Morgunblaðið - 19.12.1953, Side 14

Morgunblaðið - 19.12.1953, Side 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagar 19. des.. 1953 u SMÚM FORSYTMNNM - RÍKI MAÐURINN - ^ Eftir John Galsworthy — Magnús Magnússon íslenzkaði Framhaldssagan 9 góðar, og hengdi þær ekki upp meðfram vegna þess að nafn sonar hans stóð á þeim, heldur geymdi þær í dragkistu. í hinni miklu sönghöll hafði áköf löngun gripið hann að sjá son sinn. Hann minntist þess er hann hafði haft hann á milli hnjánna og ruggað honum og þegar hann gekk við hlið litla héstsins og kenndi snáðanum að ríða. Og hann mundi líka eftir deginum, er hann fylgdi honum í fyrsta sinni í skólann. Hann hafði verið svo blýðlyndur og yndislegur drengur. Eton hafði ekki spillt honum, en kostnaðar- söm hafði dvöl hans verið þar, og fuilmikið hafði hann máske dregið dám af þeim siðum og venjum sem þar tíðkuðust og þóttu eftirsóknarverðar. En alltaf hafði hann verið sami ástúðlegi drengurinn, jafnvel eftir veru sína í Cambidge, enda þátt hann .vegna menntunar sinnar yrði %náske ekki eins nátengdur föður ísínum og áður. Skoðanir Jolyons þatnla á háskólunum og kunnustu skólunum breyttust ekkert, hann hélt ávallt fast við sitt gamla sjónarmið. Hann dáðist að þeim í aðra röndina en hafði jafnframt nokkurn ýmugust á þessum skól- um, sem aðeins þeir efnuðustu gátu notið, og hann sjálfur hafði orðið að fara á mis við. I # .... Nú þegar June var farin og hafði skilið hann einan eftir, fannst honum huggun að því að sjá son sinn aftur. Og á meðan hann var að hugsa þessi svikráð gegn ætt sinni, stétt og lífsregl- um leit hann á söngvarann - óvenjulegan skussa. Og Florian var líka fyrir neðan allar hellur. Nú var því lokið. Það var orðið næsta auðvelt að gera fólki til geðs! Úti á götunni náði hann í vagn fyrir framan nefið á háum, ung- um manni, sem héit, að hann væri búinn að tryggja sér hann. Vagninn ók eftir Pall Mall, en við hornið vék ökumaðurinn inn í St. James Street í stað þess að aka í gegn um Green Park. Jolyon gamli rétti hendina út um gluggann, því að honum var ekki um það gefið að aka aðra leið en hann var vanur. En þegar beygt var fyrir hornið blasti Hatch Poch“ við, og þá náði aftur hin ákafa löngun hans til að sjá son sinn tökum á honum. Hann hróp- aði til ekilsins og bað hann að nema staðar. Hann ætlaði að fara inn og spyrja, hvrnrt Jo væri þar enn meðlimur. Hann gekk inn. Forsalurinn var nákvæmlega eins og hann var, þegar hann snæddi þar mið- degisverð með Jaek Herring. Hann svipaðist um með hinu fasta og einbeittlega augnaráði, sem æ hafði eitt dugað til þess, að hann fékk skjótar og betur framreitt en nokkur annar. „Er herra Jolyon Forsyte enn félagsmaður hér?“ „Já, herra. — Herra Forsyte er staddur hér nú. Hvern á ég að kynna?“ „Föður hans“, var svarið. Er hann hafði sagt þetta, gekk hann að arninum og beið þar. Jolyon ungi var í þann veginn að fara, þegar dyravörðurinn stöðvaði hann. Æskublóminn var nú sölnaður, og hárið farið að grána í vöngum. Hann var mjög líkur föður sínum en þá nokkru smáeflldari í andliti, yfirskeggið mikið og sítt. Hann fölnaði. Það var ægilegt að standa augliti til auglitis við föður sinn eftir öll þessi ár, og ekkert var Jolyon ógeðfelldara en rifrildi. Þeir mættust og tókust þegjandi í hendur. Svo spurði faðir hans, röddin titraði: „Hvernig hefur þú það dreng- ur minn?“ Og sonurinn, svaraði: „Hvernig hefur þú það faðir minn?“. Höndin á Jolyon gamla skalf mikið. „Ef þú ætlar sömu leið og ég, getur þú sezt inn í vagn- inn minn.“ Og svo óku þeir af stað, eins og fyrrum, þegar þeir óku heim saman á hverju kveldi. Jolyon gamla sýndist, að son- urinn hefði stækkað. „Hann er orðinn miklu þroskameiri", hugs- aði hann. Dálítil hæðnisgríma hafði lagst yfir hina viðfeldnu og blíðu andlitsdrætti Jolyons unga, eins og honum hefði fundizt hann þurfa að brynja sig með henni gegn lífinu og umhverfinu. Hann hafði svip og yfirbragð Forsyt- anna, en var þó nokkru íhugulli, líkt og stúdentar og heimspek- ingar eru á stundum. Hann hafði að vonum orðið að skyggnast í sinn innri mann á þessum fimmtán árum. Jolyon hafði í fyrstu komist mjög við, er hann sá föður sinn svo gamlan og farinn. En er þeir sátu saman í vagninum, fannst honum að hann væri lítið breytt- ur — enn var hann sami stilli- legi, höfðinglegi maðurinn, og augun hin sömu, skörp og skír. „Þú lítur hraustlega út, faðir minn.“ „Sæmilega", svaraði Jolyon gamli. Það sem gamla manninum lék mest forvitni á að vita, er hann hafði fundið son sinn, var það, hvernig fjármálum hans liði. „Jó, mig langar til þess að vita, hvernig þú ert staddur. Ertu ekki skuldugur?“ Hann orðaði þetta vægilega til þess að syni hans yrði auðveld- ara um svarið. „Nei, ég skulda ekki“. Jolyon gamli sá, að þykkja '54. var í syni hans, og lagði hönd sína á hans. Hann hafði tekið á sig áhættuna, og honum fannst, að málið væri þess vert, og Jó ' hafði aldrei verið langrækinn. | Þeir óku þegjandi áfram þar til j þeir komu í Standhope Gate. Jolyon gamli bað hann að koma J inn, en sonur hans hrissti höfuðið. I „June er ekki heima“, flýtti faðir hans sér að segja. Hún fór í heimsókn. Þú veizt auðvitað að hún er trúlofuð og ætlar að gifta sig“. , „Nú þegar?“ spurði Jolyon ungi. Jolyon gamli steig út úr vagn- inum, en þegar hann greiddi öku-! manninum urðu honum á mistök ' í fyrsta sinni á ævinni. Hann rétti ökumanninum gullpening í stað shillings. Ökumaðurinn lét peninginn j milli tannanna, sló í hestinn og ' ók hratt burtu. Jolyon gamli sneri hægt lykl- I inum í skránni, hratt upp hurð- j inni og benti syni sínum. Sonur j hans sá hann hengja frakkann sinn upp með svip eins og á1 skóladreng, sem ætlar að stela , kirsuberjum. Dyrnar að borðstofunni voru opnar. Það logaði dauft á gasinu. Tevél snarkaði á borðinu, og skammt frá lá köttur og svaf. , Jolyon gamli ýtti við honum. ! „Hann er með flær“, sagði hann J og rak hann út. Við kjallaradyrn- ar í forstofunni stuggaði hann enn við honum og í sömu and- ránni birtist ráðsmaðurinn. „Þér skuluð fara að sofa„ Parfitt," sagði Jolyon gamli. „Ég skal loka og slökkva.“ Er hann gekk aftur inn í borð- stofuna læddist kisa inn með hon um, með stýrið upp í loftið, eins og hún væri að fullvissa hann um, að það hefði ekki farið fram hjá henni, að hann væri að leika á ráðsmanninn. Jolyon gamli hafði alltaf verið í meira lagi óheppinn í herbrögð- um sínum á heimilinu. Jolyon ungi gat ekki varist því að brosa. Hann hafði mjög glöggt 111111111111111111111111111111111111 Margeftirspurðu rúmteppim eru komin aftur, ennfremur dívamteppi Nýjar vörur daglega Ragnar Blöndal h.í. Nýtt úrval af glæsilegum borðlömpum á hagkvæmu verði komið I búðina Hekla h.f. Austurstræti 14 — Sími 1687 Feldur h.f. \ ■! Laugaveg 118 ■ 2 Fallegustu kvcntöskurnar, samkvæmistöskurnar, hliðar- töskurnar og úrval af einstaklcga laglegum smáleðurvörum. Lítið í gluggann Hljóðfærahúsið Bankastræti 7 HVOR TVÍBURINN NOTAR TONI? HVOR NOTAR DÝRA HÁRLIÐUN ? (Sjá svar að neðan) Vc om ýenr Fleiri nota TONI , en nokkurt annað permanent. Þér munið sannfærast um, að TONI gerir hár yðar silkimjúkt. Hárliðunin verður falleg og end- ist eins lengi og notað væri dýr- asta permanent, en verður mörg- um sinnum ódýrara. Engin sérstök þekking nauð- synleg. Fylgið aðeins myndaleið- beiningunum. Permanent án spóla kr. 23,00 Spólur .......... kr. 32,25 Munið að biðja um f&tlí Heima permanent með hinum einu réttu spó gerir hárið sem sjálfliðað Með hinum einu réttu TONl spólum, er bæði auðveldara og fljótlegra að vinda upp hárið, Komið lokknum í spóluna, vind- ið og smellið síðan. Þetta er aill og sumt. Þér getið notað spólurnar aít- ur og aftur. og næsta hárliði.n verður ennþá ódýrari. Þá þarf aðeins að kaupa hárliðunarvök /- ann. Jafnvei fagmenn geta ekki séð mismuninn. Dorothy Coggins, sú til vinstri, notar Toni. H E K L A H.F. Austnrstrætl 14. Sími 1687,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.