Morgunblaðið - 25.04.1954, Side 14

Morgunblaðið - 25.04.1954, Side 14
14 MORGIJNBLAÐ1B Sunnudagur 25. apríl 1954 U Skugginn og tindurinn SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASON F ramhaldssagan 21 garðinum. Hann fór úr fötunum í búningsherberginu, fór í bað og kastaði sér til sunds í laugma. Honum leið strax betur þegar hann kom í kalt vatnið. Hann 6-ynti fram og aftur og horfði á pálmatrén þar sem þau stóðu hreyfingarlaus í mollunni. Svo r r hann upp úr og settist undir ir,< thlíf og bað um kaldan drykk •rg eitthvað matarkyns. Leiðind- ii komu yfir hann aftur þar sem h nn sat þarna aleinn. Þegar 1 nn var heima í Englandi og oaið var að ganga frá skilnaðin- 'im og Caroline var farin, hélt hann að það efcna sem har.n þyrfti að gera til að losna frá frá sjálfum sér, væri að fara yfir Atlantshafið, vera umkringdur bambusviði og pálmatrjám í stað þess að sjá fyrir sér götur Lund- únaborgar. En það dugði ekki. Enginn gat breytt sjálfum sér með því að flytja sig úr stað á yfirborði jarðar. Hann mundi eítir því sem náunginn á skrif- stofunni í London hafði sagt. „Farðu ekki til nýlendanna, ef þú vilt reyna að gleyma ein- hverju .. þar úir og grúir af lcgsteinum yfir þeim sem hafa reynt það sama árangurslaust. Sami maðurinn hafði líka sagt við hann þegar hann frétti að htmn ætlaði að gerast kennari í skóla sem færi eftir hinum nýju uppeldisreglum: „Eru það ekki einmitt skólarnir sem eru smátt og smátt að sanna að gamla lagið ér bezt.“ Þá hafði honum fundizt þessi maður tala þannig bara til að vera fyndinn, en ef til vill vissi hann lengra en nefið náði. Þegar Douglas datt Silvia í hug og yfirborðsmennskan og lygin í hénni, þá fannst honum hann með ánægju geta snúið hana úr hálsliðnum. Þjónnin kom með matinn á bakka og setti hann á lága borðið við hlið hans. Þetta var fullorð- inh negri með þétthrokkið svart hár sem minnti á ullina á pers- nesku lambi. Caroline hafði einu sinni átt stuttkápu úr persnesku lambaskinni og fór hann að hugsa um Caroline og hvað hún mundi nú vera að gera. Hann sá hana fyrir sér þar sem hún lá á kletta- snös í þægilegum sólarhita á Ítalíu og það var ekki laust við að hann fyndi til öfundar. Eða kannske sat hún undir sólhlíf á gangstéttarveitingahúsi í París . . eða hún væri komin aftur til London og væri að gera sig fallega fyrir Ascot. Eða var Ascot dottinn upp fyrir? Hann mundi það ekki. Þeir dagar voru liðnir þegar Ascot skipti máli fyrir hon- um eða listsýningar eða kvöld- verðarboð við kertaljós, eða það að þekkja „rétt“ fólk og láta sjá sig á „réttum“ stöðum. Þeir dag- •ar höfðu varla enzt árið. Nýja- brumið hafði endað með stríð- inu og ný reynsla og ný viðhorf höfðu gengið á milli bols og höf- uðs á þeim. Þegar hann var á Malaya og stríðinu var lokið hafði hann haldið að ást hans á Caroline hefði dáið um leið og ást hans á því lífi, sem hún var fulltrúi fyrir. Hann hafði kviðið heimkomunni eftir ástarævintýri í Penang. Þegar hann komst að því að ást hennar til hans var algerlega slokknuð þá varð hann gripinn þrá til hennar á ný. Þann- ig' varð hann leiksoppur hégóm- ans. Hann reyndi að vekja á ný Gitthvert samband á milli þeirra, en fékk ekkert nema sársauk- afin af því að vera ekki elskaður og niðurlæginguna af ótrú- mennsku hennar. Endurmmning- arnar um næstu mánuði á eftir voru eins og opin sár í huga hans og hann kvaldi sjálfan sig með því að ýfa þau upp á ný.. Stund- um reyndi hann að lækna þau með því að segja við sjálfan sig, ég elska ekki Caroline, við hefð- um aldrei getað orðið hamingju- söm saman. En það var oft erfitt að lækna sér með skynsemi. Þannig snérust hugsanir hans eingöngu um það, sem miður var allan tímann á meðan hann snæddi og þegar hann hafði borð- að nægju sína komst hann að raun um það, að engin ástæða væri til að halda þessu áfram. Bezt væri að halda heim upp á hæðirnar aftur eins fljótt og hann gæti. Hann klæddi sig aftur í föt- in og fór út að bílnum. Hann var næstum kominn út úr Kingston þegar hann mundi eftir því að hann hafði átt að sækja dót fyrir Judy. Það var skritið að hann skyldi nærri hafa gleymt því. Hann snéri við og leitaði uppi heimilisfangið sem hún hafði gef- ið honum. Húsið var í útjaðri bæjarins, nokkurs konar gisti- hús. Húseigandinn var roskin kona, ljósbrún á hörund, sem hló alveg eins og frú Morgan. Þegar hún hafði lesið um flugslysið í dagblöðunum hafði hún ekki vit- að hvort hún átti að gráta yfir dauða hinna eða hlæja af gleði yfir því að Judy skyldi komast lífs af. Og enn var eins og hana langaði til að gera hvorttveggja i senn. Hún hjálpaði honum að taka saman dót Judy í litla fá- tæklega herberginu hennar. Þungar hrotur heyrðust í gegn um þunnan vegginn úr næsta herbergi. Hann bar töskuna út i bílinn. Tuttugu mínútum siðar var hann kominn út úr Kingston og lagði á brattann. Honum fannst næstum strax loftið verða tærara og svalara og gammurinn sem hafði setið sem fastast á sál hans hrissti stélið og hóf sig til flugs. I fjarska sá hann á tindinn á Bláufjöllum. Sumir fundu sér- staklega til smæðar sinnar gagn- vart háum og tignarlegum fjöll- um. Fyrir Douglas lyftu þau burt hversdagsleikanum sem hafði gagntekið hann niðri í bænum og stærð þeirra og mikilfengleiki hafði örfandi áhrif á huga hans. MATARSTELL KAFFISTELL Mjög fallegt úrval, nýkomið. BIERING Laugaveg 6 .Sími 4550. Kúsgögn Sófi og þrír stoppaðir djúpir stólar (Chesterfield), til sölu og sýnis á Reynimel 52. — Mánaðarafborgun getur komið til greina. í Reykjavík — Sími 1990. gi h a. >t Sýning á verkefnum barnadeildanna verður í skólanum kl. 1—4 í dag. Aðgangur ókeypis. Foreldrar sérstaklega hvattir til að sjá sýning- una. Kl. 5 ókeypis kvikmynda- sýning fyrir skólabörn og afhending verkefna að henni lokinni. Innritun í vornámskeið barna fer fram í skólanum kl. 1 -4 í dag og næstu daga í síma 80901. Komið þér til Kaupmannahafnar — ? þá megið þér ekki fara á mis við þá ánægju, að líta inn og skoða útstillingar vorar af fallegum, stíl- hreinum húsgögnum. ★ r Af fegurð og samræmi þarf að velja hin einstöku ,hús- gögn, til að skapa , heimili með fallegum heildprs>vip — en það er nánast sagt list, sem ekki er á allra.færi. Húsgögnin geta verið heim- ilisfólkinu til daglegrar ánægju og nytsemdar, cn skemmtileg nýjung íyrir gestina. Vanti yður einstök húsgögn á heimilið, í heiíar stofur eða hluta af þeim, get- um vér veitt yður ómetan- lega aðstoð með hinu fjöl- bréytta úrvali voru af fall- egum og stílhreinum hús- gögnum, ásamt margra ára fagþekkingu. ! i i Biðjið um verðlísta. Georg Kofoeds MÖBELETABLISSEMENT A/S St. Kongensgade 27. Ctr. 8544 — Palæ 3208 Köbenhavn — Danmark. Vér tryggjum yður stílhreinar stofur. ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► FIX-SO Sparið tímann, noíið FIX-SO Fatalímið FIX-SO auðveldar yður viðgerðina Málning og járnvörur Laugaveg 23 — Sími 2876 Einangninurkork Nýkomið í eftirtöldum þykktum: 1” _ 11/2” _ 2” — 3” — 4” Jónsson & Júlíusson Garðastræti 2 — Sími 5430. Risíbúð Glæsileg fjögurra herbergja risíbúð er til sölu í ný- reistu húsi á góðum stað í bænum. — íbúðin er ein- angruð og að öðru leyti tilbúin undir múrhúðun. Uppl. í síma 82435, milli kl. 10—2 i dag. ....... » *■■ ■■■■■•■■■■«? t >iiuiM<iirmnii.........................................

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.