Morgunblaðið - 05.01.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.01.1954, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. janúar 1954 Fraxnh. af bls. 9. nemendur I vetur eða svipað og í fyrravetur. TYÆR NEFNDIR Á árinu hefir starfað þriggja manna nefnd, að því að endur- skoða lög og fyrirkomulag allrar tilrauna og rannsóknastarfsemi í þágu landbúnaðarins. Hefir hún mikið vandamál að vinna, ekki hvað minnst að því er varðar að leggja á ráðin um verkaskipt- ingu Búnaðardeildar atvinnu- deildar háskólans annarsvegar og tilraunabúanna hinsvegar. Til- lögur nefndarinnar eru enn eigi kunnar. Önnur nefnd hefir unnið að endurskoðun laga og ákvæða um Skeiðaáveituna og Flóaáveituna og að því að leggja á ráð um framhald umbóta í þessum sveit- um í sambandi við áveiturnar. Nú þegar allt er á kafi í vatni á Suðurlandsundirlendinu vaknar vafalaust margur bóndinn til um- hugsunar um það hverra umbóta sé mest vant þar að lútandi, og bíður með óþreyju tillagna nefnd arinnar sem enn eru eigi kunn- ar. Vafalaust koma mál þessi til Búnaðarþings í vetur og síðar til Alþingis. í sambandi við tilraunamálin er þess að geta að í fjárlögum ársins 1954 er veitt fé, 75 þús. kr., til Verkfæranefndar og má því vænta þess að þeim mikils- verða þætti búnaðartilrauna, er nær til búvélanna, verði meiri sómi sýndur en verið hefir undan farið, er starf Verkfæranefndar hefir legið niðri með öllu, enda hefir nefndin ekki verið fullskip- uð hin síðustu ár. Hér bíður mik- ið verkefni. MIKLIR HLUTIR Á fjárlögum þessa árs eru veittar kr. 750.000 „til þess að koma upp sýnisreitum í jarð- rækt og námsskeiðum í því sam- bandi“. Þetta eru stórir hlutir, þó að hinsvegar sé enn engan veginn upplýst, svo að bændur viti almennt, hvað hér er í efni. Öllu slíku ber að fagna, en um- fram allt munum, að þótt alls- staðar sé umbóta þörf, veltur nú á mestu að veita búfræðilega læknishjálp í verkinu, ’þar sem mest amar að. Við verðum að læra allt stafrófið, til þess að verða læs á umbótamöguleika landbúnaðarins, það mun reynast erfit að byrja í miðju stafrofi. Það verður engin uppskera af því að sá án þess að plægja og herfa. MARGT GLEÐILEGT Það hefir margt skeð gleðilegt á sviði landbúskapar á árinu sem leið, þó mest sé að lofa tíðar- farið, sem yfirleitt hefir verið hagstætt. En við sem förum eitt- hvað um sveitir landsins gleðj- umst yfir mörgum sigrum, smá- um og stórum, sem unnir eru. Það er mikið gleðiefni að sjá vel ræktuð og húsuð býli, vel setin og umgengin, þar sem fólkið unir glatt við sitt. Þeim fer fjölgandi. Það er mikið gleðiefni að sjá raftaugarnar teigja sig heim á býlin og vita að nú eru mikil átök afstaðin til að auka raf- magnsframleiðsluna í landinu og geta þannig fullnægt um sinn, því sem er frumskilyrði þess að raf- orkan komi sveitafólkinu að not- um, þó að búseta og kostnaður valdi, að mörg heimili verða út- undan enn um skeið. Það er gleðilegt að vita til þess, að senn fæst, og það vonandi á þessu nýbyrjaða ári, innlendur köfnunarefnisáburður, svo að eng in þjóðhagsleg rök hníga framar að því, hvorki með réttu né röngu, að þaS þurfi að spara áburðinn við bændur, eins og stundum hefir viljað bóla á. Þannig má margt telja, smátt og 11I 5 3 stórt, og það sem stundum virð- ist smátt getur, ef vel er að gáð, verið furðu stórt. Mjór er mikils vísir. Það var bjart yfir fyrsta sæmilega umfangsmikla starfs- íþróttamótinu sem háð var f úr- heillisrigningu í Hveragerði í haust. Að sjá það þar og þreifa á því, að æskulýður sveitanna er að vakna til vitundar á nauð- syn þess og ágæti að efla starfs- heiður sinn og verkkunnáttu.. Það er mikill hlutur — miklu meiri en virðist — áð. það var á síðastliðnu sumri byggð brú á Jökulsá á Dal framhjá fremstu bæjum til beinna aínota fyrir aðeins 2 bæi austan árinnar, Vað- brekku og Aðalból í Hrafnkels- dal. Hér er um að ræða þá staðreynd að þjóðin er farin að meta land sitt og viil ekki gefa upp landsréttindi sín og þegn- rétt til þess að byggja það og bæta, þó ekki verði sótt fram allsstaðar samtímis. Saga Sléttu- hrepps má ekki endurtaka sig annarsstaðar. VANDAMÁL En það blasir líka margur vandinn við þeim er víða fer „BreiSa strengi plógjárn sker“ um sveitir landsins. Hér er ekki tími til að ræða margt um þá hluti, en tvennt vil ég nefna. Bændur óttast sölutregðu á vör- u.m þeim sem þeir framleiða ef framleiðslan eykst. Þetta er í senn spurning um verð og skipu- lag. Ljóst er að framleiðsluna má ekki auka án athugunar á því hvernig ber að auka hana svo að best henti, um þarfir og ! sölu, og verðið er einnig afger- andi atriði. Þó að þeim fari því i miður enn fækkandi, í hlutfalli ' við aðra atvinnuvegi, sem stunda j búskap, er ljóst að framþróun landbúnaðarins getur ekki orðið eðlileg, mannfækkunin verður ! ekki stöðvuð, hvað þá að bænd- 1 um geti fjölgað réttilega nema takast megi að flytja út töluvert ! magn búsafurða og selja erlendis. | Flestir telja að það sé dilka- kjötið sem fyrst kemur til greina. En þá blasir vandinn við: verðið — framleiðslukostnaðurinn. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að það eru yfirleitt ekki bændurnir í bestu sauðfjár- sveitunum, sem eru búnir að búa best í haginn fyrir hagkvæman búskap í framtíðinni, er staðist geti þá raun að keppa við aðrar þjóðir um framleiðslu, verð og vörugæði. Hér blasir við hinn mikli vandi, að gera hvort tveggja í senn að auka fram- iciðsluna og- gera hana ódýrari. Það er mikill fneginmunur á því er bændur í Árnessýslu rækta um 1 ha. á ári að meðaltali á býli hverju, en svo komum við í sveitir þar sem við getum far- ið bæ frá bæ án þess að rekast á sláttuvélarfæran blett í túni, og þetta á við um sveitir sem Þetta þarf að laga og verður að laga. Þó ekki verði komist lengra á árinu 1954 en að átta sig á þessu, er það mikill áfangi. Það er að sumu leyti gott að eiga vandamál við að glíma, og enn- þá betra að hafa manndóm til að glima við þau. Bændurnir sem lengst eru komnir og sveitirnar sem eru í fararbroddi, litast nú um og sjá að framtíðarheild þeirra er að miklu leyit undir því komin, að hinum, sem hafa dregist aftur úr verði rétt sú hjálparhönd, er megnar að rétta fylkingu bænd- anna allra sem stéttar og þjóð- félagsborgara. Þegar það hefir verið gert þá verður margt hægt sem nú sýnist örðugt. til bæj arstjórnarkosninga í Hafnarfirði, sem frarn eiga að fara 31. janúar 1954, er útrunninn kl. 12 á mið- nætti aðfaranótt hins 10. jan. 1954. Skulu framboðslistar hafa borizt fyrir þann tíma odd- vita yfirkjörstjórnar, Jóhanni Þorsteinssyni, Suður- götu 15. YFIRKJÖRSTJÓRNIN verða í nútíð ög framtíð að byggja afkomu sína að langmestu leyti á sauðfjárrækt. Hér er mikilla átaka og umbóta þörf. Ég held það sé langmesta vanda- mál landbúnaðarins, eins og nú standa sakir, hvernig á að „hrinda þeirra hag á leið“ bænd- anna og sveitanna sem orðnar eru afturúr í ræktun og umbót- um. Hér er þörf mikilla og skjótra aðgerða. Að þessu mun vikið síðar hér í blaðinu, en eitt vil ég benda á nú þegar, að þó að lítið verði að gert nema með miklu fé, skyldi enginn haldá að peningarnir séu einhlýtir. Það þarf meira, þarf þá hluti sem aldrei verða keyptir fyrir krón- ur og aura eingöngu. Það þarf þekk>ngu og trú. Lifandi leið- beiningar og fordæmi. Enn er búnaðarleiðbeiningakerfi sveit- anna í molum. Athugum það, að enn eru bændur í þeim lands- hlutum, þar sem þörfin á örugg- um leiðbeiningum er mest og brýnust algerlega afskiptir um slíka starfsemi. Smð/iáms/cezð i • Næstu námskeið í kjólasniði hefjast mánudaginn 11. jan. » síðdegis og kvöldfímar. ■ ■ ■ Siðar í janúar hefst námskeið í kápu- og dragtasniði ■ (fyrir dömur og klæðskera). i ■ ^IGRÚN Á. SIGURÐARDÓTTIR ■ sniðkennari ; Grettisgötu 6 — Sími 82178 I Bíiskúr eða herbergí óskast í Laugarneshverfi í lengri eða skemmri tíma. Á að notast fyrir geymslu á ávöxtum. — Uppl. í síma 82655. rrt » t r ■ Teigahuöm Nokkra sjómenn og landmenn m ÍTÖLSK EPLfl APPELSÍIMIiR vantar á landróðrabát frá Sandgerði — Upplýsingar í skrifstofu A. J. Bertelsen & Co. h. f., Hafnarstræti 11, sími 6323, kl. 2—4 e. h. í dag. MELONIJR fyrirliggjandi. JJcfCfert ^JJriótjánáóon (U Co. L.f Ebúð til sölu Fokheld 100 ferm. kjallaraíbúð á góðum stað í bænum til sölu. — Ibúðin getur orðið 4. herbergi og eldhús. — Sérinngangur, scrhitun. — Tilboð merkt: „Hagstæðir skilmálar — 429“, sendist afgr. blaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.