Morgunblaðið - 22.01.1954, Side 10
■■■■■■I
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. janúar 1954
Tilboð óskast
í þessa hluta húseignarinnar nr. 14 við Aðalgötu,
Siglufirði:
1. 2. hæð (3 herbergi, eldhús og bað) ásamt hálfri
rishæð. (1 herbergi, V2 þvottahús og % þurrkloft)
2. Neðstu hæð (núverandi skrifstofuhúsnæði
Hafliða h.f.)
3. Búðarherbergi í norðausturhorni hússins.
Tilboð má gera í þessa hluta hússins hvern fyrir sig,
tvo saman, eða alla saman. — Húsið er 90—95 ferm. að
flatarmáli, byggt úr steinsteypu 1935—1936. — íbúðar-
húsnæðið er laust til íbúðar nú þegar, svo og búðar-
herbergið, en skrifstofuhúsnæðið verður laust á kom-
andi vori.
Tilboð ber að senda undirrituðum fyrir 1. marz n. k.
— Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna þeim öllum.
Skiptaráðandinn í Siglufjarðarkaupstað
Einar Ingimundarson.
Húseign til sölu
•Húseignin Skipasund 63 er til sölu. — Húsið er byggt
á vegum Byggingasamvinnufélags Reykjavíkur og eiga
félagsmenn forkaupsrétt að eigninni skv. lögum. Þeir,
sem vilja nota forkaupsréttinn, verða að hafa lagt inn
tilboð á skrifstofu félagsins, Austurstræti 5, fyrir 1.
febrúar næstkomandi.
Fyrir hönd félagsstjórnarinnar
Jóhannes Elíasson.
Jörðin Arnarhóli
í Vestur-Landeyjum í Rangárvallasýslu fæst til kaups
og ábúðar í næstu fardögum. — Upplýsingar í skriístofu
kaupfélagsins Þór, Hellu.
1 Utvegsnrtenn — Skipstjórar
!■
j Þorskanetjasteinar
' Z
■ fyrirliggjandi. — Hentug gerð fyrir nælonnet. — Hag-
stætt verð. — Leitið uppl. sem fyrst í síma 6903.
Veiiingastofa
Óska eftir húsnæði fyrir
veitingastofu eða veitinga-
stofu til kaups eða leigu.
Annað húsnæði, sem hentar
fyrir veitingarekstur, kem-
ur til greina. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir 1. febr.,
merkt: „Veitingarekstur —
193“.
Stúlka
óskast hálfan daginn í matvöruverzlun. — Tilboð ásamt
mynd og meðmælum, ef til eru, sendist afgr. Mbl. merkt:
„Stúlka — 192“, fyrir mánudagskvöld.
Einar Ásmundsson
hattarilUttðflakður
Tjamourgato 10. Sími 540?.
Allskonat lögfiorðittörf.
Sala iaitoigna 00 akipa.
ViSulutlml út ll Ultllgnaatla
■aalUg* U. IO - 13 Lh.
Matsvein
annan vélstjóra og landmenn vantar á m.s. SÍLDIN,
frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 9328 og um borð í bátnum
í Hafnarfirði.
Stórmerk nýjung frá Gefjuni:
GRILON-GEIJUNAR0ARN
Ullarverksmiðjunni Gefjunni hefur nú eftir umfangsmiklar til-
raunir tekizt að framleiða nýja tegund af garni, stórum betri og full
komnari en hér hefur þekkzt áður. Garn þetta er íslenzkt ullar-
garn blandað svissneska undraef ninu GRILON, sem hefur alla kosti
nælon og tekur við ullarlitum að auki. Þetta nýja GRILON-GEFJ-
UNARGARN hefur alla kosti hinnar ógætu, íslenzku ullar, en kosti GRILON að auki.
Þessir kostir GRILON gera garnið miklu sterkara en ella og auk þess verulega mýkra.
Allir þeir, sem notað hafa Gefjunargarn. munu reyna þetta nýja garn af forvitni og
eftirvæntingu, og það mun standast prófraunina. Það mun tryggja sterkari og mýkri
prónavörur og konúr munu hafa ánægju af að prjóna úr því.
GRILQN-GEFJUNARGARNIÐ ei mýkra og miklu sterkara en ann-
að fáanlegt garn. — Fjórtán litir þegar fyrirliggjandi.
GRILON-GEFJUNARGARNIÐ fæst hjá öllum kaupfélögum.
Gefjun-Iðunn, Kirkjustræti, Reykjavík, og ýmsum verzlunum.
ULLAR VERKSMIÐJAN GEFJUN
Vér viljum vekja athygli bifreiðaeigenda á því, að um síðast liðin áramót ákváðum vér, að lækka iðgjöld
ábyrgðartryggingum bifreiða í sveitum landsins um 40 af hundraði, frá og með 1. maí næst komandi.
Samtímis var ákveðið í tilraunaskyni, að hætta að gefa þar afslátt af iðgjöldum fyrir tjónalaust ár, en Félag
lenzkra bifreiðaeigenda hefur lengi óskað þess.
Vér viljum því hvetja alla tryggingartaka til, að kynna sér iðgjöld vor, áður en þeir tryggja annars staðar.
Umboðsmenn vorir um land allt munu góðfúslega veita yður allar upplýsingar.