Morgunblaðið - 12.12.1953, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. des. 1953 1
SECJÍ FORSYTHNNR
- RÍKI MAÐURINN -
Eftir JoKo. Galsworthy — Magnús Magnússon íslenzkaði
■
Framhaidssagan 3
Frumkvöðull að öllum þessum
áhyggjum og kvíða stóð nú fram
við dyrnar og talaði við June.
Hrokkið hárið stóð út í loftið,
þáð var líkast því, sem það væri
að gefa til kynna, að hann felldi
sig ekki vel við þetta umhverfi.
Annars var ekki annað að sjá
en að hann skemmti sér prýði-
lcga.
„Það er líkast því sem „sjó-
>æninginn“ væri að spila fót-
bolta“, hvíslaði Georg að Eust-
ace, bróður sínum.
Þessi maður, sem var svo „ein-
kennilegur í útliti“, eins og Juley
frænku komst seinna að orði,
var meðalmaður á hæð og þrek-
vaxinn, fölur á hörund, ljóst yfir-
skegg, há kinnbein, kinnfiskasog-
fnn, augun ljósbrún og á stund-
um fjarræn. Enninu hallaði aft-
ur upp að hvirfli, en bungaði út
fyrir ofan augun, svipað ennis-
lag má sjá á ljónum í dýragarð-
inum. Ökumaður Jolyons gamla,
sem ók þeim Basinney og June
til leikhússins, sagði á eftir við
brytann:
„Ég veit nú ekki almennilega
hvað ég á að segja um hann. En
helzt sýnist mér hann líkjast hálf
villtum lébarða".
Öðru hvoru gekk einhver For-
sytanna í áttina til hans, hring-
sólaði í kringum hann og gaf
honum gætur.
June stóð fyrir framan elsk-
huga sinn, eins og hún vildi
vernda hann gegn þessari hnýsni.
Hún var ung og smá vexti, lítið
annað en augun og hárið og ein-
kennileg hakan. Höfuðið og hinn
grannvaxni líkami sýndist allt-
of veikbyggt til þess að bera uppi
hi!ð mikla rauðgullna hár henn-
ar.
Há, ung kona, fagurlega vaxin,
stóð skammt frá þeim og virti
þau fyrir sér. Öðru hvoru brá
fýrir brosi um munninn.
Þarna, sem hún stóð með hend
urnar krosslagðar, gráa, franska
gláfn töfrandi andlit, hallaði
höfðinu litið eitt, seiddi hún
augu allra karlmannanna til
sín. Augun voru dökk og stór,
aþgnaráðið blítt, en einkum voru
það varirnar, sem seiddu. Þær
vþru blóðrauðar og lostfagrar og
fi|á þeim andaði unaði og angan
eíns og frá fögru blómi.
Hjónaefnin höfðu engan grun,
a^i þessi gyðja væri að athuga
þáu. Það var Basinney, sem varð
fýrr til að veita henni eftfrtekt.
Hann spurði hver þessi kona
væri.
June leiddi unnusta sinn til
ujngu fagurvöxnu konunnar.
• „írena er bezta vinkona mín“,
ságði June. „Ég vona, að þið
vérðið góðir vinir“.
1 Þau brostu öll að þessari ósk
lítlu stúlkunnar. Er þau stóðu
þ@rna öll brosandi bar Svames
fforsyte þar hljóðlega að. Hahn
báð um að þeir Basinney væru
k^nntir.
■iSvames hélt sig ávallt í nám-
ijhda við konu sína. Hann fylgdi
ö|lum hreyfingum hennar með
Ginkennilega athugulu og eftir-
væntingarfullu augnaráði.
Út við gluggann stóð James,
faðir hans, og var enn að athuga
kínversku krukkuna.
„Mig furðar á því, að Jalyon
skuli leyfa þessa trúlofun“, sagði
hann við Önnu frænku. „Það er
sagt, að engar líkur séu fyrir
því, að þau geti gifst fyrst um
sínn. Þessi ungi Basinney á ekk-
ért til. Þegar Wenifred giftist
artie lét ég þau gera kaupmája.
g þáð var hyggilega gert af
mér, því að annars mundu þau
ekki auga grænan eyri núna“.
Anna frænka leit upp, hún
svaraði engu, en augnaráðið eitt
var nægilegt.
„Jæja, ég get nú ekki gert að
því, þótt Irena væri augnalaus.
Svames linnti nú ekki látum fyrr
en hann fékk hennar“.
Hann lét krukkuna ólundar-
lega á píanóið og skotraði aug-
unum til þeirra fjögra.
„Ég er nú á því“, sagði hann
skömmu seinna tilefnislaust, „að
það sé nú allt gott eins og það
er“.
Anna frænka bað hann ekki
um að skýra þetta nánar. Hún
vissi við hvað hann átti.
Allt í einu spurði James.
„En hvar er Timothy? Kemur
hann ekki?“
Angurvært bros lék um sam-
anbitnar varirnar á Önnu
frænku.
„Nei, honum fannst það ekki
hyggilegt. Það er svo mikið um
hálsbólgu og hann er mjög næm-
ur fyrir smitun“.
„Já, hann hefur nú vit á því
að sjá um sig“, sagði James. „Við
hin getum nú ekki leyft okkur
það.“
Timothy sást sjaldan. Hann
var yngstur af systkinunum. —
Hann hafði byrjað á bókaútgáfu,
en dregið sig í hlé, þegar hon-
um sýndist að dofna myndi yfir
bókamarkaðinum, og varið pen-
ingum sínum til þess að kaupa
trygg skuldabréf, sem gáfu hon-
um þó ekki nema þrjá af hundr-
aði, en hinir Forsytarnir létu sér
aldrei nægja minna en fjóra af
hundraði, og vegna þessa ein-
angraðist hann nokkuð frá hin-
um bræðrunum. Hann var mjög
varkár maður og hafði því aldrie
lagt í þá áhættu að kvongast.
James drap fingri á kínversku
krukkuna og hélt áfram:
„Þetta er skítti. Jalyon hefur,
vænti ég, sagt þér eitthvað frá
þessum unga mannf. Eftir því,
sem ég hef komizt næst hefur
hann ekkert að gera, á ekkert
og hefur engin sambönd. En auð-
vitað veit ég ekkert — það er
enginn, sem segir mér neitt“.
Anna frænka hrissti höfuðið.
Það fór titringur um gamla
hrukkótta andlitið með festulegu
hökuna og arnarnefið. Hún
klemmdi saman mögru fingurna,
eins og hún væri að einbeita
viljanum að því að segja ekkert.
Hún var elzt af systkinunum og
naut sérstöðu hjá þeim. Bræð-
urnir, eigingjarnir og tækifæris-
sinnaðir, þó ekki meira en stétt-
arbræður þeirra, báru virðingu
fyrir heiðarleika hennar, og
sneiddu hjá henni þegar eigin-
girnin gekk fulllangt.
James hélt áfram:
„Jalyon fer nú sínu fram. —
Hann á engin börn —“, hann
þagnaði því að nú skaut Jolyon
unga, syn iJolyons gamla, föður
June, upp í huga hans. Hann
hafði lagt allt í rústir fyrir sér
með því að yfirgefa konu og
barn og hlaupast á brott með
þessari erlendu kennslukonu. —
„Jæja“, hélt hann áfram, „ef
hann kýs að hafa það svona, þá
hefur hann sjálfsagt ráð á því.
En hvað ætli hann gefi henni?
Þúsund pund á ári. Hún er nú I
eini erfinginn". ,
í sömu andránni rétti hann
hendina hressalegum snoðrökuð-
um manni, nauðsköllóttum með |
bogið nef, þykkar varir og köld,
grá augu undir beinum augna-
brúnum.
„Góðan daginn, Nick! Hvernig
líður þér?“
Nicholas Forsyte hafði á alger-
lega heiðarlegan og löglegan hátt
greitt stórfé í þeim félögum,
sem hann veitti forstöðu.
„Bölvanlega", sagði hann
gremjulega. „Ég hef verið lasinn
alla vikuna — get ekki sofið á
nóttunni. Læknirinn veit engin
ráð og er þó góður, annars mundi
ég ekki hafa hann. Eina huggun-
in eru reikningarnir frá honum“.
„Læknar“, tók James fram í
fyrir honum reiðilega. „Ég hef
leitað allra lækna Lundúna fyrir
mig, og fjölskyldu mína. En þeir
bara kjafta. Líttu nú bara á
Swithin. Hvaða not hefur hann
haft af þeim? Sjáðu, þarna kem-
ur hann! Feitari en nokkru
sinni fyrr — blátt áfram ferleg-
ur. Þeir geta ekki látið hann
léttast. Líttu bara á hann!“
EINU SINNI voru hjón nokkur, sem áttu þrjá syni. Hjónin
voru mjög fátæk, og þar af leiðandi kölluðu þau syni sína á
fund sinn og báðu þá að fara nú út í heiminn til að leita sér
atvinnu.
Synir hjónanna neituðu í fyrstu að verða við ósk foreldr-
anna, og urðu þeir þá enn um hríð heima í koti karls og
kerlingar. En svo var það einn dag nokkrum árum seinna,
þegar piltarnir voru komnir um tvítugt, að karlinn hann
faðir þeirra skipaði þeim með harðri hendi að leita sér at-
vinnu.
„Nú dugar ekki lengur. piltar mínir, að þið liggið hér
heima aðgerðarlausir. Nú skuluð þið fara héðan í burtu og
fá ykkur vinnu eða þá að ná ykkur í efnaða konu,“ sagði
karlinn við syni sína.
Piltarnir voru allir á sama máli um að reyna heldur að
ná sér í efnaða konu, því að þá myndu þeir sleppa við að
vinna. Hún gæti séð þeim fyrir nægilegum lífeyri.
Yngsti pilturinn, sem kallaður var Ösku-Axel, langaði
einnig til að fara með bræðrum sínum. En við það var ekki
komandi — bræður hans tóku það ekki í mál að hann fengi ;
að fara með þeim. Þeir höfðu alla tíð gert gys að honum ;
og kallað hann Axel í öskunni.
Svo hlógu þeir að honum og sögðu, að hann væri bezt
kominn í öskunni heima.
Hér með þakka ég innilega öllum þeim mörgu, sem ■
■ glöddu mig á 70 ára afmæli mínu, 23. nóv., með heim- ;!
Z ■;
; sóknum, blómum, skeytum og öðrum gjöfum.
: Guð blessi ykkur öll. ;■
■
■ Anna Einarsdóttir, ■
■ Óðinsgötu 16. :
SCHICK
RAFMAGNSRAKVEUR
nýkomnar.
Verð frá kr. 529.00.
Einnig væntanlegar næstu daga
B. & 0. rakvélar.
á kr. 375.00.
JUÍa kf.
Austurstræti 14 — Sími 1687.
Vöflujárn
4 gerðir, fyrirliggjandi
Hekla h.f.
Austurstræti 14 — Sími 1687
Ameriskar
jólatrésséríur
mjög vandaðar eru komnar
Lampinn
Laugaveg 63 — Stmi 81066
Ungar
raftækin
eru komin aftur.
Tekin upp um helgina.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst.
Laugaveg 63 — Sími 81066
Karla- kven- og barna-
Bomsur
fjölbreytt úrval.
BARNA-GÚMMÍSTÍGVÉL
Stepcín, (jl
unnaróóon
Skóverzlun — Austurstræti 12
L/