Morgunblaðið - 26.02.1954, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLA&IB
Föstudagur 26. febr. 1954
i
I dag er 57. dugur ársius
Árdegisflæði ki. 10,38.
’ Síðdegisflæði kl. 2336.
Næturlæknir er í Læknavarð-
etofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Eeykjavíkur
Ápóteki, sími 1760.
t
El Helgafell 59542267 - VI - 2.
O MÍMIR 5954317 = 4 Atkv.
\
I.O.O.F. 1 == 1352268% 9 I.
i
• Afmæli •
60 ára verður á morgun (laug-
«rdag) frú Sólrún Nikulásdóttir,
Hliðsnesi, Álftanesi.
• Alþingi •
Neðrí deild: 1. Öryggisráðstaf-
-anir á vinustöðum. 2. umr. —
55. Landamerki o. fl. 1. umr. —
3. Kjarnfóðurframleiðsla. — Ein
"umræða.
Efri deild: 1. Kirkjubygginga-
«jóður. Frh. 2. umr. — 2. Órétt-
mætir verzfúnarhættir. 1. umr.
• Skipafrétfir •
jEimskipafélag Islands h.f.:
(Bruarfoss fór frá VTestmanna-
■eyjum 23. þ. m. til Newcastle, Bou-
logne og Hamborgar. Dettifoss
skom til Venspils 24., fer þaðan til
Jlamborgar. Fjallfoss fór frá
Rotterdam 24. til Hull og Reykja-
-víkur. Goðafoss kom til New York
19. frá Hafnarfirði. Gullfoss fór
frá Leith 23.;væntanlegur til
'Kaupmannahafnar í gær. Lagar-
-foss fór frá Reykjavík 22. til
Jtotterdam, Bremen, Ventspils og
Hamborgar. Reykjafoss fór frá
Hamborg 23. til Rotterdam og
Á.ustfj. Selfoss kom til Reykja-
■víkur 23. fi'á Leith. Tröllafoss fór
<frá Reykjavík 18. til New York.
Tungufoss fór frá Cape Verde-
«yjum 21. til Recife, Sao Salva-
<Ior, Rio de Janeiro og Santos.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fór frá Reykjavík .1 gær-
lcvöldi austur um land í hringferð.
Hsja er á Austfjörðum á norður-
■Jeið. Herðubreið fer frá Reykjavík
um hádegi í dag austur um land
til Bakkafjarðar. Skjaldbreið
•verður væntanlega á Akureyri í
ícvöld. Þyrill er á Vestfjörðum á
norðurleið. Helgi Helgason á að
-fara frá Reykjavík í dag til Vest-
jnannaeyja.
Dagbók
„Pal góða blaó Tíminn"
I fréttatækni á Tíminn veraldarmetið,
þótt sannleikans vegna sé sjaldan heimilda getið.
En til þess að fréttirnar festist betur í minnum,
hann birtir þær jafnan í blaðinu tvisvar sinnum.
í fyrra skiftið samt fáir mark á þeim taka.
Og næsta morgun ber hann þær allar til baka.
Skipadeild S.l.S.:
Hvassafell fór frá Gdynia 23. þ.
m. áleiðis til Fáskrúðsf jarðar.
Arnarfell fór. frá Cap Vérde-eyj-
um 16. þ. m. áleiðis til Reykja-
víkur. Jökulfell átti að fara frá
Portland í gær áleiðis til New
York. Dísarfell er í Cork. Bláfell
er í Keflavlk.
• Blöð og tímarit •
Heima er bezt, febrúarhefti er
nýkomið út, Eitið flytur m. a.
greinina Gleði á heimilum eftir
Böðvar Magnússon á Laugarvatni,
greinina Á hafnarslóð eftir Þor-
björn Þórðarson, lækni, söguna
Varðhundurinn eftir Astrid Stef-
ánson; Þorsteinn Matthíasson
skrifar hugleiðingar ferðamanns;
Sigurjón frá Þorgeirsstöðum
skrifar ferðasögu Frá Ageirsborg
til Bou Saada; þá eru kaflar úr
endurminningum Helga Þórðar-
sonar, Frá Fornahvammi til Ame-
ríku; Magnús Jóhannson skrifar
Svona fór um sjóferð þá. Þá er
framhaldsagan, smælki og fleira í
ritinu.
Flugferðir
Flugfélag íslands h.f.:
í dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs, Patreksfjarðar og
Vestmannaeyja. Á morgun eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyrar,
Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar,
Sauðárkróks og Vestmannaeyja.
Sólheimadrengurinn.
Afhent Morgunblaðinu: Fanney
Benónýs 100 kr. E. E. 100. G. M.
20. G. í. G. 20, I. G. 15.
Fólkið á Heiði.
Afhent Morgunblaðinu: Áheit
50 krónur. Stúlka 20 kr.
Eddu-söfnunin:
Afhent Morgunblaðinu: Magnús
Kristjánsson, Njálsg. 38, 100 kr.
Spilakvöld Sjálfsíæðisfélag-
anna í Hafnarfirði er í
kvöid. Hefst það kl. 8.30.
Verðlaun verða veitt.
Hallgrímskirkja.
Biblíulestur í kvöld kl. 8,30. —
Séra Sigurjón Þ. Árnason.
s
Cíott píanó óskast
■
' m *
C Oska að kaupa gott píanó. Tilboð er greini teg. og verð
C merkt: „Pianó — 152“, þarf að skilast á afgr. Mbl. fyrir
; kl. 6 í kvöld, þar sem afhending þess verður að fara fram
S á morgun, laugardag, ef úr kaupum verður.
Þéttihringir — Oil Seal ring
Óskum eftir sambandi við stórt fyrirtæki, .sem befur á
ÍS boðstólum vélavarahluti, til að selja c.F.w. þéttihringi
í* (Oil Seal ring). Einkaumboðsmaður fyrir ísland óskast.
O. K. Kenvig, Glostrup, Danmark,
Einkaumboðsmaður fyrir Danmörku.
tHMII« » ........ » ■■■■■■■■ ■■■■■»■■■! nn ■■■■ mmmij IJH mmmm
Skíðafélag Reykjavíkur
áminnir fólk að vitja aðgöngu-
miða sinna að borðhaldinu fyrir
hádegi í dag!
Bazar Kvenfélags
Hallgrímskirkju.
Þær konur, sem hafa í hyggju
að gefa gjafir á bazarinn, eru vin-
samlega beðnar að senda þær til
eftirtalinna kvenna fyrir n. k.
mánudag: Frú Þóru Einarsdóttur,
Engihlíð 9, frú Guðrúnar Ryden,
Eiríksgötu 29, frú Stefaníu Gísla-
dóttur, Hverfisgötu 39, frú Val-
dísar Jónsdóttur, Grettisgötu 55C.
Fulltrúaráð Sjómanna-
dagsins
í Reykjavík og Hafnarfirði,
heldur aðalfund sinn að Hótel
Borg n. k. sunnudag kl. 2 síðd.
Bæjarbók&safníð.
LESSTOFAN er opin aUa TÍrka
daga frá kl. 10—12 f. h. og frá
kl. 1—10 e. h. — Laugardaga
frá kl. 10—12 f. h. og frá kl.
1— 7 e. h. — Sunnudaga frá kl
2— 7 e. h.
CTLÁNADEILDIN er opin alla
virka daga frá kl. 2—10 e. h —
Laugardaga frá kl. 2—7 e. h.
Ctlán fyrir börn innan 16 ára
er frá kl. 2—8 e. h.
• Gengisskrdning •
(Sölugengi):
1 bandarískur dollar .. kr. 18,32
1 Kanada-dollar .......— 16,88
1 enskt pund ..........— 45,70
100 danskar krónur .. — 236,30
100 sænskar krónur .. — 315,50
100 norskar krónur .. — 228,50
100 belgiskir frankar . — 32,67
1000 franskir frankar — 46,63
100 svissn. frankar .. — 374,50
00 finnsk mörk......— 7,09
000 lírur..............— 26,13
100 þýzk mörk..........— 390,65
100 tékkneskar kr...— 226,67
100 gyllini ...........— 430,35
(Kaupgengi):
1000 franskir frankar kr. 46,48
100 gyllini ...........— 428,95
100 danskar krónur .. —- 235 50
100 tékkneskar krónur — ?2«r,72
1 bandarískur dollar .. — 16,26
100 sænskar krónur .. — 314,45
100 belgiskir frankar.. — 32,56
100 svissn. frankar .. — 373,50
100 norskar krónur .. — 237,75
1 Kanada-dollar .......— 16,82
100 v-þýzk mörk .... — 389,35
GullverS íslenzkrar krónu:
100 gullkrónur jafngilda 738,95
pappírskrónum.
Utvarp
18,55 íþróttaþáttur (Sigurður
Sigurðsson). 20,20 Lestur fom-
rita: Njáls saga; XV. (Einar Ól.
Sveinsson próf.). 20,50 Islenzk
tónlist: Lög eftir Þórarin Guð-
mundsson (plötur). 21,10 Dagskrá
frá Akureyri: Ólafur Jónsson bún
aðarráðunautur talar við tvo ey-
firzka bændur, Hannes Kristjáns-
son í Víðigerði og Gunnar Krist-
Jónsson á Dagverðareyri. 21,30
Tónleikar (plötur): „Le Cid“,
ballettmúsik eftir Massenet (Sin-
fóníuhljómsveitin í San Francisco
leikur; Alfred Hertz stjórnar).
21,45 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinson). 22,10 Passíusálmur (11)
22,20 Ctvarpssagan: „Salka
Valka“ eftir Halldór K. Laxness;
XI. (Höf. les). 22,45 Dans- og
dægurlög: Alice Babs syngur
(plötur). 23,00 Dagskrárlok.
m
Erlendar stöðvar:
Danmörk: Stuttbylgjuútvarpið
er á 49.50 metrum á tímanum
17,40—21,15. — F astir liðir: 17,45
Fréttir; 18,00 Aktuelt k/arter:
21,00 Fréttir. Á sunnudögum kl
17,45 fylgja íþróttafréttir á eftii
almennum fréttum.
Noregur: Stuttbylgj uútva rp ei
á 19 — 25 — 31 — og 48 m
Dagskrá á virkum dögum að mestu
óslitið frá 5,45 til 22,00. Stillið af
morgni á 19 og 25 metra, um miðj-
an dag á 25 og 31 metra og á 41
og 48 m, þegar kemur fram é
kvöld. — Fastir liðir: 11,00 Frétt
ir með fiskifréttum. 17,05 Fréttii
með frétta aukum. 21,10 Erl. út
varpið.
Svíþjóð: Ctvarpar á helztu stuti
bylgjuböndunum. Stillið t. d. á 25
m fyrri hluta dags, en á 49 m af
kvöldi. — Fastir liðir: Kl. 11,00
klukknahringing í ráðhústumi og
kvæði dagsins; síðan koma sænskii
söngkraftar fram með létt lög
11,30 fréttir; 16,10 barna og ung
lingatími; 17,00 Fréttir og frétta
auki; 20,15 Fréttir.
England: General Overseas Ser
vice útvarpar á öllum helztu stntt
bylgjuböndum. Heyrast útsending
ar með mismunandi styrkleika héi
á landi, allt eftir því hvert útvarps
stöðin „beinir" sendingum sínum.
Að jafnaði mun bezt að hlusta é
25 og 31 m bylgjulengd. — Fyrr
hluta dags eru 19 m góðir, en þeg
ar fer að kvölda, er ágætt af
skipta yfir á 41 eða 49 m. Fastij
liðir: 9,30 úr forsíðugreinum blað
anna; 11,00 fréttir og fréttaum
sagnir; 11,15 íþróttaþáttur; 13,00
fréttir; 14,00 klukknahringing Big
Ben og fréttaaukar; 16,00 frétt'i
og fréttaumsagnir; 17,15 frétta
fréttir; 20,00 fréttir; 23,00 fréttir
Skip handa Grikkjum
KIEL —í Kiel hefir verið hleypt
af stokkum 21.200 tonna olíuflutn
ingaskipi, sem smíðað er fyrir
Grikki.
III. albjóðlep skák-
mót slúdenta háð í
Osló í ðpríl
DAGANA 11,—19. apríl n.k. verð
ur III. alþjóðlega skákmót stúd-
enta háð í Osló að tilhlutan Al-
þjóðasambands stúdenta (I.U.S.),
en norska skáksambandið annast
undirbúning og framkvæmd móts
ins. Stúdentaráði Háskóla Islands
hefir verið boðin þátttaka í mót-
inu og samþykkti ráðið á fundi
11. þ. m. að þekkjast boðið,
Á mótinu verður keppt í fjög-
urra manna sveitum og verður
væntanlega send héðan ein sveit,
en óráðið er, hvaða stúdentar
verða valdir til þátttöku
Meðal íslenzkra háskólastúd-
enta eru nú margir snjallir skák-
menn, m.a. nokkrir meistara-
flokksmenn. Var Taflfélag Há-
skólans endurreist nú fyrir
skömmu, og gengst það fyrir
hraðskákmóti, er fram fer á
Gamla Stúdentagarðinum og
hefst kl. 1,30 e. h. n.k. laugardag.
Er þess vænst að stúdentar fjöl-
rnenni til mótsins.
Ífáleb')rurfgunkaff/ui
— Og mér, sem leiddisl alltaf
svo að sitja aSgerðalaus á sunnu-
dögum!!
★
Eftir 10 óra hjónaband.
— Hvert ertu að fara?
— Hyggin húsmóðir spyr mann
sinn aldrei, hvert hann ætli áð
fara.
— En hygginn maður ráðgast
við konu sína um það, hvert hann
eigi að fara.
— Hygginn maður á enga konu.
“ ”
Vanafastur brúðgumi.
— Þú getur haft það alveg eins
og þú villt. Brúðkaupsdaginn vel-
ur þú sjálf. — En hafðu það ekki
á mánudegi.
— Hvers vegna ekki?
— Þá fer ég i bridgeklúbbinn.
★
— Er konan þín vakandi, þegar
þú kemur seint heim á kvöldin?
— Já, alltaf.
-—• En ef þú kemur mjög seint
heim?
— Þá er hún miklu betur vak-
andi.
★
Hrokafullur forstjóri: — Jæjá
ungi maður. Verðið þér einnig í
brúðkaupi Lady Spes?
Ungi maðurinn: —Já, og gegni
þar í hæsta máta einstæðu hlut-
verki.
Sá hrokafulli: — Nú; eruð þér
þjónn eða kokkur?
Ungi maðurinn: — Nei; ég er
brúðguminn.
★
— Það er ágætt, meðalið, sem
læknirinn lét söngkonuna hér uppi
á hæðinni hafa.
— Nú; er hún albata?
— Nei; hún getur ekki komið
upp ntjkkru hljóði.
★
Hann kom himinlifandi he'im til
sín kallaði á konuna sfna og sagði
um leið og hann benti á fyrstu
síðu dagblaðsins: — Sérðu, Karó-
lína; það er skri^að vím mig í
blaðinu!
En þegar konan las blaðið, sá
hún hvergi manns síns getið, svo
að hún varð að spyrja hvar það
væri. Maðurinn benti á frétta-
klausu um slagsmál, er orðið hefðu
á götu úti. Þar stóð:
„Fólksfjöldinn fylgdist með
slagsmálunum af miklum áhuga.“
— Fólksfjöldinn, sagði eigin-
maðurinn, — er égé og hundrað
aðrir.