Morgunblaðið - 20.08.1954, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.08.1954, Blaðsíða 11
Föstudagur 20. ágúst 1954 MORGVNBLAÐ1Ð II ' Gunnlaugur Bjaini Bjarnason ÉíiSS. ‘ I — Bn memoriam — Eiiiar Loftsson kennari HÖRMULEGUR atburður gerð- ist á Blikastöðum í Mosfells- sveit fimmtudaginn 12. ágúst. Drengur úr Reykjavík, sem ætl- aði að dveljast þarna sumar- langt, Gunnlaugur Bjarni Bjarna- son, vann þennan dag, eins og hann hafði gert í allt sumar, að skyldustörfum í þágu búsins. Að þessu sinni var unnið að hey- hirðingu. En dauðinn var á næsta leiti. Slys vildi til, og hinn ungi sveinn lézt, áður en sól gekk til viðar að kv"1'15 Gunnlaugur Bjarni er fæddur í Reykjavík 17. nóvember 1941. Hann var þannig tólf ára, er dauða hans bar að höndum. For- eldrar hans eru frú Gunnlaug Vilhjálmsdóttir Briem og Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi. — Hann var yngstur barna þeirra hjóna og einkasonur, en þrjár dætur þeirra lifa bróður sinn. Atvikin höguðu því þannig, að ég hefi fáum börnum betur kynnzt en Bjarna litla, eins og snér var tamast að kalla hann. Hann lá þungt haldinnafsoghósta á fyrsta ári, en um þær mundir dvöídumst við hjónin langdvöl- um á héimili hans. Þróttmikil viðbrögð hans við erfiðum sjúk- dómi líða mér ekki úr minni. Og Bjarni hresstist. Mjög ungur fór hann til sumardvalar í sveit norð- ur í land, að Hellulandi í Aðal- dal. Og þangað hélt hann mörg sumur í röð. A ferðum sínum norður og norðan dvaldist Bjarni litli jafnan á heimili okkar á Akureyri og var mesti aufúsu- gestur. Hann kom ávallt snemma vors, um líkt leyti og lóan, og hélt í sveitina. Og um sömu mundir og lóan kvaddi á haustin, hélt hann heim til föðurtúna. Bjarni litli var sviphreinn, broshýr og greindarlegur dreng- ur. Fallegt bros hans gleymist aldrei þeim, er þekktu hann. Hann var skrafreifur og opin- skár og hafði ávallt næg umræðu- efni á takteinum, því að áhuga- mál hans voru fjölþætt. Hann hafði skemmtilega frásagnar- hæfileika. Hann' var yfirleitt undarlegt sambland af barnslegu barni og kotrosknum fullorðnum manni. Bjarni litli flutti með sér gleði, hvert sem hann fór. Hann hafði fengið í vöggugjöf gott skap, þá dýrmætu guðsgjöf. Ég sá hann aldrei öðruvísi en í góðu skapi. Honum virtist ávallt líða vel, og þessi vellíðan hans var smitandi, svo að öðrum tók að líða vel í návist hans. Hann brosti við til- verunni, og tilveran brosti við honurn. Bjarni litli var framtakssamur og kjarkmikill. Það sá ég í,norð- urferðum hans, að hann lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna, þótt ungur væri. Hann virtist alltaf æðrulaus. Framtakssemi og hugkvæmni gætti í leikum hans. Og dugnaður hans kom í ljós við þau störf, sem honum hafði verið falið að leysa af höndum. Bjarni litli var góðum gáfum gæddur og mikið mannsefni. Hann hafði miklar námsgáfur og tók há próf, þótt hann eyddi ekki ýkjamiklum tíma í námsbóka- lestur. Á því leikur enginn vafi, að hann hefði gengið mennta- veginn, ef honum hefði enzt ald- ur, og allar likur benda til þess, að honum hefði farnazt vel á þeirri braut. Bjarni litli sá mjög vel það, sem skoplegt var í fari náungans. Skemmti ég mér oft vel að frá- sögnum hans af fólki og lýsing- um hans á þvi. Hann fann það, sem feitt var á stykkjunum, og lýsingar hans hittu í mark. En allt var þetta græskulaust. Ég varð aldrei var illkvittni í fari hans. Saga Bjarna litla er harmsaga. Hún er saga um ungan hæfileika- mann, sem aldrei fékk að sýna, hvað í honum bjó. Hún er saga um lítinn dreng, sem naut lífs- ins í ríkara mæli en flestir jafn- aldra hans, en var meinað að gera það lengur. Hún er saga um dreng, sem var yndi og eftirlæti foreldra sinna og annarra ást- vina, en var hrifinn burt af grimmum og miskunnarlausvm örlögum. Saga hans er harmleik- ur lífsins sjálfs. Það má vera, að einhverjir hafi öðlazt svo djúpan skilning á lífinu, að þeir geti sætt sig við atburði sem þennan. Ég skal fús- lega játa, að mér virðist hrikta í því hrófatildri, sem ég kalla lífsskoðun mína. En allt um það er skylt að játa, að Gunnlaugur Bjarni Bjarnason lifði ekki til einskis. Hann naut lífsins, meðan hann lifði, og hann stráði ljósi og yl í kringum sig. Hugljúfum minningum hefir hann sáð í hjörtu allra, sem þekktu hann. I heimi minninganna verður hann ávallt fagur sólskinsblettur. Halldór Halldórsson. I DAG er Ólafur Sigurðsson, 1 stýrimaður á m.s. Kötlu, 60 ára. Hann er fæddur að Núpi í Dýra- firði 20. ágúst 1894, sonur hjón- anna Þórlaugar Jónatansdóttur og Sigurðar Sigurðssonar, sjó- manns. Ólafur byrjaði að stunda sjó 9 ára öðru hvoru og hefur æ síð- an helgað sjómennskunni krafta sína. — Til Reykjavíkur fluttist hann 1917. Lauk prófi úr far- mannadeild Stýrimannaskólans 1915 og gekk í Stýrimannafélag íslands 1945. Hinn 16. desember 1920 kvænt- ist Ólafur Unu Þorsteinsdóttur, ættaðri úr Reykjavík, mestu ágætis konu. Þau eignuðust 5 börn, 3 syni og 2 dætur. Tveir eldri synir þeirra hjóna eru í farmannastétt og bátar dæturn- ar giftar sjómönnum, en yngsti sonurinn er enn við nám. Ég hef aldrei siglt með Ólafi en oft hafa leiðir okkar legið saman og nú síðustu ár, átt mörg sameiginleg áhugamál í sambandi við félagslífið. | Ég vil því fyrir hönd Stýri- mannafélags íslands óska hinum j 60 ára félaga, hjartanléga til hamingju með daginn og árna honum fararheill hvert sem leið- in liggur. Það eru áreiðanlega margir, sem í dag leggja leið sína að Grettisgötu 36 B til þess að flytja afmælisdrengnum heillaóskir. Þá sendi ég fiú Unu og börn- um þeirra hjóna mína beztu kveðju og óska þeim til ham- ingju með daginn. T. G. „í austri rennur signuð sól og sveipar gulli ský — í AUSTRI rís sól morgunsins og boðar nýjan dag. í vestri hnígur hún að dagslokum og nóttin tek- ur. völdin. Yið þessa göngu sól- arinnar frá austrinu til vesturs- ins og þetta skeið dagsins frá. morgninum til kvöldsins — og næturinnar hefur mannsævinni löngum verið líkt. Bernskunni og þroskaskeiðinu er jafnað til morguns og rísandi sólar, starfa- skeiði manndómsáranna til hins hæsta dags, ellinni til kvöldsins og dauðanum til sólarlagsins, þegar nóttin kemur og myrkrið skellur á og hinn látni vinur hverfur okkur sýn eins og fjöllin og grundin og áin hverfur sýn í faðm næturinnar. En — sé dýpra skyggnst og nánar skoðað, þá er dagurinn eilífur. Honum lýkur ekki við sólarlagið í vestri. Hann heldur áfram skeiði sínu hinum megin á hnettinum. Að sólin sezt og deginum lýkur fyrir mannlegri sjón, stafar eingöngu af því, að við sjálf erum staðbundin á jörðinni. Ef við gætum fylgt deg- inum eftir, þá myndum við kom- ast að raun um, að sólarlagið, eins og það kemur okkur fyrir sjónir, er blekking, að dagurinn varir, þótt sól hans sýnist sezt, og heldur göngu sinni áfram — í austur. Kvekara fundur. MOSKVA — Fyrir nokkru fóru rússneskir kveltarar og endur- skírendur til Stokkhólms til þess að halda þar sambandsþing með Svíum og Englendingum, af sömu trúarbragðaflokkum. Héinnrilklæífskerl óskar eftir atvinnu. — Tilboð óskast sent Morgun- blaðinu fyrir 25. þ. m., merkt: „Klæðskeri“ —475. )»• )■ ■ Stærsta og fjölbreytt- g’ asta úrval bæjarins. I \ rfog sl á.V- 'vXvJu'vlr* ji SKERMABUÐIN, Laugavcgi 15, sími 82635. H f í 'o* i. * ‘ Sækir í sama ítorí með matiiin hjá Hamiltonfélagmu KEFLAVÍK, 18 ágúst: — MIKIL óánægja er með matinn í hinu svokallaða „íslenzka" eldhúsi Hamiltonfélagsins á Keflavíkur- flugvelli. Síðan eldhúsinu var skipt á milli íslendinga og Banda ríkjamanna, hefur maturinn ver- ið nær því óboðlegur, nema rétt fyrstu dagana eftir breytinguna. Matarefni allt er slæmt, útlent, illa verkað stórgripakjöt og fisk- urinn ótrúlega slæmur. hvort heldur hann er reyktur, saltur eða frosinn. Matartilbúningur er nær því enginn nema við gufu- suðu. Kartöflur eru oftast óætar vegna skemmda og bragðs. íslenzu matsveinarnir kenna um illri aðstöðu í eldhúsinu og slæmum innkaupum félags þess, á vegum hersins, er rekur þenn- an matsal. Báðir aðilar eiga sök- ina, því íslenzku matsveinarnir eiga ekki að láta hafa sig til þess að framreiða illa tilbúinn og lélegan mat, fyrir landa sína og kalla það „islenzkan" mat. — Nú eru í undirbúningi,. á meðal starfsmanna^á flu^yei.linum, ráð- stafanlr til þcss áð fá’ viðúnandi lagfæringar á hádegismatnum svo og á ioftræstingu og öðru hrein- læjti í mrts^lnum. •<—Helgi S. Þetta kemur mér í hug, þegar ég hugsa um Einar Loftsson nú, er hann hefur lokið göngu síns ævidags hér á jörð, frá morgnin- um til kvöldsins, frá austrinu til vestursins. Hann ferðaðist með opin augu. Hann var hugsandi maður og leitandi sál. Hann var einrænn á vissan hátt, en þráði þó jafnan heitt vináttu, tryggð og skilning annara manna. Al- vörumaður en kunni þó vel að meta gleðina og hnittin svör. Skapstór og þungur á bárunni, ef því var að skipta, en þó hlýr og viðkvæmur. Heiil í starfi og hikaði ekki við að fórna tíma og kröftum fyrir þau mál, sem hon- um voru hjartfólgin. Tryggur ! vinur þeim, sem traust hans unnu. Dulrænn og dulfróður. Og ! fáir munu átt hafa öruggari og 1 sterkari fullvissu en hann um ! það, að dagur lífsins endar ekki j í sólsetrinu í vestri, heldur ligg- I ur leiðin „áfram lengra, ofar | hærra“ — í austur. ! Einar Loftsson var fæddur 5. júní árið 1890 að Vatnsnesi í Grímsnesi. Foreldrar hans voru Loftur Gíslason, bóndi þar og þriðja kona hans, Margrét Tóm- | asdóttir hreppstjóra í Varmahlíð, Sigurðssonar. Einar lauk kennaraprófi í Reykjavík árið 1909, þá aðeins nítján ára gamall og gerðist síð- an barnakennari, fyrst í Fljóts- hlíð austur, síðan í Vestmanna- eyjum, en fluttist þaðan til Austurlands og gerðist barna- kennari i Helgustaðahreppi við Reyðarfjörð, en síðan á Eskifirði. Tójcst hann þar á hendur for- stöðu fríkirkjusafnaðar, er þaf hafði starfað um nokkurt skeið bg jgegndi þar prestsstörfum. — j Sýhir þetta mæta vel'tráúát sáfn- 1 aðárins á hinum tiltölulþga unga S v kennara þorpsins og einnig hitt, á hvaða sviðum hugðarmál hans sjálfs einkum voru. í þessu sam- bandi, er skylt að geta þess, að hér var engan veginn um neinn ; sértrúarsöfnuð að ræða er greindi á við þjóðkirkjuna í trú- arefnum. Árið 1930 mun Einar Loftsson. hafa gerzt kennari við Miðbæjar- barnaskólann í Reykjavík og 1 gegndi því starfi þar til á síðast- 1 liðnu ári. Síðustu árin kenndi. hann nokkurrar vanheilsu en | vann sín störf eigi að síður með þeirri, samvizkusemi og .dugnaði, sem honum var í eðli borið Á | síðastliðnu vori ágerðist van- heilsa hans og lá hann eftir það ' lengst af á sjúkrahúsum. Hann andaðist á Landsspítalanum 13. þessa mánaðar. Og í dag verður lík hans til hinztu hvíldar borið. Einar Loftsson var um langt skeið í stjórn Sálarrannsókna- félags íslands og hefur rnikið ritað um sálræn efni og dulræn. Ég átti því iáni að fagna að kynnast honum og starfa nokkuð með honum bæði í stjórn S.F.R.Í. og öðrum félagsskap, sem honum var eigi síður hjartfólginn — Heilli, áhugasamari, óeigingjarn- ari og starffúsari mann hef ég naumast fyrirfundið um ævina. Mun það og vera mál allra þeirra, sem kynntust honum verulega [ og störfuðu með honum. Þessi fáu orð eru ekki og eiga ekki að vera nein ævisaga. Þar þyrfti lengra mál og ítarlegra. Þau ber að skoða fyrst og fremst sem kveðju til vegfarandans við ferðaiokin og þökk fyrir sam- fylgdina og samstarfið, ekki að- eins mína þökk heldur og þökk hinna mörgu vina hans og starfs- bræðra, bæði nær og fjær. Dagur hans á jörð er liðiiin.'' Dvöl hans á meðal okkar er orð- in að endurminning þess, sem var. Vegir hafa skilizt — um skeið. En hlýhugur okkar og einlæg þökk skal fylgja honum út yfir sólarlagið, þangað sem dagurinn varir og heldur áfram í átt morgunroðans — í austur. S. V. 1980 fliigstarfs- mönnum sagt upp CHICAGO, 17. ágúst: — Banda- ríska flugfélagið „American Air- lines“ hefur rekið 1900 flugfreyj- ur, vélamenn og vallarstarfs- menn úr starfi. Ástæðan til þess er sú, að flugmenn félagsins hafa verið í tveggja vikna verkfalli. Jafnframt þessu hefur félagið gefið 1200 öðrum starfsmönnum sínum tilkynningu um, að þeim verði sagt upp eftir tvær vikur, ef verkfallið leysist ekki innan tíðar. Verkfall flugmannanna stafar af því, að félagið vill að þeir fljúgi meir en átta tíma á dag á ferðum yfir meginland Banda- ríkjanna. — Reuter-NTB. Crépe nælonsokkar fyrir dömur. Verð kr. 97,75 og 105,00. Við seljum -ódýrt. ..MRAÐURINM templarasundi-3 Templara^un-di 3 og Laugavegi 143. BEZT Atí AVGLÝSA í MORGVJSBLAÐim IBIII

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.