Morgunblaðið - 15.09.1954, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.09.1954, Qupperneq 14
r 14 MORGUNBLAÐIB Miðvikudagur 15. sept. 1954 N I <PO L E Skáldsaga eftir Katherine Gasin Framh’aldssagan 42 Hún varð að vera varkár, liugsaði hún. Lloyd var ekki einn ac þeím mönnum, sém hún gat snúið í kringum sig eftir vild. Hann hafði aldrei verið þannig. Hún yrði því að stjaka þeim frá á ákveðinn hátt, Gerrý, Frank og Hichard og Derrick. Ekki strax að vísu — ó nei, ekki strax! Það var enn allt of semmt að hafna útboðum. Það var ennþá eitt ár til stefnu; tólf langir mánuðir. Hún leit á klukkuna. Sjálflýs- andi vísar hennar glóðu fagur- lega í rökkrinu í svefnherbergi hennar. Tuttugu mínútur í fimm. Hún teygði úr sér. Og allt í einu og óafvitandi varð henni hugsað til Gerry. Hann var í París um þessi áramót. Hún hafði komizt að raun um að hann hvarf oft skyndilega um helgar; þegar hann kom aftur yppti hann kæru leysislega öxlum yfir samkvæm- islífi Lundúnaborgar, og brosti ísmeygilega. Hún fór að velta því fyrir sér, af hverju hann var í Englandi yfirleitt. Þegar 'hann var utanlands, gerði hann það, sem hann lysti; þegar hann kom aftur var eins og honum leiddist og hann þyrði ekki að gera það, sem hann langaði til. Önnur lönd gátu veitt honum það frelsi, sem hann vildi hafa .... en samt var hann um kyrrt. Modelkópur til sölu. — Hagstætt verð. Saumum einnig eftir máli kápur og peysufatafrakka, Ný efni. Guðlaug Jóhannesdóttir, dömuklæðskeri. Vonarstræti 12. Sími 80909. c ATVIIM IM A Röskan og ábyggilegan mann vantar til afgreiðslustarfa. Uppl. ekki gefnar í síma. Reykhúsið, Grettisgötu 50 B. OPIIMBERA STOFIMUíSi vantar duglegan sendil frá 1. október. Umsóknir um starfið, auðkenndar: XY —488, óskast sendar afgreiðslu blaðsins fyrir 20. þ. m. — Umsókninni fylgi upplýsingar um heimilisfang foreldra og fyrri sumarstörf. Vélstjórar með rafmagnspróf frá Vélskólanum í Reykjavík, óskast nú þegar á skip í millilandasiglingum. — Uppl. í skrifstofu Vélstjórafélagsins, Fiskhöllinni. \JéLtjórapélacj ^Jólancls Fjögurra herbergja Einbýlishús í Keflavík til sölu. Húsið er tæpir 100 fermetrar. Ahvílandi lán eru kr.: 100 þúsund. Nánari uppl. gefur frá kl. 1,30 e. h. Hörður Ólafsson hdl. Laugaveg 10 — Sími 80332. Vélbátur til sölu Til sölu er 22ja smálesta vélbátur i ágætu lagi með 90 ha. Tuxham-vél. Nánari uppl. gefur Landssamband ísl. útvegsmanna. WMjUUUun^Ji UUMJCJlCUJM.M ■»m»uu R «>«»■>• i 3 I i J Hún hugsaði um Rudolf Gol stein, sem var rekinn úr landi vegna þess að hann vann á móti stjórnarvöldunum. Saknaði hann ættjarðar sinnar? Saknaði hann síns fyrra starfs, vina sinna? Gat England nokkurn tima orðið honum annað og meira en skýli á flóltanum? Gat það nokkurn tíma orðið hans heimili? Það var einkennilegt, að hann skyldi vera þar um kyrrt, eigandi í höggi við öfundssjúka lækna, sem vildu hrekja hann á brott. Hvers vegna gekk hann ekki hinn auðveldari veg og fór til Ameriku? Lloyd hafði sagt að Bandaríkjamenn myndu ekki horfa á aðferðir hans heldur ár- angur hans. Hann var frægur maður. Hann mundi fljótt fá við- urkenningu í Bandaríkjunum. Þetta vissi Golstein að sjálfsögðu. Hvers vegna var hann þá um kyrrt? Hvað var það í Englandi, sem hélt honum þar? Og Lloyd sjálfur. Hann hafði numið í Englandi og notaði sér til hins ítrasta það bezta, sem Englendingar kunnu. Hann hafði náð lengra á styttri tíma, en flestir skólabræðra hans. Hann hafði nú lært allt það, sem hann gat lært í Englandi. Hvers vegna fór hann ekki? Hvers vegna gerði hann ráð fyrir að vera um kyrrt í Englandi í framtíðinni? Hvernig, sem England var þrátt fyrir allt, þá festu menn rætur þar á þann hátt, að þær urðu ekki auðveldlega slitnar upp, þó mönnum væri hugsað til annara landa. Hvað var það við Eng- land, sem fékk menn til að virða að vettugi tilfinningar manna til annara landa? Nicole vissi það ekki og hún bjóst við að fáum væri það ljóst. En þannig var England. 9. kafli. Lloyd stóð vel við sinn hluta samningsins, miklu betur en Nicole hafði þorað að vona. Hann horfði á hana gefa öðrum mönn- um hastarlega undir fótinn. — Hann stóð til hliðar og skemmti sér vel að leik hennar. Hann þótt ist viss um að hann ætti hug hennar, og keppinautarnir ollu honum ekki áhyggjum. Gerry tók eftir þessari skyndi- legu breytingu á samvistum þeirra Lloyds og Nicoles. Hann gat enga skýringu fundið og grunur hans vaknaði. Annað hvort var þessi Lloyd algjört fífl, hugsaði hann, eða þá að hann var slægvitur og kænn. Hann hafði það á tilfinningunni að Loyd gerði gys að sér. Nicole lét ekki hina leynilegu trúlofun sína hafa nokkur still- andi áhrif á sig í samkvæmislíf- inu. Hún hafði gama af Richard og skaphita hans og æstum til- finningum. Sjálfsöryggi 0g mont Frank Merediths var henni til óblandinnar ánægju og henni fannst Gerry ákaflega skemmti- legur félagi, þegar hann vildi svo við hafa. Hún vissi vel, að Gerry hafði marga galla, en hún var ekkert að leita að slíku í fari hans. Lloyd var honum mikil ráðgáta. Hún hafði oft orðið þess vör að Gerry stóð afsíðis og horfði á þau til skiptis. Hún sá að hann hugsaði mjög um það, hvert samband væri á milli hennar og Lloyds Spurull var hann ekki, sem betur fer, hugs- aði hún. Þó var það eitt kvöld, er hann hafði boðið henni til j kvöldverðar að hann spurði fyrir varalaust: „Hvaðan frá Ameríku, ert þú, Nicole?“ IMútímakonan Heildsölubirgðir: V. SIGUROSSOIM & S1MÆBJÖRIMSSOIM H.F. * I dag: Fyrsta sendingin Eftirmihclags- og kvöldkjólar Mikið úrval. GULLFOSS Aðalstræti. gerir meiri kröfur til hreinlætis og jafnframt tómstunda en áður tíðkaðist. Þvottaefnin (hreinlæt- isefnin) mega ekki vera svo sterk, að þau valdi skemmdum á þvotti, húsgögnum og híbýlum. Og þau verða að vera algerlega óskaðleg fyrir hörundið. Engin kona vill fá rauðar, þurrar, harðar og sprungn- ar hendnr við heimilisstörfin. Og sama þvottaefnið verður að vera fjölvirkt. Dagar sápu, sóda og klórs eru senn taldir, og nýju gerfiefnin, t. d. Nylon og Perlon, krefjast nýs þvottaefnis. Og síðast en ekki sízt, nýtízku þvottaefni verður að stytta vinnudaginn. REI eitt fullnægir öllum þessum kröfum nútímakonunnar svo vel, að furðu gegnir. Á aðeins 5 árum hefir REI náð út- breiðslu um heim allan — allt frá íslandi til Argentínu — allt frá Java til Mið-Ameríku. Milljónir húsmæðra, jafnt I hæstu sem Iægstu byggðalögum, jafnt í heit- um, sem köldum löndum, þurrum sem rakasömum, hafa tekið REI fegins hcndi. Í þessu efni hefur hörundslitur húsmóðurinnar engu skipt. REI og Rei-notkunarreglur á ís- lenzku fást í næstu búð. Stór pakki aðeins kr. 6,90. Reynið REI! Notið REI! Svcinádnn verkfrceóinqur cand.polyt. f(ársnesbraut 22 simi 2290 A[t54Ío&thitÆÍJaTuignA ^ó/inakiiauriqaA ÚtbúMlijóiriqoA Raúqjifajvix UÆAj^ÁcÉAinqoA i bqqq

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.