Morgunblaðið - 24.09.1954, Page 2
2
MORGVKBLABIB
Föstudagur 24. sept. 1954
2>etta er rissuppdráttur, sem sýnir í stórum dráttum grunnflatarstærð kirknanna í Skálholti. Hefur
lögun grunnsins orðið Ijós af hleðslum, sem fundizt hafa við uppgröftinn i Skálholti. Grunnur mið-
aldakirknanna er merktur a) og sýnir að þær hafa ásamt klukknastöplinum verið rúmlega 50 metra
langar. Grunnur Brynjólfskirkju er merktur b) og hefur hún verið talsvert minni, var þó stæðilegt
hús. Grunnur hinnar núverandi sóknarkirkju er merktur c). Má marka hvílíkt bákn miðaldakirkjurn-
ar hafa verið af þvi að núverandi sóknarkirkja hefði hæglega komizt inn í suðurálmu hennar.
Uppgröfturinn í Skálholti merk-
asta fornleifarann.sókrL hér á landi
Krisfján Eldjám og Haakon (hristie
ræSa þýðingu hans
FORNLEIFARANNSÓKNUM er nú lokið í Skálholti að þessu
ginni, að því er Kristján Eldjárn fornminjavörður skýrði
fréttamönnum frá í gær. Að vísu er eftir að rannsaka nokkur atriði
nánar og hefur mold verið mokað að nýju yfir nokkurn hluta upp-
graftarins, til að verja hann skemmdum af frosti.
Uppgröfturinn í Skálholti er stærsta einstaka fornleifarannsókn,
sem gerð hefur verið hér á landi. Árangurinn hefur orðið vonum
fremri, bæði hafa mikilvægar upplýsingar fengizt um stærð kirkna
í Skálholti og lögun og þar að auki hafa fundizt ýmsir merkir
forngripir frá ýmsum tímum.
Gestur Fálsson leikari
TJPPHAF ENDURREISNAR
SKÁLHOLTS
Það var Skálholtsfélagið, sem
átti frumkvæðið að þessum forn-
leifarannsóknum. Þær eru upp-
haf að endurreisn Skálholts því
að nýja kirkju er að sjálfsögðu
ekki hægt að reisa þar fyrr en
gamli kirkjugrunnurinn hefur
verið rannsakaður.
NORSKUR FORNLEIFA-
FRÆÐINGUR FENGINN
Af því að þetta var mjög sér-
stætt rannsóknarefni, hér á
landi, forn kirkjugrunnur, sagði
Kristján Eldjárn, snerum við
okkur til norska þjóðminjavarð-
arins, fyrir milligöngu norska
sendiherrans Andersen Ryst og
tilnefndi hann fornleifafræðing-
inn Haakon Christie til að vera
xneð í ráðum.
í fyrstu hafði verið ætlunin að
rannsóknirnar yrðu gerðar í
fyrrasumar, en af því gat ekki
orðið, vegna þess að Christie var
þá búinn að ákveða og undirbúa
rannsóknir á biskupssetrinu í
Kirkjubæ í Færeyjum.
RANNSÓKN KIRKJUBYGG-
INGAR AÐALMARKMIÐ
Rannsóknirnar í Skálholti hafa
etaðið yfir í 3 mánuði og hefur
Christie starfað þar mestan tím-
ann, fór þó um stundarsakir til
Kirkjubæjar í Færeyjum.
Kristján Eldjárn sagði að
xneðal almennings hefði vakið
xnestan áhuga steinkista Páls
biskups. En þó ekki hafi borið
eins mikið á því, þá hefði Áirkju.
byggingin sjálf þó verið sjálft
xnarkmiðið með uppgreftrinum.
Haakon Christie skýrði nokkuð
frá athugunum sínum á kirkju-
jgrunninum. Hann minntist fyrst
á það að undirbúningur allur
tmdir rannsóknirnar hefði verið
írábær. Einkum hefði það verið
aérlega þýðingarmikið að próf.
Magnús Már Lárusson hefði gert
yfirlit yfir allar sögulegar upp-
lýsingar um Skálholtskirkju.
ALLAR KIRK.TUR Á
SAMA GRUNNI
Það gerir rannsóknir að vísu
dálítið erfiðar, að allar kirkjurn-
ar hafa staðið á sama grunni,
þannig að þegar nýjar kirkjur
voru reistar voru rústir fyrri
kirkju að miklu hreinsaðar burt.
GRUNNHLEÐSLUR
GREINILEGAR
Það eru hleðslur í grunninum,
sem eru svo skýrar að þær sýna
okkur svo ekki verður um villzt
stærð kirknanna, bæði Brynjólfs-
kirkju og miðaldakirnanna. Og
þá kemur það einkum í ljós að
miðaldakirkjurnar hafa verið
miklu stærri og veglegri hús en
menn höfðu gert sér grein fyrir.
Ýtarlegar frásagnir eru til af
útliti og stærð Brynjólfskirkju,
t. d. í úttekt kirkjunnar, en
Brynjólfur biskup lét hana í
hendur eftirmanni sínum Þórði
Þorlákssyni.
50 METRA LÖNG KIRKJA
Um stærð eða útlit miðalda-
kirknanna eru frásagnir hinsveg-
ar af skornum skammti. Þess er
að vísu getið á einum stað að
dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal,
sem Jón Pétur Nikulásson byggði
1395 og stóð fram á daga Guð-
brands biskups Þorlákssonar hafi
verið sem svarar 50 metra löng
og á einum stað segir Arngrímur
lærði við lok 16. aldar að Hóla-
kirkja og Skálholts-kirkja séu
jafnstórar. En menn hafa átt
mjög bágt með að trúa því að
svo gífurlega stórar kirkjur hafi
staðið hér á landi.
En nú, segir Haakon Christie,
hafa rannsóknirnar í Skálholti
sannað svo að ekki verður um
villst að kirkjan í Skálholti með
klukknastöpli hefur verið rúm-
lega 50 metrar á lengd.
ÓVÍST UM BYGGINGARSTÍL
Christie sagði að Ijóst væri af
grunninum að miðaldakirkjan í
Skálholti hefði verið fullkomin
„basilika", þ. e. bæði langskip
og þverskip hafa skipzt niður í
aðalskip og hliðarskip. Hinsveg-
ar kvað hann óvíst að hægt væri
að draga af lögun grunnsins
ályktanir um stíl kirkjunnar. Til
þess þyrfti minnsta kosti ýtar-
legar rannsóknir og samanburð
við aðrar kirkjur erlendis.
Á árinu hafði hjúkrunarkona
nefndarinnar eftirlit með 129
heimilum í bænum. — Þá hafði
barnaverndarnefnd eftirlit með
fjölda heimila annarra vegna ó-
knytta barna og unglinga, og
enn önnur heimili hefur nefndin
aðstoðað á ýmsan hátt. — Ástæð-
urnar til heimiliseftirlitsins eru
í flestum tilfellum vegna drykkju
skapar á 28 heimilum, vegna
veikinda á 25 og fátæktar á 23.
ÆTTLEIÐINGAR
Nefndin mælti með 31 ættleið-
ingu, og hafa mæðurnar í flest-
um tilfellum valið börnum sín-
um heimili með það fyrir augum,
að framtíð þeirra væri betur
borgið en ef þær önnuðust sjálfar
uppeldi þeirra.
AÐALAFBROTIN HNUPL
OG ÞJÓFNAÐIR
í töflu yfir misferli barnanna
og unglinganna, sem nefndin
hefur haft afskipti af, er þess
getið að 193 börn á aldrinum
6—18 ára hafa orðið völd að 492
afbrotum og er mest áberandi
hnupl og þjófnaður, alls 189. —
Þar hefur nefndin haft afskipti
af tveim 6 ára drengjum og tveim
sjö ára stúlkubörnum, en lang-
samlega flesta þjófnaðina fremja
12 ára drengir, 29. Alls hafa börn
orðið völd að 80 innbrotsþjófn-
uðum á árinu. Þá frömdu dreng-
ir 78 skemmdarverk og spellvirki
og vegna ölvunar pilta og stúlkna
frá 14 ára aldri kom til kasta
nefndarinnar vegna 33 pilta og
13 stúlkna. 1
ÞAÐ var veturinn 1921—22 í
Menntaskólanum, að uppi voru
raddir um það, að sýna bæri sjón-
leik og taka upp gamlan skóla-
sið, sem hafði verið afræktur þá
nokkur ár í röð. Næst þessu var
að svipast um eftir leikendum.
Verkefnið lá nokkurn veginn
beint fyrir, Holberg var sjálf-
kjörinn.
Þá var í fimmta bekk skólans
piltur úr Hr:sey, hafði leikið
Skrifta-Ilans eða eitthvað annað j
hlutverk í heimahögum og var
bróðir söngvaráns góðkunna,
Hreins Pálssonar. Hvort tveggja
þóttu meðmæli, og er ekki að
orðlengja um það, Gestur Páls-
son var ráðinn til þess að leika
aðalhlutverkið í Holbergs-leikn-
um.
Upp frá þessu gekk Gestur
Pálsson leiklistinni á hönd. Strax
á næstu árum eftir stúdentspróf,
meðan hann stundaði nám í Há-
skólanum, voru honum falin hlut
verk ungra manna hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, vandasöm og vand-
meðfarin, mörg hver, svo sem í
Þjófnum eftir Bernstein, Á út-
leið eftir Sutton Vane og Candidu
eftir Bernard Shaw. Alþingis-
hátíðarsumarið vann Gestur svo
það afrek að leika sjálfan Fjalla-
Eyvind til jafns við og eftir einn
vinsælasta leikara hér, Ágúst
Kvaran, sem lék fyrri sýningarn-
ar, en Gestur hinar síðari, báðir
Þá segir frá því að 1503 börn
og unglingar hafi á árinu 1953
dvalizt á barnaheimilum, sem
rekin eru af því opinbera eða fé-
lögum, t.d. borgir Sumargjafar.
LOKAORÐ
í lokaorðum skýrslu nefndar-
innar segir svo m a.:
Nefndin hefur haft milligöngu
um útvegun dvalarstaða fyrir
álíka mörg börn og árið 1952.
Aðstaða nefndarinnar til þess
að vista afvegaleidda pilta hefur
stórum batnað við stofnun vist-
heimilis í Breiðuvík. Hins vegar
stendur nefndin ráðalaus gagn-
vart unglingsstúlkum, sem lent
hafa á glapstigum og getur lítið
liðsinnt þeim foreldrum, sem að-
stoðar hennar leita af þeim sök-
um.
VISTHEIMILI FYRIR
STÚLKUR
Er nefndinni mikið kappsmál,
að stofnsett verði vistheimili
fyrir afvegaleiddar stúlkur og
mundi nefndin telja æskilegt, að
slíku heimili yrði valinn staður
í einhverjum þeirra héraðsskóla
eða kvennaskóla landsins, sem
lítt eru sóttirA)g því mætti leggja
niður. Nefndinni er kunnugt um
nokkurn hóp unglingsstúlkna,
sem nauðsynlega þyrfti að kom-
ast á slíkt uppeldisheimili.
ÆTTLEIÐINGUM FJÖLGAR
Ættleiðingum fer sífellt fjölg-
andi og má um það deila, hversu
Framh. á bls. 7
i
J
á móti Höllu Önnu Borg. Þessl
sýning verður á vegamótum lista-
ferils Gests Pálssonar. Hún bend-
ir fram á leið til þeirra hlutverka,
sem hann skapaði síðar í íslenzk-
um leikritum og hún lagði grunn-
inn að Kára-hlutverkinu eins og
hann túlkaði það síðar hjá Leik-
félaginu 1940 með Soffíu Guð-
laugsdóttur í hlutverki Höllu. En
jafnframt er það, að hugboði
minu, að upp frá 1930 hafi leik-
listin tekið Gest æ sterkari tök-
um. Næstu árin syngur hann og
leikur — söngmaður hinn bezti
var Gestur á námsárunum og
syngur enn — hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, í revyum og í óper-
ettum Tónlistarfélagsins.
Gestur Pálsson hefur stundunfl
átt erfitt með að sýnast á leik-
sviði, að vera hefur honum verið
ljúfara. Við þarna á áhorfenda-
bekkjunum höfum þess vegnfl
stundum verið ósáttir við leikar-
ann — aldrei manninn — höfunfl
átt eins og erfitt með að taka
Tschöll gamla í Meyjarskemm*
unni í sátt, en á hinn bóginn höí-
um við þegið þakksamlega kunn-
ingsskap þjónsins í EftirlitS-
manninum eftir Gogol og lækn-
isins í Uppstigningu eftir NordaL
í slíkum hlutverkum var leikar-
inn allur og ég held, að Gesti
þyki sjálfum vænt um þessa
„karla“ — eins og okkur.
Auðvitað var, að Gestur Páls-
son gegndi trúnaðarstörfum |
hópi félaga sinna í L. R. Hann
átti sæti í stjórn félagsins og vaí
formaður þess um skeið, m. a. I
hinni eftirminnilegu leikför til
Finnlands, þegar Gullna hliðið
var sýnt af Leikfélagi Reykjavík-
ur í Svenska Teatern í Helsing-
fors. Það leiddi og af sjálfu sér,
þegar Þjóðleikhúsið var stofnað,
að Gestur Pálsson yrði þar í tölU
fastra leikenda Á hinu nýja leik-
sviði hans hefur hann heldur ekkí
brugðist vonum. Hann hefur lyft
hinum þyngstu hlutverkum og
einatt reynzt hinn bezti starfS-
maður. Á meðal síðustu hlut-
verka hans má minna á Valtý S
grænni treyju og þó einkuid
Hjalmar Ekdal í Villiönd IbsenS.
Gestur Pálsson á fimmtugsaí-
mæli í dag. Það er að vonum, að
vinir hans í sal og á leiksviði
hylli hann fimmtugan og óski
honum langra lífdaga með frjórrf
listsköpun. M
L. S. :
WASHINGTON, 22. sept. — Ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkj ann3
tilkynnti í dag, að forseti Líberíu,
William V. S. Tubman, væri vænt
anlegur í heimsókn til Banda-
ríkjanna.
Forsetinn fer flugleiðis til
Washington 18. okt. n.k. og muö
dvelja þar í þrjá daga. Síðan
mun hann leggja upp í þriggja
vikna ferðalag um Bandaríkin.
Mun hann sækja heim flestaT
stærstu borgir Bandaríkjanna og
halda síðan til Haiti.
Einnig mun forsetinn skoða
ýmsar helztu menntastofnanill
Bandaríkjanna.
Aíbrotura barna í Reykja-
vík fjölgaði ekld 1953
Vistheimili fyrir stúlkur í ein-
hverjum héraðsskóla aðkallandi
Úr skýrslu Barnaverndarnefndar Rvikur
BARNAVERNDARNEFND Reykjavíkur tók fyrir á árinu 1953,
alls 395 mál barna og unglinga. Og á því ári þurfti nefndin
að taka fram fyrir hendur aðstandenda 227 barna og koma þeim
fyrir á barnaheimilum eða einkaheimilum í bæ eða sveitum. Frá
þessu er skýrt í skýrslu nefndarinnar, sem blaðinu barst í gær.