Morgunblaðið - 24.04.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 24. apríl 1954
MORGUNBLAÐIÐ
K
Frú Sigríður
Á SKÍRDAG, 15. aþríl >síoastl.,'
andaðist á heimili sínu, hér í
bænum, fru Sigríður Helgadótt-
ir. Hafði hún, marga undanfarna
mánuði þjáðst af kvalafullum og
óviðráðanlegum sjúkdómi. Vissi
hún sjálf og allir, sem til þekktu
að hverju stefndi.
Frú Sigríður var fædd 8. marz
1903 í Keflavík, en lifði æskuárin
á ísafirði. Foreldrar hennar voru
hjónin Helgi Eiríksson bakara-
meistari frá Karlsskála við Revð-
arfjörð og Sesselja Árnadóttir,
prests á Kálfatjörn. Var heimili
þeirra mjög rómað, enda til fyr-
irmyndar sökum reglusemi, alúð-
arfullrar glaðværðar og rausnar.
Fjölskyldan óvenjulega samhent
og samtengd í blíðu og stríðu.
Voru hin efnilegu systkini sjö og
öll uppkomin er Helgi Eiríksson
féll frá, á bezta aldri, árið 1940.
Árið 1928 giftist Sigríður
Helgadóttir Hjálmi Konráðssyni,
kaupfélagsstjóra í Vestmannaeyj-
um. Hjálmur var sonur Konráðs
bónda á Syðra-Vatni í Skaga-
firði, hinn ágætasti maður og
mesta valmenni. En sambúð
þeirra varð, því miður, stutt, að-
eins um fjögur ár. Hjálmur dó
árið 1933 og öllum harmdauði,
er hann þekktu. Má nærri geta
bvílíkt reiðarslag þetta varð
hinni ungu ekkju með tvo unga
syni. Vafalaust hefur hin þunga
gorg orðið Sigríði dýpri og var-
anlegri en hún lét á sjá er frá
Jeið. Að skapferli var hún dul
©g ákaflega stefnuföst. Langt var
þó frá því að hún væri skapköld,
en hún hafði mikla stjórn á
Skapsmununum og leit heilbrigð-
um augum á það sem að höndum
fcar og duldi harma sína og til-
finningar er þyngst blés á móti.
Hún hafði líka mikið að lifa fyr-
ir, hina ungu föðurlausu syni.
Hún tók upp hið mikla og veg-
lega starf, að koma þeim til
manns. Yngri systir hennar,
Klara, varð um likt leyti einnig
að sjá á bak eiginmanni sínum,
Kristjáni Magnússyni listmálara.
Fyrir nokkrum árum dó Klara.
Öll fjölskyldan og fjöldi vina
harmar þessi elskulegu, ungu
hjón, systurnar tvær og menn
þeirra, sem nú eru öll horfin héð-
an af heimi. Sigríður lifði lengst
og gat, ásamt systkinum sínum
og móður gengið syni Klöru í
móður stað. Nú hefur þessi ungi
maður, Magnús Kristjánsson,
sem er við nám erlendis, einnig
misst hana.
Eftir lát Hjálms Konráðssonar
reyndi verulega á dugnað, skap-
festu og þrek Sigríðar. Hún
lagði ekki árar í bát. Hóf hún
verzlun hér í bænum, fyrst hatta-
verzlun, síðar hljóðfæraverzlun,
sem henni tókst að gera vinsæla
og vel metna. Sigríður var ágæt-
lega menntuð kona, hafði dvalið
í Bretlandi á unga aldri, talaði
og kunni ensku prýðilega, svo
og norðurlandamálin. Kaupmað-
ur var hún góður, bæði hagsýn
og dugmikil. Kom það sér vel,
því hún varð að stjórna verzl-
uninni á erfiðum tímum, og í
harðri samkeppni. Meðan heils-
an entist, og raunar lengur, var
hún stöðugt sjálf við verzlun-
ina og mun hið alúðlega og
kurteisa viðmót hennar ekki að
litlu leyti hafa aukið vinsældir
hljóðfæraverzlunarinnar í Lækj-
argötu. Sjá-lf fór hún oft utan,
stundum á hættulegum stríðs-
tímum, enda lét hún ekkert fyr-
ir brjósti brenna.
Ég held að henni hafi aldrei
orðið kjarkfátt svo að á bæri,
svo var stilling hennar mikil.
Hún var alvörugefin, einkum eft-
ir að maður hennar féll frá, en
gat þó vel tekið þátt í gleði með
vinum sínum. Enda var lánið
henni svo hagstætt að synir
hennar, Helgi, háskólastúdent í
viðskiftafræði og Pétur landbún-
aðarkandidat og ráðunautur, eru
efnilegir og vinsælir menn, henni
til mestu gleði og sæmdar.
Fjölskylda Sigríðar og vinir
sakna hennar sárt. Fyrst og
fremst synir hennar og tengda-
dætur, systkini, mágar og mág-
kona, en, ekki sízt, öldruð móð-
Helnedóltir
Hinningarorð
ir, sem ekki vék frá henni hina
siðustu og erfiðustu mánuði. Því
þótt Sigríður sýndi mikið þrek
og kjark duldist þó ekki hversu
mikið hún leið. — Það þarf eng-
in orð til að lýsa því sem móð-
uraugun sjá og móðurhjartað
geymir, bæði gleði og sorg, það
er hafið yfir öll orð. — Þær
mæðgur, Sesselja og Sigríður,
hafa sýnt hetjuskap, í þessum
heljarátökum, sem gott er að
minnast, þrátt fyrir allt. Slíkt
er ekki öllum gefið að geta horft
á móti kvölum og dauða, að láta
sér hvergi bregða við sár né
bana. —
Margt fer öðru vísi en æski-
legt væri, frá mannlegu sjónar-
miði. Hversu oft verða foreldr-
ar að fylgja börnum sínum til
grafar í stað þess að eðlilegt
virðist að börnin veiti foreldr-
unum hina hinztu þjónustu. En,
eins og Hallgrímur segjr, „inn-
sigli engir fengu, upp á lífs stund-
arbið“.
Drenglyndi'og velvild er var-
anlegt og gengur frá kynslóð til
kynslóðar. Hvortveggja hafði frú
Sigríður Helgadóttir í rikum
mæli. Og auk þess dásamlegt
þrek og sterkan vilja, þrek stælt
með sigri á raunum og miklu
starfi og göfugu. Það er gott að
geta sagt þetta með sanni um
látna vini. Gott þsgar ekkert
skyggir á fagrar minningar og
hægt er að segja með einlægum
huga: Hjartans þakkir og far
þú vel í Guðs friði.
Þorsteinn Jónsson.
„Þrír skálkar" frum-
sýndur í Keflavík
á moraun
KEFLAVÍK, 23. apríl — Á morg-
un, sunnudag, verður söngleik-
urinn „Þrír ská'.t.ar“, eftir
Gandrup í þýðingu Þorsteins Ö.
Stefánssonar, frumsýndur í Ung-
mennafélagshúsinu. Er það Ung-
mennafélag Keflavíkur, sem
s'tendur fyrir þessari leiksýn-
ingu, en það hefir verið einn
þáttur í starfsemi félagsins að
færa upp einn leik á hverju starfs
ári. í fyrra sýndi það Spansk-
fluguna við mikla hrifningu
áhorfenda. Leikstjóri félagsins að
þessu -sinni er frú Ingibjörg
Steinsdóttir leikkona. Leikendur
eru margir, og má segja að þeir
séu frá flestum landshornum, og
eru margir þeirra bekktir leikar-
ar frá sinni heimabyggð. Hafa
þeir allir sýnt mikla fórnfýsi og
áhuga, enda er þetta algert frí-
stundastarf manna, sem eiga
langan starfsdag. — Með aðal-
hlutverkin fara þeir Elías Jóns-
son, Herbert Jónsson, Hörður
Guðmundsson, Sveinn V. Stefáns-
son, Þórður Jónsson og Alda
Bjarnadóttir. — Undirleik allan
annast frú Gauja G. Magnúsdótt-
ir. Leiktjöld hefir Helgi S. Jóns-
son málað, og sönginn hefir Guð-
mundur Nordal söngstjóri æft.
—Ingvar.
Happdrættislán
ríkissjéðs
250.90 krónur:
55 62 169 845
1015 1735 2972 3089
3238 4619 4630
4775 4875 5128 5789
6074 6327 7996 8297
8329 10216 10556
11607 11977 12033 12053
12201 12264 12625 12675
12687 13389 13908 14584
15649 15909 16125 16794
17543 17561 18114 20407
20616 21824 21864 22345
22921 23212 24015 24410
25516 25547 26071 26753
28047 28400 28676 30086
30315 31233 31680 32330
32560 33257 33489 34339
35012 35251 35388 36450
36898 37313 37724 38777
39184 40105 40125 40608
40802 41053 42225 42330
43987 44398 45156 45262
45657 46260 46291 46856
47002 47282 49629 49634
49825 50179 50942 50965
51109 51140 51345 52064
52162 53141 53724 54186
54709 54718 54779 54794
54833 55649 56576 57042
57069 57454 57564 58514
58689 59434 59461 60234
60323 60533 61031 61807
63600 64297 64793 65317
65358 65429 66493 68145
68544 69069 69580 69700
69756 70850 71333 71700
72004 72197 72508 72729
74840 74872 75707 75818
76601 76964 76980 77813
78915 79025 79750 80717
80945 83134 82275 83439
83681 83742 84090 84505
86258 88111 88114 89729
89937 90284 90333 90717
91618 92522 94201 94624
95981 96259 96368 96875
97117 98081 93588 98824
99092 100186 100503 100942
101091 101147 103836 104777
104813 104523 105370 105519
106931 107500 108066 110564
111769 111958 112663 112764
114201 114632 114840 114923
114964 115010 115124 115495
115863 116218 117024 117575
117634 118804 119684 120396
121487 122158 122800 123760
124470 125202 125925 126078
126487 126568 126792 127115
127286 127410 127589 127710
127929 128346 128800 128868
129654 131052 132256 132663
133104 133134 134451 135205
135813 136591 136744 137516
137800 137836 138865 139855
140158 140233 140520 140544
141409 141848 141855 142185
142659 143507 143754 144103
144371 144876 145575 145644
146236 147231 148368 147364
149502 149771.
(Birt án ábyrgðar).
Fyrstð ærin var
þrílembd
HOFI í VATNSDAL, 19. apríl. —-
Venjulega hefst sauðburður hér
um 20. maí. Þó kemur oft fyrir
að nýfætt lamb finnist í fjárhús-
unum einhvern morguninn, þeg-
ar vetri fer að halla.
Þegar Reynir Steingrímsson í
Hvammi í Vatnsdal kom í fjár-
húsin 16. þ. m. hafði ein ærin
hans fætt 3 lömb um nóttina. Eigi
gat hún gætt þeirra allra í stór-
um ærhóp, svo að eitt var orðið
viðskila frá mömmunni, en með
hjálp fjármannsins greiddist
fljótt úr þeim nauðum. Öll voru
lömbin stór, þroskamikil og jöfn
á vöxt, og mjólkar ærin þeim
nægilega.
Eigi hafði verið vitað um að
fjölgunarvon væri fyrr en rétt
áður, svo að ærin hafði haft sama
fóður og aðrar ær til þess tima.
Ær þessi er mjo'g táþrnikil ög
falleg kind. Óvenjulegt er að ær
séu þrílembdar hér í sveit og
aldrei vitað um fyrirmálsær áð-
ur, svo að þetta þykir nýstárlegt
fyrirbæri hjá sauðfénu okkar.
— Ágúst.
ingar fengir
iunnur af kartöflimt í
W |iis.
fyrraliaust
Byggja nú iirugga geymslu fyrir 7500 funnur
í ÞYKKVABÆNUM nam kart-
öfluuppskeran í fyrrahaust um
20 þúsund tunnum.
Af þessari uppskeru tók græn-
metisverzlunin til sölu 2 þúsund
tunnur til manneldis fyrir venju-
legt verð. En mikil vandræði hafa
verið að koma þessum kartöflu-
birgðum í verð að öðru leyti.
Um þriðjungur af þessari miklu
uppskeru ónýttist vegna myglu.
Ert með því að hreinsa myglaðar
kartöflur úr birgðunum hvað eft-
ir annað, hefur tekizt að tak-
marka skemmdirnar.
Er fréttaritari blaðsins var að
því spurður, hvort Þykkbæingar
mýndu halda áfram kartöflurækt
á þessu sumri í sama mæli og
áður, sagði hann að þetta áfall
í ræktuninni virtist ætla að hafa
litlar afleiðingar. í fyrravor voru
þar settar niður um 1200 tunnur
í görðum þykkbæinga sem alls
eru að viðáttu um 76 hektarar,
víðsvegar um byggðina, en
stærsta samfellt kartöfluland
þeirra er vestan við þorpsbyggð-
ina um 30 ha.
NÝ GEYSLA
Nú hafa Þykkbæingar í smíð-
um nýtt hús sem þeir nota til
kartöflugeymslu. Er það útbúið
með nýtízku útbúnaði svo
geymsla geti þar verið trygg. Þar
búast þeir við að fá í einu lagi
geymslu fyrir 7500 tunnur af
kartöflum Verður geymslunni að
sjálfsögðu skipt í hólf.
MEST AF KARTÖFLUM
Þykkbæingar hafa ekki gefið
sig mikið að ræktun annarra mat-
jurta þó einstakir bændur rækti
nokkuð af þeim fyrir heimili sín.
En siðan kálflugan kom til
sögunnar, hafa þeir gersamlega
horfið frá rófnarækt, enda eru
garðlönd þeirra sandgarðar og
því ekki vel falJnir til rófnarækt-
ar.
Nú eru þeir að undirbúa að
setja niður í garða sína því svo
vel vorar. Tún eru t. d. farin að
grænka þar álíka mikið, eins og
venja er til í maílok, i venjulegu
árferði.
ÞÍÐ JÖRÐ
Jörð hefur verið klakalaus þar
í allan vetur. Ekkert hefur þó
verulega verið unnið að jarða-
bótum nema skurðgrafa hefur
verið að verki vig að ræsa fram
allmikið mýrlendi vestan við
þorpsbyggðina. Sú vinna hefir
gengið tafarlaust í alaln vetur.
Þó illa hafi tekizt til með sölu
á kartöflunum að þessu sinni,
gera Þykkbæingar sér von um
að þeir geti komið kartöflunum
í betra verð þegar örugg geymsla
er fengin Yfirleitt er hér enginn
uppgjafatónn í bændum, sagði
fréttaritarinn. Til marks um það
er m. a„ að Þykkbæingar hafa
fest kaup á jarðýtu við nýræktar
störfin, er mun kosta þá 260 þús.
krónur.
Unnið er að því að koina rúm-
lega 20 heimilum í Þykkvabæ i
símasamband. Verður það ekki
„sveitasími“, þannig að mörg'
heimili noti sömu línuna, heldur
eiga heimilin hvert fyrir sig að
hafa beint samband við miðstöð.
FRAMHALDSBORUN FYRIR
NEYZLUVATN
Er það barst í tal, hvað liðk
borununum fyrir neyzluvatn á
Þykkvabæ sagði fréttaritarinn, aðf
forgöngumenn þesSa fyrirtækis.
gætu ekki í bili lagt fram meira
fé til þeirra.
Borun þessi er framkvæmd var
í hitteðfyrra bar ekki árangur,
vegna þess að vatnið í borholunni
var svo saltmengað, að það var
óhæft til neyzlu. En verkfræð-
ingar er hafa fjallað um þetta
mál telja að reynandi væri, a<£
dýpka enn borholuna og fóðra
hana innsn með pípu í því dýpi
þar sem saltvatnið er, ef takasfc
megi að ná ósöltu drykkjarvatni
dýpra úr jörð.
Þessi tilraun til að afla Þykk-
bæingum drykkjarvatns úr jöríT
hefur kostað um 100 þúsund kr.
Nú hafa þeir ekki annað vatn til
drykkjar, en rigningarvatn af
þökum sínum, er þeir safna i
þrær.
Sendilierra Rássa
kvaddur lieim
MOSKVA, 23. apríl — Generalov
sendiherra Rússa í Canberra *
Ástralíu hefur verið kallaðui*
heim. Sömuleiðis hafa allir aðrtar
starfsmenn rússneska sendiráðs-
ins í Ástraiíu fengið fyrirmætt
um að snúa heim á leið.
—Reuter.
★—O—★
CANBERRA, 23. apríl — Rúss-
neska sendiráðið hér í borg hef-
ur ekki svarað tilboði áströisku
stjórnarinnar um það að það megm
senda fulltrúa fyrir Petrov-
rannsóknanefndina, sem getí
gert nánar grein fyrir ásökunum
sendiráðsins um að Petrov hafi
dregið sér miklar fjárupphæðir
í sendiráðinu. Hinsvegar berasfc
fréttir um að allt starfsfólk sendi-
ráðsins sé á heimleið og virðisk
því sem þeir ætli sér ekki aðT
rökstyðja þessar ásakanir frekar.
Keflavíkurbélaf
öflufe vel
KEFLAVÍK, 23. apríl— Afli línu
bátanna var með ágætum í dag-
eða frá 10—16 tonn. Aflahæstir
voru Guðm. Þórðarson með lð
lestir, Sævaldur var með 15. —
Bátarnir sækja yfirleitt grunnt.
Togarinn Keflvikingur er nýkom
inn af veiðum með 160—170 tonn
af saltfiskí. —Ingvar.
Htorðtilraim mótmælt
Frankfurt am Main 23. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
BANDARÍSKA hernámsstjórnin í Þýzkalandi hefur sent rúss-
nesku hernámsstjórninni mótmæli vegna morðtilraunarinnar,.
sem opinber rússnesk yfirvöld stofnuðu til og sem fjöldi rússnéskra
lögreglumanna lagði hönd að verki við, þótt svo færi að samvizk.i
hins útnefnda launmorðingja segði til sín og hann gæfi sig fram_
Jafnframt mótmælti bandaríska hernámsstjórnin því að rússnesk
lögregluyfirvöld skipulögðu einnig og stóðu að baki óluignanlegu
mannráni í Vestur-Berlín fyrir nokkru.
í mótmælaorðsendingunni segir að framkoma Rússa, er þeir
skipuleggja mannrán eg morð á fólki þúsettu í vestrænum löndunt
sé gersamlega ósamboðiit siðmenntuðu þjóðfélagi, sem Rússar vilji
þó telja sig. Er þess krafizt að Rússar láti af slíkri óhugnanlegrt
glæpastarfsemi í vestrænum löndum.