Morgunblaðið - 03.12.1953, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐI9
Fimmtudagur 3. des. 1953
LJONID OC LHMBIÐ
EFTIR E. PHILLIPS OPPENHEIM
&n
Framhaldssagan 45
Milson hóstaði lítið eitt.
„Vissulega ekki, hr. Grossett“,
sagði hann. „En það eru nokkur
atriði, sem við þurfum að grensl-
ast eftir. Til dæmis Newberry
lávarður. Ykkur kom ekki rétt
vel saman, var það?“
„Ég þekkti hann ekki“, svaraði
Reuben um hæl.
„Þekktuð hann ekki? En þið
voruð báðir í sama bófaflokkn-
um fyrir ári síðan?“
„Hvaða flokk?“
Fulltrúinn brosti.
„Þessi ungi maður er alinn upp
í lögfræðiskrifstofu", sagði hann.
„En þrátt fyrir það, er það álit
okkar, vegna upplýsinga, sem við
höfum fengið, að þér gætuð, ef
þér vilduð, sagt okkur allt um
fiokkinn. Látið það koma, ungi
maður! Það er heitið tvö þúsund
pundum fyrir morðingjana í í-
þróttaskólanum og fimm hundr-
uð pundum fyrir morðingjana í
Milan-gistihúsinu. Segið okkur
allt um þennan ágæta flokk, og
þér kunnið að vinna til hvor-
tveggja". .
„Þér getið eins vel gert það“,
sagði Milson ísmeygilega. „Þér,
getið ekki farið til þeirra framar. j
Þér mynduð aðeins vísa okkur á
felustaði þeirra. Afram nú! Segið
okkur alla söguna“.
Af einskærri örvæntingu tók
Reuben á öllu, sem hann átti til.!
Það var undrun og ofurlítil
þykkja í rómnum.
„Ef þið hafið látið veita mér ^
<ú!tirför, þá er það erfiði til ó-'
nýtis“, sagði hann. „Ég veit ekk-
ert um bófaflokka. Ég er hálf-
gerður iðjuleysingi, get ég viður-
kennt, síðan mér áskotnuðust pen
ingar, en hvað kemur lögregl-
unni það við?“
„Sleppum því, Grossett“, sagði
Milson hvasst. „Segið okkur hve
langt er síðan þér komuð í
„Ljónið og Lambið" í Bermonds-
ey?“
Síminn á borði fulltrúans
hringdi. Hann tók upp tækið og
rétti Milson það. Milson hlustaði,
ofurlítið leiður á svip.
„Sendið hann hingað", sagði
hann.
„Ég fer“, tilkynnti Reuben.
„Ég er orðinn dauðleiður á
spurningum ykkar. Þið trúið
engu, sem ég segi. Þið getið látið
elta mig og séð hvað þið græðið
á því“.
„Andartak, hr. Grossett“, sagði
Milson. „Við kunnum ekki við
að þér yfirgefiS okkur svona.
Auk þess“, bætti hann við og
hlustaði á fótatak nálgast, „lang-
ar yður ef til vill að hitta gamlan
vin“.
Það var drepið á dyr. Enn einu
sinni kom lögregluþjónninn. —
Hann nefndi ekkert nafn. Sá,
,sem hallaði sér fram á stafinn
sinn í dyrunum var Tottie Green.
XXXII. kafli.
‘ Reuben riðaði eitt andartak.
Það var sem augu hans leituðu
um allt eftir einhverri annarri
útgönguleið til að flýja um. Svo
gaf hann frá sér lágt, óhugnan-
iegt óp og lak aftur niður í sætið.
Tottie Green staulaðist inn, ægi-
legur ásýndum. Hann var klædd-
ur alsvörtum fötum, sem voru
ötuð tóbaksösku. Vestið var frá-
hneppt, andardráttur hans heyrð
ist um alla stofuna. En munn-
svipurinn var hörkulegur og vot
augun glóðu.
„Hvað sögðuð þér að nafn yðar
væri?“ spurði fulltrúinn.
„Tottie Green“, svaraði gestur-
inn. „Þessi piltur þarna er að-
stoðarforingi minn. Ég er for-
^prakki flokksins, sem þið eigið
í höggi við og hefur náð í Dave
Newberry. Nú get ég ekki staðið.
Látið mig fá sæti. Ég hef allt,
sem ykkur vantar. Þessi náungi
með blýantinn, hraðritari? Látið
hann skrifa allt, sem ég segi. Ég
kom til að fullvissa mig um að
þessi naðra þarna yrði hengd“.
Það varð eftirvæntingarfull
þögn. Milson hjálpaði Tottie
Green að setjast.
„Ég verð að reykja“, sagði
hann. „Ég hef alltaf sagt, að ég
skyldi kveðja reykjandi, og það
verð ég að gera. Látið það koma!
Eitthvað krassandi".
Fulltrúinn opnaði skúffu og
kom með fína Havanavindla. —
Tottie Green valdi þann svart-
asta og kveikti í.
„Ég hef einkalækni", sagði
hann og blés frá sér reykjar-
mekki. „Hann hefur sagt mér
síðasta árið að ég hangi í blá-
þræði. Þess vegna ætla ég ekki
að fara í felur með neitt. Ég vil
verða viss um hann“.
Hann otaði óhreinum vísifingri
eins og rýting í áttina til Reub-
ens.
„Hann er morðingi", hélt
Tottie áfram. „Skrifaðu það
drengur minn þarna með blýant-
inn. Hann hefur framið morð
samkvæmt skipunum mínum áð-;
ur. Hann myrti Dick Ebben í i-
þróttaskólanum og það svín átti
fyrir því. Hann kjaftaði um okk-
ur. Hann myrti Dave Houlden í
Milan-gistihúsinu fyrir fimm ár-
um. Það skiptir heldur ekki
máli. En það, sem hann skal í
snöruna fyrir, er síðasta verkið
hans. Hann drap Belle — Belle,
sem ég hef litið eftir öll þessi ár
— dóttur Morgans, félaga míns —
drap hana af því hún var ást-
fangin af Dave Newberry“.
Hann þagnaði snöggvast og
ekkert heyrðist nema þungur
andardráttur hans og urgið í blý-
anti hraðritarans. Reuben reyndi
að rísa upp í sætinu með því að
grípa í borðröndina. Hann sneri
fölu andlitinu að ákæranda sín-
um.
„Þú lýgur, Tottie Green!“
hrópaði hann. „Það var ekki
vegna Dave Newberry, þó mér
félli það líka illa. Hún sveik okk-
ur,_ segi ég. Ég faldi mig í her-
berginu og heyrði hana hringja. j
Hún ljóstraði upp — við Dave —
að við yrðum fjölmennir, með
hnífa og skammbyssur. Ég heyrði
það. Hvað gerum við við svikara?
Hún fékk það, sem hún átti skil-
ið. Hún fékk —“
Hann snögg þagnaði. Óp hans
kvað við um stofuna. Það var
eins og móðursýkisóp kven-
manns, sem allt í einu kemur
auga á eitthvað skelfilegt.
„Djöflar!“ grenjaði hann. ,,Hel
vítis hræið þitt, Tottie! Þú komst
mér til að tala, og ég hefði haldið
mér saman. Þeir hefðu aldrei
haft neitt upp úr mér. Djöfullinn
sjálfur!"
Hann stóð þarna skjálfandi
þar til hnén biluðu og hann lak
aftur niður í sætið. ístran á
Tottie Green gekk í bylgjum.
Hann hló. Hann sneri sér að full-
trúanum.
„Hvernig lízt ykkur á þetta?
Þér heyrðuð hvað hann sagði
Hann játaði, var ekki svo? Hann
kemst inn í Milan þegar honum
sýnis, hjá þjónunum. Þessi með
blýantinn, hann hefur hripað!
þetta niður. Reuben fer í snör-
una fyrir þetta, eh? Segið að|
hann skuli í snöruna — því ég
get lognast út af þá og þegar, og
ég vil vera viss“.
„Hann verður vissulega hengd-
ur“, fullvissaði fulltrúinn hann.
„Þér segist vera forsprakki
flokksins, sem slóst í Widows
Row — flokksins, sem David
Newberry var í“.
„Aiveg rétt“, sagði Tottie
Green. „Þér hafið meiri fíflin í
þjónustu yðar, annars hefðu þeir
hnotið um mig fyrr. Ég er Tottie
Green og ég hef verið foringi
Lambanna í mörg ár — smá-
fyrirtæki fyrst í stað, en það
stærsta í Evrópu þangað til í
dag. Nú fá þeir að bíta í grasið.
Ég hef undirritað dauðadóm yfir
sjö mönnum fram að þessu fyrir
að svíkja. Grafir þeirra eru í
Highgate-kirkjugarðinum. Já, ég
hef framið morð, en einungis
RAUÐU
SKÓRNIR
Danskt ævintýri
Allt fólkið flykktist að höllinni, og þar á meðal Katrín.
Stóð kóngsdóttirin litla hvítklædd uppi í glugga og lofaði
fólkinu að horfa á sig. Ekki hafði hún slóða á eftir sér og
ekki bar hún kórónu á höfði, en á fótunum hafði hún ljóm-
andi fallega rauða silkiskó.
Nú var Katrín litla komin á þann aldur, að hún átti að fá
nýja skó. Skóari nokkur í borginni tók mál af litla fætin-
um hennar. Hann gerði það heima hjá sér í stofunni sinni.
Þar voru stórir skápar með glerhurðum fullir af forláta
skóm og gljáandi stígvélum. Það var skínandi fallegt.
En frúnni gömlu var farin að förlast sjón, og hafði hún
því enga ánægju af þess konar.
Mitt á meðal skónna voru einir rauðir, alveg eins og
skórnir 'prinsessunnar, og þeir voru einstaklega fallegir. —
Skóarinn sagði líka, að þeir hefðu verið gerðir handa greifa-
barni, en hefðu ekki reynzt mátulegir.
„Það mun vera gljáleður í þeim,“ sagði frúin gamla. —
„Þeir gljá.“
„Já, þeir glansa,“ sagði Katrín, og þeir reyndust henni
mátulegir, en gamla frúin vissi ekki, að þeir voru rauðir,
því að hún mundi aldrei hafa leyft Katrínu að ganga til
fermingar með rauða skó á fótum, en það gerði nú Katrín
engu að síður.
Ollum varð starsýnt á fætur hennar, og þegar hún gekk
inn eftir kirkjugólfinu að kórdyrunum, þá þótti henni, sem
gömlu myndirnar á legsteinunum, þessar myndir af prest-
um og prestkonum, með stífu kragana og síðu svörtu föt-
unum væru að hvessa augun og horfa á rauðu skóna henn-
ar. —•
/
í dc
emur
í verz L
cmir
ctg
Saumujm eftir máli
úr nýkomnum, vönduðum efnum.
Korselet
Lífstykki
Magabelti
Frúarbelti
Slankbelti '
Brjóstahaldara
Einnig sjúkrabelti fyrir dömur og herra.
Nælonbelti, nýkomin.
Lífstykkjagerðin S.E
Tjarnargötu 5
ATT AR
Útlendu hattarnir komnir. — Mjög smekklegt litaúrval,
þar á meðal nýi, grái tízkuliturinn.
Einnig barna- og dömuhúfur.
HATTAVERZLUN ÍSAFOLDAR
Austurstræti 14
**!
Biireiðar til sölu
Tii sölu eru 2 Chevrolet fólksbifreiðir, 21—30 farþega.
Bifreiðarnar eru til sýnis og uppl. gefnar á Bifreiða-
verkstæði Áætlunarbíla Hafnarfjarðar í kvöld og næstu
kvöld kl. 7,30—9. — Sími 9276.
Gólfdúkur
hentugur á stiga, ganga og verzlanir
— mjög sterkur.
Regnboginn
Laugaveg 62. — Sími 3858.
■nnw