Morgunblaðið - 15.08.1954, Side 10
10
MORGVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 15. ágúst 1954'
N I C O L E
Skáldsaga eftir Katherine Gasin
Framhaldssagan 17
Charles tók í handlegg Nicole
og fylgdi henni yfir anddyrið, að
herbergisdyrum, sem voru rétt
við stigann upp á loftið. Hann
sneri snerlinum, og þau fóru inn.
Herbergið var stórt. Og frá
gólfi til lofts voru bókahillur,
fullar bókum. Kona, sem sat við
skrifborðið, leit upp, er dyrnar
voru opnaðar.
„Charles“, sagði hún. „Ég
heyrði þig ekki koma inn“. Bros
hennar breyttist í grettu, þegar
hún sá Nicole. Hún stóð upp og
gekk í áttina til þeirra. Hún gekk
hægt yfir herbergið, og fallegu
bláu augun hennar störðu. Hún
leit af stúlkunni á mann sinn.
„Þetta er ekki barnið hans
Stephens?"
„Jú, Iris“, sagði Charles lágt.
„Þetta er Nicole“.
Nicole fann hvernig bláu aug-
un störðu á sig aftur. Hún vissi
Nýjnng
A næslunni munum vér geta boðið viðskiptavinum
vorum Gasoltæki, sem eru mjö hentug til notkunar á
heimilum, í iðnaði, í skipum og á ferðalögum.
Gasol til heimilisnotkunar er notað til eldunar ljósa og
hitunar.
Gasol er notað í iðnaði, til hitunar, logsuðu á auð-
bræddum málmum og málmblöndum t. d. aluminium,
zinki og blýi. Auk þess er það ákjósanlegt til þess að
skera járn og stál.
Gasol er ákjósanlegt til eldunar í skipum og á ferða-
lögum, sökum þess, að það er hraðavirkt og auðvelt í
meðförum.
Gasol er vöruheiti á gastegundum Butan og Propan,
það er flutt á geymum (0, 45, 6, 11, 19 og 45 kg.) í vökva-
formi og er því mjög auðvelt í flutningi. Hitagildi þess
er hátt, um 12000 Kcal pr. kg.
Öll tæki, sem notuð eru til eldunar, baksturs, ljósa eða
hitunar með Gasol, eru mjög einföld og þar af leiðandi
ódýr.
Tek á móti pöntunum á næstunni og veiti frekari
upplýsingar.
onóóon
& Co,
Sænska frystihúsinu. — Sími 1327,
Reykjavík.
<- I emilíiTO
] 5.n f:*|i------
COltl
IUNBMT
180 litir
4800 litasamstæður.
SPRED SATIN 100% gúmmímálning
Þetta fullkomna litakort gefur yður
tækifæri til að fá þá liti er þér óskið.
SPRED SATIN, þessi undramálning er
svo auðveld í notkun að hver og einn
getur málað úr henni.
Sparið tíma, sparið peninga, málið með Spred Satin.
jyp/mwN
Símar 1496 og 1498.
að Iris var að leita eftir einhverj-
um svip með henni og Stephen |
— hún fann hvernig hún var j
mæld út frá hvirfli til ilja. Og .
Nicole leið alls ekki vel undir
þessu augnaráði.
Iris varð blíðari á svip. „Fyrir- I
gefðu, elskan mín. Ég ætlaði að
segja, hve hjartanlega velkomin
þú ert hér, og hvérsu glöð við
erum að fá þig....“ Hún þagn- 1
aði, en virtist þó ætla að segja
meira. Aftur byrjaði hún að
mæla Nicole út. „En það er
nefnilega það“, hélt hún áfram,
„þú ert svo allt öðru vísi en ég
bjóst við. Þú ert ekkert lík
Stephen. Hann var ljósærður".
„Ég líkist móður minni“, sagði
Nicole, „hún var dökkhærð“.
„Ó....“ Iris varð vandræða-
leg. „Ég hélt nú að Ameríku-
menn væru ljóshærðir, svona
yfirleitt“.
Nicole sagði ekkert. '
Charles rauf þessa óþægilegu
þögn. „Það er hræðilega heitt
hér, Iris. Er þér sama þó að ég [
opni gluggann svolítið meira?“ I
Adams kom inn með teið og
setti það á lágt borð framan við
arininn. Nú skaut upp í huga
Nicoles orðum móður hennar um
nauðsynina á sjálfstrausti, er hún
horfði á Iris hella teinu úr þess-
um þunga silfurpotti og hjálpaði
henni við að rétta bollana um-
hverfis borðið. Þarna gafst
henni kærkomið tækifæri til að
reyna sjálfa sig.
Nicole sat á stólbríkinni. Hún
hélt á fullum tebolla í annari
hendi og í hinni á diski með
brauðsneið. Henni leið óþægi-
lega. Þessi hvössu, bláu augu
Irisar sáu allt — hún talaði og
talaði og spurði og spurði. Te
Nicoles varð kallt. Hún hafði að-
eins soið lítið borð á bollann og
varla snert brauðsneiðina. Hún
spurði ekki ruddalega, en vildi
þó vita allt. Það þótti ekki fínt
að spyrja svona. Spurningar
hennar voru bæði beinar og per-
sónulegar. Nicole leit vonaraug-
um. til Charles, en hann bara
brosti og hallaði sér betur aftur
á bak í stól sínum.
Hann virtist ánægður. Hann
heyrði af spurningum Irisar, að
hún vildi vita allt um stúlkuna,
en var ekki köld í hennar garð.
Hún spurði aldrei spurninga í
því skyni að halda uppi samræð-
um. Hann sá það á öllu, að kona
hans var eins undrandi nú, er
hún mætti Nieole, og hann hafði
verið er hann sá hana fyrst í
Southampton. Hann hafði vonast
eftir að sjá þar smækkaða mynd
af Stephen, en hitti þess í stað
gráeyga, píreyga stúlku, með
silkimjúkt svart hár. Hann leit
á hana aftur, og mundi þá skyndi
lega eftir Madonnu-málverki,
sem hann hafði séð í gamalli
kirkju í Florence fyrir mörgum
árum. Hann rannsakaði andlit
hennar; það var fíngert mjög.
Augnabrúnir og augnhár voru
svört og litfalleg andstaða henn-
ar hvíta hörunds. Honum varð
hugsað til móður hennar. Hvorki
hann né Iris vissu nokkurn hlut
um hana. Lögfræðingarnir gátu
ekki komizt að neinu um Greddu
Rainhard, áður en hún giftist
Stephen. Þei rgátu ekkert krafs-
að upp, rvé fundið nokkra ætt-
ingja hennar, Jafnvel þó Iris
beitti frekju og léti spurningun-
um rigna yfir Nicole, fékk hún
hana ekki til að tala um móður
hennar. Honum datt í hug, hvort
móðir hennar hefði verið Kreóli
j — þá myndi fengin skýring á
hinni dökkú fegurð Nicoles. En
það gat ekki átt sér stað, hugs-
Utsala!
Utsala!
1 ^
/V morgun
byrjar útsala á
Stuttkápum
Mikiið úrval—Verð frá kr. 295
GULLFOSS
AÐALSTRÆTI
Utsala !
Utsala!
A morgun
byrjar útsaia á
drögtum
Mikið úrval — Verð frá kr. 595
Qu 'ttfo
ó ó
Aðalstræti.
íc
w
'tfí
M.
■fe
lí
Mt
%
"m
'fe
á
Fyrirliggjandi á lager:
Spjót, drengja og fullorðinna.
Krocket sett.
Bogar, pílur, skotmörk o. fl. sportvörur.
Guðni Jónsson & Co.
Sænska frystihúsinu.
Sími 1327, Reykjavík.
Lnxveiðimenn
Nokkrir veiðidagar lausir í Hofsá
í Vopnafirði.
Uppl. í síma 4 og 15, Borgarnesi.
eWCÚIflJIN M MOHOf IM
11 § 4