Morgunblaðið - 23.06.1954, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.06.1954, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 23. júní 1954 MORGVNBLAÐIÐ § ! Það er gaman að kynnasf íslandi og íslenzkri prestastétt Rætt við dr. Harafld Sigmar prest í Bflaine og konu hans Dr. Haraldur Sigmar og kona hans Margrét. Sextugur í dag: Árni Viihjálmsson, héraðslæknir WSR hefur dvalizt undanfar- ið einn af íslenzku prest- unum, sem þjóna í Yestur- heimi, ásamt kona sinni. Er það dr. Haraldur Sigmar prest ur íslenzka safnaðaríns í Blaine í Washingtonfylki í Bandaríkjunum. Dr. Sigmar er faeddur vestanhafs og hefur aldrei áður til íslands komið, en þrátt fyrir það talar hann prýðisfagra íslenzku og gæti aiveg eins vcrið prestur norð- an úr landi í stuttri heimsókn í höfuðstaðnum. * FULLTRÚI AÐ VESTAN Hingað koma Sigmarshjónin frá Noregi, þar sem þau voru í faeimsókn hjá ættingjum Mar- grétar Sigmar, sem er norsk í aðra ættina. Var dr. Sigmar full- trúi við biskupsvígsluna sem fram fór á sunnudaginn og er faann sendur af lúterskum söfn- uðum vestanhafs. Haraldur Sigmar er sonur Sig- xnars Sigurjónssonar, sem bjó á Einarsstöðum í Reykjadal. Hann fluttist vestur um haf 1883 með konu sína Guðrúnu Kristjánsdótt ir frá Hólum í S.-Þing. og fjögur feörn þeirra hjóna. Fimmta barnið var Haraldur og það fyrsta, sem fyrir vestan fæddist. Bjó Sigmar í Glenborogh í Manitoba. Dr. Sigmar menntaðist fyrst í Winnepeg en lagði síðan stund á guðfræði við háskólann í Chicago og lauk þaðan prófi ár- sð 1911. Hann vígðist til Winyards- prestakalls í Sask. í Kanada og þjónaði þar íslenzkum söfnuði um skeið. Árið 1926 fluttist hann í annað brauð, að Mountain í Norður Dakota 1 Bandaríkjunum og gerðist skömmu seinna banda- rískur ríkisborgari. Þar er mikil íslendingabyggð og þjónaði dr. Sigmar 7 söfnuðum. 1945 fluttist faann til hafnarbæjarins Van- couver og þjónaði þar til 1951, að hann fluttist í kall sitt í Blaine þar sem hann starfar enn. Á toáðum þessum stöðum er all- mikil íslendingabyggð og eru um 500 íslendingar þar búsettir. og ritari séra Haraldur S. Sigmar. Hingað er dr. Sigmar kominn sem fulltrúi forseta Sameinaðu lútersku kirkjunnar í Bandaríkj- unum (U.L.C.A.), en til hennar teljast allir lúterstrúarmenn þar lendir og eru þeir um 2 millj. talsins. Jafnframt er hann og fulltrúi kirkjufélags íslendinga sem áður var getið. Fiutti hann kveðjur að vestan í veizlu, sem kirkjumálaráðherra efndi til í sambandi við biskups- vígsluna og flutti einnig erindi á prestastefnunni, sem fram fer í Háskóla íslands. Um 40—50 íslenzkir söfnuðir eru nú starfandi í íslendinga- byggðunum vestanhafs. Þjóna þeim 12 íslenzkir prestar og hafa þrír bæzt í hópinn nýlega, þeir sr. Eiríkur Brynjólfsson, sr. Robert Jack og sr. Bragi Frið- riksson. ★ MÁLIÐ GLEYMIST að vera að koma heim til gamla landsins. ★ í KIRKJU FORFEÐR 4NNA Þau hjónin dvöldust viku norð- ur í landi, helzt á ættarbóli dr. Sigmars að Einarsstöðum í Reykjadal. Þar nutu þau gest- risni Jóns bónda Haraldssonar, en hann og dr. Sigmar eru bræðra synir. Dr. Sigmar messaði í kirkjunni á Einarsstöðum sunnudaginn 13. júní, en sóknarpresturinn sr. Sig- urður Guðmundsson á Grenjaðar stað þjónaði fyrir altari. — Það var ógleymanleg stund sagði dr. Sigmar, en afi hans og langafi býggðu kirkjuna á Einarsstöðum. Þau hjónin báðu blaðið að flytja öllum þeim, sem þau hafa kynnst og hitt á ferðalagi sínu alúðarkveðjur, einkum aldavin- um þeirra dr. Ásmundi Guð- mundssyni biskup og Árna G. Eylands skrifstofustjóra. g-gs. ÞAÐ hefur löngum þótt við brenna, að vandkvæði væru á því að fá lækna í erfið og af- skekkt héruð, og þó enn frekar, að þeir yrðu þar skamma stund, enda er venjulega svo hagað, að læknar, sem slíkum héruðum j þjóna, sitji fyrir öðrum betri | eftir fárra ára þjónustu. Það vek- ur því nærri furðu, að á þessum rótlausu tímum skuli einn af allrabeztu héraðslæknum lands- ins hafa þjónað sama héraðinu í 30 ár og staðið af sér strauminn, þar sem vitað er, að honum hefðu oft staðið til boða stór og góð héruð í bæjum og kauptúnum nálægt höfuðstaðnum, ef hann hefði á minnsta hátt borið sig eftir þeim. En einmitt þetta lýsir manninum, sem er Árni Vil- hjálmsson héraðslæknir Vopn- firðinga og nú í dag sextugur að aldri. Árni er Norður-Þingeyingur að ætt og uppruna, af góðum bænda- ættum. Snemma bar á gáfum hans og heilsteyptum hug, og var hann því til mennta settur. Laute hann stúdentsprófi 1914 og kandídatsprófi 5 árum síðar. Árni stundaði framhaldsnám á spítöl- um í Noregi og naut mesta álits- Norðmanna fyrir lærdóm off dugnað. Þjónaði hann ýmsum héruðum um skeið, en var veitfr Vopnaf jarðarhérað 1924, og hefiXr hann gert þar garðinn frægan síð- an. Svo sem eðlilegt er, hefur Árni læknir verið forustumaður sveit- ar sinnar í mörgum efnum og margir leitað hollráða hans ♦ vanda sínum. Kunnum við ó- glöggt frá því að herma. Hitt vitum við frá fornu fari og nán • um kynnum, að maðurinn Árni Vilhjálmsson er hreinn og beinn, óraupsamur, vitur, ráðhollur og: góðviljaður og í öllu svo góður sonur fósturjarðarinnar sem frekast má verða. Árni Vilhjálmsson hefur verid gæfumaður í lífinu, en sú er þ6' gæfa hans mest, að hann á aF- burða konu, Aagot, dóttur Rolfs* Johansens kaupmanns frá Reyð- arfirði. Þau hafa eignazt 11 börn, og eru flest komin til mikils þroska. Hefur þeim hlotnazt mik- ið barnalán. Meðal barna þeirra er Snorri lögfræði/.gur á Sel- fossi, Kjartan héraðslæknir i Hornafirði og Sigrún húsfreyja í Reykjavik, sem mikla athygli hefur vakið fyrir frábær náms- afrek. Árni læknir hefur ekki gert; tíðförult til Reykjavíkur um dag- ana, og vildu vinir hans hér gjarnan mega hitta hann oftar. En þótt langt sé milli funda, fyrnast ekki fornu kynnin, og þvi' senda gamlir vinir og félagar # dag einlægar árnaðaróskir til læknishjónanna á Vopnafirði, Ó + P. 35 stúdentar frá Mennta- skólanum á Akureyri J + ÍSLENZKAR MESSUR Kona dr. Sigmars er frú Mar- grét Sigmar. Hún er dóttir séra Níels Steingríms Þorlákssonar, cr prestur var um langt skeið vestanhafs. Hann var frá Stóru Tjörnum í Ljósavatnsskarði í S- Þing. og lagði hann stund á guð- fræði við háskólann í Osló. Kvæntist hann norskri konu Eriku Rynning og staðfestust þau i Kanada. Dr. Sigmar þjónar allmörgum söfnuðum í Blaine, sem er um 2000 manna bær, og byggðunum 'umhverfis. Er hann eini lúterski presturinn í bænum og er því fólk af ýmsu þjóðerni sóknarbörn faans. Messur fara því flestar fram á ensku. Aftur á móti mess- ar hann jafnan á íslenzku á elli- heimili íslendinga £ bænum, er nefnist StafhoIL Eru þar um 50 vistmenn, gamlir íslendingar, Sem allir kunna málið, tala það >og lesa. Heimilið er stofnað af íslendingum og rekið af þeim. Þau hjónin eiga fjögur börn: Erik, prest íslenzka safnaðarins í Seattle, Harald, prest íslenzka safnaðarins á Gimli, George, sem búsettur er í Seattle og Margrétu, sem gift er Elvin Kristjánssyni í Seattle. if 12 PRESTAR Dr. Sigmar hefur gegnt marg- víslegum störfum I þágu kirkju <og menningarstarfs íslendinga Vestanhafs og var m. a. forseti hins evangeliska lúterska kirkju- félags íslendinga i Vesturheimi i fjögur ár, frá 1943—1947. Forseti þess nú er séra Valðensar Eylands íslendingum þeim, sem vestan- hafs búa er það mikið í mun, að prestar þeirra mæli á íslenzka tungu og standa þeir einnig fyrir margskonar félagslífi og menn- ingarstarfi í samráði við söfnuði sína. Vinna þeir merkt þjóðrækn- isstarf og hjálpa til að halda við tengslunum við fornt mál og menningu. Þó er íslenzkan á undanhaldi, segir dr. Sigmar, enda sækir enskan á úr öllum áttum. Við sem erum af fyrsta ættliðnum, sem ólst upp vestan- hafs kunnum málið, börn okkar mörg hver einnig, en þriðji ætt- liðurinn virðist því miður ætla að vaxa úr grasi með enskukunnáttu eina. Þetta er einnig þróunarsagan hjá hinum skandinavisku þjóða- brotunum vestra. Norðmenn og Svíar tala nú svo að segja ein- göngu ensku og örsjaldan messa prestar þeirra á móðurmálinu. En við höfum geymt málið lengur. Sonur okkar sr. Erik messar t. d. annan hvern sunnu- dag á íslenzku og í Winnepeg fer fram íslenzk messa á hverjum sunnudegi. — Ég dáist að því hvað þið hafið getað áorkað miklu hér heima á örskömmum tíma, segir dr. Sigmar. Landið er byggt upp og verkfræðileg þrekvirki hafa verið framkvæmd, sem engum myndi hafa dottið í hug að 150 þús. manna þjóð megnaði. Þegar maður horfir á Háskólahverfið eða virðir fyrir sér vegakerfi hins víðienda lands fellur maður í stafi af undrun. Mér finnst land- ið fagurt, fjallasýn einstök og litirnir dásamlegir. Þannig á það Hreppsneíndar- kosningar í Vik VÍK í Mýrdal, 18. júní: — Hinn 27. júní næstkomandi fara fram hreppsnefndarkosningar hér í Hvammshrepp. — Lagðir hafa verið fram tveir listar, Ð-listi Sjálfstæðismanna og G-listi, listi verkamanna og bænda, sem Fram sóknarmenn og jafnaðarmenn standa að. — Listi Sjálfstæðis- manna er skipaður þessum mönn- um: Jón Þorsteinsson hreppstjóri, Norður-Vík, Páll Tómasson verkamaður, Vík, Gisli Skaftason bóndi, Lækjarbakka, Kjartan L. Markússon bóndi, Suður-Hvammi Ólafur Þórarinsson stöðvarstjóri, Vík, Einar Kjartansson bóndi, Þórisholti, Jón Valmundsson, tré smiður, Vík, Daníel Guðbrands- son bóndi, Kerlingardal, Valdi- mar Tómasson bílstjóri Vík og Páll Pálsson bóndi, Litlu-Heiði. — Fimm efstu menn á G-listan- um eru: Oddur Sigurbergsson kaupfélagsstjóri, Vík, Guðmund- ur Guðmundsson skósmiður. Vík, Guðlaugur Jónsson pakkhúsmað- ur Vik, Jón Sveinsson bóndi Reyni og Einar Bárðarson verka- maður i Vík. Til sýslunefndarkosninga hafa einnig verið lagðir fram tveir listar frá sömu aðilum. Á lista Sjálfstæðismanna eru: Jón Þor- steinsson hreppstjóri Norður-Vík og Ragnar Jónsson verzlunarstj. í Vík. — Á G-Iistanum eru: Ósk- ar Jónsson bókari Vík og Sveinn Einarsson bóndi, Reyni. 17. JÚNÍ var Menntaskólanum á' Akureyri slitið og hófst athöfn- in á hátíðasal skólans kl. 11.30 f. h. Skólameistari, Þórarinn Björnsson, bauð gesti velkomna og síðan var sunginn skólasöngur inn, Undir skólans menntamerki. Skólameistari skýrði frá því, að skólinn hefði. nú, frá því hann var stofnaður á Möruvöllum, verið haldinn í 74 ár, en skóla- húsið er nú fimmtugt. Er það, sem kunnugt er, hin glæsileg- asta bygging og ber vott um bjartsýni og stórhug aldamót- anna. í skólanum voru í vetur 247 nemendur í 11 bekkjardeildum, þar af 82 stúlkur. 131 voru í heimavist, og þurfti engura að synja þar vistar, er um sótti. Enn bætast þar við í haust um 30 rúm. 32 nemendur gengu undir landspróf, og hlaut þar hæsta einkunn Haraldur Sveinbjarnar- son úr Strandasýslu, 8.94. í vetur var að frumkvæði nemenda og með fjárframlögum þeirra og hins opinbera verulega aukið við bókasafn skólans og ennfremur tekin upp bókmenntakynning. Nú er hætt að gefa einkunnir eftir stiga 0rsteds, en tugastiginn nýi tekinn upp. Er skólameistari hafði gefið skýrslu um starfsemi skólans s.l. vetur, afhenti hann nýstúdentum skírteini sín, en þeir eru 35 að þessu sinni. Hæstu einkunnir hlutu í máladeild Haukur Böð- varsson 9.18, Þröstur Laxdal 8.81 og Edda Kristjánsdóttir 8.57, en í stærðfræðideild Sveinn Jónsson 9.54, Helgi Sigvaldason 9.04 og Guðmundur Ó. Guðmundssont 8.68. Er námsafrek Sveins Jónt- sonar sérlega glæsilegt. Verðlaun fyrir góða dönskukunnáttu hlutu Kristín Pétursdóttir og Sveinn Jónsson, fyrir afrek í stærðfræði- Helgi Sigvaldason, Ingvar Nielk- son og Sveinn Jónsson, og úr' minningarsj óði Þorsteins J. Hall- dórssonar fyrir ágæti í námi cgf íþróttum Haukur Böðvarssoh. Af hálfu 10 ára stúdenta kvaddt1 sér hljóð Páll S. Árdal og flutti skólanum heillaóskir og málverk- af Vernharði Þorsteinssyni, sem- 29 ár kenndi við skólann, en er nú hættur kennslustarfi. En 25' ára stúdentar, 7 að tölu, gróðui'- settu á lóð skólans 7 tré. Skólameistari flutti að lokum hinum nýju stúdentum ræðu og mælti meðal annars á þessa leið: „Fram að þessu hefur skyldan- verið ykkur skömmtuð og fyrii* sett, og það er mikill ábyrgðar- léttir. Þá fyrst reynir á þroska mannsins og siðferðilegan styrk', er hann á að ákveða verkefni sitt og skyldu sjálfur, en að því rek- ur fyrr eða síðar fyrir flestum, að minnsta kosti þeim, sem taka- að sér ábyrgðarstarf. Þó fer þVÍ ihiður svo um suma, að þeir finna ekki nóg til þungans, sem á þeim hvílir. Þá skortir ábyrgðarskyn. Þeir verða léttúðarmenn, ekki mikils metnir. Fyrir öðrum kann svo að fara, að þeir finni of mik- ið til þungans, svo að þeir kikni undir honum. Það er heldur ekkx gott. Hvort tveggja þarf, ef vel á að vera, ábyrgðarskynið, þ. e. a. s. alvöruna, og manndómurinn til að að rísa undir henni. Finnið' til skyldunnar, og takið henni eins og menn.“ Framh. á bla. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.