Morgunblaðið - 13.02.1954, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.02.1954, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 13. febr. 1954 René Coty Flökkustúlka spáði ÞAÐ gekk ekki þegjandi og hljóðalaust fyrir Frökkum, er þeir í s.l. desembermánuði gengu til forsetakjörs, fremur en endra- nær, þegar til kosnínga kemur meðal þeirra. í heila viku fóru fram stöðugar atkvæðagreiðslur í Versala-ráðinu, sem kjósa á Frakklandsforseta, áður en nokk- ur frambjóðenda fengi nægilegt atkvæðamagn til að vera löglega kjörifin. Loksins — í þrettánda skipti, sem gengið var tíl atkvæða náðist hinn torfengni meirihluti til handa M. René Coty. Hann hlaut 477 atkvæði, gegn 329, sem kom í hlut Marcels Naegelen, sem var næstur M. Coty að at- kvæðatölu. 71 ÁRS AÐ ALiDRI M. René Coty er 71 árs að aldri, fæddur hinn 20. marz, árið 1882. Hann hefir átt sæti í franska þinginu síðán árið 1923. Hingað til hefir hann látið lítt á sér bera á opinberum vettvangi, svo að hann er tiltölulega mjög lítið þekktur meðal Frakka. Hann er í eitt og allt blátt áfram borgari, laus við allan ofmetnað og sýnd- armennsku. Þótti það koma greinilega í ljós, á meðan á bar- áttunni fyrir forsetakosningarnar stóð. Hann var allan tímann hinn rólegi maður, sem hélt sig utan við æsingar og áróður. Þegar for- seta frambjóðendurnir gengu fyrir Versala-ráðið höfðu þeir allir, nema M. Coty, í férðatösk- um sínum viðhafnarklæðnað, sem ný kjörnum forseta sæmdi, ef ske kynni að __ M. Coty mætti í þykksóluðum gönguskóm, blá- og hvítröndótt- um fötum, blárri skyrtu með rautt ullarbindi — franski „þrí- liturinn“ skemmtilega samein- aður. SPÁDÓMUR FUÖKKU- STÚLKUNNAR Hann virtist alveg hafa gleymt að dag einn á sínum ungu árum hafði hann í galsa lofað ungri og blóðheitri flökkustúlku að soá í lófa sinn. Hún hafði í Iok spá- sagnar sinnar horft á hann leynd- ardómsfullu og seiðandi augna- ráði um leið og hún sagði: „Þú átt eftir að verða forsetí franska lýðveldisins". Þessi spádómur flökkustúlk- Unnar kom heim við orð Nor- andv-þingmannsins, M. Henri Chéron. Það var árið 1907. René Cotv hafði, af hlvðni við fjölskyldu sína lokið prófi við kennaraskól- ann. Nú tók hann lífinu með ró meðal vina sinna og sökkti sér niður í skáldsögur Maunassant undir skuggum eplatriánna í hiarta hms brosandi Calvados- héraðs í Normandy. ÁSTIR OG STJÓRNMÁL ast á nokkrar tölur, kem varða Öryggi flugsins. Samkvæmt Dag einn var hann kynntur fyrir málafærslumanní eínum frá Lisieux, Henri Chéron sem þá var að berjast við að komast á þing. „Ég þarf á góðum manni gð halda mér til aðstoðar — sagði hann við hinn unga Coty — slá- ízt í för með mér og hjálpið mér í kosningabaráttunni.“ Ungi maðurinn hikaði við. Hann hafði þá fyrír skömmu komizt í kynni við unea stúlku, Ungfrú Germaine Corblet, sem seinna varð eiginkona hans. Eig- inlega hugsaði hann um lítið annað en hana, þessa dagana, — en hvað um það, hann féllst á uppástunguna og lagði af stað í kosningaleiðangurinn með M. Chéron. FRAMTÍÖARFORSETI FRAKKLANDS Chéron hafði séð unga mann- inn rétt út. Flugmælska hans og sannfæringarkraftur í málflutn- ingi hans vakti þegar mikla at- hygli. Iiunn hreif kjósendur, Bioii'Uin, að liann ætti eftir Fráfarancii iO;seti, M. Vincent Auricl (til vinstri) M. René Uotv eiri'itist á hamingjuóskum og kveðium. gagntók fólkið með eldrr.óði sín- um — og Ché"on komst að. Þegar hinn síðarnefrdi k’pnp- aði broshýr og sigri hrósandi á herðarnar á unnustu Renés, mælti hann þessi o:ð: ,,Þér meg- ið ekki hind.c René í að fara út í stjórnmálin. — Þetta er fram- tíðarforseti Frakklands". NORMANDY í SJÖUNDA HIMNl Og nú er allt Normandy í sjö- unda himni. Normandv-búar eru stoltir og ánægðir yfir því, að hinn æðsti maður Frakklands skyldi vaiinn úr þeirra hópi. Þeir líta á M. René Coty fyrst og fremst sem Normandy-búa — sem „einn af oss“. Breiðleitt og velsældarlegt andlit hans, hið skarpa og lítið eitt kesknislega augnatillit gefur ljóslega til kynna, að hér er á ferð ósvikinn norður--Frakki, með norrænt víkingablóð í æðum. „A.lir viluu i.ilju kveðið hafa“. Þ„ð e. eltthvað svipað með borg- irnar í Normandy, scm allar vilja eigca sér hinn nýkjörna forsetá: ,e Ilavre, sem er fæðingarborg hans, Etretat, þar sem hann á ama. DÚstað sinn, „La Ramée“ og síðást kemur Caen, sem gerir cilkal] til bans, þar eð hún er ættborg hans. FÉLLUST í FABMA Þegar tilkynntur var árangur- inn af hinni 13. atkvæðagreiðslu Versalaráðsir.s féllust íbúar Le Havre í faðma á götum úti af fögnuði. Og í Etretat hrópaði ung stú'.ka, Marie-Théiese, upp yfir sig af gleði, er hún heyrði úrslit- in í útvaipinu: „M. Coty hefir verið kosinn forseti. — O, hvað ég er glöð“. Þegar Marie-Thérese var fimm ára gömul hafði hún skyndilega veikzt mjög alvar- lega. Aðeir.s tafarlaus uppskurð- ur gat bjargað lífi hennar. En foreldrar hennar sáu enga leið til þess. Ilvað átti til bragðs að taka? — njá hvaða dýrlingi átti að leita trausts og bjargar? Þá var það René Coty, sem kom til hjálpar. Hann var þá í sumarleyfi sínu i Etratat. Hann lét flytja litlu stúlkuna í snar- kasti á sinn kostnað til Le Havre á lækningastofu tengdasonar síns, dr. Georges, sem gerði að- gerðina og bjargaði þannig lífi telpunnar. Móðir hennar kom með tárvot augu af fögnuði og ' þakklæti með stóran blómvönd til M. Coty. I ÞEIR ERU ALLIR VINIR HANS j Forsetinn unir sér hvergi bet- ur heldur en í sumarbústaðnum 1 sínum, „La Ramée“ í strandbæn- F^skimennirnir í Etfetat draga franska fánann að hún á kænum smurn tii að fagna forsetakjöri M. René Coty. Maclame Vincent Aureol, bíður nýju fcrsetafrúna, Madame René Coty velkomna í Elysée-höllina. um Etretat. Hann heíir unun af að reika tímum saman og einn síns liðs um fjöruklappirnar, höf- uðfatalaus með hárið flaksandi í sjávargolunni. Og öru hvoru staldrar hann við til að spjalla við sjómennina, sem þarna eru við veiðiskap sinn. Hann ræðir við þá um vandamál þeirra og ! áhugaefni. Þeir eru allir vinir I hans. j „Hann lætur smíða fyrir okkur bryggjur“ — sögðu þeir, þegar þeir fréttu, að hann hefði verið I kosinn forseti. RÍS ÁRLA ÚR REKKJU Á morgnana er hann uppi fyr- ir allar aldir. I kringum „La Ramée“ er stór og fallegur garð- ur, sem hann hefir unun af að sýsla í. Hans fyrsta verk á morgn ana, þegar sæmilega viðrar er að ganga um garðinn og tala við garðyrkjumanninn sinn, Daniel gamla Barbay og oft á tíðum tekur hann sér verkfæri í hönd og hjálpar honum til við að klippa rósagerðin eða gróðursetja blóm. Seinni hluta dagsins ver M. Coty að jafnaðí í bókasafninu sínu. Næst bókunum ber þar mest á fjölda mörgum skips- og bátalíkönum, — af ýmsum stærð- um og gerðum, sem forsetinn hefir safnað að sér úr öllum átt- um. Eftirlætishöfundar hans eru Anatole France, Barrés og Maup- assant. „LA BONNE DAME D’ETRETAT“ M. René Coty tekur þátt í öll- um hátiðum fólksins í Etrebat, og kona hans, Madame Coty útbýr dýrindis kökuveizlur fyrir litlu fermingarstúlkurnar úr sveitinni í kring, sem koma til Etretat til altarisgöngu. Hún er látlaus eldri kona, sem nýtur mikilla vinsælda i Etretat, „La Bonne Dame d’ Etretat" (gæðakonan í Etretat) er hún kölluð. — Og hún er einn tryggasti viðskiptavinurinn í hinni girnilegu kökubúð, sem er á næstu grösum við „La Ramée“. Vinsældir hins nýkjörna for- seta ná í raunínni ekki út fyrir sjálft Normandy, enda hefir hann eins og áður er sagt verið lítt þekktur annars staðar í Frakk- landi fram til þessa. Þó að hann sé þegar 71 árs að aldri er hann samt keikur á velli og fjörugur og hress í anda. FYRSTU STJÓRNMÁLA- AFSKIPTIN Og enda þótt hann væri hik- andi og tregur til að kasta sér út í stjórnmálin á sínum tima, um það bil, sem hann var að festa sér kvonfang, virðist samt sem áður að örlögin hafi ákveðið að þau skyldu verða hlutskipti hans. Þegar hann var 10 ára gamall hélt hann hverja þrum- andi ræðuna eftir aðra — allt því fyrir um stjórnmál. Ræðustóllinn var neðsta þrepið i stiganum heima hjá honum og áheyrandinn að- eins einn, Marcel, yngri bróðir hans. Síðar sökkti hann sér nið- ur í dagblöðin, sem hann fékk að láni hjá nágrannakonu og vin- konu foreldra hans. Þaðan fékk hann stöðugan pólitískan inn- blástur. A þessum árurn réðist hann líka í að gefa út blað, sem hann gaf nafnið „l’Union". Hann var í senn útgefandi þess, rit- stjóri og prentari og lesendur þess voru aðeins tveir: Marcel bróðir hans — og hann sjálfur. Og nú er svo komið að M. René Coty er orðinn, ef ekki hinn valdamesti, þá hinn æðsti maður Frakklands að virðingu. Hin næstu sjö æviár hans í Elysée- höllinni verða hlaðin óteljandi embættislegum skyldum og formsatriðum. Reiknað hefir ver • ið út, að fyrirrennari hans í for ■ setaembættinu, M. Vincent Auriol, hafi í forsetadómi sinum opnað ekki færri en 150 sýningar, tekið þátt í 140 viðhafnardans- leikjum, skiptzt á 15.000 embætt- islegum handtökum og veitt 4000 opinberar áheyrnir. — M. Coty veit hvað hann muni eiga með tímann að gera. Leikfél. Hafnarfjarð- ar sýnir Hans 09 Gréfu HAFNARFIRÐI, 11. febr,—Leik- félag Hafnarfjarðar frumsýnir á laugardag kl. 18,00 ævintýraleik- inn „Hans og Gréta“ eftir þýzka leikhúsfrömuðinn Willy Kruger, í þýðingu Halldórs G. Ólafs- sonar. Leikurinn er byggður á ævin- týrinu um Hans og Grétu, en auk sögupersónanna koma fram í leiknum margar ný>tárlegar persónur, svo sem skógarbjörn, skógarandi og skógardísir að ó- gleymdum maurapúkanum Tobí- asi skraddara, sem kemur þar allmikið við sögu. Leikstjórn annast Jóhanna Hjaltalín og hljómlist sér Carl Billich um. Hin furðulega ævin- týralegu leiktjöld málaði Lothar Grund, sem á sínum tíma var samstarfsmaður höfundarins í heimalandi þeirra. Hans og Gréta eru leikin af börnum, Guðjóni Inga Sigurðs- syni og Björk Guðjónsdóttur. | Með önnur hlutverk fara: Frið- leifur Guðmundsson, Sólveig Jóhannsdóttir, Helgi Skúlason, Hulda Runólfsdóttir, Guðbjörn Einarsson, Vilhelm Jensson, Guð- rún Reynisdóttir, Valgerður Ólafs dóttir og Svanhvít Magnúsdóttir. Reyfingsafli hjá Hafnarfjarðarbálum HAFNARFIRÐI — Afli línubát- anna var með minna móti á mið- viku- og fimmtud. Voru flestir þeirra með 4-10 skipd. Togarinn Austfirðingur kom hingað í fyrra dag með 105 tonn af ísfiski eftir 6 daga útiveru. — Er það dágóður afli eftir ekki lengri tíma. Annarj hefir verið treg veiði hjá togurunum að undan- förnu. Togararnir Surprise og Júlíu komu af veiðum í gær- morgun. — G. Listamiðstöð NEW YORK — Nokkrir fremstu menntafrömuðir og listamenn Bandarikjanna vinna nú að því að koma upp miðstöð listsköpun- ar í New York-háskólanum. Há- skólinn vinrmr í nánu sambandi við helztu listfrömuði, hljóm- sveitir og óperur í New York,- borg og öðrum landshlutum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.