Morgunblaðið - 13.02.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.02.1954, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagm' 13. íebr. 1954 IMýjar hljómpEötur FÝRIR skömmu komu hér á márkað nokkrar plötur gefnar út af Fálkanum h.f., en H. M. V. og Columbia í Lundúnum hafa séð um upptökuna. Verður hér gerð stutt grein fyrir plötum þessum: BARNASÖGUR I—II, Marta Kalman, upplestur. (Col. D. I. 1095). Árið 1930 komu hingað til lands á vegum Fálkans h.f. tveir verk- fræðingar frá hljómplötufirmanu Columbia í því skyni að taka hér á plötur tónlist og annað. Höfðu menn þessir með sér öll nauðsyn- leg tæki og fór upptakan fram í Bárunni. Var hér um merkan við- burð að ræða, því að þetta var í fyrsta sinn, sem tekið var á plötur hér á landi. Alls munu þeir félagar hafa tekið hér á um eitt hundrað piötur, aðallega tón- list og komu þar fram margir tónlistarmenn vorir, en einnig las þá frú Marta Kaiman (d. 1940) inla á plötu hið bráðskemmtilega ævintýri Jónasar Hallgrímssonar, um heimsókn drottningarinnar á Englandi til kóngsins á Frakk- landi. Er sá lestur frú Mörtu á þessari plötu, báðu megin. Frúin var um langt skeið vinsæl leik- kona hér í bæ. Einkum lét henni vel að leika skoplegar persónur, enda var hún gædd mikilli kímni- gáfu. Kemur það og ljóst fram í meðferð hennar á þessu kostu- lega ævintýri Jónasar, sem öll er prýðisgóð. Framsögnin er mjög greinileg og fjörleg með skemmtilegum áherzlum og rödd frúarinnar einkar þægileg. Þá- hefur og upptakan heppnazt sérstaklega vel. Er enginn vafi á því að plata þessi á eftir að ná miklum vinsældum, ekki aðeins meðal barna og unglinga heldur eirjnig þeirra, sem eldri eru. BANGSIMON LÖG (a) og (b). Texti: Hulda Valtýsdóttir þýð. Ingibjörg Þorbergs, sopran. Með gítar- undii leik. - H.M.V. JOR 202. LITLI VIN — Texti: Frey- steinn Gunnarsson þýð. — Ingibjörg Þorbergs. Með píanóundirleik Carls Billich. H.M.V. JOR 202. Bangsimonlögin eru mörgum kunn frá því er frú Helga Val- týsdóttir las söguna um Bang- simon í útvarpið í fyrra og aftur framhaldið nú í vetur. Eru það norsk þjóðlög, að því er segir á plötunni, létt og viðfeldin og mjög við hæfi barna. Textinn er EðVvísu nokkuð laus í reipunum, en hefur þó einnig sinn þokka, enda hefur hann fallið börnun- lim vel í geð. Ingibjörg Þorbergs er mörgum kunn af söng sínum í útvarpið og'víðar. Hún hefur sópranrödd, ekki mikla og fremur hversdags- lega, en viðfeldna. Hún er söng- næm í bezta lagi og fer vel með það, sem hún syngur, af smekk- vísi og góðum skilningi og texta- framburður hennar er einkar góður. í meðferð hennar á Bang- simonlögunum njóta sín ágætlega þessir kostir hennar, enda er upp- takan prýðileg. — Miður hefur, tekizt um lagið Litli vin. Þar er j rödd söngkonunnar hljómlaus og | óskýr og flutningurinn deyfðar-1 legur. Þykir mér líklegt að þetta. sé að einhverju leyti upptökunni að.kenna, sem er mun verri en á Bangsimonlögpnum. — En hversvegna var söngkonan feng- in _til að syngja þetta lag, sem Elsa Sigfúss hefur sungið á plötu með sinni fögru og þjálfuðu rödd, svo forkunnar vel að það verður varla betur gert? Undirleikur Carls Billich er einkar góður. HRÍSLAN OG LÆKURINN (P. Ólafss. —■ í. T. Láruss.) Ingibjörg Þorbergs og Smárakvartettinn. — Með undirleik Carls Billich. — H.M.V. JOR 201. JÁTNING (T. Guðmundsson — Sigfús Halldórsson). Ingi- björg Þorbergs og Smára- kvartettinn með píanóundir- leik Carls Billich. — H.M.V. JOR 201. Þetta lag Inga T. Lárussonar við kvæði Páls Ólafssonar er eins og flest af lögum Inga snoturt og söngrænt. Ingibjörg Þorbergs syngur þarna með Smárakvarett- inum einkar laglega og fellur rödd hennar mætavel við raddir kvartettsins. — Smárakvartettinn er vel æfður og raddirnar eru allgóðar og samstilltar svo að engin þeirra sker sig sérstaklega úr. Ekki hefur þó kvartett þessi, sem að mörgu leyti er góður, raddgæði á borð við MA-kvart- ettinn. Textaframburðinum er þarna nokkuð ábótavant, en þó ekki til verulegra lýta. „Játning" Sigfúsar Halldórs- sonar við hið alkunna kvæði Tómasar Guðmundssonar, er eitt af allra vinsælustu lögum Sigfús- ar, og er þá mikið sagt. Þetta unga og efnilega tónskáld virð- ist hafa í sér frumtón íslenzkrar æsku, því að lög hans cru orðin eign hinna ungu áður en þeir vita af. Kemur þetta raunar eng- um á óvart, sem þekkir Sigfús, því að æskan býr í honum og mun í honum búa til eilífðar- nóns. ___ Ingibjörg Þorbergs syngur einnig þetta lag með Smára- kvartettinum. Rödd hennar nýtur sín þarna öllu betur en 1 laginu hér á undan og einsöngur hennar er mjög viðfeldin. Og söngur kvartettsins er mjúkur og inni- legur eins og hæfir ljóði og lagi. Carl Billich leikur undir á píanó af lipurð og smekkvísi sem endra- nær. Upptakan hefur tekizt vel á báðum plötunum. SVERRIR KONUNGUR (Grímur Thomsen — Sv. Sveinbjörnsson). Þorsteinn Hannesson, tenór. Með píanó- undirleik dr. Páls ísólfssonar. — H.M.V. JOR 101. VETUR — (Steingr. Thor- steinsson — Sv. Sveinbjörns-. son). Þorsteinn Hann°sson, tenór. Með píanóundirleik dr. Páls ísólfssonar. — H.M V. JOR 101. Þorsteinn Hannesson nýtur hér i sem söngvari ekki þeirra vin- sælda, sem hann ætti skilið, en Englendingar kunna því betur að meta hann. Hefur hann undanfar- in ár sungið í Coyent Garden mörg veigamikil hlutverk við góðan orðstír og haustið 1952 söng hann og lék aðalhlutverkið Samson, í óperunni „Samson og Dalilla“ eftir Saint-Saéns, á veg- um Sadler’s Wells þar í bprg. Þorsteinn Hannesson hefur mikla og ágætlega þjálfaða tenór- rödd, er hann beitir af öruggri smekkvísi og kunnáttu. Hann tekur aldrei neina útúrdúra til þess að sýna tækni sína og radd- þrótt, en leggur áherzlu á rétta og öfgalausa túlkun þess sem hann fer með. Kemur þetta mjög greinilega í ljós í meðferð hans á þessum tveimur lögum Sv. Sveinbjörnssonar, ekki sízt Sverri konungi, er hann syngur með miklum glæsibrag, en ýkju- laust og með fullu tilliti til tón- skáldsins. Er það meira en sagt verður um marga aðra, sem sung- ið hafa þetta þróttmikla og ris- háa lag. „Vetur“, Sv. Svein- björnssonar er einnig mikið lag og fagurt og ber á sér öll ein- kenni höfundarins. Nýtur það sín og mjög vel í öruggri og fágaðri meðferð Þorsteins. Píanóundirleikur dr. Páls ís- ólfssonar er með þeim ágætum, að hann gefur plötunni sérstakt gildi. CAVATINA (Io sono docile og Una voce poco fá) — „II Barbiere di Siviglia“ (1. þáttur). G. Rossini. — Else Múhl, sopran og The London Symphony Orchestra, J. Robertsson, hljómsv.stj. — H.M.V. D.A. 30001. Else Múhl er Reykvíkingum að góðu kunn frá því er hún vorið 1951 söng hér á vegum Þjóðleik- hússins hlutverk Gildu í óperunni „Rigoletto“ eftir Verdi, og hreif alla með hinni glæsilegu og háu . sopranrödd sinni og frábæru söngtækni. Bæði þessi lög úr óperunni „Rakarinn í Sevilla“ eftir Rossini eru skínandi falleg og gera hinar ítrustu kröfur til söngkonunnar, einkum hið síðara, en ungfrú Múhl leysir þar allar þrautir með miklum yfirburðum. Þó bregður stundum fyrir að rödd hennar sé dálítið skerandi, einkum á hæstu tónunum, pn ég hygg að það sé að miklu leyti upptökunni að kenna, sem þó er fremur góð. Leikur hljómsveitar- innar er prýðisgóður. RECITATIV — 1. og 2. aría „Der Königin der Nacht“ úr „Die Zauberflöte" (Mozart). Eise Miihl og The London Synmphony Orchestra. — Hljómsveitarstj.: J. Robert- son. — H.M.V. D.B. 30006. Þessi yndislegu lög úr „Töfra- flautunni“ eftir Mozart syngur Else Múhl af engu minni snilli en lögin hér á undan. Heyrir mað- ur hér vel hversu mikil fylling er í rödd söngkonunnar þegar hún beitir sér einkum á milli tónunum og hversu undursamlega blæfögur rödd hennar getur ver- ið. Og allur ber söngur hennar vott um miklp söngnæmi og ör- ugga kunnáttu. Á þessari upptöku er sami ljóð- urinn og á fyrri plötunni, að rödd söngkonunnar er stundum örlítið skerandi á efri tónunum og ekki er þar alveg laust við bergmál á stöku stað. Qddvar. VERKAMANNAFELAGIÐ DAGSBRUN Aðalfundur Dagsbrúnar verður haldinn í Gamla Bíó sunnudaginn 14. þ. m. klukkan 1,30 e. h. A dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf en auk þess verður þess sérstaklega minnst að Sjjgurður Guðnason lætur nú af formannsstörfum fyrir Dagsbrún eftir að hafa gengt því óslitið í 12 ár. Fundurinn hefst með leik Lúðrasveitar verkalýðsins. Fundurinn verður kvikmyndaður. Félagsmenn sýni skírteini við innganginn. — Fjölmennið! STJÓRNIN PIPIiR svartar og galv. FITTIWGS svartur og galv. KRAMAR STOPPHAMAR Hafnarstræti 19 — Sími 3184 GARDÉIMUSTEISIGUR LUDViG STORR & CO. Nýkomið: Patent gardínustengur með hjólum. Einnig: Sundurdregnar stengur — Gormar kappabönd — hringir og krókar Verzlunin verður lokuð til n. k. miðvikudags vegna breytinga. Dppgerðar Rifvélar : í ameríska bíla (Chevrolet, Dodge, Plymouth, Ford, - Chrysler, De Soto o. fl.) ■ Mjög hagkvæmt verð. Tilboð sendist afgr. Morgbl. : fyrir n.k fimmtudagskvöld merkt: Kostakjör —483. — Bezt að auglýsa í Morgunblaðiðinu —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.