Morgunblaðið - 23.06.1954, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐID
Miðvikudagur 23. júní 1954 ]
II Evrópulöndunum virðist trúur-
úhugi nú mestur í A-Þýzkulundi
Stulf samtal við dr. (arl E. Lund-Quist,
framkvstj. Lútherska heimssambandsins
MEOAL gesta við fciskupsvígsl-
yna var dr. Carl E. Lund-Quist,
framkvæmdastjóri Lútherska
heimssambandsins. Flutti hann
Islenzku kirkjunni hamingjuósk-
ir og kveðjur sambandsins í boði
J»ví, sem kirkjumálaráðherra hélt
5 tilefni af vígslunni.
Mbl. hitti dr. Lund-Quist að
máli I gær og leitaði tíðinda hjá
honum af starfsemi bessara sam-
taka. Komst hann bá m. a. að
orði á þessa leið:
Lútherska heimssambandið
nær nú til 52ja kirkjusambanda
í 28 löndum. Hefur það innan
vébanda sinna um 70 millj.
manna. Aðalstöðvar sambandsins
■eru I Genf í Sviss.
VINNUR AÐ LÍKNARMÁLUM
— Hvert er aðal verkefni sam-
bandsins?
— Það starfar fyrst og fremst
að líknarmálum og að eflingu
kristindómsins í heiminum. Það
hcfur þannig reynt að hjálpa
flóttamönnum eftir megni en í
Evrópu eru nú um 7 millj. flótta-
manna heimilislausir. Reynir
sambandið að hjálpa þessu fólki
til þess að eignast heimili. Einnig
hcfur það unnið mikið starf í
hinurri arabiska heimi við að út-
vega þangað fatnað og matvæli
til þeirra, sem fátækastir eru.
Þá hefur sambandið lagt
áherzlu á að styðja starfsemi
hinna yngri kirkjufélaga, t. d. í
Asíu. Hið stærsta þeirra er nú í
Indónesíu Þar hefur kristin trú
uunið sér mikinn jarðveg.
MESTUR TRÚARÁHUGI
í N.-AMERÍKU
— Virðist yður trúaráhugi
yfi rleitt fara vaxandi í þeim lönd-
um, sem þér þekkið til?
— Því er vandsvarað. Mér virð
ist trúaráhugi um þessar mundir
vera mestur I Norður-Ameríku.
Víða í Evrópu virðist prestastétt-
in ekki vera í nægilega nánum
tcngslum við fólkið Mestur trú-
málaáhugi í álfunni hygg ég að
sé um þessar mundir í Austur-
Þýzkalandi. Hinir miklu erfið-
lcikar fólksins þar hafa átt mik-
jnn þátt í að safna því um kirkj-
una.
— Hvað sýnist yður í fljótu
bragði um viðhorfin í þjssum
malum hér á landi?
— Ég hefi aðeins verið hér eina
viku svo ég get ekkert um þau
fullyrt. En mér þætti ekki ólík-
lcgt að ástandið í kirkjumálum
íslendinga væri svipað og á hin-
um Norðurlöndunum. Kirkju-
sókn er þar ekki mikil, nema í
Finnlandi, þar sem trúaráhugi er
sífellt mjög mikill. Vaxandi
áhuga fyrir trúmálum hefur þó
gactt á Norðurlöndum s.l. 3 ár.
ÁNÆGJULEG HEIMSÓKN
Ég vil að lokum segja það, seg-
ir dr. Lund-Quist, að mér hefur
þótt mjög ánægjulegt að koma
hingað til íslands. Sérstaklega
þykir mér athyglisvert, hve ís-
lendingar fylgjast vel með í al-
þjóðamálum.
Þannig fórust dr. Carl E. Lund-
Quist orð. Eins og kunnugt er er
hann framkvæmdastjóri heims-
sambands Lútherstrúarmanna,
sem ísland hefur um skeið verið
aðili að. Hann er af sænskum
aetí'um og talar sænska tungu. En
hann er fæddur í Kansas í Banda
rík.junum, en ættmenn hans
fJuttu þangað fyrir 150 árum.
Mcnntun sína hlaut hann hinsveg
ar í Minneapolis. Þar kynntist
hann mörgum íslendingum, m. a.
Gunnari Björnssyni ritstjóra og
fjölskyldu hans.
Dr. Lund-Quist er einkar elsku-
legur maður í allri framkomu
Yfir 4S00 messur fluttar
si ar
Dr. Carl E. Lund-Quist
og mjög svipmikill persónuleiki.
Hann fer héðan af landi brott í
dag.
S. Bj.
Innf I utningsskrif stof-
an sfefnir vikublaði
Frá forstjórum Innfiutnings-
skrifstofunnar
SNEMMA í vor hringdi ritstjóri
Mánudagsblaðsins til Innflutn-
ingsskrifstofunnar og bað um að
fá að birta auglýsingu í blaði
sínu frá skrifstofunni. Þessu var
synjað, enda gilda fastar reglur
um birtingu á auglýsingum stofn-
unarinnar.
Þessum málalokum undi rit*
stjórinn þannig, að síðan hefir
Mánudagsblaðið varla komið út
án þess að í því væri að finna
róg og níð um forstöðumenn eða
starfsfólk skrifstofunnar. Ekki
hefir verið hirt um að svara þessu
enda álit blaðsins ekki þannig, að
tilefni þætti til.
í Mánudagsblaðinu, sem kom
út s.l. mánudag er þessari iðju
haldið áfram og er nú m.a. rætt
um úthlutun bílaleyfa. Er öll
greinin óvenjulega rætin og ill-
kvitnisleg og það svo, að ekki
verður við unað. Við undirritaðir
höfum því gert ráðstafanir til að
ritstjórinn fái tækifæri til að
standa fyrir máli sínu fyrir dóm-
stólunum.
Kirkjan og líknarmálin aðalmál Presfasiefnunnar
PRESTASTEFNA íslands fyrir árið 1954 var sett í Háskólanuoa
í fyrradag kl. 4 e. h. að aflokinni prestvígslu í Dómkirkjunnl,
Biskup flutti þar skýrslu um hag kirkjunnar á liðnu synodusári.
í upphafi minntist hann hins látna biskups, dr. theol. Sigurgeiíf
Sigursðsonar, og starfa hans í þágu íslenzku kirkjunnar.
Alls hafa fimm prestar látizt
á synodusárinu og fjórir prestar
hafa fengið lausn frá störfum.
Fjórar prestsekkjur hafa látizt.
En sjö prestar hafa tekið vígslu.
Magnús M. Lárusson var skipað-
ur prófessor við guðfræðideild
Háskólans og séra Guðmundur
Sveinsson var settur dósent í stað
hins nýja biskups.
ELLEFU ÓVEITT
PRESTAKÖLL
Nú eru óveitt 11 prestaköil.
Meginorsök þess eru hin lélega
húsakynni þeirra prestsetra, en
ekki skortur á kandidötum.
Tvær kirkjur voru vígðar og ein
endurvígð. Nokkrar kirkjur eru
jafnframt í smíðum. Alls eru nú
175 kirkjukórar starfandi á land-
inu, þ. a. voru 9 stofnaðir á ár-
inu. Söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar er sem fyrr Sigurður
Birkis.
KIRKJURÁÐ
Síðasta Alþingi samþykkti ým-
is lög, er kirkjuna varða. Helzt
er að nefna lögin um kirkjubygg-
ingasjóð, sem munu vafalaust
verða mikil lyftistöng fyrir
kirkjubyggingar í landinu.
| Tveir fulltrúár kjörnir al
. héraðsfundum tóku sæti í kirkju-
ráði, þeir Gísli Sveinsson, fyrv.
: sendiherra og Gizur Bergsveins*
1 son, hæstaréttardómari. Fulltrúaí
1 presta eru þeir sr. Þorgrímur
Sigurðsson, Staðarstað, og sr.
Jón Þorvarðarson, Reykjavík. —»
Biskup er sjálfkjörinn formaðuX!
ráðsins.
Barnakór Akureyrar við brottförina frá Reykjavík.
Bamakór Ákureyrar fekið
forkunnar vel í Horegi
t NORSKA blaðinu „Möre Dag-
1 dagblad" hirtist grein mið-
vikudaginn 16 júní með svohljóð
andi fyrirsögn:
„Hinni íslen7ku barnasendi-
sveit tekið með miklum fögnuði
í Álasundi. Troðfullur salur í
Alþýðuhúsinu þar.
í greininni segir m. a. Að
barnakór Akurevrar sé kominn
í mánaðarheimsókn til Noregs og
hafi haldið skínandi söngskemmt-
un í gær. Flestir söngfróðir menn
borgarinnar voru þar viðstadd-
ir en hvert sæti var skipað í
salnum og margir urðu að standa
alla leið upp að svióinu.
BÖRNUNUM ÁKAFT
FAGNAÐ
Tvær stúlkur gengu á undan
þátttakendum barnakórsins í ís-
lenzkum búningum, með íslenzk-
an og norskan fána. Jafnskjótt
og þessi 30 börn gengu fylktu
liði inn í salinn var þeim svo
vel tekið þegar í upphafi, að
augsýnilegt var, að hið rétta sam-
band var fengið á milli kórs og
áheyrenda.
Áður en söngurinn hófst færði
formaður karlakórs borgarinnar
söngstjóra barnanna blómvönd
en íslenzku börnin eru á vegum
félagsmanna. Hljómlistargagnrýn
andi blaðsins segir m. a. um
sönginn:
SUNGU SIG INN í
HJÖRTU ÁHEYRENDA
Hann byrjaði með þjóðsöng
Noregs er hljómaði fallega Og
sérkennilega frá þessum 29 ungu
söngvurum. Allar voru barns-
raddir þessar fagrar hvort sem
sungið var á íslenzku eða norsku.
Söngur kórsins var bjartur Og
hreinn og hinir ungu einsöngvar-
ar sungu sig inn í hjörtu áheyr-
endanna.
í hléinu færði P. Schjel Jokob-
sen blóm frá börnum í Molde, er
höfðu fengið tækifæri til að
hlýða á íslenzka kórinn fyrr um
daginn.
Það hlýtur að hafa verið mik-
ið verk, að fá börnin svo sam-
æfð í söngnum, svo þau gætu
komið fram með svo gallalausan
samsöng sem raun varð á. í síð-
asta þætti var sérstaklega eftir-
tektarverður einn þátturinn „111-
ur lækur“, þar sem frumtext-
inn er þýddur á norsku er hljóm-
aði létt og hreint og síðan kom
„Seterjentens Söndag“ eftir Ole
Bull, þar sem einsöngvari var
ungur piltur Arngrímur B. Jó-
hannsson er hreif áheyrendur svo,
að hann varð að endurtaka söng
sinn.
(Ljósm. G. R. Ó.)
MARGAR BLÓMAGJAFIR
Eftir margar blómagjafir þakk-
aði hinn íslenzki söngstjóri fyrir
hinar glæsilegu móttökur í Ala-
sundi. Síðan þakkaði formaður
bæjarstjórnar, Paulus Gjörts,
fyrir hönd Álasundsborgar vin-
áttubænum Akureyri fyrir að
hann skyldi hafa sent börnin
þangað og óskaði þeim góðs
gengis í Noregsferðinni.
Að lokum tók sendiherra Nor-
egs á íslandi T. Andersen Rysst
til máls og skyrði frá hver til-
drögin voru til þessarrar ferðar.
En þau voru, að hinn fram-
kvæmdasami formaður sýningar-
nefndarinnar Álasunds, GeOrg
Garshol, hafði fengið tækifæri
til að hlusta á börnin í söng-
tíma á Akureyri. Hann tók það
sérstaklega fram að börnin væru
beztu sendisveitirnar að senda
landa á milli til þess að friður
og eindrægni haldist í heimin-
um. Söngskemmtun íslenzku
barnanna var viðburður er allir
viðstaddir minnast lengi, segir í
greininni að lokum.
MESSUR A ARINU
Messur á árinu voru alls 4502.
Er það 121 fleira en árið áður.
Útvarpsmessur voru 75 og önn-
uðust þær 19 prestar. Altaris-
gestir á landinu voru alls 6858.
Er það 141 fleira en í fyrra.
Að lokinni skýrslu biskups
voru lagðir fram reikningaf
Prestsekknasjóðs og kosin alls-
herjarnefnd. Um kvöldið va®
flutt synóduserindi úr útvarps-
sal. Dr. Richard Beck, prófessof,
talaði um trúrækni og þjóðræknl
í sögu og lífi Vestur-íslendinga.
KVEÐJUR ERLENDRA j
I gær hófust fundir með morg-
unbænum kl. 9.30. Þær annaðist
sr. Magnús Guðmundsson, Ólafs-
vík. Kl. 10 fluttu erlendir gestir,
kveðjur. Þeir eru dr. Carl Lund-
Quist, framkvæmdastjóri al-
heimssambands lútherskrai
kirkna. Flutti hann kveðjur sam-
bandsins. Vestur íslendingarnit?
dr. Haraldur Sigmar og dr. Ric-
hard Beck fluttu kveðjur fr§
Þjóðræknisfélaginu og íslenzkll
kirkjunni í Vesturheimi.
1
KIRKJAN OG 1
LÍKNARMÁLIN ’
Að kveðjunum loknum hófusf
umræður um aðalmál presta-
stefnunnar: Kirkjuna og líknar-
málin. Framsögumenn voru: Sr.
Jakob Jónsson, talaði um slysa-
varnir, sr. Þorsteinn L. Jónssort
um starf fyrir sjúka, sr. Gunnar
Árnason um starf fyrir drykkju-
menn og sr. Einar Sturlaugsson
um kristniboð. Miklar umræðuí
urðu og tóku margir til máls.
Sr. Ingólfur Ástmarsson flutti
skýrslu barnaheimilisnefndar.
Stóðu fundir til klukkan rúmlega
7 um kvöldið. Um kvöldið fluttl
sr. Sigurður Stefánsson erindl
um sr. Jón Þorláksson frá Bæg-
isá. t
Síðdegis hafði biskupsfrúin boíl
inni fyrir eiginkonur presta, sem,
staddar eru í bænum. t
í dag halda fundir áfram, ei|
prestastefnunni lýkur í kvöld. i
YFIR 10 unglingar í Gautaborg
slösuðust fyrir nokkru er þeir
voru að leika sér með gúmíblöðr-
ur fylltar af gasi í sambandi við
hátíðahöld er haldin voru er ungl
ingar þessir tóku gagnfræðapróf,
en slíkt er siður í Svíþjóð. Slysið
varð'er einn unglinganna var að
stíga upp í bifreið, en sprengdi
um leið gasblöðruna og eldur
hljóp í gasið. Margir brenndust
illa á höndum og andliti og varð
að flytja nokkra á sjúkrahús.
9 þús. picnlur gróð-
nrseffar hjá Skóg- J
ræktrafél Kafnarfj. \
HAFNARFIRÐI — Nýlokið eí!
við að gróðursetja um 9000 plönt-
ur á vegum Skógræktarfélagð
Hafnarfjarðar. Gróðursetning-
in öll hefir algerlega verið untl-
in í sjálfboðaliðsvinnu, og hefitS
verið plantað í girðingar félags-
ins í Gráhelluhrauni og Lækjar-
botnum. — Gróðursett var birkf*
greni, lerki, fura og rauðgrenL ,
Gróðrinum hefir farið mjög vel
fram á svæði því, sem félagið
hefir til afnota, en það er nær
fullsett. Þarf nú að vinda bráðan
bug að því sem allra fyxst, að
félagið fái meira landrými, svgi
að það geti haldið áfram á sömti
braut — að græða landið.
Öllum þeim, sem hjálpuðu viQ
gróðursetninguna, kann skóg-
ræktarfélagið sínar beztu þakk-
ir. — G. E. J