Morgunblaðið - 24.09.1954, Síða 14

Morgunblaðið - 24.09.1954, Síða 14
14 MORGVNBLAÐIB Föstudagur 24. sept. 1954 ] N I C O L E Skdldsago eftir Katherine Gasin Framh'aldssagan 49 sem móðir hennar fékk ekki. Hún gæti sýnt Roger í tvo heim- ana — gert honum ljóst, að það voru aðrir í veröldinni en hann, að það væru fleiri sem fyndu til; hún gat klófest Lynmarra að honum ásjáandi. Hún efaðist ekki um getu sína. Ef hún vildi verða drottning á Lynmarra,' þá gat Dav-id veitt henni það. Það var ekkert sem Roger gat gert til að hindra það — ekkert nema að segja David alla söguna, og það mundi engin áhrif hafa. Þessi hugmynd heillaði. Hversu kitl- andi var það ekki að sjá í anda vini og kunningja Rogers óska honum til hamingju með kvon- íang sonar hans. Og greifaynj- an.... Hún vildi ekki einu sinni taka það með í áætlanir sínar, að hún hafði aðeins einu sinni hitt David. Henni fannst það engu máli skipta. Hann var ungur; og hann myndi verða' ástfanginn. Hvers vegna ekki einmitt nú? Og hví gat það ekki orðið hún, sem hann valdi sér? Ást Davids yrði sterkt vopn í baráttunni við Roger. Hann yrði hjálparvana í þeirri baráttu. Að sjá hann sigr- aðan myndi veita henni alla þá ánægju í lífinu, sem hún þessa stundina gat hugsað sér — allt nema Lloyd. Hún andvarpaði er hún hugs- aði til hans. Hann var ekki hægt að sniðganga. Hún elskaði hann og hún vildi eiga hann fyrir mann, og henni fannst það óhugn anlegt, hvernig henni gat dottiö í hug að snúa baki við honum. Antoine hafði að vísu sagt að ást væri ekki til. Hafði hann kannski rétt fyrir sár. Hann hafði sagt að ást væri aðeins ímyndun, sem skyldi ekkert eftir nema leiðindi og sorg. Antoine trúði þessu statt og stöðugt, og fyrir það hafði hún > í 5 c c ■ c Tilkymting frú Ferstiklu Veitingahúsinu að Ferstiklu verður lokað í dag, föstud. 24. sept. — Um leið og við tilkynnum viðskiptavinum þetta, viljum við þakka öllum gestum vorum fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnu sumri. FERSTIKLA H. F., Hvalfirði. i*» Matráðskona Óskast. — Góð íbúð. Gott kaup. — Uppl. merktar: „Gott eldhús — 692“, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir mánudags- Ifvöld. Sendisveinn óskast nú þegar eða 1. okt. S. Árnason & Co., Hafnarstræti 5. I B IJ Ð ■ - - * ■ ib ! 2 til 3 herbergi og eldhús, helzt á hitaveitusvæði, óskast ■ til kaups. Andvirðið greitt að fullu. Tilboð merkt: „GÓÐ ; ÍBÚГ —675, sendist afgreiðslu Morgbl. fyrir 27. þ. m. Tónlistarskólinn \ i verður settur 5. október. ■ ■ Umsóknir um skólavist sendist sem allra fyrst í Tón- ■ S listarskólann, Laufásvegi 7. naai Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbirtingarblaði á eignarhluta Guðlaugs Guðmundssonar (%) í V.B. Haraldi A. K. 100, með tilheyrandi, fer fram á skrifstofu bæjarfógetans í Hafnarfirði, laugardaginn 25. þ. m. kl. 10 f. h. Bæjarfógetinn. sagt að hann væri vitskertur. En gat hún gert samning við Lloyd um eins árs bið, ef hún í raun og veru elskaði hann? Gat henni ’ dottið það í hug að snúa baki við 1 honum, ef ástin var þetta bind- andi, sterka afl, sem sumir sögðu að hún væri? Antoine .... hafði hann rétt fyrir sér? Og sama sagði Charles, þó hann væri ekki eins róttækur og Antoine. Þeir voru ólíkir menn — bæði í orðum og athöfnum. Æfisögur þeirra voru ólíkar. Samt voru þeir sammála um j þetta atriði, sem var henni svo l mikilvægt. Hún varð að ákveða j það nú, hvort hún giftist Lloyd og yrði svo óánægð og kvíðafull alla sína æfi, eða þá að hún gift- ist David og sneri baki við Lloyd. Þetta voru krossgötur í lífi henn- ar. Vafalaust myndi hún mæta erfiðleikum hvora götuna sem hún færi — en hún varð að velja. Hún var ekki hrædd við sjálfa ákvörðunina, eftir að hún hefði ákveðið sig — en vafinn um það hvora leiðina hún ætti að velja ásótti hana. Hún hafði áður tekið ákvarðanir — t. d. þegar hún ákvað að fara til Englands og þegar hún ákvað að verða ekki píanisti. Þær höfðu verið erfiðar þessar ákvarðanir — en hún hafði haldið við þær. Og hvað sem ofan á yrði, þá mundi hún standa við ákvörðun sína, Það var ekkert um það að ræða, að snúa til baka. En hvorn kostinn átti hún að velja? Mundi Lloyd vega upp á móti Ashleighf j ölskyldunni og hvað um Antoine og Charles, sem sögðu að ánægja í lífinu væri þýðingarmeiri heldur en ást? Hvort var réttara? Hvorn kostinn átti hún að velja ....?; hvorn....? | Hún gat ekki lengur haldið augunum opnum og sofnaði út frá þessum hugrenningum. ÞRIÐJI HLUTI 1. kafli. Skömmu eftir hádegið daginn eftir bárust Nicole blóm frá David. Iris kom með þau upp til hennar. Hún hafði orðið það undr andi yfir stærð blómvandarins, að hún vildi þegar í stað fá að vita, hver hefði sent vöndinn. Nicole var að klæða sig. Gerry hafði boðið henni út til hádegis- verðar. „Blóm til þín“, sagði hún um leið og hún kom inn í herbergið. Nicole tók upp kortið sem blómunum fylgdi. Iris gægðist yfir öxl hennar. „Lanford greifi: Hvenær kynntist þú honum? Og hvar?“ „í gærkvöldi í samkvæminu hjá Lady Graddons". „Hver kynnti ykkur? Lady Graddon?“ „Nei, Lloyd gerði það.“ Iris var forviða á svip. „Ég hef aldrei getað skilið, hvernig þessi Ameríkumaður þekkir svo margt fólk — og það allt bezta fólkið.“ Hún horfði á blómin og bætti síðan við. „Er allt Ashleigh- fólkið í borginni núna?“ „Nei, aðeins David. Hitt er farið heim.“ „Dönsuðuð þið mikið saman?“ „Þrisvar.“ „Ó!“ sagði Iris og lifnaði við. „Ef greifaynjan hefði verið í borginni, þá hefði ég boðið henni hingað. Það var leiðinlegt,/að hún skyldi vera farin.“ Nicole sneri sér við og tók um axlir frænku sinnár. „íris, er það kannski skoðun þín að Lanford greifi sé einn af þessum úrvals- möniium í borginni, sem æskilegt væri að ég klófesti?“ Hvor tvíburinn notar TONI og hvor notar dýra hárliðuö?* Þér hafið dvallt efni d að kaupa Toni jieffar jér jarjniót LárliL Xnginn er fær um að sjá mismuninn á dýrri hárlið- un Og Toni. Með Toni getið þér sjálfar liðað hár yðar heima hjá yður og Toni er kvo ódýrt &ð þér getið ávalt veitt yður það þegar þér þarfnist hAi liðupar. — Toni gefur hárinu fallegan blæ og gerir hárið sem sjálf- unar liðað, Tont má nota vi8 hvaða há? sem er og ei mjög auðvelt í notkun. — Þess vegn* nota fleiri TonJ en nokkurt annað perma- nent. * Josephine Milton, sú til vinstri notar Toni. HárllSnnarrekvl kr. 23,99 Spólur ..........— 32,2® Gerið hdrið sem sjdlfliðað H E K L A H. F., Austurstræti 14 — Sími 1687 í dag: Ný sending enskir kjólar úr ullar- og tweed efnum. — Hentugur eftirmiðdags- og vinnuklæðnaður GULLFOSS AÐALSTRÆTI »1 Sendisveinn óskast Garðar Gislason h.f. Hverfisgötu 4. po J Haust hattar v Mjög glæsilegt úrval MARKAÐURINN Laugavegi 100 «11 ■ ■ » . » . » ■■■■■■■■■ »■«»«■ ■ ■■■■■ ■»■■■ »*»»J>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.