Morgunblaðið - 09.02.1954, Qupperneq 9
Þriðjudagur 9, febrúar 1954
MORGUNBLAÐIÐ
9
IMýjar hljómplötur
ÓMAKLEG LÍTILSVIRÐING '
MARGA menn, en þó einkum
þá, er halda vilja á lofti smekk
sínum og þekkingu á góðri tón-
list, hef ég heyrt tala með lítils-
virðingu um svokallaða
„Grammofónmusík“, og nefna
hana „niðursoðna tönlist“. í dóm-
um þessara manna hefur mér
alltaf fundizt kenna meira yfir-
lætis en sanngirni, enda hika ég
ekki við að fullyrða, að lítilsvirð-
ing manna á grammófónmúsík
sem slíkri, sé ómakleg, ekki sízt
eins og nú er högum háttað í
þessu efni. Staðreyndirnar tala
einnig sínu ótvíræða máli gegn
þessum dómum hinna „vandlátu“
því að, eins og allir vita, hafa
margir mestu tónsnillingar
heimsins leikið eða sungið inn á
grammófónplötur, en það mundu
þeir varla hafa gert ef þeir hefðu
álitið að með því væri list þeirra |
misboðið. — Það skal að vísu j
játað, að um langt skeið, — með- !
an grammófónar og hljómplötur
og sérstaklega upptökutæknin
var lélegri miklu en nú gerist,
stóð flutningur tónverka og
söngs af grammófón langt að
baki hinni „lifandi tónlist“ þ. e.
eins og hún kemur frá listamönn-
unum milliliðalaust. En á þessu
hefur orðið stórfeld breyting til
bóta með hinum fullkomnu radío
grammófónum og plötuspilurum
og nú síðast hægagangsplötunum,
sem á enska tungu nefnast „long-
play“ plötur (LP). — Má nú svo
heita, að munurinn á tónlist af
grammófóni og „lifandi tónlist"
sé um tóngæði orðinn sáralítill
eða allt að því enginn, þegar bezt
lætur. En það fer, vitaskuld, eftir
því hversu gott tækið er og upp-
takan. Hitt er svo annað mál að
alltaf verður vitanlega áhrifa-
mest að hlusta á listamennina
sjálfa.
L. P. plöturnar hafa marga
kosti og mikla fram yfir þær
gömlu. Þær taka mjklu meira,
svo að ein slík plata jafngildir
að því leyti 5—6 venjulegum plöt
um. Af því leiðir, að hægt er að
flytja á einni L.P. plötu, óslitið,
Stórt tónverk, t. d. sinfóníu, sem
tæki margar plötur af gömlu
gerðinni og slitnaði í sundur við
hverja skiptingu. Auk þess er
efnið í L.P. plötunum betra miklu
en í hinum gömlu og ekki nálægt
því eins brothætt. Við þetta bæt-
ist að nálarhljóðið, sem alltaf
hefur verið til lýta og leiðinda er
nú horfið með öllu og er að því
eðlilega mikill ávinningur.
Að vísu má segja að aldrei sé
fullt öryggi fyrir því að grammó-
fónninn flytji músikina hárrétt,
þar eð hægt er með litlu hand-
bragði að auka eða draga úr tón-
og raddstyrk, — en smekkvís
maður getur í því efni komizt
all nærri því rétta.
Góður radíógrammófónn og
plötur með fagurri tónlist
veita mönnum margar unaðs-
Stundir. Með slík tæki við hend-
ina geta þeir á góðum stundum
heima hjá sér hlustað á mestu
snillinga veraldarinnar syngja
eða flytja tónverk eftir öndvegis-
tónskáld heimsins fyrr og síðar.
Og það er öldungis ótrúlegt
hversu mjög menn geta með því
þroskað smekk sinn og aukið
þekkingu sína á góðri tónlist.
ORGELLEIKUR
DR. PÁLS ÍSÓLFSSONAR
HINN 10. október s.l. varð dr.
Páll ísólfsson, okkar ágæti tón-
listarfrömuður og orgelsnillingur,
60 ára. — í tilefni þess fóru
nokkrir vinir og aðdáendur lista-
mannsins þess á leit við hann að
hann léki á plötur nokkur tón-
verk eftir Johan Sebastian Bach,
er hann veldi sjálfur. Varð dr.
Páll við þessum tilmælum vina
sinna og fór í því skyni til Lund-
úna í vor sem leið á vegum Hís
Masters Voice (H. M. V.), en fyr-
jr milligöngu umboðsmanna firm-
ans hér, Fálkans h.f. Lék Páll
þar í All Souls Church níu tón-
verk eftir Bach á sex plötur með
yenjulegum hraða (78). Vinir
Páls, er að ofan getur, hlutuðust
til um, að gerð voru 400 bindi
um þessar sex grammófónplötur
og eru þau öll tölusett og með
áritun listamannsins. — í grein-
argerð, sem fylgir hverju bindi,
segja þeir er að útgáfunni standa!
meðal annars:
-----„Höfum vér með þessum
hætti viljað sýna dr. Páli ísólfs-
syni sæmdarvott á sextugsafmæii
hans —“. en undir greinargerð-
ina rita margir þjóðkunnir menn
og er þar forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson efstur á blaði.
Verk þau er dr. Páil lék, eru
sem hér segir:
Toccata og fúga d-moll (HM.V.
D. B. 30000).
Prelulia og fúga Es-dúr (H.M.V.
D. B. 30002—30003).
Preludia og fúga d-moll og
a) In dulci jubiio
b) Wer nur den lieben Gott
lasst walden
(H.M.V. D. B. 30004).
Preludia og fúga c-moll (H.M.V.
D. B. 30005).
Pastorale F-dúr og
a) Herzlich thut mich ver-
langen.
b) JesusChristusunserHeiland
(H.M.V. D. B. 30001).
Ég átti fyrir skömmu tal við
dr. Pál um þessa ferð hans til
Lundúna og upptökuna á orgel-
leik hans. Sagði hann mér að
starfsskilyrði hans þar hefðu ver-
ið mjög óhagstæð. Hefði hann,
vegna þess hve kirkjan var oft
upptekin, haft alltof takmarkað-
an tíma tíl æfinga — aðeins tvær
klukkustundir á dag í þrjá daga.
„Auk þess var ég ókunnugur
hljóðfærinu“, sagði Páll, „því að
í Englandi er annað fyrirkomulag
á orgelum en tíðkast á megin-
landinu. Og að lokum varð ég
svo að spila allt inn í einni lotu,
á sex klukkustundum“.
Enda þótt starfsskilyrði dr.
Páls væru svona óhagstæð og það
hafi hlotið að vera mikil þrek-
raun að leika á orgelið í sex
klukkustundir samíleytt, gætir
þess hvergi í meðferð listamanns-
ins á viðfangsefnunum. Er leikur
hans allur með miklum snilldar-
brag og túlkun hans á hinum frá-
bæru tónverkum meistarans djúp
stæð og hrífandi. — í brezka
tímaritinu „The Gramophone” er
hefur á að skipa færustu gagn-
rýnendum, er gera hinar ítrustu
kröfur um tónlistarflutning og oft
eru æði óvægnir í dómum sínum,
jafnvel þótt heimssnillingar eigi
í hlut, er farið mjög lofsamleg-
I um orðum um leik Páls og túlk-
j un hans á Bach. Er hann þar tal-
inn í fremstu röð orgelleikara og
honum líkt við Germani, sem af
: mörgum er talinn mestur orgel-
! snillingur vorra tíma. Er þetta
, mikil viðurkenning, ekki sízt þeg-
ar þess er gætt, að „The Gramo-
phone“ er eitt af ágætustu tíma-
ritum í sinni grein og allstaðar
mikils metið. Þá lýkur tímaritið
einnig miklu lofsorði á upptök-
una, er það segir að sé afburða-
góð.
H.M.V. hefur að undanförnu
sent þessar plötur dr. Páls á
h eimsmarkaðinn og kemur hin
síðasta þeirra út í þessum mán-
uði. Hefur Fálkinn h.f. nýlega
fengið um það tilkynningu frá
firmanu og fylgdu henni hin lof-
samlegustu ummæli um leik Páls.
Oddvar.
Tók 5 klst. að hita upp
hreyflana í 30 st. frosti
Gijáfaxi var tvo sótarhrings í Grænlandi
Á SUNNUDAGSKVÖLD kom Gljáfaxi úr Grænlandsför, en til
námubæjarins í Meistaravík flutti hún þrjá af ráðamönnum Námu-
félagsins. — Meðan flugmennirnir höfðu viðdvöl í Meistaravík,
frá því á föstudag, var þar brunagaddur og mældist frostið mest
39 stig. —
Sverrir Jónsson var flug-
stjóri í þessari ferð. — Hann
hefur m. a. skýrt frá því, að
er þeir hafi komið til Meist-
aravíkur, hafi þeir strax hald-
ið áleiðis til námabæjarins. —
Hann er 12 km leið frá flug-
vellinum. — Farkosturinn var
jeppabíll, sem settur hafði
verið á sleða, en sleðinn síð-
an dreginn af beltisdráttar-
vél. — Jeppinn var hafður í
gangi til að hita ferðamönn-
unum.
í námabænum starfa 35 manns
og virðist ekkert að vanbúnaði
þar. Þar eru m. a. gufuböð og
háfjallasólir og fæði gott. —
Unnið er í neðanjarðargöngum
námunnar.
TÓK 5 KLST AÐ HITA
UPP HREYFLANA
Eldsnemma á sunnudagsmorg-
uninn fór Sverrir flugstjóri að
búa Gijáfaxa undir heimförina.
Þá var þar enn rúmleg-a 30 stiga
frost. •— Það tók langan tíma a&
búa flugvélina af stað. — Geta
má þess til dæmis, að það iah.
fimm klukkustundir að ■ hita
hreyflana upp, svo hægt væri a#
ræsa þá. Var það gert með þeim
hætti að heitu lofti var dælt frá
útblástursröri dráttarvélarinnar *
slöngum inn á hreyfilinn, til að
hita upp hina ísköldu olíu.
Flugferðin heim gekk að óskum
og voru þá með flugvélinni S
farþegar.
Ungfrú Delahaye flylur há*
skólafyrirleslur um franska
málarann ToulouseLaufrec
N. K. FIMMTUDAG flytur franski sendikennarinn við Háskólann,
ungfrú Marguerite Delahaye, fyrirlestur um franska málarann
Toulouse-Lautrec. Kallar ungfrúin erindi sitt: „Montmartre mál-
arinn, Henri de Toulouse-Lautrec." Fyrirlesturinn fer fram í há-
skólanum og hefst kl. 18,15 e. h.
dvergvöxtur hans varð hinum
stórláta og í senn viðkvæma
snillingi ævilöng kvöl.
Toulouse-Lautrec lézt,. saddur
lífdaga, árið 1901 37 ára gamall.
Verður fróðlegt að heyra, hvað
ungfrú Delahaye hefir að segja
um þennan fræga látna landa
KAUÐA MYLLAN
Reykvískum kvikmyndahús-
gestum er í fersku minni hin
óviðjafnanlega kvikmynd, „Moul-
in Rouge" (Rauða myllan), sem
sýningum er nú nýlokið á. Er-
indi ungfrú Delahaye mun fjalla
um sama efni, raunir, erfiðleika
og snilli hins heimfræga lista-
manns, sem varð á unga aldri fyr-
ir þeirra ógæfu að brotna á báð-
um fótum, þannig, að lífið varð
honum upp frá því byrði, sem
honum á stundum virtist vera
um megn að bera.
ÆVILÖNG KVÖL
Fætur hans hættu að vaxa og
TVeir hátar til Sii^anda-
O
arðar á skönunuin tíma
ÍSAFIRÐI, 8. febr. — S. 1. föstudag var hleypt af stokkunum í
skipastöð Marzelliusar Bernharðssonar, nýju og glæsilegu skipi,
sem hlotið hefur nafnið Friðbert Guðmundsson ÍS 400. Kjölur
þessa nýja báts var lagður í vor, en vegna þess hVe lengi stóð á
efni í bátinn, gat smíði hans ekki hafizt fyrr en um mánaðamótin
ágúst og september og hefur hún gengið mjög vel síðan.
Báturinn er hinn vandaðasti að
ölium frágangi. Er í honum 240
hestafla casterpillervéi. Þá er
hann einnig búin öllum fulikomn
ustu tækjum.
ANNAR BÁTUR
SÚGFIRÐINGA Á
SKÖMMITM TÍMA
Eigendur bátsins eru synir
Friðberts heitins Guðmundssonar
útgerðarmanns frá Súgandafirði,
Páll, Ólafur og Gizur, sem allir
eru búsettir í Súgandafirði. Skip-
stjóri verður Jón B. Jónsson, sem
áður var skipstjóri á Ásbirni.
Þetta er annað skipið í röðinni,
sem kemur til Súgandafjarðar á
skömmum tíma. Fyrra skipið var
m.b. Hallvarður, sem smíðaður
var í skipasmíðastöð Landsmiðj-
unnar fyrir ísver h.f. og á það
félag nú annan bát í smíðum hjá
Landsmiðjunni.
Súgfirðingar tengja miklar
vonir við komu þessara nýju og
glsæilegu báta í kauptúnið.
J.
Andrés Krisfjánsson
kosinn form. Blaða-
mannafélagsins
AÐALFUNDUR Blaðamannafél.
íslands var haldinn s. 1. sunnu-
dag. Fráfarandi formaður, Jón
Magnússon, skýrði frá starfinu á
s. 1. ári, en eins og kunnugt er
var fundur Norræna blaðamanna
sambandsins haldinn hér s. 1.
sumar. Ferðuðust erlendu fulltrú
arnir allmikið um landið á með-
an þeir dvöldust hér, og skrif-
uðu í blöð sín um land og þjóð,
sumir margar greinar. Kvaðst
formaður efast um að nokkru
sinni hafi verið skrifað eins mik-
ið um ísland í erlend blöð á jafn
skömmum tíma. — Þá var flutt
skýrsla Menningarsjóðs Blaða-
mannafélagsins og er hagur hans
góður.
Andrés Kristjánsson var kjör-
inn formaður félagsins, en aðrir
i stjórn: Sigvaldi Hjálmarsson,
Thorolf Smith, Högni Torfason
og Þorbjörn Guðmundsson.
Stjórn Menningarsjóðs var
endurkosin, en hana skipa: Sig-
urður Bjarnason, form., Ingólfur
Kristjánsson og Hendrik Ottós-
son.
UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ til
þátttöku í Norræna Sumarháskól
anum næsta sumar hefst um
miðjan febrúar. Sumarháskólinn
verður haidinn í Finnlandi að
sumri og væntanlega í ágústmán-
uði. — Þeir, sem hafa áhuga á
því að taka þátt 1 undirbúnings-
nárnsKeiðinu, snúi sér til Ólafs
Björns.'onar, prófessors, síma
6705, eða Sveins Ásgeirssonar,
hagfræðings, síma 82742.
Ver dcktorsrilgerS
n. k. lauprdag
LAUGARDAGINN 13. febrúar
kl. 2 e. h. fer fram doktorspróf
í hátíðasal háskólans. Mun Bjarni
Jónsson læknir verja ritgerð
sína „Skurðaðgerðir við hrygg-
skekkju" (Studies of Hibbs’
Spine Fusion in the Treatment of
Scoliosis).
Andmælendur af hálfu lækna-
deildar verða dr. Snorri Hall-
grímsson prófessor og dr. Gísli
Fr. Petersen yfirlæknir.
Góð veili á Akranesl
AKRANESI, 8. febrúar — 17 bát-
ar voru á sjó hér í dag. Afli
þeirra var allt frá 5 upp í 12
smálestir. Flestir voru með 8—9
smálestir. Keilir laskaðist eitt-
hvað í storminum um daginn og
er í slipp. Hann fer sennilega
niður á morgun. —Oddur.