Morgunblaðið - 09.02.1954, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.02.1954, Qupperneq 16
Veðurúlli! í dag: A-goIa, víðast léttskýjað. NeskðupslaBur 25 ára. Sjá grein á bls. 7. Kvöldfagimður fyrir starfsfólk D-listans á kjördegi verður haldinn á fimmtudag og föstudag n. k. Á fimmtudagskvöldið verða samkomur í Sjálfstæðishús- inu og Hótel Borg og á föstudagskvöldið í Sjálfstæðishúsinu. Aðgöngumiðar verað afhentir í skrifstofn Sjálfstæðishúss- ins eftir kl. 2 á morgun. IBæjiirstjórnarkosníng- in ó Akureyri kærð AKUREYRI, 8. febr. — Alþýðuflokkurinn hér á Akureyri hefur »ueð bréfi til bæjarstjórnar Akureyrar í dag kært bæjarstjórnar- kosningarnar, sem fram fóru hér 31. jan. s. 1. Gerir flokkurinn þá kröfu, að kosningin verði ógild og kosið verði að nýju. Undir bréf þetta ritar nefnd, sem kosin var á sameiginlegum fundi Al- l>ýðuflokksfélaganna, fyrir skömmu, en í henni á m. a. sæti Friðjón Skarphéðinsson, bæjarfógeti, Akureyri. HEFUR SVARAÐ Bæjarstjórnin hefur sent kæru Alþýðuflokksins til umsagnar yfirkjörstjórnar Akureyrar og feefur hún í dag svarað kærunni. Verður væntanlega nánar skýrt frá efni bréfs þessa á morgun. — Hin nýkjörna bæjarstjórn mun á fundi sínum í dag taka afstöðu til kærunnar, en samkvæmt lög- ura um sveitastjórnarkosningar «r hægt að áfrýja þeim úrskurði til félagsmálaráðuneytisins. Hér á Akureyri er almennt litið svo á, að þessi kosninga- kæra Alþýðuflokksins sé fyrst og fremst sprottin af þeim sáru vonbrigðum, sem foringj ar flokksins urðu fyrir við kosningarnar, en þeir töpuðu öðrum bæjarfulltrúa sínum og vlð borð Iá að sá eini, sem kosningu náði, félli fyrir út- strikunum. KÆRUBRÉFIÐ f kærbréfinu segir svo orð- | rétt: „Nú hefur yfirkjörstjórn lokið störfum og kom þá end- | anlega í ljós að af atkvæðaseðl- um þeim, sem notaðir voru við , kosninguna samkvæmt talningu, sem ætti að vera óyggjandi, vant- ] aði fimm þegar talið var úr at- kvæðakössunum. — Séu hins- vegar merkingar á kjörskrám, ! sem gerðar eru í kjördeildum á kjördegi, lagðar til grundvallar notaðra seðla, þá hefur komið fjórum til sex atkvæðaseðlum of mikið úr atkvæðakössunum. A 1 þessum skekkjum hefur ekki fundizt nein skýring nema sú að 1 einhver mistök hljóti að hafa átt sér stað. — Við svona mikla ó- nákvæmni verður ekki unað, þó ekki geti orðið um neina breyt- ingu á fulltrúatölu flokkanna að ræða“. Jafnframt telur Alþýðuflokk- urinn hæpið að kjörfundur megi standa fram yfir miðnætti og óskar úrskurðar um það atriði. —GGS. Hefir samkomulag náðst milli krata og komma í Hafnarfirði? Fundyr boðaður í hinni nýjn bæjarsfjérn í dag HAFNAFIRÐI — Eins og frá hefir verið skýrt hér í blaðinu, átti Alþýðuflokkurinn og kommúnistar, undir forystu Emils Jónssonar, frumkvæðið að því að ræða við kommúnista um samstarf á milli flokkanna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Hafa viðræðufundir farið fram undanfarna daga. SAMÞYKKT Á FUOKKSFUNDUM S. 1. sunnudag var samnings- umleitunum það langt komið, að báðir flokkarnir, Alþýðuflokkur eg kommúnistar, boðuðu til flokksfunda til að ræða hið vænt- ítnlega samstarf. Mun það hafa verið samþykkt hjá báðum flokk- unum, en þó hafa óánægjuradd- jr komið fram út af slíku sam- statfi, einkum hjá gætnari Al- !> ýð uf lokksmönnum. EÆ JARST JÓRNARFUN D UR EOÐAÐUR Á fimmtá tímanum í gær hitt- ust svo viðræðunefndir flokk- •tnna, og mun þá endanlegt sam- lcomulag hafa náðst um samstarf, l>ví að að þeim fundi loknum, var fyrsti fundur hinnar ný- kjörnu bæjarstjórnar boðaður, og á hann að verða lcl. 17.00 í dag. HVER VERÐUR EÆJARSTJÓRI? Ekki er enn Ijóst, hvernig þetta earnstarf verður bvggt upp, en tal *> er, að kommúnistar muni fá oddaaðstöðu í flestum nefndum, — og einnig að þeir muni fá skrifstofustjórastarf hjá bænum og fulltrúastarf hjá Bæjarútgerð- inni. Þá hafa ekki heyrzt öruggar fregnir um það, hver verði bæj- arstjóri sambræðslunnar. Var þó helzt talað um Stefán Gunnlaugs- son í því sambandi í Hafnafirði; í gær. — Aftur á móti er það fullvíst, að Helgi Hannesson, sem verið hefir bæjarstjóri s. 1. 5 ár, verði það ekki áfram. Mcsta fros! vetrarms í FYRRINÓTT mældist hér á landi mesta frost sem komið hef- ur á þessum vetri. — Tvær veð- urathugunarstöðvar mældu 17 stiga gadd í fyrrinótt, Þingvell- ir og Nautabú í Skagafirði. Hér í Reykjavík mældist 13 stiga gaddur mest. í gær var kaldast á Þingvöllum 12 stig, stafalogn og hið fegursta vetrarverður. »• Þessi mynd var tekin í Hafnarfirði fyrir skömmu, og sýnir mann við beitingu. (Ljósm. Gunnar Rúnar). Ilm 29 þús. tonn af hitaveituvatni fóru forgörðum í nætureyðslu NætuiTemislið kemur fólki í koll AÐFARANÓTT sunnudagsins og í fyrrinótt er frostið komst upp í 11 og 13 stig, lét fjöldi fólks á hitaveitusvæðinu, heitt vatn streyma um hús sín næturlangt og fóru þannig forgörðum 10,000 tonn af vatni hvora nóttina. — Þetta hafði svo í för með sér, að þessa tvo mestu frostdaga vetrarins hafa hitaveitugeymarnir á Öskjuhlíð tæmzt. 226 SEKL. UM NÓTTINA , Hitaveitan telur fullvíst að ef fólk hefði lokað fyrir heita vatn- j ið hjá sér klukkan 11 á kvöld- in, eins og vera ber, hefðu geym- arnir ekki tæmst á sunnudaginn, en það gerðu þeir um klukkan 5. Frá klukkan 12 á miðnætti að- faranótt sunnudagsins til kl. 7 á sunnudagsmorgun, runnu til bæjarins 226 seklítr. að meðal- tali. TÆMÐUST KL. 4 Þetta mikla næturrennsll var nokkru mínna í fyrrinótt, 219 sekl. — I gærmorgun er almennt var farið að opna fyrir heita1 vatnið, vantaði allmikið á að geymarnir væru fullir, svo sem vænta mátti miðað við eyðsluna j undanfarandi sólarhring, enda tæmdust geymarnir í gær kl. 4. ICEMUR SÉR ILLA Ef fólk gerði sér grein fyrir því, að næturrennslið kemur því aðeins í koll næsta dag, er ég sannfærður um að fólk myndi ekki láta hjá líða að loka á til- settum tíma, sagði Helgi Sigurðs- son Hitaveitustjóri í símtali við Mbl. í gærkvöldi, og bað hann Mbl. að hvetja íbúana á hita- veitusvæðinu að vera samtaka um að láta vatnið ekki renna um nætur. Þessar tvær nætur hafa farið forgörðum verðmæti fyrir 60 þúsund krónur, auk óþægindanna. Fraaisófan og faralar sarean a fsafirði ÍSAFIRÐI, 8. febr. — Fyrs fundur hinnar nýju bæjarstjórr ar ísafjarðar var haldinn hér kvöld. Á honum kom það í ljó að Framsókn og kratar hai skriðið saman um stjórn bæjai ins. En Framsókn hefir eins o kunnugt er oddaaðstöðu í bæjai stjórn. Birgir Finnsson var kosinn foi seti bæjarstjórnar. Bæjarstjó hefir ekki enn þá verið kjörim Um 40 slórir báfar og iiflir gerðlr út frá Reykjsvík í vefur UM FJÖRTÍU stórir bátar og litlir muru stunda róðra héðan frá Reykjavík í vetur. — Stormasöm tíð hefur hamlað veiðum að mestu til þessa. En í róðrum línubáta nú um helgina, virðist mega vænta góðs afla. Hæstu líriubátar hafa verið með 10 tonn af afla. FLESTIR MEÐ NET Flestir bátanna verða á netum og eru meðal þeirra þessi skip: Guðmundur Þorlákur, Sigurður Pétur, íslendingur RE73, Arn- firðingur, Hermóður, Geir, Þórir, Erna, Nanna, Njáll og íslending- ur RE 36, Sísí, Mýrdælingur, Kveldúlfur, Skógafoss, Geysir, Ásdis, Happasæll og Gunnar Há- mundarson. Þessir bátar eru ýmist byrjaðir róðra eða um það bil að fara í fyrsta róðurinn á vertíðinni. LANDRÓÐRABÁTAR Þessir stunda landróðra: Svon- ur, Hagbarður, Kári, Þórarinn, Ásgeir, Sæfell. — Hafa þeir fisk- að frá 5—10 tonn í róðri. ÚTILEGUBÁTARNIR Loks eru útilegubátarnir: Helga, Rifsnes, Björn Jónsson, Marz, Áslaug, Arinbjörn og Faxa- borg. Afli bátanna mun ýmist verða frystur eða saltaður. Halnarijarðarbálar öfluðu vel um telfpa HAFNARFIRÐI — Hafnarfjarð- arbátar öfluðu vel um helgina. Fengu margir þeirra á sunnudag og í gær allt upp í 20 skpd. —■ Á sunnudaginn var Bjarnarey hæst með yfir 20 skpd., Illugi 20, Síldin 12, Hafbjörg 18, Björg 15, Guðbjörg 15, Ágúst Þórarinsson 18. í þessari upptalningu getur þó einhverju munað, af eða á, að bátarnir hafi fengið meiri eða minni afla en sagt er. Bátarnir öfluðú einnig ágæt- lega í gær, en þá voru flestir þeirra með 14—20 spd. G. Áskoruii frá Dýra- yerndunarfélagi íslands AÐ GEFNU tilefni beinir stjórn Dýraverndunarfélags íslands þeim tilmælum til allra skip- stjórnarmanna, vélgæzlumanna og gæzlumanna olíustöðva, að gæta þess að olía komist ekki í sjó, ár eða vötn, vegna hinnar miklu eyðileggingar sem olíu- brák getur haft á fuglalíf, fjöru- gróður og dýralíf á fjörum, svo og plönturek sjávarins og egg þeirra nytjafiska sem klekjast við yfirborð sjávar. Minnist þess að olía á sjó deyðir dýr og jurtir. r j|. ^ Isinn ótryggur LÖGREGLAN lét í gærkvöldi birta aðvörun til almennings um það, að ísinn á Norður-Tjörninni væri ótryggur og því væri öll umfer yfir ísinn bönnuð. Funduf í Hvöf ! ansað kvöld IIVÖT, Sjálfstæðiskvennafélag- ið, helður funð n. k. miðviku- dagskvöld, þar sem sigri flokks- ins við bæjarstjómarkosningarn- ar verður fagnað. Hinn nýkjörni forseti bæjar- stjórnar, frú Auður Auðuns, flytur ávarp og Soffía M. Ólafs- dóttir les kvæði. Þá verður flutt- ur leikþáttur eftir Harald A. Sig- urðsson, og annast það leikkon- umar Áróra Halldórsdóttir, Emelía Jónasdóttir og Nína Sveinsdóttir. Einnig verður kaffi drykkja og ðans. — Konur taki með sér spil, ef þær vilja spila. Félagskonur mega taka með sér gesti, og aðrar Sjálfstæðis- konur ern velkomnar meðan húsrúm leyfir. Skákeinvígið HAFNARFJÖRÐUR VESTMANNAEYJAR 14. leikur Vestmannainga: f3—f4 14. leiknr Hafnfirðinga: e5xf4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.