Morgunblaðið - 30.05.1954, Page 2
2
MORGUNBLÁÐIB
Sunnudagur 30. maí 1954
Si. Jóhann Kannesson:
Um bænina
BÆN má finna í flestum trúar- j
Tjrögðum, einnig utan kristin-
■dómsins. Múhameðstrúarmenn
leggja hina mestu áherzlu á bæn j
og fasta bænatíma. Hvernig sem
á stóð tóku hinir indversku skip- J
verjar bænamottur sínar og báð-
nst fyrir á réttum tímum um,
Tjorð á stórskipinu „Corfu“, en
með því fór ég heim til Evrópu
d síðari ferð minni. Miklu minna
bar á bænahaldi kristinna manna
J>ar um borð, en þó varð maður
«innig alloft var við það að hinir
kristnu höfðu ekki gleymt Guði.
Ea indversku Múhameðstrúar-
anennirnir voru miklu bænrækn-
ai i en vér, þótt skömm sé frá að
s-gja.
Með því að bænina má þannig
íinna þar sem menn þekkja ekki
Guð, þá er augljóst að hún er
ckki í sjálfri sér neitt náðarmeð-
al. Það er þá fyrst þegar hún er
komin undir veidi Guðs orðs og
•orðin að Guðs orði að segja má
íið hún sé náðarmeðal. Allt í
hinni kristnu bæn verður að mið-
ast við vilja Guðs. Þá verður hún
lykill að Drottins náð.
í Matt. 6,7 aðvarar Jesú gegn
þeirri hættu að líkjast heiðingj-
unum í mælgi og töfrahyggju.
Bétt á eftir kennir hann hvernig
biðja skuli með því að kenna
lærsveinum sínum Faðir vor. Það
«:• hin sígilda fyrirmynd hvað
bæn snertir og er oft kallað hin
Brottinlega bæn. Það er heldur
ek.ki aðeins bæn, það er einnig
liluti af vorum helgu, kirkjulegu
játningum, eins og Boðorðin og
Trúarjátningin. En þetta þrennt
notaði Lúther oft sjálfur við
bænahald á heimili sínu með
börnum sínum og gestum. Væri
vel að vér tækjum þann sið upp
aftur, því þá mundu hin helgu
fræði ekki gleymast börnum
vorum.
UM BÆN JESÚ SJÁLFS
Með því að guðspjall dagsins
cr hluti af æðstaprests bæn Jesú,
þá er vel að vér athugum í dag
Jivernig Jesú bað og hvað hanh
bað um. Hann hefur eflaust ung-
ur lært hinar helgu bænir ísra-
els af móður sinni og notað þær
og sálmana í Gamla Testament-
inu, eins og sjá má af guðspjöll-
unum.
En flestar af bænum hans sjálfs
snúast á einn eða annan hátt um
Jijálpræði mannanna, komu Guðs
xíkis og útbreiðslu fagnaðarer-
indisins. „Ég bið ekki fyrir þeim
einum, heldur einnig fyrir öllum
>eim, sem á mig munu trúa fyrir
orð þeirra.“ Jesús bað fyrir
kirkju sinni, fyrir lærisveinum
sínum og einnig fyrir óvinum
sínum. Hann bað áður en hann
.gerði kraftaverk sín og áður en
bann flutti ræður sínar, á undan
skírninni, freistingunni og áður
ea hann gekk út í hina miklu
þjáningu, er lauk fyrst á kross-
inum.
Stundum byrja bænir Jesú með
lofgjörð og þakklæti, eins og t. d.
hin ógleymanlega bæn í Matt.
11,25 nn. Hann skilur að vegir
Föðurins eru undursamlegir og
góðir og hann veit að Faðirinn
<er allt af hjá honum. Þess vegná
þakkar hann Föðurnum og lofar
hann.
Jesús áminnir oss um að bænir
vorar skuli vera í leyndum. Hann
var sjálfur heilar nætur einsam-
all á bæn og þess vegna skiljum
vér hve mikils virði bænin var
honum, sem átti þó beinan að-
gang að hjálp Föðurins hvenær
sem var. Ekki munum vér síður,
vér sem af syndinni erum bundn-
ir og fjötraðir, þurfa að biðja
xnikið í einrúmi og dvelja lang-
dvölum með hugann hjá Guði.
Hins vegar er hættan nú ekki sú,
setn var á, dögum FarLeanna, að
lfteriií 'átáiidi "óft á gáínamótum
og biðjist þar fyrir, ýfirborðslejga
og með hálfum huga, heldur er
hin hættan meiri að menn biðji
al!s ekki og kenni heldur ekki
börnum sínum að biðja.
BÆN VOR
Vér ættum að líkjast Jesú í því
að biðja um sálarheill og blessun
annarra, komu Guðs ríkis og út-
breiðslu fagnaðarerindisins. —
Sömuleiðis ættum vér að temja
oss að biðja fyrir þeim, sem bágt
eiga, fyrir sjúklingum, vitandi að ,
Guð er hinn mikli læknir, fyrir
þeim, er þrengingar þola og líða
andlegan eða líkamlegan skort,
minnugir þess að Guð getur notað
oss eða aðra til að hjálpa þeim.
Þá ættum vér ekki að gleyma
að láta bænir vorar fylgja börn-
um vorum og öðrum ástvinum,
að biðja um blessun yfir land,
þjóð, kirkju og yfirvöld. Og aldr-
ei skyldum vér gleyma að lofa
Guð og þakka honum fyrir alla
hans náð og gæzku.
Glæsi
ir sam-
HábæjaÉirkjy
KIRKJUKÓR Hábæjarkirkju
hélt sinn fyrsta opir.bera sam-
söng að Hellu fimmtudaginn 27.
þ. m. Á söngskrá voru 14 lög,
eftir innienda og erlenda höf-
unda, sem kórinn flutti með ágæt
um, endaér hann mjög vel þjálf-
aður, raddir góðar og hefur söng-
stjóranum, Sigurbjarti Guðjóns-
syni, farizt öll meðferð þeirra
mjög vel úr hendi.
í kórnum eru 21 meðlimur og
er það undravert hve söngstjór-
anum tekst að ná miklum hljóm
úr ekki stærri hóp og hve raddir
renna vel saman, þó er hitt enn-
þá meira áberandi, hve mikilli
mýkt hann nær í öllum viðkvæm
ari lögum og er auðfundið á því
að Sigurbjartur er starfi sínu vax
inn sem söngstjóri og flanar ekki
að neinu.
Hábæjarkirkjukór er úr
Þykkvabæ og eins og þeir vita
sem til þekkja, eru Þykkbæingar
yfirleitt miklir söngmenn að
fornu og nýju og er þeim bættist
þessi ágætismaður, Sigurbjartur
Guðjónsson, hafa söngkraftarnir
farið að njóta sín til fulls. Með
öðrum orðum, söngurinn tókst
með afbrigðum vel, áheyrendur
klöppuðu yfirleitt hvert lag upp
aftur og voldu þó meira, svo kór-
inn varð að syngja 4 aukalög og
verð ég, er þessar línur rita, að
vorkenna þeim nágrönnum mín-
um, er heima sátu og ekki nutu
þessarar ágætu stundar hér að
Hellu, því slíkar skemmtanir eru
hér ekki um hverja helgi. — Vil
ég nú benda því fólki er þessi
kór gefur tækifæri til að láta ekki
hjá líða að nota það, því slíkum
stundum er ekki á glæ kastað. —
Vil ég nú að endingu þakka kórn-
um þessa ágætu skemmtun og
vona að sem flestir fái að njóta
þessa ágæta söngs.
Áheyrandi.
Áfeíja úfhfuiun
lisiainannafjár
SUNNUDA GINN 16. maí var
fundur haldinn í Rithöfunda-
félagi íslands. Var fundarefnið
að ræða siðustu úthlutun lista-
mannastyrkja og æskilegt skipu-
lag slíkra styrkveitinga fram-
vegis.
Eftirfarar.di yfirlýsing var sam
þykkt á fundinum:
Fundur haldinn í Rithötunda-
félagi íslands sunnudaginrj Í6.
maí 1054 átelur harðl'ega^cjujtu
úthlutun lista'márináfjar.'Tundiir-
ÍB«-teIur. að -matgi v rithöíundar
hafi verið þar misrétti beittir og
úthlutunin í heild óviðunandi.
Norræii réSstefna
NORRÆNA félagið í Oslo gengst
fyrir norrænni ráðstefnu í Qslo
dagana 1.—3. júlí í sumar. Gert
er ráð fyrir allmikilli þátttökú
frá öllu.m hinum Norðurlóndun-
um, og er búizt við að um eða
yfir 700 manns sæki ráðstefnuna.
Á ráðsteriiu þessari verður m.
a. rætt um norræn mál í norræn-
um skólum, blöðin og norræna
samvinnu, gagnkvæma gestaleiki
Norðurlandaleilchúsanna (fram-
sögumaður Guðlaugur Rósin-
kranz), íjárhagslega samvinnu
Norðurlandanna, atvinnufrelsi á
Norðuriöndum og frjáls viðskipti
Norðurlandaþjóðanna.
Þeir félagsmenn Norræna fé-
lagsins, sem óska eftir a'ð taka
þátt í ráðstefnunni, þurfa að
senda um það umsóknir fyrir 10.
júní til stjórnar Norræna félags-
ins í Reykjavík.
í
a w +
GENF, 29. maí. — Enn eru Indó-
Kínamálin á dagskrá Genfarráð-
stefnunnar Hafa fulltrúarr.ir set-
ið á fjölmörgum lokuðum fund-
um, en þeir hafa reynst árangurs-
ríkari en opnu fundirnir. Næsti
fundur verður á morgun og verð-
ur þá sama mál á dagskrá.
•—Reuter.
itanríkisráðherra oy biöðin
STOKKHÓLMUR — Talið er, að
hin nýju áfengislög muni bæta
mjög ástandið i landinu. Frjáls-
ræði um v'ndrykkju muni draga
úr afbrotum og smygli.
Utanrikisráðhérra og blöðin . .'.
UTANRÍKISRÁÐHERRA gát
þess í lok ræðu sinnar í út-
varpinu á miðvikudagskvöldið,
að íslenzk blöð gætu unnið stór-
virki til ills eða góðs í varnar-
málunum. Ráðherra sagði m.a.:
„Aöhald blaðanna og að-
finnslur tel ég eðlilegar, en
skrif þeirra verða að vera
sönn, réttlát cg heiðar!eg“.
í samræmi við þetta óskaði ráð
herra svo sérstaklega eftir að-
stoð þjóðarinnar við framkvæmd
hervarnarsáttmálans í hinu nýja
formi, svo notuð séu orð dr.
Kristins um varnarsamninginn.
Menn skyldu ætla, að það blað,
sem utanríkisráðherra ætti einna
mest að í þessu máli, væri Tím-
inn, sem Framsóknarflokkurinn
geíur út. Vakti það bví almenna
furðu, að morguninn eftir að dr.
Kristinn flutti ræðuna skyldi
þetta bezta barn ráðherrans birta
grein, sem nefnist: „Stefna fólks-
ins í varnarmálunum", en þar
segir meðal annars:
„Það hefur komið í ljós, að
Sjálfstæðisflokkurinn telur
sér skylt að taka upp hanzk-
ann fyrir leiguþjóna erlendra
verktaka og liðsforingjaklíku,
sem ekki ber skyn á íslenzka
hagsmuni eða láta sig þá
nokkru skipta“.
Grein þessi er ritstjórnargrein
á æskulýðssíðu Tímans sama dag-
inn og hann greinir frá ummæl-
um dr. Kristins, sem tilfærð eru
hér að ofan.
Y.-Skaftafe!lss. í ðrum vexti
Vík í Mýrdal 29.maí.
AÐALFUNDUR Verzlurtarfél-
ags Vestur-Skaftfellinga var
haldinn í Vík í Mýrdal laugar-
daginn 22. maí s. 1. Fundinn sátu
um tuttug" fulltrúar, auk stjórn-
ar félagsins, endurskoðenda og
allmargra gesta.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Ragnar Jónsson, kaupfélagsstjóri,
gaf ýtarlega skýrslu um hag og
afkomu félagsins á liðnu starfs-
ári. Heildarsala ársins nam alls
tæpum 5,3 milljónum króna. —
Erlend vörusala jókst um nær
V2 milljón króna á árinu, en sala
innlendra afurða minnkaði nokk-
uð. Stafar það af því, að árið
1852 var allt sauðfé skorið niður
hér í Mýrdal. Voru afurðir það
ár því óeðlilega miklar. Hins
vegar engu fé slátrað úr Mýr-
dal s. 1. haust.
Hagur félagsins er góður. Var
samþykkt að greiða í arð 6% af
ágóðaskyldri vöruúttekt félags-
manna. Samkvæmt eindreginni
ósk fundarmanna, var allur arður
lagður í stoínsjóð. Kemur það sér
vel, því að félagið er enn ungt
að árum og sjóðir þess því litlir.
BÍLAKOSTUR BÆTTU.Tv
Á s. 1 ári eignaðist félagið tvo
stóra „diesel“-bila, 6 og 8 tonna.
Þessir bílar hafa annast mest alla
vöruflutninga félagsins frá
Reykjavík, síðan þeir voru teknir
í notkun. Hefur það verið til
hins mesta hagræðis og sparnað-
ar, því að beir brenna olíu í stað
benzíns, eins og kunnugt er, og
eru því miklu ódýrari í rekstri.
Félagið hefur í hyggju að kaupa
enn fleiri slíka bíla, þannig að
þeir geti annast alla vöruflutn-
inga þess.
Allmiklar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar hjá félaginu nú á
næstunni. Þegar hefur verið haf-
izt handa um byggingu nvs við-
gerðai;verkstæðis fyrir bíla og
. gagngejrð-
ur endrirbv'tur st/nr:: yfia. á .- faí-
urhúsi féla'gSint: j s ;
Úr stiórn ....fálagsms áttii
ganga þeir Jóhannes Árnason,
Gröf og Hannes Hjartarson,
Herjólfsstöðum. Voru þeir báðir
endurkjörnir Aðrir í stjórn eru:
Björn Runólfsson, Holti, form.,
Bjarni Biarnason, Hörgsdal,
Eyjólfur Eyjólfsson, Hnausum,
Páll Pálsson. Litlu-Heiði og Ás-
geir Pálsson, Framnesi.
BRÚ Á M^LAKVÍSL
Samþykkt var að stofna inn-
lánsdeild við félagið á yfirstand-
andi ári.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt einróma:
„Aðalfimdur Verzlunarfélags
Vestur-Skaftfellinga, haldinn í
Vík 22. niaí 1954, skorar á Al-
þingi og vegamálastjóra að hraða
sem mest byggingu nýrrar brúar
á Mulakvís’, lagfæringu brúar á
Hólmsá og endurlagningu vegar
yfir Skaftáreldahraun. Einnig
bendir fundurinn á, að nauðsyn
ber til að hefla þjóðveginn aust-
an Víkur í Mýrdal oftar en gert
hefur verið og skorar á vega-
málastjóra að hafa veghefil stað-
settan á Kirkjubæjarklaustri“.
ÁNÆGJA YFIR
RAFVÆÐINGUNNI
Fundurinn lýsti einnig ánægju
sinni yfir stefnu ríkisstjórnar-
innar í rafmagnsmálum strjál-
býlisins og skorar á hana að
hraða öllum framkvæmdum eftir
fremsta megni. Jafnframt þakk
aði hann forgöngu þingmanns
kjördæmisins í því að tryggja
Mýrdalnum fulla aðild í fyrir-
huguðum framkvæmdum.
Loks var stjórn félagsins falið
að athuga möguleika á því að
hefja mjólkursölu af öllu félags-
svæðinu, dn eins og kunnugt er
kaúpir Mjólkurbú Flóamanna að-
eins mjólk af bændum vestan
Mýrdalssands.
★—★
Þessi aðalfundur Verzlunar-
félags Vestur-Skaftfellinga var
hinn þritrii í röðinni, en félagið
ifiyd .ýrið 1951 upp
•úr vcrzlán HallfVri/ Júnrsoiiar,
'Vtk. Hsfur starfsemi þels vorið
i örum yjexti__frá stofnun þéss,
og félagsmönnum hefur stöðugt
farið fjölgandi. — J.
Verður ekki annað sagt en að
grein þessi sé í heild illa fallin
til að glæða samstarf og stuðning
við utanríkisráðherra, eins og
hann þó biður um. Vekur það
enn undrun hvað Tíminn ber á
borð fyrir unga Framsóknar-
menn. Fá menn ekki annsð séð
af greininni um stefnu fóiksins
en Tíminn leiki tveim skjöldum
við unga fólkið og vilja telja þvi
trú um að hann sé mjög róttækt
blað og í alla staði óþarfi fyrir
hann að skeyta hót um vilja og
óskir utanríkisráðherra.
Það samrímist sízt óskum
utanríkisráðherra og ummæl-
um hans í útvarpræöu sinni
um ábyrgð blaðanna í varnar-
málunum að kalla hina is-
lenzku starfsmenn á Keflavík-
urflugvelli „LEIGUÞJÓNA
ERLENDRA VERKTAK.4‘ og
yfirstjórn varnarliðsins, sem
samstarf er nú hafið við í hinu
nýja formi: „LIÐSFORINGJA
KLÍKU, SEM EKKI BER
SKYN Á ÍSLENZKA HAGS-
MUNI EÐA LÁTA SIG ÞÁ
NOKKRU SKIPTA '.
Það væri þvi eðlilegt að spyrja
hina nýju aðila varnarmálanna,
hvort þessi skrif Tímans teljast
„sönn, réttlát og heiíavleg“, og
hvort þennan mælikvai ða eigi að
hafa á skrifum um varnarmáiin
í hinu nýja formi. Þessi skrif
Tímans falla a.m.k. tæpast undir
það, sem utánríkisráðherra nefn-
ir eðlilegt aðhald og aðfinnslur.
KapprelSar Lé!!!s
á Akureyri
AKUREYRI, 25. maí. — Hesta-
mannafélagið Léttir hér á Akur-
eyri, hélt kappreiðar á skeið-
velli félagsins s. 1. sunnudag.
Áður en kappreiðai nar hófust
fór fram sýning á góðhestum, úr
hópi þeirra hesta, sem þarna
komu fram. Verða síðar valdir
hestar sem sýndir verða á góð-
hestasýningu á landsmóti hesta-
mannafélaganna, sem fram fer 16,
—11. júlí n. k. á Þveráreyrum í
Eyjafirði.
Til leiks voru 26 hestar skráð-
ir og urðu helztu úrslit sem hér
segir:
250 m stökk, folahlaup: — L
Perla, 6 vetra, á 19.S
sek., eigandi Magnúa
Stefánsson, Árgerði, Eyjafirði. —
2. Blesi, 5 vetra, á 20,4 sek, eig-
andi Sigurður Víglundsson, Ak-
ureyri. 3. Glaður, 6 vetra, á 20.9
sek., eigandi Þorsteinn Guð-
mundsson, Akureyri.
300 m stökk: — 1. Stjarni, 7
vetra, 23 sek, eigandi Árni Magn-
ússon, Akureyri. 2. Skjóni, 12
vetra, 24 sek., eigandi Mikael Jó-
hannesson, Akureyri. 3. Litlajörð
19 vetra, 24.6 sek., eigandi Pétur
Steindórsson, Krossastöðum.
350 m stökk: — 1. Fluga, 11
vetra, 26.9 sek., eigandi Sigríður
Sigmarsdóttir, Akureyri. 2. Sokki
8 vetra, 26.9 sek„ eigandi Gestur
Jónsson, Akureyri. 3. Goði, 17
vetra, 28,1 sek., eigandi Þorsteinn
Sigurðsson.
Veðbanki starfaði af miklu
fjöri. Veður var ágætt og margir
áhorfendur. — Vignir.
Ný bifreiðaiidð
KEFLAVÍK, 28. maí. — Á rhorg-
un, laugardag, verður opnuð ný
bifreiðastöð í húsakynnum þeim,
sem áætlunarbifreiðar Keflavík-
ur höfðu áður aðsetur sitt. Hafa
húsakynni stöðvarinnar verið öll
endurbætt og gerð fullkomnari
og vistlegri.
Nafn hinnar nýju stöðvar er
Bifreiðastöð Keflavíkur h.f. og
verður símanúmer , stöðvarinnar
hicSi saipa :og áðúr. ** *
Á stöðinni eru 20 bifreiðlr og
vérðúr sérstök áherzla jlöjgð á
góða þjónustu og fyrirgreiðslu.
Stöðvarstjóri er Þórður Ás-
geirsson. — Ingvar.