Morgunblaðið - 13.07.1954, Blaðsíða 1
16 síður
41. árgangur.
156. tbt. — Þriðjudagur 13. júlí 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Framkvæmdasljóri A-banda-
lapiiis í heimsókn hér
ÍMNN mikilhæfasti stjórnmálamaður Evrópu, Ismay lávarður
■i framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er staddur hér á
landi um þessar mundir. Kom hann hingað til Reykjavíkur með
einkaflugvél sinni síðla dags á sunnudag.
XVEGGJA DAGA VIÐDVOL
Fyrir hádegi í gær gekk Iismay
lávarður á fund forsætisráðherra
Óiafs Thors og dr. Kristins Guð-
mUndssonar utanríkisráðherra.
Þá snæddi hann hádegisverð hjá
forseta íslands að Bessastöðum
og síðdegis fór hann suður til
Keflavíkurflugvallar til viðræðna
við yfirmenn varnarliðs Atlants-
hafsbandalagsins þar. í dag mun
hann m. a. fara til Þingvalla, en
hann fer héðan árla dags á morg-
un.
HEIMSKUNNUF MAÐUR
Ismay lávarður hefur gegnt
störfum sem framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins í um
það bil tvö ár. Hann var áður
bfezkur hershöfðingi og náinn
samstarfsmaður Winston Churc-
hills forsætisráðherra í síðustu
styrjöld. Honum er mjög þakkað
hve ágætt samstarf hefur tekizt
milli hinna mörgu og ólíku þjóða,
sem standa að Atlantshafsbanda-
laginu. Undanfarið hefur hann
verið í heimsókn í höfuðborgum
nokkurra Atlantshafsríkja, nú
síðast í Lundúnum.
Ekki fímabæri enn,
segir Churchill
LUNDÚNUM, 12. júlí — Churc-
hill sagði í brezka þinginu í dag
að hann teldi ekki tímabært að
ræða að svo stöddu inntöku Kína
í samtök S Þ. í bandaríska þing-
inu fögnuðu menn þessum um-
mælum því að þar óttuðust menn
að afstaða Bandaríkjanna til
málsins myndi verða þröskuldur
í samvinnu þjóðanna á sviði al-
þjóðamála. —Reuter-NTB.
RæHa nm
Suesskurðinn
KAIRO, 12. júlí — Bretar og
Egyptar hafa hafið samningaum-
ræður í því skyni að freista þess
að leysa deiluna um Suezskurð-
inn. Bretar hafa lagt fram ákveðn
ar tillögur um lausn málsins og
sagði egypzkur talsmaður í dag
að tillögurnar væru mjög sann-
gjarnar. Er þar m. a. kveðið á
um brottflutning 80 þús. brezkra
hermanna á næstu tveimur árum.
—Reuter-NTB.
Skjóta má á
þjófana
VÍNARBORG, 12. júlí — Vatns-
flóðin í suðurhluta Evrópu auk-
ast enn og vandræðin vaxa. Þús-
undir manna hafa misst heimili
sín og eiga hvergi höfði sínu að að
halla. Óaldarmenn vaða uppi og
fara ránshendi um hin yfirgefnu
hús. í dag fékk lögreglan í Linz
skipun um að skjóta á þá sem í
hinum yfirgefnu húsum fyndust.
Hefur svo rammt kveðið að þjófn
aði og eyðileggingu.
—Reuter-NTB.
Dulles fer
til Parísar
WASHINGTON, 12. júlí. —
Foster Dulles tilkynnti í
kvöld að hann myndi fljúga
til Parísar í fyrramálið og
ræða við Mendes-France og
Eden um Indo-Kína málin.
Þegar eftir að þessi tilkynn-
ing var birt tilkynnti Mendes-
France í Genf að hann hefði
boðið Dulles og Eden á sinn
fund. Og fyrr um daginn hafði
Eden stungið upp á því á
Genfarráðstefnunni að aðal-
fulltrúar stórveldanna reyndu
nú leiðir til samkomulags á
leynifundum. Allt þykir þetta
benda til að stórir viðburðir
séu í nánd hvað viðvíkur Asíu
málum — einkum Indo-Kína.
í s.l. viku tilkynnti Dulles
blaðamönnum að hann myndi
ekki fara aftur til Genfar. En
nú hefur sem sagt brugðið tii
hins betra. Þessaari frétt var
tekið með miklum fögnuði í
fundarsölum Genfarráðstefn-
unnar í dag. — Einnig er
ákveðið að Chou En Lai og
Mendes-France ræði saman
fyrri hluta þriðjudags,
— Reuter-NTB.
Flóftamenn
NEW YORK 9. júlí. — Banda-
ríkin hafa þegar veitt 5.600 flótta
mönnum vegabréf inn í landið
samkvæmt lögum um flótta-
menn, sem þar voru samþykkt
1953. í undirbúningi er að veita
28 þúsund öðrum flóttamönnum
vegabréf.
Ismay lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins er kominn hingað til lands í tveggja
daga heimsókn. Myndin sýnir er þeir forsætisráðherra Ólafur Thors (t. v.) og dr. Kristinn Guð-
mundsson utanríkisráðherra (t. h.) tóku á móti honum. — Ljósm.: P. Thomsen.
Flestir beztu gæðingar lundsins n
londsmóti hestamanna í Eyjafirði
Hreiran frá Hólum hreppti
enn Sleipnisbikarinn
Akureyri, 12. júlí.
FORMAÐUR Landssambands hestamannafélaganna, Steinþór
Gestsson frá Hæli, sagði svo í ávarpi er hann flutti, er annað
landsmót hestamanna var sett á Þveráreyrum hér í Eyjafirði um
helgina: íslenzki hesturinn og hestamennskan er vissulega sérstæður
þáttur í ísl. þjóðlífi, þáttur sem ekki má bresta. Slitni hann er far-
inn forgörðum glæsilegasta og margslungnasta íþróttin sem ísl.
þjóðin hefur iðkað á svo sérstæðan og heillandi hátt. — Þáttur
sem er mjög mikilvægur í haldreipi ísl. þjóðernis. — Landssam-
band hestamannafélaganna snýr sér því til þjóðarinnar, og þá til
ísl. æsku fyrst og fremst og skorar á hana að staldra við hér á
sýningunni og íhuga hvers er í misst ef hún vanrækir hestinn og
hestamennskuna.
Þetta var annað landsmót
Landssambands hestamannafélag
anna. Var það sett með hátíð-
legri athöfn síðastliðinn laugar-
dag kl. 10 árd. Að loknu ávarpi
Steinþórs á Hæli, flutti Stein-
grímur Steinþórsson, landbúnað-
arráðherra, ræðu. Þá hófust sýn-
ingar á kynbótahryssum, stóð-
hestum og góðhestum í dómhring.
Dómnnefnd lýsti dómum þeim er
hrossin höfðu fengið. Um kvöld-
ið voru kappreiðar og keppt í
undanrásum á stökki og skeiði.
A sunnudaginn voru hrossasýn-
ingarnar endurteknar og voru þá
verðlaun afhent.
HROSSASÝNINGIN OG
STÓLPAGRIPIRNIR
Af tömdum reiðhryssum hlaut
fyrstu verðlaun Ljónslöpp, grá
hryssa, 15 vetra, eign Björns
Jónssonar hér á Akureyri. — Af
stóðhestum hlaut 1. verðlaun og
um leið hinn veglega Sleipnis-
bikar, Hreinn, sem er jarpur
hestur, 14 vetra, eign Hrossakyn-
bótabúsins að Hólum, sá hinn
sami og hlaut þennan veglega
verðlaunagrip á Þingvöllum 1950.
Af góðhestum hlaut 1. verðlaun
Stjarni, rauður, 9 v., eign Boga
Eggertssonar í Reykjavík. Fleiri
hestar hlutu og verðlaun, því að
alls voru 83 hryssur sýndar, 30
stóðhestar og 28 góðhestar. Voru
þetta allt úrvalsgripir, bæði hvað
fegurð snertir og góðhestahæfi-
leika, enda munu þarna hafa
verið samankomin flest hin beztu
hross á landinu.
ENGIN VERÐLAUN
FYRIR SKEIÐ
Síðasta atriði mótsins voru
kappreiðar. Var keppt á skeiði og
bar þar sigur úr býtum Þytur,
jarpur, 14 vetra, eign Björns
Þórðarsonar í Reykjavík. — Var
þetta eini hesturinn, sem lá á
skeiðinu í úrslitunum. Hinir
hlupu allir upp. Tíminn var frem
ur lélegur, 28,4 sek. á 250 m sk'eið
braut, en hestarnir verða að
renna skeiðið á minnst 27 sek.
til að hljóta verðlaun. Hlaut því
enginn skeiðhestanna verðlaun á
þessu móti.
STÖKKHESTARNIR
í 350 m stökki sigraði Gnýfari
Framh. á bls. 2
Þóra Þorgeirsdóttir á Gnýfara.
ííiSBte
r *
— Ljósm.: V. Guðm. 1 Frá keppnissvæðinu.
— Ljósm.: H. Teitsson.