Morgunblaðið - 15.07.1954, Side 2

Morgunblaðið - 15.07.1954, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 15. júlí 1954 ] | Alftin á Tjörninni verpti , einu eggi og unginn dó SenniSeða hefur eggið kólnað er stöðug! var verið að styggja álftina í T GÆKDAG upplýstist það, 1 i að unginn í því eina eggi, ] sem álftahjónin á Syðri- Tjörninni áttu, mun aldrei ‘ sjá dagsins Ijós. — Skömmu • eftir að hann var kominn í egigið hefur hann drepizt. Einar B. Pálsson, yfirverk- fræðingur Reykjavíkurbæjar, sem á sínum tíma lét gera varnargirðingu kringum álfta- hjónin, eftir að gert hafði ver- ið hreiður fyrir þau í sefi Syðri-Tjarnarinnar, sþýrði ; tíðindamanna Mbl. frá þessu í gær. — Undanfarna daga hefur Mbl. borizt fjölmargar fyrirspurnir um hvenær álfta- hjónin myndu sýna sig með ungana sína. í GÆRDAG Það er nú komin vika fram yfir venjule.gan útungunar- tíma. I gær lét Einar Pálsson ’ taka eggið úr hreiðrinu, enda var álftin farin að missa þolin- mæðina og farin að liggja ' laust á. — Rannsókn á egginu leiddi í Ijós, að unginn í því hefur drepizt snemma á út- ungunartímanum. Þegar eftir að gert hafði verið hreiður fyrir álftahjónin, verpti álftin þar. — En hvað eftir annað var hún hrakin af hreiðrinu, af börnum, ungling um og jafnvel fullorðnum. Eitt sinn óð drukkinn maður út í sefið og stökkti álftinni á flótta af hreiðrinu. Án þess að fullyrt verði að þetta hafi orð- ið til þess að unginn í egginu dó, þá eru líkurnar til þess mjög miklar. ALLT VAR GERT Skal ekki fjölyrt um þenn- an harmleik álftahjónanna, en vissulega er þetta smánarblett ur á Reykjavík. — Allt var gert til þess að bæta í haginn fyrir hin fallegu álftahjón. Væri óskandi að slíkt endur- taki sig ekki, ef svo skyldi fara að álftin verpi í sefinu næsta vor, en hægt er að bæta tjónið með því að lofa fuglun- um að vera í friði. — • — Bæjaryfirvöldin eiga sann-. arlega þakkir skilið fyrir það sem þau gerðu fyrir álftirnar, til þess að auðga fuglalífið á Reykjavíkurtjörninni, öllum þorra bæjarbúa til ánægju. Veðurfrespiir allar frá Islandi mjög mikilvægar Norrænusn vcöurfræðingafundi lokið HÉR í Reykjavík er lokið fundi norrænna veðurstofuforstjóra, en fundurinn hófst 8. þ. m. og hefur fundurinn látið mörg sameiginleg hagsmunamál veðurþjónustunnar á Norðurlöndum til sín taka, og gert fjölmargar samþykktir þar að lútandi. MIKILVÆGT SAMSTARF í gærdag bauð frú Theresía Ouðmundsson, veðurstofustjóri, hlaðamönnum til kaffidrykkju ásarat hinum norrænu veður- fræðingum. Frú Theresía sagði í stuttri ræðu, sem hún flutti, að samvinna Norðurlandanna á sviði veðurþjónustunnar, væri mjög mikilvægt samstarf. Margir islenzkir veðurfræðingar hefðu hlotið góða menntun á Norður- löndunum og nefndi hún sérstak- lega Sviþjóð. Veðurstofustjórarnir sænsku og norsku og finnsku og starfs- menn dönsku veðurstofunnar, en forstjóri hennar gat ekki mætt sökum veikinda, fluttu stutt ávörp. Lýstu þeir gagnsemi slíkra funda. Hversu veðurstofum á Norðurlöndum væri nauðsyn- legt að fá héðan af íslandi sem gleggstar fregnir af veðrum öll- um og vindum. Farið var mjög lofsamlegum orðum um starf- semi Veðurstofunnar á sviði flug- þjónustunnar. Ræðumenn sögð- ust kveðja landið með skemmti- legar endurminningar um dvöl- ána hér. A ráðstefnunni, sem var hin áítunda, voru alls tekin á dag- skrá 13 veðurfræðileg mál og voru sum þeirra í allmörgum lið- um. ■ w--*- FULLTRÚARNIR Hinir norrænu fulltrúar voru: Frá Danmörku: Eyvind Carlsen, <Jerhardt Crone, Helge Thomsen og Karl Andersen, allir frá Kaupmannahöfn. Frá Finnlandi: Matli Franssilæ í Helsinki. Frá 3íoregi voru; P. Thrane, Osló og ,Th. Hellselborg, veðurstofustjóri, Osló. Frá Svíþjóð: Anders Áng- ström, veðurstofustjóri í Stokk- hólmi og Alf Nyberg í Stokk- hólmi. Auk veðurstofustjóra mættu á fundinum veðurfræðingar veður- stofunnar eftir því sem við varð komið og einnig eftir því um hvaða veðurfræðileg efni var fjalað á fundinum. Einnig tóku þátt í fundunum fulltrúi póst- og símamálastjórnarinnar og frá Rannsóknarráði ríkisins. Flugvéllávarðar- ins 6,40 klst. til Parísar KLUKKAN láust fyrir hálf ellefu í gærmorgun lagði Ismay lávarð- ur framkvæmdastjóri NATO, af stað héðan í flugvél sinni ásamt föruneyti. — Flugvélin var Sky- master af sömu gerð og íslenzku millilandaflugvélarnar. — Flug- umferðarstjórnin á Reykjavíkur- flugvelli tjáði blaðinu í gær, að flugvél lávarðarins hefði lent á Orlyflugvelli í París eftir 6,40 klst. flug héðan. — (hurchiN Framh. af bls. 1 málið í brezka þinginu. Attlee mælti á móti. Sagði hann að þó Bretland og Bandaríkin væru andkommúnisk ríki bæði, yrði þó að gæta hófs í kurteisi við Þjóðverja, því hætta væri á að þeir vígbyggjust á ný og leiddu nýja ógæfu yfir heímitm. Sfór farþegavél lendir í Grímsey Áhöfn „Snæfaxa“ ásamt Grímseyingunum, sem voru með í hringfluginu. — Lengst til vinstri eí| Jóhannes Snorrason, flugstjóri, ásamt móðursystur sinni, sem á heima í Grímsey. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. — Flóðin Framh. af bls. 1 í bænum Deggendorf í Bayem eru 16900 íbúar í mikilli hættu. Hinn 8 m. hái flóðgarður sem skýlir bænum fyrir flóðum í smáánni Bogenbach, er brost- inn og vatnið streymir í gegn- um tvö 30 m breið skörð. Bandaríkjamenn brugðu skjótt til hjálpar og flugu með 10 þús. sandpoka í helikoptervélum frá Núrnberg og er unnið að því að styrkja garðinn. í Passau búa 35 þús. manns. Þar hefur flóðið þegar náð há- marki og er tekið aðeins að réna. Þar náði vatnið er það var hæzt upp á aðra hæð húsa við aðalgötu bæjarins. 2000 íbúar bæjarins sjá þó enn hús ■*? Örn Johnson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, ræðir við Guð- mund Björnsson, ýtustjóra, siem hefur gert völlinn að mestu einn. sín umflotin vatni. En í Austur-Þýzkalandi taka nú flóðin að vaxa um leið og þau munu taka að réna í Austurríki. í Leipsig stígur vatnsborðið stöðugt og er þó 5 metrum hærra en venjulega. Horfir þar til vandræða því áður hafði húsnæðislaust fólk verið flutt til borgarinnar í neyð.. „HJÁLP, BÆRINN OKKAR SEKKUR!“ „Hjálp, bærinn okkar sekk- ur!“ Þannig hljóðaði neyðar- skeyti frá borgarstjóranum í Passau við þýzk-austurrísku landamærin, en þar renna þrjú fljót saman og hafa sett bæ- inn undir vatn. Passau er að nokkrum hluta byggður á sandi, sem árnar hafa borið fram og skilið eftir við ármót- in. Bærinn leit í gær út einna helzt sem sýnishorn af stríðs- rústum, sem hingað og þangað stóðu upp úr endalausum vatnselg. Önnum kafnir her- menn, slökkviliðsmenn og björgunarfólk fóru um með eins miklum hraða og unnt var. Bílstjórarnir voru furðu naskir á að finna göturnar, þó á kafi væru. AUGLYSINGABI sem birtast eiga í Sunnudagsblaðinu þurfa að hafa borizt fyrir kl. 6 á föstudag — Grísneyjarflug Framh. af bls. 1 framkvæmdastjóri ICAO, alþjóða flugmálastofnunarinnar, verk- fræðingar og verkstjórar, sem unnið hafa að flugvallargerðinni svo og fulltrúar flugvallastjóra og Flugfélags íslands. þeginn á níræðisaldri, en sá yngsti sjö ára. Aðeins eina gestanna hafði flogið áður, og var hann gestkomandi úf Reykjavík í Grímsey nit. ] 40% GRÍMSEYINGA BOÐIÐ í HRINGFLUG Koma „Snæfaxa“ til Gríms- eyjar vakti mikla athygli meðal eyjaskeggja, sem fjöl- menntu til að taka á móti flugvélinni. Flugfélagið bauð í hringflug umhverfis Gríms- ey, og tóku þátt í því um 30 manns, eða um 40% allra Grímseyinga. Var elzti far- ÁGÆT FLUGBRAUT Flugvallargerð í Grímsey vaí hafin í september s.l. og hefuí verkið sótzt vel. Flugbrautin, sem er 100 metra löng, reyndi&t með ágætum, enda þótt vinnu við hana sé enn ekki fyllilegaí lokið. Þessi fyrsta flugferð „Snæ- faxa“ til Grímseyjar markan tímamót í samgöngumálum eyja- skeggja, sem löngum hafa átti við mikla erfiðleika að stríða sökum einangrunar eyjarinnar. Börnin að koma úr flugvélinni eftir hringflugið. í dyrum véi- arinnar er Laufey Guðleifsdóttir, flugfreyja, en Þorsteinn Jónsson, flugmaður, stendur við stigann. — Eden og Mendes- France Frh. af bls. 1. utanríkisráðherra — hinn sami og áður. ★ ★ ★ Fundur þremenninganna tókst vel, segja þeir. Dulles skýrði afstöðu Bandaríkjamanna, og það af hverju þeir teldu ástæðulaust að hafa fulltrúa I Genf. Mendes-France kvað það koma Frökkum og mál- stað hinna frjálsu þjóða betuv ef Bandaríkin ættu þar full- trúa. Eden tók í sama streng og skömmu síðar var ákveöið að Bedell Smith færi til Genfar. ★ ★ ★ Dulles er floginn heim á leið. Mendes-France og Eden eru komnir til Genfar. — Lýsti Mendes-France ánægju sinni yfir fundinum og kvað hann árangursrikan. Þakkaði hanrji Eden fyrir innlegg lians á við-[ ræðufundinum. — Reuter-NTB, ......“ """ * a

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.