Morgunblaðið - 04.08.1954, Page 12
12
MORGZ) NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. ágúst 1954
-McCarthy
Pramh. af blð. 1
Hann lét hrekja hana úr stöðu
sinni vegna þess að hún væri
flokksbundinn kommúnisti.
Konunni hefur nú tekizt að
sanna að ásakanir McCarthys
voru fleipur eitt.
5) Hann hefur borið opinberlega
fram ummæli sem voru mjög
ærumeiðandi fyrir hershöfð-
ingjann Ralph Zvicker.
6) í ræðu, sem hann hélt fyrir
nokkru réðist hann heiftar-
lega á Marshall hershöfðingja
og kallaði hann öllum illum
nöfnum án þess að geta sann-
að nokkrar ávirðingar á hann.
7) Hann hefur ólöglega tekið
fram fyrir hendurnar á for-
setanum og gert sjálfur per-
sónulega samninga við gríska
skipaeigendur, sem forsetiiui
einn hafði heimild til að gera.
8) Hann hefur misnotað stöðu
sína sem öldungadeildarþing-
maður í því skyni að styrkja
aðstoðarmenn sína Coiin og
Schine í sessi.
Á þessum forsendum leggja
Þingmennirnir til að öldunga-
deildin víti McCarthy. Verði
það úr, að slíkar vítur séu sam-
þykktar, er hér um svo alvarleg
brot að ræða, að óvíst er hvort
McCarthy yrði eftir það sætt í
deildinni.
- Frúmar |?r|ár...
Framh. af bls. 7
HÚSFYLLIR ALLSTAÐAR
Frú Emilía Jónasdóttir átti tal
við Morgunblaðið í gær og kvað
hún það hafa verið það einasta,
sem á skyggði í þessari för, sem
í alla staði hafi verið hin ánægju-
legasta, að öðru leyti, að fólk
hefði orðið frá að hverfa í stór-
hópum svo mikil var aðsóknin.
Leikflokkurinn reyndi að bæta
úr þessu með því að sýna tvisvar
á þeim stöðum, sem mest var
aðsóknin, en það dugði ekki til.
Rómaði hún mjög móttökur all-
ar og fyrirgreiðslu, og bað blað-
ið að flytja þeim sem hlut áttu
að því máli, innilegustu kveðjur
leikflokksins og þakklæti fyrir
alla aðstoð. Þá bað hún sérstak-
lega fyrir kveðju til bifreiða-
stjórans Gunnars Scheving, sem
hefði af mikilli kostgæfni varð-
veitt þau á ferðalaginu og skilað
þeim heilum í höfn.
SITJA EKKI LENGI
IJM KYRRT
Vegna þess hve þessar sýning-
ar hafa verið vinsælar, hafa
„Frúrnar þrjár og Fúsi“ nú í
hyggju að leggja enn á ný upp
í ferðalag, þegar þau eru búin
að kasta mæðinni eftir norður-
og austurförina. Munu þau þá
leggja leið sína austur fyrir fjall
og allt austur í Skaftafellssýslu.
Þó er það ekki endalega ákveðið
enn sem komið er. Einnig ætla
þau að heimsækja Akranes og
Snæfellsnessbúa. Þá hafa þau
fengið fjölda áskorana utan af
landi um að koma, en óvíst er1
hvort þeim vinnst tími í sumar
til þess að verða við öllum þeim
óskum.
- Aukinn fiskafli
Frh. af bls. 1.
beittir v:gna þessara sjálfsögðu
aðgerða.
YFIRLÝSING
RÁÐHERRANS
Nutting varautanríkisráðherra
stóð upp. Hann sagði að togara-
afli á íslandsmiðum hefði ekki
aukizt vegna friðunaraðgerða ís-
lendinga, heldur stafaði hann af
nýjum og bættum aðferðum við
togveiðar. Vegna nýunga þefði
afli brezkra togara farið stöðugt
vaxandi síðan 1947.
AÐHEFST EKKI NEITT
Ráðherrann sagði að brezka
stjórnin myndi ekkert aðhafast
frekar í málinu. Hún hefði gert
ítrekaðar tilraunir til að ná sam-
komulagi við íslehzku stjórnina.
Það væri álit brezku stjórnar-
innar, að nú væri komið að ís-
lendingum að gera tillögur til
samkomulags.
Skemmfilegir föframenn
sýna iisfir sínar að Jaðri
Er!a Þorsfeinsdóffir syngur þar einnig með
hljómsveif Carls Billich
HINGAÐ til landsins er nýkomin Erla Þorsteinsdóttir frá Sauðár-
króki, hin unga söngkona, sem gat sér góðan orðstýr eftir að
hafa sungið í danska útvarpið fyrir skemmstu. Er hún í fylgd með
dönsku töfrasýningahjónunum Viggo og Tove Spaar, en Viggo
Spaar er, eins og kunnugt er, Norðurlandameistari í töfrum. Fólk
þetta er hér fyrir milligöngu Péturs Péturssonar útvarpsþuls og
kemur fram á skemmtistað templara, Jaðri og var fyrsta
skemmtunin í gærkvöldi.
ÞEGAR GÖGLER-VAGNINN
KOM
Það var með nokkuð einkenni-
legum hætti, sem Erla varð söng-
| kona. Fyrir tveim árum fór hún
> til Kaupmannahafnar í þeim til-
gangi að skoða sig um víðar en
á íslandi og réð sig þá á barra-
heimili. Hún fór þó heim að
Erla Þorsteinsdóttir.
nokkrum tíma liðnum, en lagði
síðan leið sína aftur til Dan-
1 merkur og að þessu sinni réð hún
sig á bóndabæ á Fjóni. Dag
’ nokkurn bar þar að garði hinn
svonefnda Gögler-vagn, en það
eru fulltrúar danskra skemmti-
krafta, sem ferðast um landið til
þess að verða sér úti um nýja
óþekkti skemmtikrafta. Menn
þessir hittu Erlu að máli og
báðu hana að syngja fyrir sig.
Hún varð við ósk þeirra, og hrif-
ust þeir svo af söng hennar að
þeir gerðu henni tilboð um að
syngja í útvarpið. Varð það úr
að hún söng tvisvar sinnum í út-
varpið og var það atriði tekið
upp á segulband og hefur verið
spilað hér í íslenzka ríkisútvarp-
ið, eins og fólk rekur ef til vill
minni til. Hefur Erla fengið mjög
góða dóma bæði í Danmörku og
hér. —
TÖFRAMAÐURINN SPAAR
Töframaðurinn Spaar, er vel
þekktur víða í Evrópu fyrir list-
ir sínar, og er auk þess meistari
á Norðurlöndum í sinni grein.
Hann getur látið logandi sígar-
ettu hverfa inn um annað eyrað
á sér og tekið hana síðan út um
munninn. Þá sýnir hann mikla
leikni með spil. Aðstoðar kona
hans, Tove, hann við suma galdr-
ana, og virðist hún í engu hon-
um ósnjallari. En sjón er sögu
ríkari, og hjónin sýna listir sínar
á Jaðri næstu daga.
GÓÐIR SKEMMTIKRAFTAR
Á Jaðri hafa æfinlega komið
fram mjög góðir skemmtikraftar
og er álit þeirra, sem vit hafa á,
að að þessu sinni hafi valið
heppnazt mjög vel. Mun töfra-
parið og Erla koma víðar fram
ef tök verða á, og aðsókn verður
mikil sem vart þarf að draga í
efa. Þá má bæta því við að Erla
hefur sungið inn á hljómplötu 1
Danmörku hjá þekktu hljóm-
plötufyrirtæki og mun þess
skammt að bíða að þær plötur
komi á markaðinn hér í Reykja-
vík.
Fótksbifreið
■
« Dodge fólksbifreið, model 1948, er til sölu og sýnis í
; dag — Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
S BÍLASALAN
■
■ Klapparstíg 37. Sími 82032.
■ -
. .........................................
- AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI -
Fram blandsmeisf-
arar í útihandknatt-
leik karla
HAFNARFIRÐI — Síðastliðinn
miðvikudag hófst hér í Engidal
íslandsmeistaramót í útihand-
knattleik karla. — Keppt var á
miðvikudag, fimmtudag og laug-
aardag. — Fram urðu íslands-
meistarar, en þeir unnu F. H. í
úrslitaleiknum með 10 mörkum,
gegn 9. — Á miðvikudag urðu
úrslit þau, að F. H. og K. R.
gerðu jafntefli 17:17, Fram vann
Ármann 10:8. Á fimmtudag gerðu
K. R. og Fram jafntefli. 10:10 og
F. H. vann Ármann 10:15. Á
laugardag mættu hvorki K. R. né
Ármann til leiks en Fram vann
F. H. með 10 gegn 9 eins og fyrr
segir. — íþróttabandalag Hafn-
arfjarðar sá um mótið. —G.E.
KAUPMANNAHÖFN, 3. ágúst.
Danska stjórnin hefur nú komizt
að ákveðinni niðurstöðu um her-
skyldutímann. Verður hann ekki
styttur úr 18 mánuðum, heldur
tilhögun hans nokkuð breytt.
Verður herskyldan 16 mánuðir
fyrst og síðar tvisvar sinnum
mánaðartími til að rifja upp
fyrri heræfingar. —NTB.
Framh. af bls. 1
að flytja flóttamanninn í land,
en þá kom skipstjóri fram og
bannaði það. En verkamennirnir
gerðu Scotland Yard aðvart.
AKRANESI, 3. ágúst. — Mánu-
dagskvöldið 2. þ. m. héldu „Frúrn
ar þrjár og Fúsi“ skemmtun að
Logalandi í Reykholtsdal. Var
létt yfir sýningunni. Leikurun-
um var vel tekið. Húsið var troð-
fullt, eða rúmlega 300 manns.
— O.
PÓLITÍSKUR
FLÓTTAMAÐUR
Anton Klimovich hefur nú
beiðst hælis í Bretlandi sem
pólitískur flóttamaður. Er málið
fyrir dómstól í Lundúnum og er
þess vænzt að beiðni hans verði
samþykkt. Pólska stjórnin hefur
sent Bretum harðorð mótmæli
vegna þessa atburðar.
VERZLIIARMAIBB |
Okkur vantar verzlunarmann strax. ;
■
m
Jónsbúð |
Blönduhlíð 2. Sími 6086. ;|
...................
■
FI \T Station
1
■;
Tilboð óskast í nýjan Fiat station 1100 bíl fyrir næst-
■
■
* komandi laugardag merkt: „Fiat 1100“ —217.
*«■■'■■■■■:■■•■■■■■■■■••■■■■■■■■»»•■■■ ■■■■■■■■■•■••■•■■■■■
a •,
I Verzlimarstarf I
5 ■;
■| ■:
Maður óskast til verzlunarstarfa. ■
m' ■'
Umsóknir sendist afgr. blaðsins merkt: „Verzlunar-
i starf,, •—216.
« FLUGFÉLAG ÍSLANDS
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
C___
1) Markús tekur lurk úr bál-
kestinum. Síðan fer han að dansa
villan Indíánadans.
á: u* -BXt r.
2) Eskimóarnir horfa á hann
fullir undrunar. Allt í einu hætt-
ir Markús að dansa og nálgast
viðarköstinn en þögn slær á alla.