Morgunblaðið - 15.08.1954, Síða 5
u.
Sunnudagur 15. ágúst 1954
MORGVNBLAÐ19
Ámi Mapússon
hringjari 70 ára
ÁRNI MAGNÚSSON hringjari
og fyrrverandi kirkjuvörður Frí-
kirkjunnar er sjötugur í dag.
Fæddur að Smiðshúsum í Mið-
neshreppi 15. ágúst 1884. Ólst
upp með móður sinni Kristínu
Guðmundsdóttur. Stundaði öll
yenjuleg störf til sjós og lands.; , ,, ,
Árið 1904 fluttust þau mæðgin tili ,Líu,.u,i
Keykjavíkur og varð Árni brátt
fastamaður í bæjarvinnunni. 1922
íréðist hann ásamt konu sinni
Málfríði Magnúsdóttur í þjónustu
Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hef-
tir hann nú samfleytt í 32 ár
íiringt klukkum hennar til hverr-
lar guðsþjónustu og yfir hverjum
liðnum að kalla, sem þar hefur
yerið kvaddur hinstu kveðj-
unni. Aldrei hefur hann forfall-
aðst frá hringingu til messu öll
þessi ár, þótt um töluverðan tíma
Jhafi hann ekki gengið heill til
Bkógar. Og teljandi munu á fingr-
Um annarrar handar þau skipti,
Bem hann ekki hefur getað hringt
til jarðarfarar. Af slíkri trú-
tnennsku hefur hann sinnt þessu
yerki, enda göfugt starf.
>■ Fyrir rúmu ári lét Árni
jaf kirkjuvarðarstarfinu, en það
.Vonum vér, sem hans samstarfs
lijótum, að sem lengst megi hon-
Úm endast kraftur og aldur til að
láta klukkurnar kalla.
I Mörgum, sem til þekkja, er enn
I fersku minni af hve mikilli alúð
frú Málfríður rækti sitt starf allt
lil æviloka, en hún er nú látin
fyrir nokkru. Þau Árni og Mál-
fríður eignuðust tvo sonu: Krist-
ínn bréfbera, sem kvæntur er
iLovísu Eiríksdóttur og Ágúst, er
fetarfar við efnalaug hér í bæ og
kvæntur er Þorleifu Sigurðar-
Öóttur.
I Hálf einmana hefur Árna
fundizt æfin eftir missi sinnar
ágaetu konu. Hún skildi þarfir
hans og óskir öllum öðrum betur.
En gott er einnig að mega sitja
I skjóli góðra barna. Hafa þeir
feðgar Árni og Kristinn verið
feinkar samrýmdir og mun nú
!Árni fagna þessum merkisdegi á
heimili Kristins og Lovísu, að
.Grundarstíg 8 hér í bæ. Allra
heilla óska ég honum, þakka hans
yinarhug í minn garð og sam-
yinnu alla, sem ég vona að enn
jtnegi haldast langa stund og góða.
j Þ. Bj.
Sverrir Sig
fræðingiir -
o
15. ágúst 1910.-. marz 1954.
IDAG, 15. ágúst, hefði Sverrir
Sigurðsson lyfjafræðingur
orðið 44 ára; en hann lézt þann
1. marz s.l. eftir þunga vanheilsu.
Á bezta aldri hvarf hann frá
fjölþættum störfum og hugðar-
efnum og frá ástríku fjölskyldu-
lífi með góðri konu og ungum
börnum.
Samverkamenn Sverris minn-
ast hins ágæta starfsbróður og fé-
laga með virðingu og þökk og við
sem áttum því láni að fagna að
kynnast honum vel, berum sáran
harm eftir góðan dreng og kæran
vin.
Sverrir Sigurðsson var Reyk-
víkingur að ætt og uppruna, son-
ur þeirra mætu heiðurshjóna,
Sigurðar Þorsteinssonar, sem um
langt skeið var bókari í Ziemsens
verzlun, og Amalíu dóttur Sig-
urðar fangavarðar Jónssonar rit-
stjóra Guðmundssonar. Sverrir
tók stúdentspóf vorið 1929 og
réðst þá til náms hjá I. Sörensen
á Sauðárkróki en lauk
undirbúningsnámi í Laugavegs
Apóteki í Reykjavík. Að loknu
fyrra hluta prófi hélt hann brátt
til Kaupmannahafnar til fram-
haldnáms og lauk þar mjög háu
kandídatsprófi í lyfjafræði haust-
ið 1935. Eftir það var hann starfs-
maður í Laugavegs Apóteki, hjá
Lyfjaverzlun ríkisins og síðast og
lengst í Reykjavíkur Apóteki,
þar sem hann stjórnaði einni
aðaldeild lyfjagerðarinnar.
Hvar sem Sverrir vann og að
hverju sem hann gekk, var hon-
um við brugðið sem afburða
starfsmanni. Engan mann hef ég
þekkt jafn verkhraðan og vand-
virkan í senn.
Skömmu eftir að Sverrir kom
heim frá námi, tókst hann á
hendur kennslu í lyfjabúðum
Reykjavíkur og varð brátt aðal-
kennari í bóklegum greinum til
fyrra hluta prófs; og því starfi
hélt hann meðan sú skipan hélzt,
að lyfjabúðirnar sæu stúdentum
fyrir slíkri fræðslu; enda var
hann frábær kennari, ekki að-
eins um traustan fróðleik og sí-
vakandi áhuga á kennslugreinum
sínum, heldur einnig að einstakri
kennslulagni. Og þeirra kosta
fengu bæði nemendur hans og
samstarfsmenn að njóta. Sérstakt
yndi hafði Sverrir af lífrænni
efnafræði, og þar var þekking
hans orðin furðulega viðtæk.
Það lætur að líkum, að Sverrir
var jafnan mjög önnum kafinn.
Þó komst hann ekki hjá að taka
drjúgan þátt í félagsmálum stétt-
ar sinnar, og lengi átti hann sæti
í stjórn Lyffræðingafélags Is-
lands.
En svo ötullega, sem Sverrir
vann að bættri skipan lyfsölu-
málanna og að velferð stéttar-
innar, þá var hann að sama skapi
frábitinn því að skara eld að
sinni eigin köku. Enda tókst svo
furðulega til, að ekkert þeirra
mörgu lyfsöluleyfa, sem útbýtt
hefur verið á undanförnum árum,
gat lent á hans höndum, endaþótt
ELEKTROLUX
Dómari: Hannes Sigurðsson.
Annað kvöld kl. 8 keppa
Fr&m og Þrótkir
Dómari: Halldór Sigurðsson.
Komið á völlinn og sjáið skemmlilega Ieiki.
Mótanefndin.
Berjatíminn nálgast.
Tryggið yður
ELEIÍTROLUX-
hrærivél með berja-
pressu í tíma.
Einkaumboðsmenn:
X
Hannes
Þorsteinsson & Co.
verðleikar hans væru svo ótví- !
ræðir, að allir vita og viður- ;
kenna, se mtil þekkja, að þar |
stóð Sverrir Sigurðsson flestum ;
framar í ölium greinum og eng- ■
um að baki. \
Þrátt fyrir mikið annríki við ■
skylduverk og trúnaðarstörf gat ;
Sverrir alltaf nokkuð sinnt öðr- ;
um hugðarefnum, enda gætti ;
hann þess að nota ekki tómstund- ;
ir sínar gálauslega. Hann var J..,
mikill unnandi tónlistar og bar
gott skyn á þá hluti. En minnis- ...,
stæðast er mér myndi hans af ;
ljóðum og ást á fögru máli. Hann ■
var málamaður góður og vel að ;
sér í ljóðbókmenntum; en sú bók !
sem hann dáði flestum eða öllum ;
fremur var Egilssaga, bæði vegna ■
málfegurðar og stíls Snorra og ;
vegna kveðskapar Egils, sem ég ■
hygg hann hafi kunnað að mestu. ;
í æsku lagði Sverrir allmikla ;
stund á íþróttir, og á Sauðárkróki :
var hann um skeið íþróttakenn- ;
ari. Einkum lagði hann rækt við \
sund; og einmitt sundíþrótt hans ;
varð honum til mikillar gæfu, :
því þegar hann var á Sauðár- ;
króki auðnaðist honum að bjarga I
mannslífi fyrir sundþjálfun sína, ;
snarræði og karlmennsku. En I
það atvik sýnir mætavel lund- ;
erni hans og mannskjarna. Höfn !
var þá engin á Sauðárkróki, og ;
' lágu skip alllangt frá landi. Ein- ■
j hverju sinni í vonzkuveðri um ;
hávetur var Sverrir á leið frá ■
|skipi með vélbáti, sem flutti ;
: varning. Sjór var mjög úfinn, og •
miðja vegu milli skips og lands !
féll ósyndur maður útbyrðis.
Sverrir beið ekki boðanna, en
stakk sér umsvifalaust fyrir borð.
Honum tókst að ná manninum og I
halda honum á floti unz vélbát- ;
urinn komst þeim til hjálpar við ■
illan leik. Eins og á stóð, var mjög ;
torvelt um björgun í bátinn ■
vegna veðurs og sjólags. Og þeim ;
sem á horfðu, blöskraði hikleysi ;
Sverris, svo hæpið sem það hlaut \
að Ivrðast, að takast mætti að ;
bjarga þeim. En slíkur var Sverr- !
ir. _ ;
Á Sauðárkróki eignaðist Sverr- |
ir marga góða kunningja, enda ;
var hann þar mjög vel látinn af :
öllum, og þeir sem bezt kynnt-
Framh. á bls. 8 **
Keflavík
■
Umsóknir um skólavist í 3. og 4. bekk Gagnfræða- j
skóla Keflavíkur, óskast sendar Fræðsluráði fyrir !
■
i. sept. næstkomandi. I
■
m
m
m'
Fræðsluráð \
Sjátfvirka garðslangan
Ómissandi
fyrir
gróðurhúsið
garðinn
og
grasblettinn.
Enn fremur fyrirliggj-
't andi „fittings" til þess
' að tengja þessar slöng-
ur við venjulegar garðslþngur. — Selt hjá eftirtöldum
verzlunum:’
Málning & Járnvörur, Laugavegi 23. J. Þorláksson &
Norðmann, Bankastræti 11. Járnvöruverzlun Jes Zimsen
h.f., Hafnarstræti 21.
5
1
m
ÚTSALA
á ýmsum vefnaðarvörum og fatnaði hefst á morgun,
mánudag.
Mikill afsláttur, allt að 50%.
Vsrzhisiin Vík
LAUGAVEG 52.
ÍÞBÓTTAVELLINUM
í kvöld kl. 8, heldur íslandsmótið í knatt-
spyrnu áfram.
Valur og KR keppa
Mjög fallegir
amerískir hausthaftar
Flauel-, filt- og rifshattar.
komnir
Nýjasta tízka.
HATTABÚÐIN HULD
Kirkjuhvoli — Sími 3660.
Veliingahús
Óska eflir að taka á leigu eða kaupa veitingahús eða
húsnæði fyrir veitingarekstur í Reykjavík, Hafnarfirði
eða nágrenni. Margt kemur til greina. — Tiilboð sendist
afgr. Morgbl. fyrir 25. ágúst merkt: Veitingahús —403.