Morgunblaðið - 22.01.1954, Síða 11

Morgunblaðið - 22.01.1954, Síða 11
Fön+udagur 22. janúar 1954 MORGUTSBLAÐIÐ 11 EkppdrætfisláE Sveinn In memoriam [ „Er þegar ungir \ öllgir falla, J sem sígi í ægi sól á dagmálum". SVEINN KARLSSON var fædd- ur á Seyðisfirði 10. júní 1935. •— Dáinn 10. desember 1953. Hann var sonur hjónanna Kristínar Halldórsdóttur og Karls Sveinssonar sem eru búsett á Seyðisfirði. Það setti að mér sára hryggð er ég heyrði að Sveinn væri dá- jnn — enda er fátt hörmulegra en þegar ungur og efnilegur mað- ur hnígur í valinn, — rétt í þann mund er lífsþrá og starfslöngun hans hefur sprungið út að fullu. Það er svo erfitt að sætta sig við, að einn af góðvinum manns Og félögum, séu í blóma lífsins, kvaddir svo skyndilega til móts við dauðann, og horfnir út í heið- bláinn, ekki framar til í lífi manns í minningunni. Þegar öldungur deyr, kemur dauðinn til hans sem vinur, vitj- ar hans sem mildur svæfandi nið- ur þúsund vatna. Hrifur hann með sér fram til hafsins mikla, þar sem enginn veit strönd fyrir stafni. Fóik sættir sig auðveldlega við slíkt. En þegar ungu lífi er skyndilega svipt upp með rótum, er eins og bresti mjúkur strengur í hinu mikla hljómborði lífsins, og dagarnir eru ekki samir og áður. Því er alltaf sárt að fylgja ung- um manni til grafar. Sveinn var einn þeirra manna sem mikils mátti af vænta, hefði honum enzt líf til. Þótt hann væri snauður á ver- aldarvísu átti hann það til sem er auði betra, en það var hin aðlaðandi og ljúfmannlega skap- gerð, hinn mildi og hlýlegi geð- blær sem vann hvers manns hug. Hans förunautur var lífsgleðin og kýmnin, sem var þó laus við alla kartni eða það sem kallað er að skemmta sér á kostnað ann- ara. Enda var Sveinn ætíð vel- kominn þar sem hann þekkti til. Það eitt að hugsa til hans gerði manni glatt í skapi. Og alltaf var gott að ná fundi hans. Hann var vinum sínum trúr og einlægur, og reyndist ætíð bezt þegar mest á reyndi. Slíkum mönnum farnast jafnan vel í líf- inu, enda átti Sveinn margan vinarhug.. Þó kynni okkar Sveins hefðu ekki staðið lengi varð mér skjótt Ijóst að hann myndi verða starf- samur atorkumaður og komast vel áfram, ef hann gengi heill til skógar. Hann var sparsamur og fór vel með fé sitt, neytti hvorki tóbaks né áfengis, en var löngum að huga að, hvernig hann gæti skapað sér og sínum sem væn- legust lífskjör er tímar liðu. Að lokum afréð hann að læra húsa- smíði og hugðist hefja námið sem fyrst. Sveinn var sérlega músíkelsk- Karlsson ur og söngvin, og kunni sand af ailskonar lögum, sem hann raul- aði löngum við störf sín. Hann var nýlega farinn að syngja með stórum’kór hér í bænum, þegar dauðinn kallaði hann á braut. Sveinn var jarðsettur í Foss- vogskirkjugarði 21. desember. — Megi ljúfir vindar strá legstað hans blómum, og hrímnætur hvít um rósum. Við fráfall Sveins er foreldrum og systkinum búinn sár harmur, sem enginn getur mildað nema tíminn einn. Eg vil ljúka þessum fátæklegu orðum með því að votta þeim innilegustu samúð mína í þessum beisklegu raun- um. Alfaðir réttu þeim höndina þína. Vinur. Komn í Keflavlk skemmta gamla fólkinu KEFLAVÍK, 12. jan. — Sunnu- daginn 10. jan. bauð Kvenfélag Keflavíkur gamalmennum bæj- arins til fagnaðar í Ungmennafé- lagshúsinu. Skemmtun þessi er árlegt tilhlökkunarefni þeirra elztu og var því fjölsótt. Setið var við jólatré og söng og höfðinglegar veitingar, sem kvenfélagskonur komu með frá heimilum sínum. Kirkjukór Frið- riks Þorsteinssonar annaðist söng inn og allir tóku undir. Séra Björn Jónsson talaði við gestina og nemendur úr leikskóla Æv- ars Kvaran fluttu leikþátt og upplestra. Einnig las Helgi Skúlason upp úr Gullna hliðinu og kvikmynd var sýnd. A eftir var svo slegið upp í Polka og Ræl og Marsúkki og Vals rifjaðir upp. Gamla fólkið var mjög ánægt með skemmtunina og þakklátt Kvenfélaginu fyrir þennan skemmtilega dag. Lítið er nú hér af skemmtunu mvið hæfi þeirra elztu. — Helgi S. Jose Ferrer giffur Allt í einu og öllum að óvörum flaug sú frétt að hinn heimsfrægi ameríski leikari Jose Ferrer, sem kunnur er m. a. úr kvikmyndun- um Cyrano de Bergerac og nú síðast í Rauðu myllnnni hefði gengið að eiga hina frægu amerísku söngkonu Rosemary Clooney, sem fyrir nokkrum ár- um gat sér heimsfrægð fyrir lag- ið Come on a my house. Brúð- hjónin sjást hér á myndinni. - Raforkumál Framh. af bls. 6. Þriðja ádeilan, sem einkum kemur frá kommúnistum, er sú, að ekki sé þegar búið að virkja allt Sogið. Skal nú þessum atriðum svarað nokkuð. VIRKJUN ELLIÐAÁNNA Þegar undirbúin var virkjun Elliðaánna í kringum 1920 voru íbúar Reykjavíkur 17—18 þús. Með þeirri íbúatölu var útilokað, að Sogsvirkjun gæti borið sig. Það var enginn möguleiki til að selja nema nokkurn hluta af því rafmagni, sem Sogsvirkjunin hefði framieitt. Virkjunin hefði fyrirsjáanlega verið rekin með stórhalla um margra ára skeið. Það þýddi aftur á móti, að úti- lokað var að fá lán innanlands eða utan. Þeir erlendu ráðunaut- ar, sem leitað var til um málið, töldu, að 30 þús. íbúa þyrfti til þess að standa undir fyrstu virkj- un Sogsins. VIRKJUN LJÓSAFOSS UNDIRBÚIN Önnur ádeilan er jafn fráleit, að Sjálfstæðismenn hafi verið á- hugalausir um virkjun Sogsins allt fram til 1932, er þeir hafi verið ,,knúðir“ til fylgis við mál- ið. Þegar rakin er saga Sogsvirkj- unarmálsins, kemur í ljós, að þegar á árinu 1917 tryggði Reykjavíkurbær sér, fyrir for- göngu Knúts Zimsens og Jóns Þorlákssonar, eignaítök í Soginu, með það fyrir augum að reisa þar raforkuver. Síðan var málinu haldið vak- andi. Steingrímur Jónsson raf- magnsstjóri vann að frumáætlun um virkjun Sogsins, og var hún tilbúin 15. júní 1928. Eftir ýtar- legar umræður og undirbúning var málið flutt inn á Alþingi 1931 og leitað ríkisábyrgðar á 7 millj. kr. láni til þess að bærinn gæti ráðizt í Sogsvirkjunina. Eins og kunnugt er var þing rofið, áður en sú tillaga yrði samþykkt, og málgagn Fram- sóknarflokksins taldi eina á- stæðuna fyrir þingrofinu vera hættuna á því, að þessi ríkis- ábyrgð yrði samþykkt. „Tím- inn“ kallaði þessi áform um ríkisábyrgð vegna Sogsvirkj- unarinnar „samsæri andstæðinga Framsóknarflokksins." Þrátt fyrir þessi viðbrögð Framsóknarflokksins, hélt Sjálf- stæðisflokkurinn áfram barátt- unni fyrir virkjun Sogsins og undir forystu Jóns Þorlákssonar var því stórmáli hrundið í fram- kvæmd. VIRKJANIR ÞURFA AÐ BERA SIG Þriðja árásin er svo frá komm- únistum. Hversvegna er ekki bú- ið að virkja Efri-fossa og jafn- vel ljúka fullnaðarvirkjun Sogs- ins? Slíkri spurningu er fljót- svarað: Reykjavík hefur nægi- legt rafmagn nú og næstu ár. Frekari rafvirkjanir fyrir Reykja vik gætu ekki borið sig nú og hlytu að verða reknar með stór- halla. Út af svipaðri ásökun sagði orð- heppinn borgari fyrir nokkrum árum: Það vár ljóti afturhalds- maðurinn, hann Ingólfur Arnar- son, að vera ekki búinn að virkja Sogið! Sjálfstæðismenn hafa frá önd- verðu haft forgöngu um raf- magnsmálin. Rafvirkjanir hafa verið vandlega undirbúnar og síðan framkvæmdar strax þegar j f járhagslegur grundvöllur var fenginn undir stofnkostnað og rekstur. Bæjarbúar vita það af reynslu undanfarinna áratuga, að Sjálf- stæðismenn hafa unnið að þess- u mmálum með festu og fram- sýni. Sjálfstæðismenn óska þess, að kjósendur byggi skoðanir sín- ar um framtíðina á reynslu for- tíðarinnar. * ríkissjóðs VINNINGASKRÁ 15. janúar 1954 Kr. 75.000.00 106517 Kr. 40.000.00 134697 Kr. 15.000.00 105876 Kr. 10.000.00 69474 76337 104584 Kr. 5.000.00 41107 86868 87297 126059 141590 Kr. 2.000.00 1793 3987 14218 55335 85192 86086 88007 97856 103421 116088 122665 123308 126205 126733 126824 Kr. 1.000.00 1500 17812 28301 40458 40487 49968 53329 58856 64693 65816 70171 70717 73923 74459 95027 103838 108351 118825 121988 122989 124202 125472 127522 143145 147566 Kr. 500.00 1183 1232 1711 2595 3577 5899 7488 7738 10142 11434 11531 12034 12459 13183 14423 15247 16929 18506 20603 21280 22738 23436 24927 26924 27848 29011 29574 31022 31448 32434 32467 33463 34654 35484 36515 38431 38946 40361 43978 44469 45171 46029 46150 46839 46983 47145 47586 48150 50012 50989 51528 52103 52856 58072 60749 62066 63646 65040 65788 65930 67683 68688 70150 73405 74338 74890 75150 76161 76355 76616 78690 78887 85348 86040 89485 91458 92953 94548 96468 96526 96872 97668 97882 98754 99347 100429 101251 102909 103617 104393 104983 108724 108953 111868 113434 114346 115313 115357 117083 117918 118834 119591 119599 122334 122499 123204 123229 123978 124055 125545 125483 125785 127209 128419 129906 130239 132828 135201 135669 136695 137501 140160 141652 141871 142857 143466 145703 147341 148003 149099 Kr. 250.00 326 1191 1469 1653 2389 2672 2814 3060 3988 4423 4437 4636 4705 6028 6079 7112 7837 7982 8271 8435 9359 9462 9672 10521 11041 11137 11142 13044 13262 13508 13752 14816 15394 16439 16560 18086 19999 20009 20217 20326 20377 20834 22479 22497 23050 23180 23227 23265 24242 24830 25744 25914 25955 26664 26754 28634 29206 29318 29783 30355 30794 32440 32765 33145 35898 36248 36427 36992 37085 37201 '37426 37704 38136 39003 39025 39383 39775 39927 40059 40206 40765 41858 42376 42752 42864 43341 44543 45149 45158 45973 48018 49658 49723 50331 51963 52033 52724 53420 53572 53788 54128 54721 54873 54940 58701 59460 60663 60758 61225 62795 63106 63377 63609 64388 64613 65205 65914 66064 66393 66641 66902 67993 68675 70479 70666 70909 71441 73216 74788 75384 75514 75597 75729 75945 76175 76468 77372 77491 77839 78050 78931 79128 79154 79485 80575 80772 81452 81486 81523 81580 81891 82103 B-flokkur 82330 82383 82807 83198 83242 83662 84553 85551 85569 86589 86747 87194 88186 88264 88798 89314 90656 90813 90851 90923 92773 92824 93640 93952 94990 95137 95295 95823 96785 97344 97770 97841 98091 99249 99640 99807 100777 101732 101748 101816 102353 102882 103087 103190 104562 105434 106989 107754 107987 108125 108578 108636 108678 108709 110810 111977 112147 112469 112533‘ 112575 113415 113642 113826 114348 115022 115503 115771 116845 116952 117195 117789 117917 118215 119335 119483 119511 120181 120627 121267 121525 121761 122231 122994 123296 125358 126408 126511 127512 126866 127353 127412 128444 129611 130920 132270 132366 132557 133842 134554 134566 136316 136467 136912 137047 137340 137574 138242 138488 138569 139099 139347 13965Z 139869 139871 139947 140126’ 140638 140667 142771 143913 145145 146354 147363 148061 148575 148589 148682 149741 (Birt án ábyrgðar). Systir mín Sigurlaug Jakobína sextug Heill þér sextugri, systir mín, sjáðu nú yfir liðna vegu, manndómsárin þín merkilegu, guðs röðull yfir öllu skín. Þá hart var barizt hélstu velli þó hisrni utanaf kjarna félli, þú stóra hetja í stormsins raun, þín stilling vinnur sigurlaun. Þig Drottinn gæddi glöðum hug, að gjöra lífið bjart og fagurt, ef daglegt brauð varð beizkt og magui'i þú áttir hjartans auð og dug. Þú gesta veittir mörgum munh- um, af mildi’ og rausnarsið alkunh- um, og hvar var hlýrra’ um hrund og mann en heima í þínum gleði rann? -l‘ Þar kvað við barnakórinn þinh, sem kvaki sætar englaraddir, , þú vinarorðum alla kvaddir, f ailir vissu sig velkomna* inn. Með kórnum tóku allir undir og áttu sínar beztu stundir, og þessi minning helg og heið, hellir geislum á vora leið. Þótt tíminn líði’ og árin ótt ? yfir vor silfruð höfuð færist, ; af englasöngnum sál vor nærist, því skaðar okkur ekkert ljótt. Þér æskudraumur býr í barrrtí, þú brosir gegn um tár á hvarmi, enn blika augun blá og skser, því birtu Guðs á framtíð slær. Svo heill þér, heill þér, systir sæl, siunga, hýra draumagyðja, sem vildir æ hið veika styðja, , ég man það vel þú varst inndæl, gulllokka safn þitt silfrast, vina', en sjáðu bara okkur hina, sem voru’ að árum yngri’ en þú„ en ellilegri sýnast nú! Gakk örugg fram þá löngu leið, sem liggur upp á sigurhæðir, þar sem að vísu nepjan næðir, en útsýni’ er þar hrein og heið. Hve sæi, hve sæl er ungum. anda sú yfirsýn til fegri landa, og trú og von og ást í arf, er aijt sem vegfarandinn þai'í. fl Með hjartans afmæliskveðju. ; Kristín. ’j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.