Morgunblaðið - 20.08.1954, Side 2

Morgunblaðið - 20.08.1954, Side 2
MORGUNBLAÐID Föstudagur 20. ágúst 1954 - - r vj , v .. r .v .,.. ; rzrjr-■ -. ■ Frá bæjarstjórnfflriiindi í gær Framh. af bld. 1 ráði er falið að hefja undir- búning að öflun fjármagns til hitaveituframkvæmda. 6. Bæjarstjórn Reykjavíkur skorar á ríkisstjórn og Alþingi að hraða setningu löggjafar um eftirlit með jaroborunum, í því skyni að koma í veg fyrir að hitaveitum sé stefnt í háska með borunum í grennd við þær. STEFNUSKRÁRMÁL SJÁLFSTÆÐISMANNA Borgarstjóri fylgdi tillögunum úr hlaði með ræðu. Tók hann fram að fyrir síðustu bæjarstjórn arkosningar hefðu Sjálfstæðis- menn lýsí stefnu sinni í málefn- um Hiíaveitunnar. Hefði þar ver- ið lögð megináherzla á eftirtalin atriði: í 1. lagi, öflun aukins vatnsmagns, en í því skyni skyldi framkvæma ýtarlega, vísindalega rannsókn á því hvort unnt væri að fá meira vatn en orðið er í bæjarlandinu og nágrenni þess, Og að afla nýrra og stór- virkra tækja til jarðborunar, í öðru lagi að gera áætlun um lögn hitaveitu í öll hús í Reykja- vík og hefja undirbúning að öfl- un fjármagns 1 því skyni og í þriðja lagi með því að bæta nýt- ingu hitaveitunnar með öllum til- tækilegum ráðum. Þær tillögur, sem nú eru lagð- ar fram miða til að koma stefnu- skrá Sjálfstæðismanna í þessum málum í framkvæmd svo fljótt sem frekast auðið er. VÍSINDALEG RANNSÓKN OG LEIT Borgarstjóri kvaðst á s.l. hausti hafa rætt við þá Gunnar Böðv- arsson yfirverkfræðing og dr. Trausta Einarsson prófessor um vísindalega rannsókn og leit að beitu vatni í bæjarlandinu, ná- grenni þess og nærsveitum. í seinni tíð hafa verið gerðar all- víða svonefndar viðnámsmæling- ar, sem gefa til kynna hvar vatns muni helzt að leita í jörðu Und- anfarið he'fur verið borað eftir vatni í Mosfellsdal og náðist góð- ur árangur í fyrstu, en lítið vatns magn hefur fengizt með borun- um þar upp á síðkastið. Er því sýnt, að þörf er nýs átaks í þá átt staðreyna hvort og hvar aukið vatnsmagn er að fá. Niðurstaðan varð sú, sagði borgarstjóri, að ég fól þeim Gunnari Böðvarssyni og Trausta Einarssyni að hefja rannsóknir á möguleikum til vatnsöflunar og gera greinar- gerð um þær athuganir. í þessu sambandi verður m. a. athugað hvort rétt sé að hefja nýjar boranir við Rauðará og í Laugardalnum. Ennfremur hvort rétt sé að leita vatns í Blesugróf, en þar er nokkur jarðhiti og í Vatnsmýrinni upp við Öskjuhlíð, en þar mun hafa komið upp heitt vatn í gullleitinni frægu í byrjun aldarinnar. Þetta eru aðeins dæmi, en margir fleiri staðir koma til greina. Hitaveitan á nú þrjá jarð- bora, sem verið hafa í notkun að staðaldri en nú er lagt til að kaupa enn stórvirkari jarð- bor til þess að árangur komi fyrr í ljós. HEILDARÁÆTLUN UM FJARHITUN HÚSA Annar liður tillaganna fjallar um að heildaráætlun um fjarhit- un liusa í Reykjavík verði lokið vorið 1955, en einstakar fram kvæmdir verði hafnar eftir því sem áætlanir liggja fyrir. í því sambandi kemur margt til greina, eins og bent er á í til- lögunum. Athugað verður um notkun Eimtúrbínustöðvarinnar og hvort hentugt sé að setja upp smærri kyndistöðvar í bænum. Loks er gert ráð fyrir að athug- að verði hvort hentugt sé að nota rafmagn til hitunar í einstökum hverfum. NÝTING HITAVEITUNNAR Borgarstjóri kvað nú 10 ár lið- in frá því hitaveitan tók til starfa og væri því rétt að rannsaka nú einangrun götu- og heimæða og endurbæta þær ef þörf krefði. Ennfremur væri mikið atriði að bæta nýtingu vatns- ins í húsunum sjálfum. Kemur þar til greina bætt einangrun húsanna sjálfra og tvöíaldir gluggar, en talið er að það síðara dragi úr hitaþörf sem nemur 20—25%. Kæmi þá til athugunar hvort hitaveit- an gæti hjálpað mönnum til að gera slíkar breytingar á húsum. Margt annað þarf at- hugunar við í þessu sambandi svo sem endurbætur á hita- kerfi húsa, einkum stærri ofn- ar svo Cig sjálfvirkir hitastill- ar, sem sæju um að stofuhiti færi aldrei upp úr eðlilegu marki og einnig tæki er kæmu í veg fyrir, að vatnið renni of heitt út úr húsunum. STÓRMÁL, SEM SÉRFRÆÐ- INGAR EIGA AÐ FJALLA UM Hitaveitan sjálf og hitaveitu- stjóri hafa unnið að ýmsum áætl- unum og endurbótum á hitaveit- unni. En hér er um svo stórfellt mál að ræða að rétt þykir að bæjarstjórn kjósi nefnd sérfræð- inga, sem hafi umsjón með þess- um rannsóknum og áætlunum, sem um er að ræða. Er því lagt til að kosin verði nefnd 5 verk- fræðinga, en hitaveitustjóri og rafmagnsstjóri verði sjálfkjörnir í nefndina. Það er glöggt að ekki er á færi nema sérfróðra manna að fjalla um þessi mál, enda er hér að öðrum þræði um vísindaleg efni að ræða. FJÁRMAGN OG LÖGGJÖF Loks gera tillögurpar ráð fyrir að borgarstjóra og bæjarráði verði falið að undibúa öflun fjár- magns til hitaveituframkvæmda. Borgarstjóri kvað hafa komið í Ijós að nauðsyn væri á löggjöf 7 ísl. frjálsíþróttamenu keppa á EM i Bern Fara utan um hádegið á morgun. FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND íslands ásamt E.M.-nefndinni hafa nú endanlega ákveðið að senda eftirfarandi menn til keppni á E. M. mótinu: ★ Ásmundur Bjarnason, KR keppir i 100 og 200 m. hl. Guðmundur Vilhjálmsson, ÍR, keppir í 100 m. hl. Hallgrímur Jónsson, Á, keppir í kringlukasti. Skúli Thorarensen, ÍR, keppir í kúluvarpi. Torfi Bryngeirsson, KR, keppir í stangarstökki. j Vilhjálmur Einarsson, UÍA, í þrístökki. Þórðar B. Sigurðsson, KR, keppir í sleggjukasti. u m eftirlif rfiéá ■iarSfcöFuriurn súo hitaveitum verði ekki spillt með borunum í grend við þær og er gert ráð fyrir að bæjarstjórn skori á Alþingi að hraða setningu löggjafar í þessu skyni. UMRÆÐUR Á BÆJARSTJÓRN- ARFUNDI í GÆR Eftir að borgarstjóri hafði lok- ið máli sínu, risu nokrir fulltrú- ar minnihlutaflokkanna úr sæti og lýstu ánægju sinni yfir tillög- unum. Sumir þeirra létu í Ijós, að þeir væru óánægðir yfir að hafa ekki fengið að vita um tillögurn- ar með nokkrum fyrirvara. Borgarstjóri kvaðst hafa ástæðu til að gleðjast yfir undirtektum minniflutaflokkanna. Það væri mikil viðurkenning falin í því, að þessir bæjarfulltrúar væru að barma sér yfir að fá ekki tillög- urnar fyrirfram, því í því lægi, að þær væru efnismiklar og at- hugunarverðar. Hins vegar kæmi slík athugasemd úr hörðustu átt, því að þessir flokkar hefðu aldrei látið meiri hlutann vita fyrir- fram um eina einustu tillögu, sem þeir bera fram, en ætlast til að þær séu afgreiddar þegar á sama fundi. Að öðru leyti voru athuga- semdir minnihluta flokkanna mestmegnis hálgert nöldur. Breytingartillaga kom fram um að leggja skyldi þegar hita- veitu í Hlíðahverfi. Þorbjörn Jó- hannesson tók í þessu sambandi fram, að hann liti svo á, að hita- veita í Hlíðahverfi kæmi til fram- kvæmda samkvæmt 2. lið tillögu Sjálfstæðismanna, þegar áætlan- ir liggi fyrir. Kvað hann áætlun um hitaveitu í Hlíðahverfi liggja fyrir hjá stjórn Hitaveitunnar, og komi hún því til framkvæmda í samræmi við tillögu Sjálfstæðis- manna. Tillaga Sjálfstæðismanna var samþykkt með samhljóða atkvæð um. Tillaga til breytingar fékk ekki nægan stuðning. NEFNDARKOSNING Gengið var til kosningar í nefndina skv. 4. lið tillögu Sjálf- stæðismanna. Þrír listar komu fram. Á lista A var nafn Sigurð- ar Ingimundarsonar, og hlaut sá listi 2 atkvæði. — Á B-lista voru nöfn Valgeirs Björnssonar, Árna Snævarr og Gunnars Böðvarsson- ar, og hlaút sá listi 8 atkvæði og alla mennina kjörna. Á E-lista voru nöfn Sig. Thoroddsen og Ólafs Pálssonar, og hlaut hann 5 atkvæði kommúnista, Framsókn- ar og Þjóðvarnarflokksins og þar með þá 2 menn kjörna, sem á listanum voru. Fé veifl úr framkvæmda- 1 j- [ inaar 50-80 íbúða Tillaga Sjálfstæðismanna í bæjarsijérn. Stolnar upplvsingar. LONDON — Fyrir eigi alllöngu voru tveir enskir blaðamenn í London dæmdir til þungra sekta fyrir að hafa komið með upp- lýsingar um sakamál og slys, sem þeir höfðu á óleyfilegan hátt komist yfir hjá lögreglunni. Skjölin notuðu þeir við greinar- gerðir, er þeir birtu í blaði því, er þeir unnu við. Málið er ein- stætt í sinni röð í Bretlandi. AUGLYSSMGA9! Km birtast eiga f Sunnudagsblaðinu þurfa aS bafa borizt fyrir kl. 6 á föstudag GEIR HALLGRÍMSSON, bæj- arfulltrúi, lagði fram á fundi bæjarstjórnar í gær svohljóðandi tillögu fyrir hönd Sjálfstæðis- manna: „Með tilvísun til ákvörðunar bæjarstjórnar laugardaginn 24. júlí s.l. að leggja kr. 4 milijónir af álögðum útsvörum 1954 í fram- kvæmdasjóð, í því skyni meðal annars að greiða fyrir möguleik- um til byggingar íbúðarhúsa, samþykkir bæjarstjórnin að fela borgarstjóra að undirbúa bygg- ingu 6 samstæðna með 50—80 íbúðum til viðbótar 45 íbúðum í raðhúsum, sem um getur í fund- argerð bæjarráðs 19. ágúst, og 16 íbúðum í Bústaðavegshúsunum, sem hafin er bygging á sam- kvæmt ályktun bæjarstjórnar frá 13. apríl s.l.“ Geir Hallgrímsson tók fram, að rétt væri, að bæjarstjórn gerði nú nánari ákvörðun um hvernig hún ætlaði að verja þeim hluta af því fé, sem lagt hefði verið í framkvæmdasjóð í sumar, og fara ætti til húsbygginga og væri tillagan því komin fram. Kommúnistar komu fram með breytingartillögu, sem fól í sér hækkun á þeirri íbúðatölu, sem byggja skyldi. Geir Hallgrímsson benti á, að kommúnistar hefðu beit.t sér á móti því, að framkvæmdasjóður fengi þær 4 milljónir króna, sem um væri að ræða, og viljað lækka útsvarsupphæðina, sem því nam. Ef þetta hefði náð fram að ganga, hefði ekki verið fé fyrir hendi til að byggja þau hús, sem tillaga Sjálfstæðismanna gerði nú ráð fyrir, hvað þá fleiri. Nú vildu kommúnistar hins vegar hækka íbúðatöluna og væri þar um nýj- an loddaraleik af þeirra hálfu að ræða. Tillaga Sjálfstæðismanna var samþykkt með samhljóða at- kvæðum. BOÐIÐ í BYGGINGU RAÐHÚSANNA Átta aðilar gerðu tilboð um að reisa 45 íbúðir í raðhúsunum. Lægsta tilboð var frá Þorkeli Einarssyni og Stefáni Jakobssynl og var samþykkt að taka því. Nam tilboðið röskum 77 þúsund krónum á hverja íbúð. ---------------- =’ 1 Rannsókn vegna í Laugarásnum Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær kvað Magnús Ástmarsson, bæjarfulltrúi, það hafa kðmið fram í blaði nokkru Alþýðublvð- inu), að einhverjar lóðir eða lóðaréttindi, sem úthlutað hefði verið í Laugarásnum, mundu ganga kaupum og sölum. Hefði einn maður (Guðmundur Hjor.t- arson) verið nafngreindur sem seljandi. Bar Magnús fram til- lögu þess efnis, að rannsókn jmði látin fara fram á því, hvort nokk- uð væri hæft í þessu og þeir þá e. t. v. sviftir réttindum yfir lóð- um, sem uppvísir yrðu að sölu réttinda. Borgarstjóri kvað sjálfsagt, að slík rannsókn færi fram, og var tillagan samþykkt með samhljóða atkvæðum. Enn góSiir ái KRIN GLUKAST AR ARNIR kepptu enn á innanfélagsmóti í gærkveldi. Nú var það Hallgrímur Jóns- son, A, sem vann. KastaSi hann 49,30 m. — Þorsteinn Löve, KR, kastaði 49,15 m. og Friðrik Guð- mundsson, KR 46,41 m. Verðlag nokkurra vorutegynda ISAMBANDI við lausn vinnudeilunnar í desember 1952 lofaði ríkisstjórnin eins og kunnugt er að beita sér fyrir lækkun á verði nokkurra nauðsynjavara. Fer hér á eftir samanburður á verði þessara vara í Reykjavík 1. ágúst s. 1. og verðum, sem lögð voru til grundvallar við lausn vinnudeilunnar í desember 1952: Fyrir lækkun Samkvæmt sam. . Verðlag i í des. 1952 komulagi í des. ágúst 1954 Kartöflur, kg 2.45 1.75 1.60 Kaffi, kg 45.20 40.80 44.00 1952 Mjólk í lausu máli, 1, ... 3.25 2.71 2.70 Strásykur, kg 4.14 3.70 3.02 Saltfiskur, kg 5.60 5.20 5.20 Brennsluolía, 1 0,805 0.765 0.76 Er því verðlag á flestum ofangreindum vörum lægra en í sam- komulaginu 1952, nema kaffiverðið, en ríkisstjórnin telur sig að- eins bundna við þær ráðstafanir, sem gerðar voru í desember 1952 til þess að lækka kaffiverðið, þ. e. niðurfellingu aðflutningsgjalda, en telur sér ekki skylt að sporna ástæðum. við verðhækkun af öðrum Hér á eftir er yfirlit yfir verð nokkurra innfluttra matvara og matvara úr innfluttu korni eins og það var 1. desember 1952 og 1. ágúst 1954: 1. des. 1952 1. ágúst 1954 kr. kr. Rúgmjöl, kg 3.24 2.54 Hveiti, kg 2.74 Hafragrjón, kg 4.01 2.95 i Hrísgrjón, kg 5.71 6.15 ' Rúgbrauð 4.70 4.00 1 Normalbrauð 4.70 4.00 1 Fransbr.auð 2.60 ]

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.