255 uppsaltaðar tunn-
ur. Örlítið magn af II. flokks síld
er enn ósclt. — NTB.
□-
-□
NOKKUR VANDAMÁL
TIL UMRÆÐU
Eitt helzta verkefni ráðstefnu
hinna þriggja stóru verður að
taka afstöðu til síðustu orðsend-
ingar Rússa um fjórveldafund.
Þá þykir ljóst að Laniel forsætis-
ráðherra muni biðja Eisenhower
um tryggingu fyrir því að banda-
rískt herlið verði ekki kvatt heim
frá Evrópu, en í Frakklandi geng
ur orðrómur um að Bandaríkja-
Ómannúðleguslu
lög heims numin
úr
MOSKVA 2. des.: — Æðstaráð
Sovétríkjanna felldi í dag úr
gildi tilskipunina sem bannar
rússneskum ríkisborgurum að
giftast útlendingum. Nú hefur
slík tilskipun verið 6 ár í gildi í
Rússlandi og hefur hún ásamt við
aukagreinum stíað hjónum og
elskendum í sundur svo árum
skiptir. Var tilskipunin sett á sín-
um tíma bæði til að forða of
miklum samskiptum við aðrar
þjóðir vegna þjóðernisdrambs
hins rússneska kommúnisma.
Hún var skýrt brot á -mannrétt-
i-ndayfirlýsmgu S. Þ. NTB og
franska fréttastofan.
menn hyggi á heimköllun alls
herliðs úr Norðurálfu.
Þá hefur Churchill á prjónun-
um tillögur um að Bretar og
Bandaríkin hefji gagnkvæm1
skipti á upplýsingum um atóm- j
fræði og atómorkuframleiðslu,
en Eisenhower á óhægt um vik,'
þar sem bandaríska þingið vill
gæta mestu varúðar um atóm-
orkuupplýsingar.
Bandarikin ekki ræða það mál.
GAGNKVÆMUR
SKILNINGUR
Forsetinn skýrði frá þvi að
Bermuda-ráðstefnan yrði mikils-
verð til að koma á gagnkvæmum
skilningi og samstarfi Vestur-
veldanna þriggja. M. a. myndi
þar verða rætt um afstöðu
Frakka í Indó-Kína og afstöðu
Breta til Sues- og Súdan-málsins.
SETUR OFAN í VIÐ
McCARTHY
Að lokum vakti yfirlýsing Eis-
enhowers, sem hann beindi til
McCarthys öldungadeildarþing-
manns mikla athygli. McCarthy
sagði fyrir nokkru að næstu þing
kosningar í Bandaríkjunum og
forsetakosningar 1956 myndu að-
allega snúast um það hvort
kommúnistar hefðu áhrif á stjórn
Bandaríkjanna eða ekki. Eisen-
hower sagði á fundinum í dag
að þessi skoðun McCarthys næði
engri átt og væri algerlega út í
bláinn.
Hörð kosningabarátta
í sdðurhluta Sádans
Umma flokkurinn vaknaði upp við vondan draum
er Sambandsflokkurinn sigraði í norðurhluta landsins
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
KHARTOUM og LONDON 2. des. — Nú er að hefjast hin harð-
vítugasta kosningabarátta í suðurhluta Sudan, milli Sambands-
flokksins sem vill að Sudan sameinist Egyptalandi og Umma-
flokksins, sem vill sjálfstæði Sudans.
UMMA-MENN VAKNA 4
í kosningunum í norðurhlutaj
Sudans, sem fram fór fyrir;
nokkru unnu Sambands-menn
stórfelldan kosningasigur. Áður
hafði Umma-flokkurinn lýst því
yfir að hann myndi ekki sendaj
fulltrúa til setu á hinu nýskipaða j
þingi Sudan. En við sigur Sam-
bands-flokksins bregður svo við,
að Umma flokkurinn breytir
stefnu og mun nú ætla sér að
taka upp harðari baráttu gegn
Sambandsmönnum.
KOSNINGABARDAGINN
í Suður-Sudan er talið að:
Utnma-flokkurinn hafi sterkara1
fylgi. En flokkurinn hefur lítið
búið sig undir kosningabaráttu. j
Framb. k bls. 12.
Dómar yfir pólsk
um skæruliðum
BERLIN, 2. des.: — Austur-
þýzka fréttastofan ADN skýr-
ir frá því að pólskur maður að
nafni Twardowski hafi verið
dæmdur til dauða af herrétti
í Posen. Segir að þessi maður
hafi verið stórbóndi, sem safn-
aði kringum sig stórum hóp
mótþróafullra stórbænda og
unnu þeir margskonar
skemmdarverk í Póllandi.